Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 71

Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 71
MENNING 71 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018 stöndum hér á teikningunni,“ segir Helgi og bendir á rúðustrikað form sem hefur verið sprautað á gólfið. Þá þurfti ég að taka þrjú þversnið út af rúmmálinu og byrjaði á grindinni og að byggja verkið hér upp. Eftir því sem hún hefur risið hærra hefur þurft að styrkja hana út frá súlunni í miðjunni sem heldur öllu saman þar til höfðinu er lokað. Á morgun ætlum við svo að fella grindina niður til að komast að efsta hlutanum, svo við þurfum ekki að vinna upp fyrir okk- ur að kúpunni. Það væri ekki vinn- andi vegur.“ Þegar Helgi er spurður að því hvað þessi smíðavinna þarna í Gufu- nesi hafi tekið langan tíma segist hann hafa byrjað í janúar. „Ég gerði smá hlé þegar ég fór til Frakklands og tók smá törn í Kjarvalsstofu í París, ég hafði fengið boð um að vinna þar áður en Svíarnir höfðu samband. Tímann í París notaði ég til hvíldar frá þesu verki og vann í smámyndum og teikningum, datt reyndar aðeins í útfærslu á skúlp- túrnum – en það var gott að kúpla sér frá þessu um tíma. En hér var uppistaðan komin og búið að móta hugsunina og nálgunina, og því þurfti bara að halda áfram að vinna verkið. Ég fékk tvo frábæra smiði með mér í þetta svo nú erum við þrír að vinna og þá gengur þetta hratt. Og nú erum við fyrir löngu hættir að hugsa um fyrirmyndina – málm- urinn, þetta efni í þessu, tók bara við og við fylgjum því,“ segir Helgi og grípur um eitt rörið sem myndar höfuðið. „Við að stækka smámynd upp í stórt verk sem þetta tekur við alveg ný mynd, með ný viðhorf, nýj- ar reglur og ný lögmál sem stærðin útheimtir. Þá fer skúlptúrinn að vaxa af sjálfu sér. Mér finnst þetta af- skaplega áhugavert ferli, að fara frá lítilli hugmynd upp í stórt verk, með gjörbreytta stærð og rúmtak.“ Enginn heimanmundur Þegar Helgi er spurður um fyrir- komulag á pöntun verksins og hver borgi brúsann þá segir hann, og hristir höfuðið, að þar standi hnífur í kúnni. Þegar hváð er segir hann hinn eilífa höfuðverk íslenskra listamanna vera fjármögnun verkefna. „Svíarnir setja í þetta tæpa milljón króna,“ segir hann. „Flutningskostn- aðinn, sem er verulegur, það er gám- urinn undir verkið og flutningur frá dyrum hér að skúlptúrgarðinum. Þeir tryggja líka verkið og setja það saman úti, sem verður hörkuvinna. En það er erfitt að ná ekki að koma með neinn heimanmund frá mínu samfélagi hér heima. Þegar Svíarnir spurðu hvernig ég hygðist fjármagna vinnuna við verk- ið hér heima sagði ég þeim að hér væri til sjóður sem opinbert fjár- magn er sett í, til kynningar á ís- lenskri myndlist erlendis, Myndlist- arsjóður. Ég myndi reyna að sækja þar um, það væri möguleiki. Sem ég gerði – en fékk neitum. Ég veit ekki af hverju, svarið var ekki rökstutt, en það verður að hafa það.“ Helgi vill ekki gera mikið úr því en svarið hefur skiljanlega valdið von- brigðum, enda framkvæmdin við verkið dýr; efnið, tíminn og sam- starfsmenn á launum. Verkið er á leið á afar góða sýningu, með verk- um mjög þekktra samtímalista- manna og samkvæmt starfslýsingu Myndlistarsjóðs þá er ekki skrýtið að Helga finnist að hann hefði átt góðan möguleika á að hljóta styrk en þar segir: Hlutverk Myndlistarsjóðs er að efla íslenska myndlist með fjár- hagslegum stuðningi og kostun verk- efna … Þannig skal stuðla að fram- gangi listsköpunar, kynningu og aukinni þekkingu á íslenskri mynd- list hérlendis sem erlendis. Sjóðurinn veitir