Morgunblaðið - 19.04.2018, Síða 60

Morgunblaðið - 19.04.2018, Síða 60
60 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018 Elsku amma. Það er svo margt sem mig langar að segja, ég á svo mikið af dásamlegum minningum sem hringsnúast í höfðinu á mér. Hvernig á maður að geta valið úr, ég þarf mikið meira en 3.000 stafi. Því þú varst engri lík, ég veit ekki um neina ömmu, ja eða bara nokkurn sem að skellir sér á trampólín með langömmubörn- unum rétt nýskriðin yfir 90 árin. Það sem ég vildi að ég gæti erft líkamlega getu þína. Krakkarnir mínir munu geta skemmt sér yfir þessari minningu. Og pönnsurnar mmmm, bestu pönnsur í heimi, ég er nú orðin nokkuð lunkin að leika pönnu- kökubaksturinn eftir þér með gömlu góðu pönnunni þinni. Ég minnti mig mikið á þig um daginn þegar ég var að gera pönnsur og var að prufa nýja pönnu og end- aði á að bölva henni í sand og ösku meðan ég teygði mig í þá gömlu góðu sem haldið rétt hélst á (mamma var svo mikið æði að redda mér nýju haldi eftir þetta), en ég sá það svo fyrir mér þegar þú fékkst nýju pönnuna þína og skildi þig svo vel þarna þegar ég var í sömu sporum. Hversu oft skyldi ég hafa birst í dyrunum hjá ykkur afa og til- kynnt ykkur að ég væri flutt að heiman og ætlaði að búa hjá ykk- Brynhildur Einarsdóttir ✝ BrynhildurEinarsdóttir fæddist 13. janúar 1923. Hún lést 27. mars 2018. Brynhildur var jarðsungin 6. apríl 2018. ur, það var sko aldr- ei vandamál, þú bara snaraðist inn og bjóst um mig í sófanum og sagðir að ég mætti vera eins lengi og ég vildi, ég var nú ekki gömul þegar ég birtist í fyrsta skipti með töskuna mína. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt ykkur afa að, þið voruð einir af mínum bestu vinum, hjá ykkur átti ég alltaf skjól, ég var alltaf velkomin og þú varst alltaf til í að bregða á leik. Það var alveg ótrú- legt hvað þú nenntir alltaf að vera módelið mitt meðan ég vafði þig slæðum og þú áttir að leika gamla konu því fyrir mér varst þú nú aldrei neitt rosalega gömul. Ég var auðvitað í leikarapilsinu og algjör pæja. Konni frændi var nú voða góður og leysti þig stundum af sem gamla konan, allur vafinn slæðum. Þú varst svo flink í höndunum, öll sjölin og ponsjóin sem þú hekl- aðir handa mér og treflarnir svo við tölum nú ekki um ullarsokk- ana, alltaf gat ég fengið nýja ull- arsokka hjá þér. Og þegar ég var að hjálpa þér að baka, ja eða svona meira stel- ast í að borða deigið, alltaf varstu jafn undrandi á snúðunum sem hurfu af plötunni. Það var svo gaman þegar ég gat farið að hjálpa ykkur og skila til baka öllu því sem þið höfðuð gefið mér. Með því að hjálpa þér við að skrifa á pakkana fyrir jólin og setja upp alla sálmana þína í tölvu og prenta út í sem stærstu letri til að þú gætir séð textann, þó ég hafi svo sem aldrei skilið af hverju þar sem þú virtist nú kunna alla sálmana utan að. Nú er komið að kveðjustund. Elsku amma, þú munt ávallt eiga stað í hjarta mínu og aldrei mun ég þér gleyma. Ég mun geyma allar góðu minningarnar okkar á góðum stað og rifja þær upp með krökkunum mínum sem ég er svo þakklát fyrir að hafi getað kynnst þessari mögnuðu konu sem ég eyddi svo miklum tíma hjá. Ég hugsa að það séu engir sem geti fetað í fótspor þín, þú varst hreinn og klár snillingur, elsku amma. Takk fyrir allt, elsku