Morgunblaðið - 05.05.2018, Page 34
34 UMRÆÐAN Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018
AKUREYRARKIRKJA | Lokahátíð barnastarfs-
ins. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Yngri og
eldri barnakórar kirkjunnar synga og leika á
hljóðfæri. Umsjón sr. Sunna Dóra Möller, Sindri
Geir Óskarsson, Tinna Hermannsdóttir og Sig-
rún Magna Þórsteinsdóttir. Grillaðar pylsur og
ratleikur, bæði inni og úti, að guðsþjónustu lok-
inni. Guðsþjónusta á Hlíð kl. 14. Prestur er
Svavar Alfreð Jónsson.
AKURINN kristið samfélag | Samkoma í Nú-
palind 1, Kópavogi, kl. 14. Biblíufræðsla, söng-
ur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari.
Kristína Kalló Szklenár organisti. Kirkjukórinn
leiðir almennan safnaðarsöng. Sunnudagaskóli
á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar í um-
sjón Ingibjörgu og Önnu Siggu. Kaffisopi og
spjall á eftir.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Sigurður Jóns-
son prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Kristn-
ýju Rós Gústafsdóttur djákna. Kór Áskirkju syng-
ur. Organisti Bjartur Logi Guðnason. Kaffisopi
eftir messu. Guðsþjónusta á hjúkrunarh. Skjóli
kl. 13. Séra Sigurður Jónsson þj. f. altari og pré-
dikar. Organisti Bjartur Logi Guðnason. Alm.
söngur. Vandamenn og vinir heimilisfólks vel-
komnir.
Uppstigningardagur. Guðsþjónusta kl. 14.
Kristný Rós djákni prédikar. Ekkókórinn syngur.
Kaffi í boði Safnaðarfélags Áskirkju.
BESSASTAÐAKIRKJA | Vorhátíð. Lærisveinar
Hans leiða lofgjörð kl. 11 undir stjórn Ástvaldar
organista, Lóa Kolbrá syngur. Svo verður haldið í
Brekkuskóga 1, þar verða grillaðar pylsur,
hoppukastali og andlitsmálun. Síðdeg-
isguðþjónusta kl. 17. og fundur með ferming-
arbörnunum sem fermast vorið 2019 og for-
eldrum. Sr. Hans Guðberg þjónar, Lærisveinar
Hans spila, sérstakur gestaspilari er Guð-
mundur Jónsson úr Sálinni.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11 í
umsjá Hreiðars Zoëga. Guðsþjónusta kl. 14,
séra Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar og predik-
ar, félagar úr kammerkór Bústaðakirkju syngja.
Molasopi eftir messu í safnaðarsal.
DIGRANESKIRKJA | Útvarpsguðsþjónusta kl.
11, prestur Gunnar Sigurjónsson, organisti Sól-
veig Sigríður Einarsdóttir. Kammerkór Digra-
neskirkju syngur. Einsöngvari Sandra Lind Þor-
steinsdóttir. Gísli Geir Gíslason leikur á
jambee-trommur og Gunnar Sigfús Björnsson á
bassa. Veitingar í safnaðarsal að lokinni guðs-
þjónustu.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á
íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl.
16 á spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Sveinn Val-
geirsson prédikar og þjónar. Dómkórinn syngur
og organisti er Kári Þormar. Bílastæði við Al-
þingi.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Gospelmessa kl. 20.
Liljurnar syngja trúarlega tónlist úr smiðju
hljómsveitarinnar U2 og úr söngleikjum og kvik-
myndum. Einsöngvarar úr röðum kórfélaga. Kór-
stjóri Margrét Lára Þórarinsdóttir. Tryggvi Her-
mannsson við flygilinn. Jón Gunnar Axelsson
flytur vitnisburð og sóknarprestur annast hug-
vekju. Kaffisopi eftir stundina.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og predik-
ar. Jón Magnús Jónsson og Arnþrúður Ösp
Karlsdóttir syngja undir stjórn Arnhildar Val-
garðsdóttur organista. Meðhjálpari Jóhanna
Freyja Björnsdóttir. Kaffsopi eftir stundina.
GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Gunn-
laugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir
söng undir stjórn Valmars Väljaots. Sunnudaga-
skóli kl. 11. Umsjón Sunna Kristrún djákni og
leiðtogar.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra
Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar. Kór
Grafarvogskirkju leiðir söng og organisti er Há-
kon Leifsson. Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkj-
unnar kl. 11. Umsjón hefur Hólmfríður Frosta-
dóttir og undirleikari er Stefán Birkisson.
