Morgunblaðið - 19.04.2018, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 19.04.2018, Blaðsíða 72
72 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018 Ásama tíma og stöðugt ber-ast alvarlegar fréttir afópíóíðafaraldrinum semgeisar nú bæði vestanhafs og austan, aldrei hafa fleiri verið á biðlista eftir að komast í vímuefna- meðferð hérlendis og alltof fá úr- ræði eru fyrir ungmenni í neyslu frumsýnir Borgarleikhúsið í sam- vinnu við Vesturport og Þjóðleik- húsið í Osló leikrit sem talar með sterkum hætti beint inn í samtím- ann. Þar er um að ræða Fólk, staðir og hlutir eftir breska leikskáldið Duncan Macmillan sem frumsýnt var í Breska þjóðleikhúsinu 2015 við einstaklega góðar viðtökur og rataði uppfærslan á West End innan árs. Fólk, staðir og hlutir er þriðja sviðsverk Macmillan sem íslenskir áhorfendur fá tækifæri til að sjá á rétt rúmu ári. Snemma árs 2017 sýndi Leikfélagið fljúgandi fiskar leikrit hans Andaðu í Iðnó og síðasta haust setti Borgarleikhúsið upp leikgerð á skáldsögunni 1984 eftir George Orwell sem Macmillan vann í samvinnu við Robert Icke. Öll bera verkin vönduðu handbragði höf- undar vitni og ljóst að hér er að ferðinni leikskáld sem kann á leik- húsið sem miðil. Í Fólk, staðir og hlutir skrifar Macmillan af mögnuðu innsæi um áfengis- og lyfjafíkil sem fer í með- ferð hjá meðferðarstofnun sem vinn- ur eftir 12 spora kerfinu. Verkið, sem er afspyrnuvel þýtt af Garðari Gíslasyni, fjallar um leikkonu (Nína Dögg Filippusdóttir) sem veldur ekki lengur starfinu vegna neyslu og er neydd af vinnuveitanda sínum til að fara í afvötnun. Framan af er leikkonan einvörðungu að bíða með- ferðina af sér. Hún þurrkar sig upp og tekst þannig á við efnafræðilega hlutann, en er engan veginn tilbúin til að fara í þá sjálfsskoðun og sjálfs- vinnu til að leita orsaka fíknarinnar sem meðferðarferlið krefst ef hægt á að vera að ná raunverulegum bata. Líkt og læknir verksins (Sigrún Edda Björnsdóttir) bendir á þurfa fíklar að viðurkenna vanmátt sitt gagnvart fólki sem veldur því að þeir gætu fallið, stöðum sem þeir tengja við neysluna og hlutum sem kveikja í gömlum venjum og þaðan er titill leikritsins fenginn. Leikkonan er eldklár, hraðlygin, kjaftfor og meinfyndin – og því ekki hægt annað en hrífast af heimspeki- legum vangaveltum hennar um til- gang lífsins og efasemdum um æðri máttarvöld og hlæja að eitruðum pillum hennar á samferðafólk sitt. Á sama tíma leynir sér ekkert hversu alvarlega veik hún er og hjálpar- þurfi – en innst inni veit hún að fíkn- in mun ganga af henni dauðri geri hún ekkert í sínum málum. Henni gengur hins vegar erfiðlega að við- urkenna vanda sinn og vanmátt og því reynir hún örvæntingarfullt, en árangurslaust, að hafa stjórn á kringumstæðunum. Leikskáldið leiðir okkur með klókindalegum hætti gegnum tvær gjörólíkar með- ferðir leikkonunnar, þar sem sú fyrri er lengri og meira krefjandi sem veldur því að áhorfendur skilja betur hversu óþolandi fíkillinn getur verið. Börkur Jónsson fangar vel með stílhreinni leikmynd sinni hvítt og sterílt umhverfi meðferðarstofn- unarinnar. Áhorfendur sitja sitt hvorum megin við leikrýmið á Litla sviðinu sem minnir á stundum á risastórt fiskabúr, ekki síst þegar meistaraleg lýsing Þórðar Orra Pét- urssonar í bland