verkefnastyrki sem ætlaðir eru til að auðvelda fram- kvæmd verkefna … Auðvitað tók ég boðinu „En ég fékk boðið um að sýna og gat ekkert beðið eftir því að einhver umsóknarfrestur liði hjá nefnd sem úthlutar styrkjum,“ segir Helgi og bætir við að þátttaka í sýningu sem þessari sé að sínu mati til ávinnings fyrir alla íslenska skúlptúrlistamenn. „Auðvitað tók ég boðinu. Ég er auðvitað að skapa verk til þess að sýna – þótt umfangið nú sé slíkt að það sé varla á færi einstaklings án stuðnings. Auðvitað hefði verið vel þegið að fá stuðning frá samfélaginu hér heima, þótt hann jafnaðist ekki nema á við stuðning Svíanna. En ég geri þetta bara með mjólkurpening- unum mínum. Þörfin til að sýna er þess eðlis að maður verður bara að sýna! Þörfin til að taka til máls með verkunum er mjög sterk og verður ekki þögguð niður.“ En Helgi þagnar samt hér, lítur upp eftir verkinu og segir: „Víst er þetta mjög stórt. Stundum er maður að gera verk sem eru bara örfáir sentimetrar og getur svo allt í einu verið kominn í mónú- mental verk sem þetta. Það er svo ríkt hjá okkur myndhöggvurum að glíma við ólíkar stærðir, ólík rúm- mál. Og vera að athuga þanþol stærða og inntaks. Það er ég einmitt að gera hér og get spurt mig hvort ég standist áskorunina …“ Persónulegur sigur Á myndum frá Pilane má sjá að verkum er dreift um stórt svæði, þar sem eru klapparásar, trjálundir með víðum rjóðrum og hæðadrög. Er bú- ið að ákveða hvar Heimur í huga manns muni standa? „Nei, við erum ekki komin það langt í samtalinu. Ég varð að ein- beita mér að því að koma verkinu saman, að sjá hvort það hefðist, en nú þegar ég veit að það næst höfum við byrjað að ræða um slíka hluti.“ En mun verkið koma aftur til Ís- lands eftir að það verður sýnt úti? „Ég veit það ekki. Þegar ég var spurður að því hvort ætti að senda verkið til baka þá sagðist ég ekki hafa neinn áhuga á því. Það að kosta flutning og geymslu á verkum sem þessu hleypur á tugum og hundr- uðum þúsunda. Ég vil einfaldlega sýna verkið, ekki hugsa um slík praktísk atriði. Myndlistarmenn vilja sýna verkin sín og hafa oft eng- an áhuga á þeim eftir að því er lokið; þá taka við ákvarðanir annarra. Nú sýni ég bara verkið og sé svo til,“ segir hann en neitar því ekki að það sé til sölu „Fyrir mig er það mikilvægur per- sónulegur sigur að þessi hugmynd er að verða að veruleika; að hugmynd sem ég hef gengið með lengi sé að fá þessa þyngd og efniskennd … það er munurinn á að geta og gera,“ segir Helgi og glottir. Og hann hafnar því ekki að það sé spennandi að sýna verkið í þessum góða félagsskap. „Þarna koma um 90 þúsund manns á hverju sumri að skoða – maður getur ekki sagt nei við boði um að setja verk upp á slíkum stað. Og ég verð þarna fulltrúi íslenskra myndlistarmanna, ég er hluti þeirrar heildar og hefðar,“ segir hann. En með verkinu snýr Helgi jafn- framt á vissan hátt heim, því hann nam á sínum tíma í fimm ár við listaháskóla í Gautaborg. „Það er rétt, og þegar menn þarna úti sáu í ferilskránni að ég hafði lært þar varð ég hálfgerður heimamaður fyrir þeim,“ segir hann. „Þarna var ég í námi og nýlega heyrði ég þá kenningu að þó maður haldi aftur heim, þá tilheyri maður alltaf á ákveðinn hátt tungumálinu, samtöl- unum og hugmyndunum sem maður þroskaðist með í náminu. Mótunar- árin í námi séu svo áhrifarík að ef maður á þau í öðru landi þá nái mað- ur ekki alveg að færa þá reynslu með sér heim. Nú get ég komið með þetta verk til Svíþjóðar og með því þakkað Svíum fyrir gestrisnina og fyrir að hafa veitt mér menntun í fimm ár, án þess að greiða krónu í skólagjöld. Verkið er afrakstur þess að Svíar menntuðu mig,“ segir Helgi. Stórt Nær sex metra höfuðið er að taka á sig mynd; hér á eftir að loka kúpunni og fjarlægja burðarvirkið. Byrjunin „Þetta er í raun frummyndin af skúlptúrnum,“ segir Helgi um silfurbjart höfuðið. Hugmyndin Helgi sá verkið upp- haflega fyrir sér standa á opnu svæði við Hvítá á Suðurlandi eins og sést hér á tölvugerðri myndinni. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Fim 7/6 kl. 20:00 50. s Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Fös 8/6 kl. 20:00 51. s Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Lau 9/6 kl. 20:00 52. s Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Fim 19/4 kl. 20:00 15. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s Fös 4/5 kl. 20:00 26. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s Lau 28/4 kl. 20:00 22. s Lau 5/5 kl. 20:00 27. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s Sun 29/4 kl. 20:00 23. s Sun 6/5 kl. 20:00 28. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s Mið 2/5 kl. 20:00 24. s Fim 10/5 kl. 20:00 29. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s Fim 3/5 kl. 20:00 25. s Fös 11/5 kl. 20:00 30. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Fim 19/4 kl. 20:30 4. s Fös 27/4 kl. 20:30 aukas. Lau 5/5 kl. 20:30 13. s Fös 20/4 kl. 20:30 5. s Lau 28/4 kl. 20:30 9. s Sun 6/5 kl. 20:30 14. s Lau 21/4 kl. 20:30 aukas. Sun 29/4 kl. 20:30 10. s Mið 9/5 kl. 20:30 15. s Sun 22/4 kl. 20:30 6. s Mið 2/5 kl. 20:30 11. s Fim 10/5 kl. 20:30 aukas. Mið 25/4 kl. 20:30 7. s Fim 3/5 kl. 20:30 aukas. Fös 11/5 kl. 20:30 16. s Fim 26/4 kl. 20:30 8. s Fös 4/5 kl. 20:30 12. s Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi? Slá í gegn (Stóra sviðið) Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Svartalogn (Stóra sviðið) Fim 26/4 kl. 19:30 aðalæ Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn Fös 27/4 kl. 19:30 Frum Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu Stríð (Stóra sviðið) Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l Faðirinn (Kassinn) Fös 20/4 kl. 19:30 46.sýn Lau 21/4 kl. 19:30 47.sýn Sun 29/4 kl. 19:30 48.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Aðfaranótt (Kassinn) Fös 11/5 kl. 19:30 Frums Fös 18/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 9.sýn Lau 12/5 kl. 19:30 2.sýn Lau 19/5 kl. 19:30 6.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 10.sýn Mið 16/5 kl. 19:30 3.sýn Mið 23/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 17/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 24/5 kl. 19:30 8.sýn Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 25/4 kl. 20:00 Mið 9/5 kl. 20:00 Mið 2/5 kl. 20:00 Mið 16/5 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Oddur og Siggi (Á flakki um landið) Þri 24/4 kl. 11:00 Hveragerði Þri 15/5 kl. 11:00 Vestm.eyjar Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 26/4 kl. 10:00 Fös 27/4 kl. 11:30 Mið 2/5 kl. 10:00 Fim 26/4 kl. 11:30 Mán 30/4 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 11:30 Fös 27/4 kl. 10:00 Mán 30/4 kl. 11:30 Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni Barnamenningarhátið (Þjóðleikhúsið) Fös 20/4 kl. 10:00 Ég get Lau 21/4 kl. 13:00 Pétur og úlfurinn Sun 22/4 kl. 13:00 Oddur og Siggi Fös 20/4 kl. 11:00 Ég get Lau 21/4 kl. 13:00 Ég get Sun 22/4 kl. 15:00 Oddur og Siggi Lau 21/4 kl. 10:00 Pétur og úlfurinn Lau 21/4 kl. 15:00 Ég get Barnamenningarhátíð 2018 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.