Aðalsafnaðarfundur Grafarvogssóknar verður
haldinn þriðjudaginn 15. maí kl. 17.30. Venjuleg
aðalfundarstörf. Nánari upplýsingar á heima-
síðu kirkjunnar.
GRENSÁSKIRKJA | Fjölskyldustund kl. 11
með séra Maríu Ágústsdóttur og Daníel Ágústi
Gautasyni ásamt starfsfólki sunnudagaskólans
og messuþjónum. Félagar í kirkjukór Grens-
áskirkju syngja. Organisti Ásta Haraldsdóttir.
Grill og leikir eftir stundina.
Uppstigningardagur. Guðsþjónusta kl. 11.
Kvennakórinn Glæðurnar syngur, kórstjóri og
organisti er Ásta Haraldsdóttir. Sr. María
Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
messuþjónum. Kaffi og meðlæti á eftir.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðs-
þjónusta klukkan 14 í hátíðasal Grundar. Séra
Auður Inga Einarsdóttir heimilisprestur þjónar.
Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar
Waage organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fjöl-
skyldumessa kl. 11. Prestur Sigurjón Árni Eyj-
ólfsson. Barnakór Guðríðarkirkju syngur undir
stjórn Ásbjargar Jónsdóttur og Svanfríðar Gunn-
arsdóttur. Emilía Rut á fiðlu og Snorri Páll á
selló. Kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Vorhátíð fjöl-
skyldunnar kl. 11-13. Barna- og unglingakórar
kirkjunnar syngja. Hljómsveit spilar. Sunnudaga-
skólinn tekur þátt í stundinni. Hoppukastali,
grillaðar pylsur, leikir, tónlist og kaffi.
Uppstigningardagur. Hátíðarmessa í Víðistaða-
kirkju kl. 14. Kaffiveitingar á eftir. Eldri borgarar
sérstaklega boðnir velkomnir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Ósk-
arsdóttur. Hópur messuþjóna aðstoðar. Félagar
úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti
er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón barna-
starfs Inga Harðardóttir. Bænastund mánud. kl.
12.10. Fyrirbænaguðsþjónusta þriðjud. kl.
10.30. Árdegismessa miðvikud. kl. 8.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Organisti
Steinar Logi Helgason. Prestur Eiríkur Jóhanns-
son. Súpa í boði eftir messu. í framhaldi af því
hefst aðalsafnaðarfundur Háteigssóknar.
HJALLAKIRKJA Í Ölfusi | Vormessa á Hjalla
kl. 14. Yngri kór Grunnskóla Þorlákshafnar syng-
ur undir stjórn Gests Áskelssonar og Sigþrúðar
Harðardóttur. Kór Þorlákskirkju, Miklos Dalmay.
Prestur og djákni sjá um orðræðu.
HVALSNESSÓKN | Fjölskyldumessa í Safn-
aðarheimilinu í Sandgerði kl. 17. Kirkjukórinn
syngur undir stjórn Keith Reed. Barnakórinn
syngur undir stjórn Sigurbjargar Hjálmarsdóttur.
HVERAGERÐISKIRKJA | Messa og ferming
kl. 10.30. Jón Ragnarsson sóknarprestur mess-
ar. Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna
leiðir söng undir stjórn Miklósar Dalmay.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11. Translation into English. Samkoma
á spænsku kl. 13. Reuniónes en español. Sam-
koma á ensku kl. 14. English speaking service.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Dýrin í Hálsaskógi, frá
Leikfélagi Keflavíkur, kl. 11. Grillpylsur á eftir.
Sr. Fritz Már leiðir stundina.
Uppstigningardagur. Eldey, kór eldri borgara á
Suðurnesjum, syngur kl. 13. undir stjórn Arnórs
organista. Prestur er Erla. Kaffi og meðlæti í
Kirkjulundi. Vortónleikar Eldeyjar í Kirkjulundi kl.
17.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur
þjónar og predikar. Organisti er Magnús Ragn-
arsson. Félagar úr Kór Langholtskirkju leiða
safnaðarsöng. Aðalsteinn Guðmundsson kirkju-
vörður og messuþjónar aðstoða við helgihaldið.
Sögustund á sama tíma. Sara Grímsdóttir tekur
á móti börnunum. Kaffi og samfélag í safn-
aðarheimili eftir stundina.
LAUGARNESKIRKJA | Fermingarmessa kl.
11. Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu á með-
an. Helgistund kl. 13 Betri stofunni Hátúni 12
með sr. Davíð Þór og Elísabetu organista.
Uppstigningardagur. Eldri borgara messa kl. 14.
Lögreglukórinn annast tónlistarflutning. Sr. Lára
G. Oddsdóttir prédikar. Mag. theol. Jónína Ólafs-
dóttir leiðir stundina. Kaffi og samvera í safn-
aðarheimilinu á eftir.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Kirkjukór Lágafellssóknar syngur undir stjórn
Þórðar Sigurðssonar organista. Sr. Arndís G.
Bernhardsdóttir Linn prédikar og þjónar fyrir alt-
ari.
NESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl.
11. Sr. Örn Bárður Jónsson predikar og þjónar
fyrir altari ásamt sr. Steinunni A. Björnsdóttur.
Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða söng
undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista.
Sunnudagaskólinn er í umsjá Ásu Laufeyjar og
félaga. Söngur, leikur og sögur. Boðið verður
upp á léttan hádegisverð að lokinni messu og
þar segir Örn Bárður frá því hvernig það er að
þjóna í norsku kirkjunni. Aðalsafnaðarfundur
verður haldinn í safnaðarheimili kirkjunnar kl
10.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam-
komur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3.
hæð. Barnastarf. Túlkað á ensku.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ólaf-
ur Jóhann Borgþórsson predikar. Kór Seljakirkju
leiðir söng. Organisti Tómas Guðni Eggertsson.
Að guðsþjónustu lokinni fer aðalfundur safn-
aðarins í safnaðarheimilinu.
SELTJARNARNESKIRKJA | Setning listahá-
tíðar Seljtarnarneskirkju kl. 17 með söng
Kammerkórs kirkjunnar. Hátíðarmessa kl. 11,
Dr. Gunnlaugur A. Jónsson prédikar. Sr. Bjarni
Þór Bjarnason þjónar fyrir altari. Organisti er
Friðrik Vignir Stefánsson. Kammerkór kirkjunnar
syngur. Listsýningar Ingunnar Benediktsdóttur
og Herdísar Tómasdóttur opnaðar. Rakel Péturs-
dóttir safnafræðingur flytur erindi um list þeirra.
Kaffiveitingar. Aðalsafnaðarfundur verður hald-
inn 14. maí kl. 17 í kirkjunni.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Biblíusaga, kirkjubrúður og
söngur. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir almennan
söng. Kórstjóri og organisti er Sigurbjörg Krist-
ínardóttir. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og Ísold
Gná Ingvadóttir hafa umsjón með stundinni.
Grillaðar bulsur og pylsur í skrúðgarði við kirkju
eftir stundina.
SJÓMANNAHEIMILIÐIÐ Örkin | Færeysk
guðsþjónusta í Neskirkju kl. 15. Prestur er Heri
Joensen. Kaffi á eftir guðsþjónustu verður í Fær-
eyska sjómannaheimilinu.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa 11. Sr.
Sveinn Alfreðsson annast prestsþjónustuna.
Kvennakórinn Hrynjandi syngur. Organisti er Jón
Bjarnason.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Kvöldmessa kl. 20. Kirkju-
kórinn syngur undir stjórn Keith Reed.
VÍDALÍNSKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Foreldrar og fermingarbörn
næsta vors boðin velkomin. Jóhanna Guðrún
Jónsdóttir og unglingakórinn syngja við undirleik
Davíðs Sigurgeirssonar. Jóhanna Guðrún segir
frá fermingardegi sínum. Stutt kynning á skrán-
ingarferli og starfi næsta árs. Léttar veitingar.
Gönguguðsþjónusta kl. 14. Mæting á bílastæði
við Vífilsstaðavatn. Gengið kringum vatnið. Fé-
lagar úr Kór Vídalínskirkju syngja undir stjórn Jó-
hanns Baldv. Sr. Jóna Hrönn flytur örhugleið-
ingar. Klæðnaður eftir veðri.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Messa kl.
11. Kór Víðistaðasóknar syngur. Prestur Bragi J.
Ingibergsson. Sunnudagaskóli kl. 11. María og
Bryndís leiða stundina.
ÞORLÁKSKIRKJA | Uppstigningardagur. Kaffi-
messa á Níunni kl. 10.
Orð dagsins: Biðjið í Jesú
nafni.