við kraftmikla tón- list Gaute Tönder og Frode Jacob- sen, er notuð til að túlka skyn- truflanir, tímaflakk og minnisleysi leikkonunnar. Vel var til fundið að nota gula birtu í upphafssenu sýn- ingarinnar til að skapa tilfinningu fyrir öðrum tíma í brúnum tónum og lokamyndin með sinni skörpu lýs- ingu var áhrifarík í einfaldleika sín- um. Búningar Kötju Ebbel Fredrik- sen þjónuðu persónum vel og stálu aldrei athyglinni frá innihaldinu. Sýningin hvílir á herðum Nínu Daggar Filippusdóttur sem er á sviðinu nær allan tímann. Þetta er einstaklega krefjandi hlutverk þar sem persónan sveiflast frá yfir- gengilegum hroka yfir í botnlaust sjálfshatur fíkilsins sem býr yfir baneitraðri blöndu af lélegu sjálfs- mati og mikilmennskubrjálæði. Áhorfendur fá að sjá leikkonuna í vinnunni, undir áhrifum, að kljást við fráhvarfseinkenni og ofskynjanir í afvötnuninni sem tekur líkamlega mjög á, í samspili við starfsfólk og aðra sjúklinga meðferðarstofnunar- innar og síðast en ekki síst í upp- gjöri við foreldra sína, sem Sigrún Edda Björnsdóttir og Jóhann Sig- urðarson túlka af miklu öryggi. Lokauppgjör mæðgnanna var eitt það áhrifaríkasta sem rýnir hefur séð á síðustu misserum, enda auð- veldlega hægt að skilja alla þá reiði, vonleysi, sorg og uppgjöf sem for- eldrarnir glíma við vegna neyslu dóttur sinnar á sama tíma og ekkert fór á milli mála hvernig samspilið í samskiptunum hefur mótað dótt- urina með afdrifaríkum hætti. Hér náði margslungið verk Macmillan listrænum hápunkti. Nestuð safarík- um efnivið vinnur Nína Dögg sann- kallaðan leiksigur í hlutverki fíkils- ins og þetta er áhrifaríkasta frammistaði leikara á leikárinu. Önnur hlutverk verksins eru mun minni, en þjóna engu að síður mik- ilvægum þætti í þeirri heildarmynd sem sköpuð er á sviðinu. Sigrún Edda gerir sér mikinn mat úr hlut- verkum móðurinnar, læknis og ráð- gjafa, en snjallt er að láta þessar þrjár lykilpersónur í lífi leikkon- unnar renna saman. Edda Björg Eyjólfsdóttir og Maríanna Clara Lúthersdóttir eru ýmist í hlut- verkum fámálla hjúkrunarfræðinga eða fíkla í hópmeðferðinni þar sem þær veita örlitla innsýn í fíknivanda persóna sinna. Hannes Óli Ágústs- son er fallega óframfærinn í hlut- verki Steinars og Björn Thors af- slappaður og einlægur í hlutverki Markúsar sem helst vill ekki þurfa að yfirgefa öruggt skjól meðferðar- stofnunarinnar og snýr því aftur sem ráðgjafi. Höfundurinn vinnur meðvitað með hliðstæðurnar milli leikhússins og meðferðarstofnunarinnar þar sem hlutverkaleikir eru notaðir í hópmeðferðinni til að ná bata. Með- ferðin verður þannig líkt og æfinga- ferli leikhúsanna rými þar sem leyfi- legt er að prófa sig áfram, gera mistök, örvænta og fikra sig áfram í leit að svörum en stóra spurningin er síðan hvað taki við þegar stíga þarf út úr hinu verndaða umhverfi og mæta ytri heiminum á ný – því bataferlinu lýkur ekki við útskrift/ frumsýningu. Þá tekur við við- kvæmt ferli þar sem lifa þarf einn dag í einu, njóta hvers andartaks fyrir sig og þakka fyrir tækifærin sem gefast. Gísli Örn Garðarsson hefur áður sýnt að hann hefur sem leikstjóri einstakt lag á að skapa sýningar sem búa yfir húmor og hlýju. Fólk, staðir og hlutir er þar engin und- antekning og því skal engan undra að norska uppfærsla verksins