Morgunblaðið - 05.05.2018, Side 52
Kassettan eða hljómsnældan hefur verið að koma giska sterk inn á útgáfu-
markaðinn að undanförnu, einkanlega þó í neðanjarðarkreðsum.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Fyrir ellefu árum ræddi ég við tón-
listarmennina Loga Höskuldsson
og Þórð Hermannsson en þeir
stóðu þá í kassettuútgáfu. Formið
var þá svo gott sem horfið hér-
lendis upp á útgáfu að gera og til-
tæki þeirra einsdæmi. Fyrir fjórum
árum skrifaði ég aðra grein, en þá
var kassettan farin að ryðja sér til
rúms sem útgáfuform á nýjan leik,
á svipaðan hátt og vínyllinn, en þó í
mun minni mæli. Þegar ég sting
penna niður nú (eða þrýsti fingrum
á lyklaborð) er kassettan svo gott
sem orðin fasti í ákveðnum und-
irgeirum tónlistarinnar. Hún er þá
líka, í æ fleiri tilfellum, að verða
partur af útgáfu stærri fyrirtækja.
Maður er farinn að sjá setninguna
„LP/CD/MC“ í útgáfutilkynn-
ingum, líkt og algengt var fyrir
kvartöld síðan. Lana Del Rey er
t.d. einn vinsældatónlistamaðurinn
sem hefur nýtt sér formið. Þess ber
þó að geta að þessi endurkoma á
við um Vesturlönd, í þróunar-
ríkjum t.d. er formið ennþá ansi al-
gengt.
Ég spurði Gest Baldursson,
kassettuáhugamann og starfsmann
hjá Lucky Records, aðeins út í
þetta mál, en Gestur er mikill
áhugamaður um formið og hefur
m.a. skráð hjá sér alla íslenska tón-
list sem komið hefur út á kass-
ettum frá upphafi.
Um vinsældir formsins í dag
hafði hann þetta að segja: „Þessi
vaxandi gróska virðist haldast í
hendur við vínylinn. Að einhverju
leyti er þetta mótspyrna við
streyminu og stafrænu þróuninni.
Kassettan er og hefur alltaf verið
uppáhalds fasta formið mitt utan-
um tónlist og kostir formsins eru
ótvíræðir, kassettan er lítil og létt,
handhæg og hljómgæði yfirleitt
mjög mikil. Hún er ódýr í inn-
kaupum og framleiðslu og ekkert
lágmark er sett á eintakafjölda hjá
framleiðslufyrirtækjum. Svo það er
sáraeinfalt, fljótlegt, þægilegt og
Hin sælu segulbönd
Rjómagul
Kassettan
Midnight
Champion með
hljómsveitinni
Legend.
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Sunnudagur 6. maí: Barnaleiðsögn kl. 14
Þriðjudagur 8 maí: Hádegisfyrirlestur kl. 12
Miðvikudaginn 9 maí: Fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð.
Fyrirlestur og opnun kl. 12
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning
Þjóðminjasafnsins
David Barreiro – Langa blokkin í Efra Breiðholti í Myndasal
Karl Jeppesen – Fornar verstöðvar á Vegg
Prýðileg reiðtygi í Bogasal
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sunnudagur 6. maí: 2 fyrir 1 af aðgangseyri
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld
Spegill samfélagsins 1770 - Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið alla daga 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga 10-17
ELINA BROTHERUS
LEIKREGLUR – 16.2. - 24.6.2018
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR
Valin verk úr safneign
7.4.2017 - 31.12.2019
SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TVEIR SAMHERJAR
– ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON
21.10.2017 - 7.10.2018
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70,
sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
Sýning Guðmundar Thoroddsen, Allt
í klessu, verður opnuð í Harbinger-
sýningarrými á Freyjugötu 1 í dag,
laugardag, kl. 17.
Á undanförnum árum hefur Guð-
mundur verið að skoða karlmennsku
og stöðu feðraveldisins, þar sem hann
gagnrýnir og hæðist að því á sama
tíma og hann upphefur það. Húm-
orísk og sjálfrýnin verkin eru, sam-
kvæmt tilkynningu, unnin í fjöl-
breytta en hefðbundna miðla, svo
sem leir, vatnslit, teikningu og mál-
verk. Myndefni fyrri ára voru gjarn-
an skeggjaðir karlar sem uppteknir
voru við ýmsa iðju á borð við körfu-
knattleik, bjórbruggun og skotveiðar
en á síðustu misserum hafa mynd-
irnar orðið æ óhlutbundnari.
Guðmundur lauk BA-námi í mynd-
list frá LHÍ árið 2003 og útskrifaðist
með MFA-gráðu frá School of Visual
Arts í New York árið 2011. Hann hef-
ur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér
á landi sem og erlendis. Sýningin er
hluti af sýningaröðinni „Við endimörk
alvarleikans“. Viðfangsefni sýning-
araðarinnar er leikur í víðum skiln-
ingi og þáttur hans og vægi í sköp-
unarferlinu.
Leikur Eitt verka Guðmundar Thoroddsen á sýningunni í Harbinger.
Allt í klessu hjá Guð-
mundi í Harbinger
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Hönnuðurinn Brynjar Sigurðarson
hlýtur í ár hin virtu hönnunarverð-
laun Torsten and Wanja Söderberg
Prize sem Rohsska-safnið í Svíþjóð
veitir árlega einum norrænum hönn-
uði. Verðlaunaféð nemur einni millj-
ón sænskra króna, 11,5 milljónum ís-
lenskra króna. Brynjar er þriðji
íslenski hönnuðurinn sem hlýtur Sö-
derberg-verðlaunin en Hjalti Karls-
son hlaut þau árið 2013 og Steinunn
Sigurðardóttir 2008.