amma mín, hafðu það gott á himnum með öllu liðinu þínu sem þú hefur beðið svo lengi eftir að hitta aftur. Það eru eflaust miklir fagnaðarfundir í himnaríki núna. Knús í klessu og risa skrúfu- koss. Katrín Sif. Ég trúi því varla að það séu komnar tvær vikur síðan elsku amma féll frá. Ég held að ég sé ekki alveg búin að meðtaka það að hún sé farin, því þó svo að hún hafi verið orðin 95 ára, þá var ég viss um að hún ætti enn nokkur ár eftir því hún var svo ótrúlega spræk. Það er ekki svo langt síð- an hún var að hoppa á trampól- íninu með krökkunum. Á 95 ára afmælisdaginn var hún svo að ítreka mikilvægi þess að hugsa um heilsuna og skellti sér þá á fjóra fætur og sýndi hvernig ætti að gera jafnvægisæfingar eins og ekkert væri og þegar við komum í heimsókn með krakkana litla, þá var hún fljót að fara niður á gólf og leika við þau. Það sem ég vona að ég verði jafn heilsuhraust og hún amma. Það sem við systur vorum heppnar að eiga ömmu að, við eyddum endalaust miklum tíma hjá ömmu og afa að gera fim- leikaæfingar á snúrustaurnum, leika okkur með stytturnar henn- ar og slæðurnar, fara í leikara- pilsið og setja upp sýningu. Hjá ömmu og afa mátti næstum allt og svo voru alltaf til snælur og hún bakaði pönnukökur, lummur og vöfflur eftir pöntunum. Þegar ég varð eldri sagði amma mér frá æsku sinni, hvernig pabbi hennar kom fram við hana, þegar hún var send í fóstur, við hvað hún vann, frá fermingardeginum sín- um og fleira. Síðar sagði hún mér einnig frá því þegar maðurinn hennar dó í fanginu á henni og hún varð ekkja aðeins 27 ára gömul og með þrjú ung börn og hvað hún óttaðist að börnin yrðu tekin frá henni. Einnig fékk ég að heyra söguna af nóttinni örlaga- ríku þegar hún og afi tóku spjall saman og enduðu á að kjafta fram undir morgun eða þar til bankað var upp á þar sem leitað var að afa, því óttast var um hann þegar ljóst var að hann hafði ekki komið heim um nóttina. Ég á svo endalaust margar og góðar minningar og er svo þakk- lát fyrir allar góðu stundirnar og svo þakklát fyrir að börnin mín fengu að kynnast þér elsku amma mín. Ég er líka ótrúlega þakklát fyrir það að við fengum smá fyr- irvara svo ég gat komið og kvatt þig í hinsta sinn og hlegið með þér þegar ég kvaddi þig stuttu áður en þú fórst. Það var svo mik- ill heiður að fá að bera þig út úr kirkjunni á föstudaginn og mun ég halda minningu þinni á lofti og segja börnunum mínum og síðar barnabörnum af þér. Ég vona svo að ég nái að verða jafn hress og þú á gamals aldri, því þú varst ekki bara líkamlega hress, heldur varstu dugleg að sjá spaugilegu hliðarnar og var jafnan mikið hlegið þegar við vorum hjá þér í Vesturgötunni. Hvíl í friði, elsku amma mín, við hugsum mikið um þig og lof- um að passa upp á afa fyrir þig. Júlí Ósk. Á dögunum kvaddi samfélag okkar vinur minn Eiríkur Bogason. Hann hafði í nokk- ur ár þurft að kljást við sjúkdóm sem tók æ meiri toll af daglegri orku hans og sem á endanum varð úthald- inu yfirsterkara. Kynni okkar hófust þegar við vorum við nám í Tækniskóla Ís- lands til að búa okkur undir frekara tækninám. Urðum við fljótt félagar enda í hópi þeirra sem vorum í eldri kantinum og ekki sakaði að Eiríkur átti ætt- arþræði til góðrar fjölskyldu á Eiríkur Bogason ✝ Eiríkur Boga-son fæddist 24. janúar 