sem hann frumsýndi hjá Þjóðleikhúsinu í Osló í febrúar með sömu listrænum stjórnendum en þarlendum leik- urum hafi slegið í gegn og gangi fyr- ir fullu húsi. Íslenska útfærslan á Fólk, staðir og hlutir er sýning sem allir ættu að sjá, jafnt ungir sem aldnir, jafnt fíklar sem aðstand- endur – því öll þekkjum við einhvern eða einhverja sem lent hafa í klóm fíknarinnar með einum eða öðrum hætti og höfum gott af því að sjá fjallað um þetta vandasama við- fangsefni af innsæi, alúð, virðingu, húmor og hlýju. Að lifa einn dag í einu Ljósmynd/Grímur Bjarnason Borgarleikhúsið Fólk, staðir og hlutir bbbbb Eftir Duncan Macmillan. Íslensk þýðing: Garðar Gíslason. Leikstjórn: Gísli Örn Garðarsson. Leikmynd: Börkur Jónsson. Búningar: Katja Ebbel Fredriksen. Lýs- ing: Þórður Orri Pétursson. Tónlist: Gaute Tönder og Frode Jacobsen. Hljóð: Garðar Borgþórsson. Leikgervi: Árdís Bjarnþórsdóttir. Leikarar: Nína Dögg Filippusdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Björn Thors, Hannes Óli Ágústsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir og Maríanna Clara Lúthers- dóttir. Sýningin er samstarfsverkefni Borgarleikhússins, Vesturports og Þjóð- leikhússins í Osló. Frumsýning á Litla sviði Borgarleikhússins 13. apríl 2018. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST Leiksigur „Nestuð safaríkum efnivið vinnur Nína Dögg sannkallaðan leiksigur í hlutverki fíkilsins og þetta er áhrifaríkasta frammistaða leikara á leikárinu.“ Tónlistarævintýrið Lítil saga úr orgelhúsi kemur í dag, sumardaginn fyrsta, út sem handrit til notkunar fyrir flytjendur á fimm tungumálum, íslensku, ensku, norsku, dönsku og sænsku. Höfundar eru þau Guðný Einars- dóttir, sem skrifaði söguna, Michael Jón Clarke tón- skáld, sem skrifaði tónlistina, og Fanney Sizemore sem myndskreytti ævintýrið. Í tilefni útgáfunnar verða tvær sýningar í dag á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju og sem hluti af Barna- menningarhátíð í Reykjavík. Báðar í Hallgrímskirkju, sú fyrri á íslensku kl. 13 og sú seinni á ensku kl. 14.30. Flytjendur verða Guðný Einarsdóttir organisti, Bergþór Pálsson, sögumaður á íslensku, og Michael Jón Clarke, sögumaður á ensku. Aðgangur er ókeypis á þessar sýn- ingar og allir velkomnir. Lítil saga úr orgelhúsi fjallar um orgelpípurnar sem búa í orgelhúsinu. Ýmislegt gengur á í samskiptum þeirra og er ævintýrið bæði hugsað sem kynning á org- elinu en er einnig falleg saga með góðan boðskap um samskipti og virðingu. Lítil saga úr orgelhúsi kom fyrst út sem barnabók með geisladiski árið 2015 en hefur síðan verið margoft sett upp sem sýning fyrir börn á Íslandi og í Svíþjóð, Dan- mörku og á Bretlandi. Höfundar hafa unnið að því um nokkurt skeið að útbúa handrit að sýningunni á nokkrum tungumálum. Handritið er bæði nótnahandrit fyrir org- elleikara og rafræn glærusýning til sýningar og fyrir sögumann sem les söguna af skjá um leið og myndunum er varpað upp á réttum stöðum. Orgelhús í erlendum útgáfum Morgunblaðið/Eggert Höfundurinn Guðný Einarsdóttir skrifaði söguna. N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Komið og skoðið úrvalið Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Klassísk gæða húsgögn á góðu verði Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.