Morgunblaðið - 19.04.2018, Blaðsíða 78
78 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018
SIGNATURE
RAY-BAN LOGO
STAMP OF AUTHENTICITY
UV PROTECTION
UMBOÐSAÐILI RAY-BAN Á ÍSLANDI
RAY-BAN
með styrkleika
fást bæði ólituð eða sem sólgler
Vortónleikar Karlakórs Reykjavík-
ur verða haldnir í Langholtskirkju
á næstu dögum, þeir fyrstu á
sunnudaginn kemur kl. 17, á þriðju-
dag og miðvikudag kl. 20 og að lok-
um laugardaginn 28. apríl kl. 15.
Íslensk sönglög eru á efnis-
skránni fyrir hlé. Þar á meðal eru
tvö verk eftir Pál Pampichler Páls-
son, sem var stjórnandi Karlakórs
Reykjavíkur í aldarfjórðung. Annað
þeirra, „Nei, smáfríð er hún ekki“,
við ljóð Hannesar Hafstein, er nýj-
asta verkið á efnisskránni og var
samið sérstaklega fyrir kórinn á 90
ára afmæli hans fyrir tveimur ár-
um. Eldra verkið, „Ár vas alda“, á
rætur í sjálfri Völuspá og spanna
verkin því sögu þjóðarinnar.
Eftir hlé flytur kórinn fjölbreytt
úrval erlendra meistaraverka, með-
al annars eftir Beethoven, Mozart,
Bruckner og Verdi.
Með kórnum leikur að vanda
Anna Guðný Guðmundsdóttir pí-
anóleikari og einnig leikur Sigurður
Ingvi Snorrason á klarínettu.
Stjórnandi er Friðrik S. Krist-
insson.
Einsöngvari með kórnum á tón-
leikunum er fyrrverandi kórfélagi,
Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór, sem
nú syngur við óperuna í Leipzig í
Þýskalandi. Þegar slegið er á þráð-
inn til hans segir hann gaman að
koma aftur til móts við gamla kór-
inn sinn.
„Það er langt síðan ég hef sungið
með kórnum og það er gaman að
hafa tíma til þess núna,“ segir
hann. Og þegar spurt er hvort enn
séu margir í kórnum sem sungu
með honum á sínum tíma svarar
hann að vissulega sé svo en hluti
þeirra sé kominn í kór eldri félaga,
sem sé fyndið. „Það eru líka mörg
ný andlit og kórinn hljómar vel og
er ferskur. Svo er Friðrik að
stjórna og hann þekki ég vel enda
byrjaði ég að læra hjá honum.
Þetta er eins og að koma heim í
stofu.“
Sveinn Dúa segist syngja meðal
annars „Draumalandið“, „Heimir“
og „Lullu lullu bia“ eftir Karl O.
Runólfsson. „Þá syng ég til að
mynda mjög krefjandi ljóð eftir
Schubert, „Nachthelle“, allt mjög
falleg lög og skemmtilegt að syngja
þau öll. Þetta verða fernir tón-
leikar, sannkölluð hátíðarvika, og
ég er kominn með ný kjólföt af því
tilefni.“
Mikið stendur til hjá Karlakór
Reykjavíkur í ár. Í ágúst heldur
kórinn til Austurríkis og syngur á
hátíðartónleikum í Graz og á Beet-
hoven-tónlistarhátíðinni í Bad Aus-
see, sem í ár er tileinkuð minningu
Mariu Callas. Austurríkisferðin er
farin til heiðurs Páli Pampichler, en
hann býr nú á æskuslóðum í Graz.
efi@mbl.is
„Kórinn hljómar vel og er ferskur“
Karlakór Reykjavíkur kemur fram á fernum vortónleikum í Langholtskirkju Sveinn Dúa Hjör-
leifsson syngur einsöng með kórnum að þessu sinni Segir þetta verða sannkallaða hátíðarviku
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Á tánum Karlarnir í Karlakór Reykjavíkur fylgdust einbeittir með stjórnanda sínum, Friðriki S. Kristinssyni, á æfingu í Langholtskirkju fyrr í vikunni.