Morgunblaðið - 05.05.2018, Síða 2

Morgunblaðið - 05.05.2018, Síða 2
VINSÆLU PRISTU BUXURNAR FRÁ MATINIQUE ERU KOMNAR AFTUR! 12.995,-VERÐ 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Farbann Sindri Þór kom fyrir dóm- ara í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Sindri Þór Stefánsson var úrskurð- aður í eins mánaðar farbann í Hér- aðsdómi Reykjaness síðdegis í gær og er nú frjáls ferða sinna hér á landi. Sindri kom til landsins með flugi frá Amsterdam og var í kjölfarið fluttur í héraðsdóm á fimmta tímanum. Lög- regla krafðist ekki gæsluvarðhalds yfir Sindra og var úrskurðurinn því í samræmi við kröfu lögreglunnar. Sindri sagði á Facebook í gær- kvöldi að hann væri hættur að botna í kerfinu. Hann hefði farið frjáls ferða sinna til Svíþjóðar en alþjóðleg hand- tökuskipun hefði verið gefin út á hendur honum og hann þurft að dúsa í einangrun í ellefu daga í Amster- dam. Hann hefði svo verið fluttur handjárnaður í fylgd sérsveitar- manna til landsins í gær en verið sleppt út. „Til hvers var eiginlega verið að auglýsa eftir mér?“ spyr Sindri. Sindri strauk úr fangelsinu á Sogni um miðjan síðasta mánuð. Hann flaug til Svíþjóðar og fór með lest, leigubíl og ferju til Þýskalands með viðkomu í Danmörku. Sindri var handtekinn í Amsterdam 22. apríl. Þegar hann strauk frá Sogni hafði hann setið í gæsluvarðhaldi í tíu vikur í tengslum við þjófnað á 600 tölvum úr þremur gagnaverum í janúar og febrúar. Tölvurnar, sem eru ætlaðar til að grafa eftir rafmyntum á borð við Bitcoin, eru enn ófundnar. Þegar Sindri strauk beið hann úrskurðar dómara um áframhaldandi gæslu- varðhald og taldi sig frjálsan ferða sinna. Ekki hefur enn verið gefin út ákæra í málinu. Íslensk fangelsi eins og hótel Fjallað var um mál Sindra í New York Times í gær. Í umfjöllun blaðs- ins lýsir Sindri flótta sínum og stað- hæfir að hann hafi farið á puttanum til Keflavíkur. Lögregla telur hins vegar að Sindri hafi átt sér vit- orðsmann sem keyrði hann þangað. Fjallað er um aðbúnað fanga hér á landi og segir Sindri að íslensk fang- elsi séu eins og hótel. Þá kveðst hann fljótt hafa séð eftir því að hafa strokið úr fangelsinu að Sogni. Sindri kveðst aðeins hafa gengið frjáls um Amst- erdam í þrjár klukkustundir áður en hann var handtekinn. Sindri í farbann í mánuð  Ekki var gerð krafa um gæsluvarðhald  Sindri furðar sig á umfangi málsins Frestur til að skila inn framboðs- listum fyrir sveitarstjórnarkosning- arnar 26. maí rennur út á hádegi í dag. Ellefu framboð skiluðu inn framboðslistum í Reykjavík í gær þegar yfirkjörstjórn hóf móttöku sína á listum til borgarstjórnarkosn- inga. Það eru Íslenska þjóðfylkingin, Alþýðufylkingin, Samfylkingin, Höf- uðborgarlistinn, Sósíalistaflokkur Ís- lands, Vinstri græn, Viðreisn, Frels- isflokkurinn, Miðflokkurinn, Kvennahreyfingin og Píratar, en Sjálfstæðisflokkurinn, Karlafram- boðið, Framsókn, Kallalistinn, Flokkur fólksins og Borgin okkar höfðu einnig tilkynnt um framboð. Á Akureyri hafði aðeins Sjálfstæð- isflokkur skilað öllum gögnum vegna framboðs í gær og Vinstri græn og L-listinn skiluðu meðmælum. Búist er við að þau skili inn framboðs- listum í dag og von er á framboðs- listum frá Samfylkingu, Framsókn, Miðflokki og Pírötum. Í Mýrdalshreppi hrukku menn ekki í gang fyrr en í gær með til- kynningar um framboð, en það eru Listi framtíðarinnar og Traustir inn- viðir, að sögn formanns kjörstjórnar. Hann býst því við að menn hafi verið löðursveittir við að safna undirskrift- um í gærkvöldi og í morgun. Útlit var orðið fyrir óhlutbundnar kosn- ingar í hreppnum í gær og gæti svo farið, takist þeim ekki að skila gild- um framboðsgögnum fyrir hádegi í dag. Þegar frestur rennur út munu yf- irkjörstjórnir fara yfir listana og kanna hvort þeir uppfylli öll skilyrði. Að því loknu verður úrskurðað um gildi framboðslistanna og kjörgengi frambjóðenda. Um 