(Jóh. 16)
Bræðratungukirkja
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagins 7. maí
SÉRBLAÐ
Skoðuð verða húsgögn og innréttingar,
skrautmunir og fylgihlutir fyrir heimilið,
litir og lýsing ásamt mörgu öðru.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Heimili &
hönnun
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 11. maí
Hvort er betra að
þjóð einangri sig í
tungumáli sem er jafn-
vel í útrýmingarhættu,
eða taki upp á arma
sína alþjóðlega tungu-
málið sem flestar
hennar erlendu vin-
þjóðir hafa lært að
skilja? Jafnvel fjar-
lægir þjóðflokkar eins
og Japanir og Kínverj-
ar, okkar mikilvægustu markaðir til
langs tíma litið. Erfiðara er fyrir þá
en okkur að læra ensku, þótt þeir
láti sig hafa það, enda skynsamir
vel.
Gestir frá helstu frændþjóðum
okkar í Skandinavíu bregða gjarnan
fyrir sig ensku í heimsóknum sínum
á íslenska grundu, samkvæmt minni
reynslu og margra minna vina í
ýmsum þjónustustörfum. Enda eðli-
legt – enskan er alþjóðamálið hvað
svo sem Rússum kann að finnast um
það. Leiðinlegt að þeir skuli vera
lokaðir inni í kírillíska stafrófinu,
útilokaðir frá almennilegri tengingu
við Evrópu þess vegna. Líkt og
Grikkir af hliðstæðri ástæðu. Geta
ekki samlagast öðrum Evrópubúum
að gagni sýnist mér, nema á ensku.
Sorrý! (Sic)
Skyldi enskan ekki verða þeim
sami bjargvætturinn og okkur Ís-
lendingum var sendur fyrir manns-
aldri síðan eða svo? Og þeim ætti nú
að standa til boða, bara ef þeir vilja,
vonandi sem fyrst. Spurningin snýst
ekki síst um ritmálið. Letrið.
Vonandi munu bæði Björn
Bjarnason, fyrrverandi mennta-
málaráðherra, og ekki síður frú Vig-
dís Finnbogadóttir, forseti vor fyrr-
verandi og tungumálafrömuður,
styðja tvímála tungumálakennslu í
fyrsta sæti skólakerfisins, frá leik-
skóla til háskóla. Íslensku og ensku
samhliða og í samkeppni hvor við
aðra, öðrum þjóðum til fyrirmyndar.
Appahönnuðum til mikillar ánægju
og atvinnumöguleika, auk annarra
afleiddra tækifæra til aukins þroska
þjóðfélagsins.
Nám virðist vera að
færast meira og minna
yfir í snjalltæki sem
gera kleift að breyta
„prófum“ í keppnir eða
áfanga. Nemendur
ættu að geta á eigin
forsendum „skorað“
eða lokið áföngum sem
krafist er á næsta stigi
í hvaða námi sem við-
komandi kýs. (Vonandi
verklegt.)
Ég sem slíkur held
auðvitað með íslensk-
unni, þótt ég neyðist oftast til að
tala ensku í samskiptum mínum við
farþegana – starfandi einkum við
landamærin hjá Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar. Fólk frá flestum heims-
hornum, held ég megi segja. Sum
málin sem fólk talar sín á milli eru
mér algjörlega hulin en við náum þó
allajafna ágætlega saman á ensku.
Er það ekki alveg frábært? Hæfni
og þekking til að tjá sig á alþjóða-
málinu er grundvallaratriði, hvort
sem ferðamannastraumurinn vex
eður ei. Varðar okkur öll – beint og
óbeint.
Það er auðveldara fyrir okkur Ís-
lendinga að læra ensku en Asíubúa
sem alast upp við svokölluð tónamál.
Þar breyta sérhljóðar sem bætt er
við fleiri sérhljóða setningum mikið
og samhljóðar (f, g, l, r o.fl.) eru
þeim afar þungir í skauti. Ætli Af-
ríkanar, Austur- Evrópubúar og
fleiri (Arabar m.m.) verði þó ekki að
yfirstíga enn illvígari hindranir
framundan en við forréttindafólkið á
Fróni. Orð eru til alls fyrst (orsök) –
bara ef þau skiljast. (Helst vel
meint.) Okkar tungumál er stórmál.
Tvímála þjóðir,
tvímælalaust
Eftir Pál Pálmar
Daníelsson
» Skyldi enskan ekki
verða þeim sami
bjargvætturinn og okk-
ur Íslendingum var
sendur fyrir mannsaldri
síðan eða svo?
Páll Pálmar Daníelsson
Höfundur er leigubílstjóri.