Morgunblaðið - 05.05.2018, Side 60

Morgunblaðið - 05.05.2018, Side 60
miklu uppáhaldi. „Þegar kemur að kveðjustund taka tilfinningarnar við, en Darri er fremstur meðal jafningja þegar kemur að baráttunni.“ Hafsteinn Helgi, sonur Halldórs, spilaði með Darra og Brynjari Björnssyni í yngri flokkunum. „Það er í raun svolítið okkur að þakka að Darri fór að spila körfu því Hafsteinn teymdi Darra með sér á æfingar,“ heldur Halldór áfram. Félagarnir gefa sig út fyrir að vera sérfræðingar í leiknum og leikmönnum, en viðurkenna að fróð- leikurinn risti ekki endilega mjög djúpt. Það breyti ekki því að alltaf sé auðvelt að standa með ein- hverjum manni því þeir séu harðir allir sem einn, eins og stendur í texta Bubba Morthens. „Við eig- um til dæmis áfram Brilla okkar sem er með ígrætt KR-hjarta og það sem gerir þetta lið svolítið sér- stakt er að þetta eru allt menn sem KR hefur fóstr- að og búið til nema Pavel, sem reyndar má ekki síst þakka velgengnina á undanförnum árum. Svo erum við með Jón karlinn, sem var svo elskulegur að koma aftur í uppeldisfélagið þó honum stæði eitt- hvað annað til boða. Síðan er að koma upp mjög efnilegt lið og ég vona að næsta ár verði þetta blanda af þeim eldri og reyndari og inn dælist hæfileikaríkir strákar, sem hafa lítið verið með til þessa en eru ótrúlega góðir.“ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 125. DAGUR ÁRSINS 2018 Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Símtalið kostaði 40 þúsund 2. Umferðaröngþveiti í Kópavogi 3. Líkir íslenskum fangelsum við hótel 4. Sagt að koma með nesti í brúðkaupið  Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds hefur verið tilnefndur til bresku Brit- tónlistarverðlaunanna í flokki klass- ískrar tónlistar, Classic Brit Awards, fyrir tónlist sína við nýjustu þáttaröð Broadchurch. Verðlaunin verða af- hent 13. júní í Royal Albert Hall í London. Morgunblaðið/Eggert Ólafur tilnefndur til Brit-verðlauna  Hljómplötu- útgáfan Unfiled fagnar fyrstu út- gáfu sinni, smá- skífunni Fivefiles með Allenheimer, á Kaffi Vínyl í kvöld kl. 20. Allenheimer er listamannsnafn Atla Bollasonar og eins konar hlið- arsjálf í áratug og er þetta hans fyrsta sólóplata. Kaffi Vínyl er á Hverfisgötu 76. Unfiled fagnar Five- files með Allenheimer  KÍTÓN, Félag kvenna í tónlist, stendur í fyrsta sinn fyrir tónleika- röð með áherslu á klassíska tónlist og á morgun, sunnudag, kl. 17 halda Erla Dóra Vogler mezzósópran og píanóleikarinn Eva Þyri Hilm- arsdóttir tónleika í Hofi. Þær munu flytja sönglög eftir Jórunni Viðar (1918- 2017) sem er eitt dáð- asta tón- skáld þjóð- arinnar. Erla og Eva flytja lög Jórunnar Viðar FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða suðvestan 8-15 m/s og él, en bjart norðaustantil. Styttir upp um tíma í kvöld. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast á Austurlandi. Á sunnudag Suðvestan 13-18 m/s og él eða slydduél, en bjartviðri um landið norð- austanvert. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast á Austurlandi. Styttir upp að mestu um kvöldið. Á mánudag Gengur í suðaustan 5-13 m/s með rigningu og súld, en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Hiti 4 til 10 stig, hlýjast fyrir norðan. Nýliðarnir í Pepsí-deild kvenna í knattspyrnu áttu ólíku gengi að fagna í leikjum sínum í 1. umferð deildarinnar í gær. HK/Víkingur kom nokkuð á óvart með því að leggja FH að velli 2:1 í Kópavoginum. Selfoss fékk hins vegar slæman skell á Hlíð- arenda og tapaði 8:0 þar sem Ásdís Karen Halldórsdóttir skoraði þrennu í sinum fyrsta deildarleik fyrir Val. »4 Ólíkt gengi nýliðanna í 1. umferðinni „Með