Morgunblaðið - 05.05.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.05.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018 Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna, verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið. Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent 12in Wall fan Hi-line Sabre Plate DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS Hreint loft og vellíðan Það borgar sig að nota það besta VENT–AXIA VIFTUR SVIÐSLJÓS Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Langdræg bandarísk sprengjuflugvél af gerð- inni B-52H Stratofortress lenti á Keflavíkur- flugvelli laust eftir klukkan hálftvö síðast- liðinn fimmtudag. Hafði vélinni þá verið flogið hingað til lands frá Minot-herflugvellinum í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum og var flug- tími um sjö og hálf klukkustund. Þyrlusveit Landhelgisgæslu Íslands tók á móti vélinni þar sem hún flaug lágflug yfir Reykjanes og fengu Moggamenn að fljóta með. Farið var með Gæsluþyrlunni TF-SYN frá aðstöðu Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkur- flugvelli. Flugstjóri ferðarinnar var Walter Ehrat og við hlið hans í flugstjórnarklefanum var Tryggvi Steinn Helgason flugmaður. Ferðinni var heitið á Reykjanes þar sem von var á einu helsta tákni kalda stríðsins: B-52. Þegar Gæsluþyrlunni var flogið yfir föstu landi skammt frá Grindavík mátti heyra í flugumferðarstjórn að „Mikey 5-1“ hafi fengið leyfi til að lækka flug niður í um 300 metra hæð, en það var kallmerki sprengjuvélarinnar sem fáeinum mínútum síðar átti eftir að fljúga lágflug yfir minningarathöfn sem haldin var við Grindavíkurveg. Var þar kominn saman hópur til að minnast bandarísku sprengjuvél- arinnar „Hot Stuff“ sem fórst 3. maí 1943 á Fagradalsfjalli á Reykjanesi. Í slysinu fórust allir um borð, alls 14 menn, nema stélskyttan. Sá komst lífs af við illan leik. Svartur reykjarstrókur á himni Í þyrlunni beindust allra augu að hafi. Tryggvi Steinn flugmaður rauf þögnina. „Klukkan eitt,“ sagði hann og benti í sömu átt. Sást þar mikill og svartur reykjarstrókur á himni. „Maður sér hana koma langar leiðir,“ bætti hann við, en B-52 er engin smásmíði. Vélin er um 50 metrar á lengd með 56 metra vænghaf og knúin áfram af átta þotuhreyflum sem gefa frá sér myndarlegan strók. Hver sprengjuvél getur borið 32 tonn af sprengjum og eldflaugum og er flugdrægnin yfir 14.000 km. Þotur þessar geta hins vegar tekið elds- neyti á lofti og þannig lengt flugið. Það var tilkomumikil sýn að horfa á þennan risa fljúga lágflug og brenna af til norðurs áð- ur en stefnan var tekin á Keflavíkurflugvöll. Þar hafði vél af þessari gerð ekki lent frá árinu 1997, en fyrstu tvær B-52 til að sækja landið heim komu árið 1995 til að taka þátt í heræfingu Norðurvíkings þar sem m.a. voru æfðar loftárásir á skotmörk á jörðu niðri. Skömmu eftir að hjólin snertu flugbraut í Keflavík var stórri bremsuhlíf sleppt til að hjálpa til við að hægja á flugvélinni. Eftir að vélin staðnæmdist við brautarendann hopp- uðu tveir úr áhöfninni út og gengu þeir með- fram vængjum vélarinnar þar til hún var komin í stæði. Er þetta nauðsynlegt svo gríðarstórir vængirnir rekist ekki utan í hugs- anlega fyrirstöðu á leiðinni. Allar framleiddar á tíu ára tímabili „Flugið gekk mjög vel og engin vandræði. Við erum vanir erfiðum veðurskilyrðum, miklu roki og snjókomu svo veðrið hér er ekk- ert frábrugðið því sem við þekkjum,“ segir flugstjóri sprengjuvélarinnar í samtali við Morgunblaðið, en hann gengur undir viður- nefninu „Fetch“. Alls eru í dag fimm í áhöfn á B-52, þ.e. flugstjóri, flugmaður, siglingafræð- ingur, radarsérfræðingur og vopnasérfræð- ingur. Á eldri gerðum B-52 var einnig stél- skytta en búið er að leggja þá stöðu af. B-52 Stratofortress er hönnuð og framleidd af bandaríska flugvélaframleiðandanum Boeing og fór hún fyrst í þjónustu flughersins á sjötta áratug síðustu aldar. Sú vél sem hér um ræðir var framleidd árið 1961, en allar B-52-vélarnar, alls 744 fullkláruð eintök, voru gerðar árin 1952-1962. „Það besta við þessa vél er hversu vel hún er smíðuð. Hún er sterk og hefur í gegnum árin náð að aðlagast breyttu umhverfi. Að ut- an er þetta nær sama flugvél og þegar hún fór ný af færibandinu. Innra rýmið er hins vegar mjög breytt. Þetta er því 21. aldar vél í skrokki öldungs,“ segir Fetch og bætir við að flugherinn hafi nýverið ákveðið að halda B-52 í sinni þjónustu til ársins 2045-2050. Fari svo fram sem horfir mun umrædd flugvél verða hátt í 90 ára gömul þegar hún loks hættir þjónustu sinni við herinn. Aðspurður segir Fetch fremur auðvelt að fljúga B-52 og að manni finnist vélin minni en hún er í raun. „Vélinni er flogið handstýrt og við erum mjög stoltir af því. Sömu sögu má segja af þeim sem fara með stjórn vopnakerf- isins um borð – þar er einnig mörgu hand- stýrt. Þeir sjá um mjög flókið og fjölbreytt vopnakerfi, allt frá sprengjum sem notast ein- göngu við þyngdarafl yfir í hátækni vopn sem styðjast við gervitungl. Þessir einstaklingar þurfa að vera mjög vel þjálfaðir og nákvæmir í sinni vinnu. Á þetta einnig við um varnir vél- arinnar, en ég hef alltaf verið þeirrar skoð- unar að velgengni byggist að hluta til á færni og tækni.“ Fetch segir mikinn undirbúning liggja að baki komu sprengjuvélarinnar til Íslands og að áhöfnin hafi kynnt sér aðstæður á Keflavíkurflugvelli afar náið áður en lagt var af stað. Þá segir hann Keflavíkurflugvöll henta mjög vel fyrir flugvélar af þessari stærð. „Við erum mjög stoltir af því að hafa fengið tækifæri til þess að koma hingað. Þetta er í raun alveg einstakt tækifæri fyrir okkur því flugvél af þessari gerð hefur ekki komið til Ís- lands frá árinu 1997 – sem er ansi langur tími,“ segir hann og bætir við að flugvélin haldi aftur til Bandaríkjanna næstkomandi mánudag. Fram að þeim tíma mun áhöfnin skoða sig um og sjá hvað Ísland hefur upp á að bjóða. „Okkur langar til að stuðla enn frek- ar að góðu samstarfi og vináttu á milli Íslands og Bandaríkjanna,“ segir Fetch að lokum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vinnuhestur B-52H Stratofortress stendur nú á Keflavíkurflugvelli og verður þar fram yfir helgi. Þessi gerð sprengjuflugvéla fór fyrst í þjónustu flughersins á sjötta áratug síðustu aldar. Hátækni í skrokki öldungs  Táknmynd kalda stríðsins leynist nú í Keflavík  Var framleidd árið 1961 og er hvergi á förum Morgunblaðið/Árni Sæberg Skriffinnska Flugstjórinn „Fetch“ (t.v.) kvittar upp á pappíra við komuna til Keflavíkur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.