Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 37

Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 37
málum, þeir vilja vernda svæðið og þykir vænt um þessa ósnortnu nátt- úruperlu. Þetta er algerlega stór- kostlegt svæði, við erum t.d. með eld- vörpin, gígaröð sem er líklega einstök í heiminum,“ segir Anna. Hún segir brýnt að bæjar- stjórnir á svæðinu komi að því að ákveða hvernig haga eigi aðgengi að ferðamannastöðum á svæðinu. „Ég held að það sé skynsamlegra að vernda með því að auka aðgengi með vöktun og með því að gera fallega göngustíga og fallega staði þar sem fólk getur látið fara vel um sig.“ Anna segist vonast til þess að áhersla verði á menningarmál í kosn- ingabaráttunni sem nú fer í hönd. „Það er mannréttindamál að sem flestir hafi aðgengi að menningu í sínu nærumhverfi, ekki síst börn. Það að fara t.d. á sýningar í sínu bæjar- félagi sé hluti af daglegu lífi. Þannig verður mannlífið svo miklu ríkara og við megum ekki gleyma því að skap- andi hugsun og list er að finna með einhverjum hætti alls staðar í sam- félaginu.“ Steinar Smári Guðbergsson, meindýraeyðir sem búsettur er í Vog- um, segir að uppgangurinn á svæðinu undanfarin ár hafi gjörbreytt áherslum sveitarstjórna í sveit- arfélögunum á Suðurnesjum. Sveit- arfélögin á svæðinu hafi getað greitt niður hluta skulda sinna, fyrirtækjum hafi fjölgað í Vogum, atvinnu- möguleikar séu fjölbreyttari en áður og talsverðar framkvæmdir standi fyrir dyrum í bænum. Eitt af því sem Steinari er hugleikið er hafnarsvæðið í Vogum sem hann segir ekki sam- boðið þessu sjávarþorpi. „Það þyrfti að taka það í gegn. Bryggjan er að grotna niður,“ segir hann. „Það kæmi mér ekki á óvart að það yrði eitt af helstu kosningamálunum hér í bæn- um. Svæðið hefur verið látið drabbast niður í líklega 20 ár eða svo.“ Huga þarf betur að öldruðum Annað, sem Steinar myndi gjarnan vilja sjá sem áherslumál í kosningunum, eru málefni aldraðra. „Hér er ekkert hjúkrunarheimili og þegar fólk verður ósjálfbjarga er það flutt hreppaflutningum í annað sveit- arfélag. Þetta fólk á annað og betra skilið,“ segir Steinar. „Við stöndum okkur mjög vel í leikskóla- og skóla- málunum fyrir börnin, við leggjum áherslu á atvinnumálin fyrir fólkið á vinnumarkaði, en þegar kemur að því að verða gamall, þá er eins og þú sért fyrir og best að koma þér eitthvað annað í staðinn fyrir að geta átt ánægjulegt ævikvöld í eigin um- hverfi. En þetta er ekkert einsdæmi hér í Vogum, því miður er staðan svona víða um landið.“ Annað málefni sem Steinari finnst að leggja mætti áherslu á í komandi kosningum er heilbrigðis- þjónusta á svæðinu. „Núna kemur hingað læknir einu sinni í viku, við vorum með heilsugæslustöð, en henni var lokað fyrir nokkrum árum. Núna er íbúum að fjölga og það verð- ur áhugavert að sjá hvort hún verður opnuð aftur,“ segir Steinar. Anna Sigríður Sigurjónsdóttir Margir hér á svæðinu brenna fyrir umhverfismálum, þeir vilja vernda svæðið og þykir vænt um þessa ósnortnu náttúruperlu. Þetta er stórkostlegt svæði.“ Berglind Kristinsdóttir „Fólksfjölgunin og það sem henni fylgir verður stærsta áskorunin sem mun mæta nýjum meiri- hlutum eftir kosningarnar í sveitarfélögunum á Suðurnesjum.