1947. Hann lést 23. mars 2018. Útför Eiríks fór fram 5. apríl 2018. Siglufirði. Ég heill- aðist af viðhorfi hans til námsins, vinnusemi og vand- virkni. Þegar við- fangsefni námsins voru annars vegar linnti Eiríkur ekki látum fyrr en full- um tökum var náð, það var sama hvort fengist var við þrautir úr stærð- fræðinni, setningaskipan mál- fræðinnar eða hugmyndafræði samtímans. Oft sátum við tím- unum saman yfir dæmum þar sem allt var krufið til mergjar og síðan æfð alls konar afbrigði til að búa okkur vel undir yf- irvofandi próf. Á þessum árum myndaðist grunnur að þeirri vináttu okkar sem varað hefur síðan. Í kjölfarið komu Danmerk- urárin þar sem við námum í sitt hvorum háskólabænum og síð- an árin eftir að heim var komið og stjórnuðum báðir litlum orku- og veitufyrirtækjum en Eiríkur var þegar kominn með góða reynslu þegar ég hóf störf á þeim vettvangi. Var hann ós- ínkur á góð ráð fyrir vin sinn og var ætíð tilbúinn að miðla af þekkingu sinni, skoða viðfangs- efnin og finna lausnir. Eiríkur var ætíð áfram um skilvirkni í rekstri veitufyrirtækja og að fjármunum væri ekki sóað þar, sveitarfélögin voru jú eigendur og þar með hans samferðafólk. Hann lagði áherslu samrekstur í orku- og veitugeiranum enda fór hann fyrir sameiginlegum rekstri Bæjarveitna Vest- mannaeyja. Var hlutur hans áþreifanlegur þegar ný samtök, Samorka, voru stofnuð á miðjum tíunda áratugnum. Það fór líka svo að honum var treyst til að leiða starf þessara nýju samtaka sem fram- kvæmdastjóri. Var það ekki síst að þakka styrkri stjórn hans að það tókst að byggja sterkar stoðir undir þetta sam- starf innan starfsviða orku- og veitufyrirtækja. Eiríkur kunni að stíga ölduna, enda Eyjamað- ur, og átti mikinn þátt í að sigla málum sem ágreiningur var um á lygnan sjó. Hann var glöggur mannþekkjari og kunni að velja með sér gott starfsfólk sem skilaði drjúgu dagsverki. Starf- inu sinnti hann af einurð og ósérhlífni uns honum fannst fyrir nokkrum árum veikindin taka of mikinn skerf af þeirri atorku sem hann taldi sjálfur að þyrfti til að tryggja fersk- leika í rekstri samtakanna. Með árunum myndaðist góð vinátta milli okkar Jóhönnu og Eiríks og Guðbjargar og áttum við margar góðar stundir sam- an í leik og starfi, sumar ógleymanlegar. Eiríkur var mikill gæfumaður að eiga Guð- björgu að sem förunaut og án umhyggju hennar og liðsinni systkinanna Kalla og Soffíu og fjölskyldna þeirra hefðu síðustu árin og mánuðir orðið öllu erf- iðari, lífsgæðin minni og lífs- skeiðið líklegra styttra en raun varð á. Missir þeirra er stór og okkar ósk að allt gott hjálpi þeim yfir sárasta tímann. Ég kveð góðan vin með söknuði og þakka honum vinarþelið. Ásbjörn Blöndal. Eiríkur Bogason hóf störf sem framkvæmdastjóri Sam- orku strax við stofnun samtak- anna árið 1995 og gegndi starf- inu til ársins 2013, eða þar til hann lét af störfum vegna veik- inda. Að fá Eirík til samtakanna var happafengur. Hann hafði áður verið framkvæmdastjóri Bæjarveitna Vestmannaeyja og stjórnað þar bæði rafveitu, vatnsveitu og fjarvarmaveitu og auk þess hafði hann setið stjórn SÍR, forvera Samorku ásamt SÍH. Eiríkur var þannig öllum hnútum kunnugur í orku- og veitumálum. Hjá hinum nýstofnuðu sam- tökum voru mörg verkefnin og ekki síst hvert stefna skyldi með margt