þessu er ég að færa ferilinn upp á næsta stig,“ sagði örvhenta stórskyttan úr Fram, Arnar Birkir Hálf- dánsson, eftir að tilkynnt var að hann hefði skrifað undir tveggja ára samning við danska handknattleiks- félagið SönderjyskE sem leikur í úrvalsdeildinni þar í landi. Arnar Birkir flytur til Suður-Jótlands um miðjan júlí. »1 Færi ferilinn upp á næsta stig Landsliðskonan Karen Knútsdóttir er afskaplega ánægð með að hafa flutt heim til Íslands í fyrra eftir sex ár í atvinnumennskunni en hún varð á dögunum Íslandsmeistari með upp- eldisfélagi sínu Fram. Karen segist í samtali við Morgunblaðið í dag ekki reikna með öðru en að vera alkomin heim og segir andann í Fram vera einstaklega góðan. Karen sleit há- sin í upphafi tímabils- ins en segist ekki hafa fundið mikið fyrir meiðslunum í úr- slitakeppninni. »2-3 Karen ánægð með þá ákvörðun að flytja heim Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Menn í smóking, jakkafatagengið svokallaða, hafa vakið athygli á úrslitaleikjum KR á Íslandsmótinu í körfubolta karla undanfarna nær þrjá áratugi. Fyrst voru stuðningsmennirnir þrír en undanfarin þrjú til fjögur ár hafa þeir verið fjórir og tekið ást- fóstri við einn leikmann hverju sinni en leggja samt áherslu á að þeir geri ekki upp á milli manna. Halldór Gunnarsson, Einar Gylfi Jónsson og Finnur Guðsteinsson byrjuðu að sitja saman á körfuboltaleikjum KR upp úr 1990, en Jakob Möll- er bættist í hópinn fyrir nokkrum árum. „Við þekktumst frá fyrri tíð og okkur þótti mjög geð- bætandi og skemmtilegt að mæta á leiki KR enda eru hlutirnir í körfuboltanum miklu æsilegri en nokkru sinni í fótboltanum,“ segir Halldór. „Þetta virkar líka eins og lyf í vetrardrunganum.“ Hefð í klæðaburði Fljótlega mynduðust ákveðnar hefðir hjá þre- menningunum og ein sú sterkasta snýr að klæða- burði. Þeir mæta í hversdagslegum fötum meðan á deildarkeppninni stendur en þegar kemur í úrslita- keppnina setja þeir upp bindi eða slaufu og eru í jakka. Eftir því sem liðið kemst lengra því fínni föt- um klæðast þeir. Þegar bikarinn er kominn í hús og aðeins á eftir að lyfta honum mæta þeir í smóking, KR-litunum. „Við fylgjum þessum reglum út í ystu æsar enda liggja mikil vísindi að baki,“ segir Halldór. Hann bætir við að þegar úrslitaleikur KR og Tindastóls var fyrir norðan fyrir þremur árum hafi hann legið heima með flensu. „Ég klæddi mig samt í smóking og lá síðan undir sæng og horfði á leikinn í sjón- varpinu. Ég tók enga áhættu og KR vann.“ Eftir nýliðinn úrslitaleik skrifaði Einar Gylfi á síðu sína á Facebook að Darri Hilmarsson væri þeirra maður og þakkaði honum samfylgdina, en fram hefur komið að leikmaðurinn er á förum til Svíþjóðar. „Darri er okkar maður, við uppgötv- uðum hann, því þegar hann byrjaði á bekknum sáum við hvað í honum bjó,“ segir Einar Gylfi, spurður nánar um færsluna. „Við höfum alltaf átt okkar uppáhaldsleikmann,“ bætir Halldór við. „Það er sá sem hendir sér oftast og skilar af sér mikilli orku við það eitt að koma inná. Hann er ekki endilega bestur innan gæsa- lappa heldur er hann með stórt hjarta.“ Hann bætir við að þegar menn kveðja verði þeir í sérstaklega Lyf í vetrardrunganum Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Í smóking Fjórmenningarnir á úrslitaleik KR og Tindastóls í KR-heimilinu fyrir viku. Frá vinstri: Halldór Gunnarsson, Jakob Möller, Einar Gylfi Jónsson og Finnur Guðsteinsson.  Jakkafatagengið í KR kveður Darra Hilmarsson með söknuði og tárum Ljósmynd/Sigrún Bjarnadóttir Íslandsmeistarar Halldór og Darri eftir verð- launaafhendinguna í liðinni viku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.