Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 54

Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 54
skreytta túlípönum, úr endurunnu silfri, glæsilega satínsandala úr end- urunnu pólýester, fallegar, mynstr- aðar slæður úr tencel-blöndu og netta handtösku með skreytingum úr perl- um og pallíettum úr endurunnu plasti. „Þegar ég fór að kynna mér þessa línu hreifst ég mjög af hugmynda- fræðinni á bak við hana og hönnunin er ekki síður heillandi. Tíska og sjálf- bærni eru ekki lengur mótsagnir og mér finnst ótrúlega mikilvægt að inn- leiða endurnýtingu og endurvinnslu við alla tískuhönnun. Það er því gíf- urlega hvetjandi að sjá svona spenn- andi og framsækna hönnun sem byggir á endurvinnslu efnis,“ segir Christy Turlington Burns, sem er andlit H&M Cons- cious Exclu- sive- herferð- arinnar í ár. og fólk langar bara að drekka epla- djús og lifa innihaldsríku lífi þegar það er komið í þessi föt. Það myndi enginn sprauta sig með heróíni í þess- um endurunnu efnum. Sem sagt, þetta er ekki beint partí- fatalína heldur lína fyrir þá sem vita hvað þeir ætla að gera við líf sitt. Líf í jafnvægi Kvenleiki og handverk koma við sögu í þessum fallegu munstrum sem einkenna línuna og að hluta til er lín- an gamaldags með sniðum sem henta þeim sem vilja sýna fallegar línur lík- amans. Það sem er merkilegt við línuna er að hún sjálfbær og búin til úr endur- unnum efnum. Hluti af flíkunum er gerður úr endurnýttum trefjum úr fiskinetum og nælonúrgangi. Ann-Sofie Johansson hjá H&M segir að línan marki tímamót hjá fyr- irtækinu. „Það er ótrúlega spennandi að kynna nú til sögunnar tvö sjálfbær efni. Með því að búa til ótrúlega fal- legt blúnduefni úr econyl og fallega skartgripi úr endurunnu silfri höld- um við áfram að stækka rammann fyrir sjálfbæra tískuhönnun. Verk Karin Larsson hafa um leið verið sett í nýtt samhengi, enda voru stílfærð mynstur hennar, djarflegar línur og notkun lita langt á undan hennar samtíð, svo sem sjá má hvarvetna á heimili þeirra hjóna. Hún var sterk og áhrifamikil kona og það er sá andi sem við reyndum að virkja,“ segir Ann-Sofie. Þetta er sjöunda Conscious Exclu- sive-línan frá H&M. Í þetta skipti er línan ákaflega rómantísk og söguleg. Í henni eru til dæmis mjög heillandi nærföt, skór, skart, kjólar, skyrtur og buxur sem heilla. Í línu ársins eru notuð lífrænt ræktuð efni á borð við hör, bómull og silki, tencel og endurunnið pólýester, en auk þessara efna er H&M með tvö ný efni á boðstólum; endurunnið silf- ur og econyl, sem eru 100% endur- nýttar trefjar úr fiskinetum og öðrum nælonúrgangi. Í línunni eru falleg munstur og út- saumur frá Karin sjálfri. Hún lagði mikinn metnað í heimili sitt og eig- inmannsins sem var fullt af and- stæðum. Hönnunarteymi H&M nýtti sér þennan innblástur til að skapa gullfalleg mynsturofin efni með blómamyndum, abstrakt útsaumsefni og þrykkt efni með mynstri sem byggir á tilteknum hlutum úr húsinu. Flíkurnar í línunni eru margar hverjar eins og listaverk. Þar er til dæmis hvítur, skósíður, ermalaus kjóll úr econyl með útsaumi úr líf- rænum bómullarþræði og grænn, skósíður kjóll úr mynsturofnu efni með málmáferð og blómamyndum, úr endurunnu pólýester. Þar er líka buxnadragt með mynst- urofnu svörtu efni með blómum sem er með klauf aftan á jakkanum og að- sniðnum buxum með útvíðum skálm- um, sem gefur henni nútímalegt yf- irbragð. Litapallettan er heillandi. Hún er bæði grá og græn en svartur og hvít- ur koma líka við sögu ásamt dimm- bláum og ljósbleikum. Á meðal fylgihluta má nefna fín- gerða en djarflega skartgripi, Allar flíkur í línunni eru úr end- urvinnanlegum efnum. Silfur- skartið er gert úr gömlum mun- um og hefur H&M þróað nýja tækni til að búa til efni. Græni kjóllinn er sérlega klæðilegur og heillandi. Skórnir eru gamaldags með lágum hæl. 54 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018 Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14 GOTT ÚRVAL AF UMGJÖRÐUM Verið velkomin til okkar í sjónmælingu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.