Brynjar, sem fæddist í Reykjavík
árið 1986, útskrifaðist frá hönnunar-
deild Listaháskóla Íslands árið 2009
og lauk meistaranámi í Lausanne í
Sviss tveimur árum síðar. Hann hef-
ur undanfarin ár rekið hönnunar-
stúdíó í Berlín ásamt unnustu sinni,
Veronika Sedlmair, en býr nú og
starfar í Suður-Frakklandi.
Brynjar hefur áður hlotið Sviss-
nesku hönnunarverðlaunin og Hönn-
unarverðlaun framtíðarinnar sem
Swarovski-fyrirtækið veitir á Design
Miami/Basel hönnunarkaupstefn-
unni. Þá gaf hollenskt forlag haustið
2015 út bók um hönnun Brynjars.
Rætur í íslenskri menningu
Í umsögn dómnefndar Söderberg-
verðlaunanna um verk Brynjars seg-
ir að verk hans hafi traustar rætur í
tveimur grunnþáttum íslenskrar
menningar, sagnalist og fiskveiðum.
Frumleiki verka hans byggist á hæfi-
leikum til að tengja við fortíðina en
um leið standi hann föstum fótum í
samtímanum þar sem hann takist á
við alþjóðleg áhrif og nýja möguleika.
Þá er sagt að hæfileiki Brynjars til að
eiga í samstarfi við fólk úr ólíkum
greinum, svo sem sjómenn, kvik-
myndagerðarmenn, rithöfunda, tón-
listarmenn, fornleifafræðinga og
handverksfólk, sé lykilþáttur í öllum
verkum hans. Forvitni og einlægni
skíni í gegnum öll verk Brynjars sem
dómnefndin segir sýna „norræn tök á
hönnunarstraumum í Evrópu“.
Forðast skilgreiningar
„Þetta er mikil viðurkenning,“ seg-
ir Brynjar um Söderberg-verðlaunin
þegar slegið er á þráðinn til hans til
Frakklands. „Síðan ég lauk námi árið
2011 hef ég unnið sjálfstætt, sem get-
ur verið erfitt, og þá er ótrúlega kær-
komið að fá svona stuðning sem hvet-
ur mig til að halda áfram við það sem
ég hef verið að gera. Og við að
treysta því að það hafi eitthvert vægi.
Það er mikil heiður að vera í hópi
þeirra frábæru hönnuða sem hafa
hlotið þessi verðlaun.“
Þegar haft er á orði að aðeins séu
sjö ár síðan Brynjar lauk námi en
hann hafi þegar unnið til nokkurra
virtra verðlauna, segist hann hafa
verið heppinn. „Nokkrir aðilar, bæði
á Íslandi og hér úti, hafa haft trú á
því sem ég geri og það hefur verið
dýrmætt. Ég hef fengið mjög áhuga-
verð verkefni og hef getað unnið að
þeim á minn hátt.“
Það er athyglisvert að skoða hönn-
un Brynjars sem er mjög myndlist-
arblandin og vísar í ýmsar áttir, með
ljósmyndum og teikningum til að
mynda, auk vöruhönnunar. Hvernig
skilgreinir hann sig?
„Ég reyni að forðast skilgrein-
ingar og það hefur leitt mig að hinu
og þessu. Ég lærði hönnun og nota
verkfæri hennar á einhvern hátt, þó
áhugi minn og athygli liggi ekki endi-
lega í fjöldaframleiðslu. Mér finnst
spennandi að gera hluti en hef líka
áhuga á þáttum innan sviðslista, frá-
sögnum og í tónlist – ég hef unnið
með hljóðfærasmiðum, flautuleik-
urum og tónskáldi, Þráni Hjálmars-
syni. Nú vinnum við að nokkuð stóru
verkefni og spennandi í Arles hér í
Suður-Frakklandi, með fornleifa-
fræðingum. Við höfum verið heppin
að fá reglulega boð frá listasjóðum
eða samtökum sem bjóða okkur að
vinna við að gera verk á hinum og
þessum stöðum sem þau kosta.
Mér finnst líka áhugavert að búa
til húsgögn og hluti sem til að mynda
tengjast hafnaumhverfi á Íslandi. Í
lokaverkefni mínu við LHÍ fór ég til
Vopnafjarðar, var þar í mánuð og
reyndi að taka inn andrúmsloftið og
umhverfið. Ég ræddi meðal annars
við sjómenn og hef síðan verið að
gera æfingar þar sem ég reyni að
„þýða“ þetta umhverfi og þennan
stað yfir í efni og hluti,“ segir hann.
Ljósmynd/María Rúnarsdóttir
Verðlaunahönnuður Brynjar Sigurðarson byggir hönnun sína m.a. á and-
rúmslofti og umhverfi sem hann kynntist á Vopnafirði fyrir útskrift.
„Ótrúlega kærkomið
að fá svona stuðning“
Hönnuðurinn Brynjar Sigurðarson hlýtur Söderberg-
hönnunarverðlaunin í ár Verðlaunaféð 11,5 milljónir kr.
Hengi Silent Village Collection Coat
hanger eftir Brynjar, frá 2014.