um ólík fyrirtæki, hagsmuni og væntingar fé- lagsmanna innanborðs. Hin fjölbreytta reynsla Eiríks, ásamt því hversu góður til sam- vinnu hann var, átti stóran þátt í að skila Samorku svo vel á veg eins og raun ber vitni. Fyrir hönd aðildarfyrir- tækja, stjórnar og starfsfólks Samorku þakka ég Eiríki vel unnin störf þau 18 ár sem hann gegndi starfi framkvæmda- stjóra. Eiginkonu Eiríks, Guð- björgu Ólafsdóttur, og börnum, þeim Soffíu og Karli, vottum við okkar dýpstu samúðar- kveðjur. Helgi Jóhannesson, stjórnarformaður Samorku. Þú varst vinur okkar. Glaður og góður, skapandi og skemmtilegur, fallegur og fyndinn. Þú söngst í brúðkaupinu, teppa- lagðir svefnherbergið, mættir í partí, spilaðir á tónleikum, tókst upp stuttmyndir, sendir fyndn- ustu jólakortin, vannst á gisti- Grétar Magnús Grétarsson ✝ Grétar MagnúsGrétarsson fæddist 3. júlí 1974. Hann lést 12. mars 2018. Útför Grétars fór fram 27. mars 2018. heimilinu, ekkert drama, aldrei vesen, bara ást, gleði, hlát- ur og tónlist. Það var alltaf sönn og fölskvalaus ánægja að hitta þig. Elsku Maggi, þú varst hlýr sólar- geisli í lífi okkar sem nú er aðeins kaldara og litlaus- ara. Hlökkum til að hitta þig aftur hinum megin. Ást- arkveðjur að eilífu. Berglind Björk Halldórsdóttir og Hannes Þór Baldursson. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR ÞORBJÖRNSSON útgerðarmaður, Suðurhlíð 38c, sem lést fimmtudaginn 5. apríl, verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 20. apríl klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á björgunarsveitir eða minningarsjóð líknardeildar Landspítala. Auðbjörg Ingimundardóttir Anna Guðmundsdóttir Jörundur Gauksson Ingi Jóhann Guðmundsson Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, FJÓLA ÓLAFSDÓTTIR frá Bolungarvík, lést á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði þriðjudaginn 10. apríl. Hún verður jarðsungin frá Þorlákskirkju laugardaginn 21. apríl klukkan 14. Friðgerður Pétursdóttir Magnús Þ. Snorrason Ólafur Pétursson Kristrún Ástvaldsdóttir Jón Guðni Pétursson Ester Hallgrímsdóttir Sigurður Pétursson Anna Manikutdlak Elísabet María Pétursdóttir Jakob H.S. Ragnarsson Fjóla Pétursdóttir Eriksen Arnulf Eriksen og aðrir aðstandendur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, tengdaamma og langamma, SVAVA FELIXDÓTTIR, Dvalarheimilinu Grund, áður Kirkjulundi 8, Garðabæ, lést laugardaginn 14. apríl á Landspítalanum, Hringbraut. Útför hennar fer fram frá Vídalínskirkju miðvikudaginn 25. apríl klukkan 13. Jón Ívars Guðlaug Björgvinsdóttir Guðrún Ívars Zophanías Þ. Sigurðsson Svava Zophaníasdóttir Viðar Ben Teitsson Eva Zophaníasdóttir Sigurjón Hávarsson Ari Ívars Rúnar Ívars og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, lést á heimili sínu mánudaginn 16. apríl. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 23. apríl klukkan 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Heimahlynningu á Akureyri. Stefán G. Jónsson Jón Viðar Þórisson Stefanía A. Halldórsdóttir Jóhanna Bára Þórisdóttir Ármann Helgi Guðmundsson Kristjana Þórisdóttir Sigurður Gunnarsson Jón G. Stefánsson Hafdís Inga Haraldsdóttir Helgi Heiðar Stefánsson Ásdís Ármannsdóttir Sigurður Örn Stefánsson Sigrún Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.