Morgunblaðið - 05.05.2018, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 05.05.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018 gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Opið í dag kl. 11-16 Við erum á facebook Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Kr. 6.900 Str. 36-52 Kvartbuxur Lokakaffi Kvenfélagsins Heimaeyjar verður á Grand hótel Reykjavík sunnudaginn 6. maí kl. 14. Við vonumst til að sjá sem flesta. Stjórnin Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is 20% AFÖLLUM YFIRHÖFNUM Skipholti 29b • S. 551 4422 Skoðið LAXDAL.is Bjóðum glæsilegan gæðafatnað fyrir alla ína viðburði og dagleg störf Velkomin í Skipholt 29 BERNHARÐ LAXDAL með íslendingum í 80 ár þ 30% afsláttur af völdum fatnaði BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Reiknað er með að deiliskipulag Laugavegar 168-176 í Reykjavík verði samþykkt á næstu vikum. Þar er svonefndur Heklureitur. Reiturinn er nefndur eftir höfuðstöðvum bíla- umboðsins Heklu við Laugaveg. Samhliða uppbyggingunni mun Hekla byggja upp nýjar höfuðstöðvar í Suður-Mjódd í Reykjavík. Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu, vonast til að skipulagsvinna verði endanlega afgreidd í sumarlok. „Síðan verður hugað að því að koma svæðinu í uppbyggingu. Við gerum ráð fyrir að framkvæmdir hefjist jafnvel innan tveggja til þriggja ára,“ segir Friðbert. Hann telur að verkefninu verði áfangaskipt. Gert sé ráð fyrir niður- rifi allra bygginga á svæðinu. „Eðli verksins samkvæmt er þó mikilvægt að svæðið byggist hratt upp svo það verði ekki mikið ónæði fyrir nýja íbúa og nærumhverfi,“ segir Friðbert um verkefnið. Hekla er 85 ára í ár og hefur verið með aðsetur á Laugavegi síðan 1962. Friðbert segir að með flutningnum leitist fyrirtækið m.a. við að bæta að- stöðuna og þannig bæta þjónustuna við viðskiptavini. Fimm fjölbýlishús og hótel Yrki arkitektar unnu samkeppni borgarinnar um hönnun ramma- skipulags svæðisins. Það afmarkast af Laugavegi, Bolholti, Skipholti, Brautarholti og Nóatúni. Þeir hafa nú unnið deiliskipulag á hluta þess. Ásdís Helga Ágústsdóttir, arkitekt hjá Yrki arkitektum, segir svæðinu skipt í þrjá reiti, A, B og C. Heklu- reitur sé hluti af deiliskipulagi fyrir Laugaveg 168-176, eða A-reit. Hekla og Varmi séu eigendur lóða að frá- töldum Laugavegi 176 sem sé í eigu Reita. Það er gamla Sjónvarpshúsið og eru áform um að breyta því í hótel. Önnur arkitektastofa hannar hótelið. Á Laugavegi 168-174 eru áform um að byggja fjórar blokkir með um 400 íbúðum, atvinnustarfsemi og gisti- starfsemi. Ásdís Helga segir áskorun að teikna íbúðarhús sem snúa í norð- ur. Til að tryggja góða birtu séu húsin látin stallast frá norðri til suðurs. Nokkur hæðarmunur er á svæðinu. Stallarnir skulu vera gróðurvænt úti- svæði. Á jarðhæð við Laugaveg á að hafa góða lofthæð til að tryggja bjart- ar og opnar hæðir. Þar verður rými fyrir verslun og þjónustu. Gönguás liggi í gegnum svæðið Ásdís Helga segir borgina hafa fylgt eftir markmiðum rammaskipu- lags fyrir svæðið í heild. Þá meðal annars varðandi gæði byggðarinnar. Hugað sé að tengingum milli íbúða- byggðar. Þá til dæmis með gönguás frá Brautarholti og í gegnum ramma- skipulagsreitinn. Á sama hátt sé hug- að að tengingum frá Laugavegi og upp hverfið að Brautarholti og Skip- holti. Hún segir um fjórðung íbúða á Heklureitnum verða miðaðan við þarfir þeirra sem ekki vilja eða geta lagt mikið fé í eigið húsnæði. Hjálmar Sveinsson, formaður um- hverfis- og skipulagsráðs, segir það fagnaðarefni hversu langt vinnan við deiliskipulagið er komin. Það bíði nú afgreiðslu umhverfis- og skipulags- ráðs og svo borgarráðs. Hjálmar kveðst eiga von á að umhverfis- og skipulagsráð samþykki skipulagið. Hann segir hluta fyrirhugaðrar borgarlínu munu liggja meðfram Heklureitnum á Suðurlandsbraut. Til að rýma fyrir borgarlínunni verði göturými fyrir bíla fórnað. Hjálmar segir að með uppbygging- unni fái svæðið meiri miðborgarbrag. „Þetta er lykilreitur nálægt Hlemmi í jaðri miðborgarsvæðisins. Hann liggur frábærlega vel við al- menningssamgöngum. Þetta passar vel við borgarlínuáformin. Það er gert ráð fyrir að borgarlínan fari þarna framhjá og svo vestur Suðurlands- braut og yfir Elliðaárnar,“ segir Hjálmar. Teikningar/Yrki arkitektar Heklureitur Hér er horft frá Laugavegi 176 og vestur eftir að Hlemmi. Byggja á hundruð íbúða við götuna. Við Nóatún Hugmyndir eru um eina akgrein í hvora átt og bílastæði. Heklureitur er langt kominn í skipulaginu  Formaður skipulagsráðs býst við samþykkt skipulagsins Drög að hóteli Svona leit Laugavegur 176 út á fyrri stigum hönnunar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.