“ Jóhann Páll Kristjánsson „Fjölfarnasti vegur landsins, Reykjanesbraut, ligg- ur í gegnum sveitarfélagið mitt, honum er ekki sinnt og það er bæjarstjórnarinnar að þrýsta á rík- isvaldið að halda honum við.“ Steinar Smári „Hér er ekkert hjúkrunarheimili og þegar fólk verður ósjálfbjarga er það flutt hreppaflutningum í annað sveitarfélag. Þetta fólk á annað og betra skilið.“ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018 Á Suðurnesjum eru núna fimm sveitarfélög, sem reyndar verða að fjórum eftir kosningarnar þeg- ar Sandgerði og Garður samein- ast, en það var samþykkt í íbúa- kosningu í nóvember síðast- liðnum. 15.305 manns eru á kjörskrá á Suðurnesjunum og samtals eru 34 bæjarfulltrúar í þessum fjórum sveitarfélögum; sjö í Grindavík og Vogum, 11 í Reykjanesbæ og níu í sameinuðu sveitarfélagi Garðs og Sandgerðis. Ef fjölda fólks á kjörskrá er deilt í fjölda bæjarfulltrúa sést að afar mismunandi er eftir sveitar- félögunum hversu mörg atkvæði eru á bak við hvern fulltrúa. Þannig væru 115 atkvæði á bak við hvern bæjarfulltrúa í Vogum, 235 atkvæði í sameinuðu sveitar- félagi Garðs og Sandgerðis, 284 atkvæði í Garði og 945 í Reykja- nesbæ. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Sandgerði Bærinn mun sameinast Garði eftir kosningarnar 26. maí. Fimm sveitarfélög verða að fjórum  Næst verður komið við á Suður- landi og fjallað um það sem þar er efst á baugi fyrir sveitarstjórnar- kosningarnar í maí. Á laugardaginn Íbúar í sveitarfélögunum á Suðurnesjum eru samtals 25.770. Stærsta sveitarfélagið er Reykjanesbær, þar sem 17.805 búa. Fæstir íbúar eru í Vogum, 1.268. Í kosningunum 26. maí munu 34 fulltrúar taka sæti í bæjarstjórnum á Suðurnesjum. ið. „Ég myndi líka vilja það,“ sagði Arndís og Þórbergur sagðist líka vel geta hugsað sér að stjórna bænum. „Ef ég væri bæjarstjóri myndi ég segja öllum að það mætti bara hlaupa í bænum,“ sagði Þór- bergur. „Það myndi enginn labba, enginn keyra, enginn vera á hjóli – bara hlaupa.“ Spurður um hvað felist í starfi bæjarstjóra stóð ekki á svörum hjá Þórbergi: „Hann ræður bænum.“ Viktor sagðist ekki hafa áhuga á að gegna stöðu bæj- arstjóra en gæti aftur á móti vel hugsað sér að verða fótboltamað- ur. Er ekki hægt að verða bæði bæjarstjóri og fótboltamaður? spurði fávís blaðamaður. „Nehei!“ var svarið. Arndís, Bergrún og Þórberg- ur voru sammála um að Sandgerði væri góður bær, líklega sá besti í heimi en Viktor taldi að ekki væri síðra að búa annars staðar: „Það er miklu betra að búa í Argentínu. Og í Portúgal.“ Spurður um hvað hann teldi betra þar en í heima- bænum nefndi hann veðurfarið. „Þar er alltaf sól,“ sagði Viktor. En ræður bæjarstjórinn því? spurði blaðamaður. Eftir nokkurn umhugsunarfrest og umræður var hópurinn sammála um að kjörnir fulltrúar hefðu lítið vald yfir veðri og vindum. Talið barst síðan að öðrum verkefnum bæjarstjóra og bæjar- stjórnar og nokkrar umræður spunnust um hvort valdsvið bæjar- stjóra næði yfir óþekk börn. „Bæj- arstjóri má ekki skamma krakka,“ fullyrti Þórbergur og hópurinn tók undir það fullum hálsi. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Á leikskóla Krakkarnir á leikskólanum Sólborg í Sandgerði hafa ýmislegt til málanna að leggja í umræðunni um sveitarstjórnarkosningarnar. Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Nú einnig netapótek: Appotek.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.