400 höfðu kosið utan kjör- fundar á höfuðborgarsvæðinu í gær og eru orðnir fleiri en á sama tíma fyrir síðustu sveitarstjórnarkosning- ar. Um 40 höfðu greitt atkvæði utan kjörfundar á Akureyri, og um eða innan við tíu í Fjallabyggð og á Húsavík. Á Suðurlandi höfðu 39 kos- ið utan kjörfundar í gær, skv. emb- ættum sýslumanna á svæðunum. Ellefu framboð af sautján í Reykjavík skiluðu lista í gær  Um 400 kosið utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu Íbúa á suðvesturhorninu hefur rek- ið í rogastans yfir veðurfari síðustu daga. Skafa þarf af bílum á morgn- ana og hver hríðarbylurinn rekur annan. Hlýna á í veðri fyrir næstu helgi. Útsynningur með éljagangi er ekki algengur á þessum tíma árs sunnan- og vestanlands, að sögn Trausta Jónssonar veðurfræðings. „Sá sem gengur yfir þessa dagana er þar að auki í kaldara lagi miðað við það sem gengur og gerist. Snjó festir gjarnan á láglendi um stund þegar él ganga yfir og situr jafnvel á jörð mestalla nóttina og fram eft- ir morgni. Úrkomumagn hefur þó hingað til ekki verið það mikið að verulega hafi snjóað og snjór þar með setið allan daginn á láglendi,“ skrifar Trausti á bloggsíðu sína. Hann segir að það sem valdi þessu sé útrás heimskautalofts vestan frá norðurhéruðum Kanada. „Undir lok vetrar dregur mjög úr afli vestanvindabeltis háloftanna, það gerist þó missnögglega frá ári til árs og ekki alltaf sama daginn. Kuldi norðurslóða hverfur þó ekki á fáeinum dögum né vikum en leggst oft saman í fáeina nokkuð snarpa kuldapolla sem síðan reika langt fram eftir sumri um heim- skautaslóðir. Hreyfingar þessara kuldapolla eru býsna tilvilj- Morgunblaðið/Eggert Heimskautaloft frá Kanada ergir íbúa á suðvesturhorninu Kalt í veðri í upphafi sumars og snjókoma anakenndar og óhjákvæmilegt er að þeir hafi einhver áhrif hér á landi, stundum óbeint en stöku sinnum rekur þá nærri okkur – og geta komið úr öllum áttum. Þeir sem koma úr austri eða suðri hafa hlýnað á leiðum sínum en geta vald- ið umtalsverðri úrkomu. Sá kuldi sem plagar okkur þessa dagana er hins vegar kominn úr vestri. Vest- ankuldi er nær alltaf vægari heldur en norðankuldi. Að auki er aðsókn kulda úr norðri algengari á þessum tíma árs heldur en úr vestri.“ Trausti segir ennfremur að þó svalt sé nú vanti mikið upp á að um einhvern metkulda sé að ræða, sé horft til fyrstu þriggja daga maí. „Meðalhiti þeirra í Reykjavík er +1,7 stig, -2,5 stig neðan meðallags sömu daga áranna 1961-1990, en -3,9 stig neðan meðallags þessara sömu almanaksdaga síðustu tíu ára. Þetta eru nokkuð stórar tölur, en samt vitum við til þess að fyrstu þrír maídagarnir hafi verið kaldari en þetta 20 sinnum á 144 árum. Kaldastir voru þeir 1982, þá var að meðaltali 4,0 stiga frost dagana þrjá. Tveir maímánuðir á þessari öld hafa byrjað kaldari í Reykjavík heldur en maí nú, það var 2003 og 2004, ár sem annars voru sérlega hlý.“ hdm@mbl.is Furðulostnir Þessir ferðamenn virtust skemmta sér vel yfir snjókomunni í miðborg Reykjavíkur í gær. Við erum ekki með neitt í hendi,“ segir Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður samninganefndar ljós- mæðra, að loknum óformlegum fundi með Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í gær. „Við fundum fyrir hluttekningu og velvilja, en kjarasamningar eru ekki á hennar borði,“ segir Katrín. Ekkert nýtt hafi komið fram, en ljósmæður eiga fund með samn- inganefnd ríkisins hjá rík- issáttasemjara á mánudaginn. Aðspurð segir Katrín Sif atvinnu- frelsi ljósmæðra á Íslandi mjög lít- ið, nánast eini vinnuveitandinn sé hið opinbera sem hafi almennt ekki gert samninga við fæðingarstofur í einkarekstri eða einstakar ljós- mæður. Ein einkastofa ljósmæðra er á landinu með rammasamning vegna heimafæðinga í gegnum Ljósmæðrafélagið. ernayr@mbl.is Ljósmæður háðar ríkinu með atvinnu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.