Morgunblaðið - 05.05.2018, Page 16

Morgunblaðið - 05.05.2018, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Eru sparifötin hrein? Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13 Sími 577 1313 kistufell.com TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ Allar almennar bílaviðgerðir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það er gríðarlega mikilvægt að geta bætt stórvirkjun inn í kerfið án þess að fjölga háspennulínum eða bæta við spennistöðvum,“ segir Guðmundur Ingi Ásmundsson, for- stjóri Landsnets. Hann ræsti í gær á táknrænan hátt endurbætt tengi- virki fyrirtækisins við Búrfells- virkjun. Landsnet þurfti að tengja inn á flutningskerfi landsins nýja aflstöð við Búrfell sem Landsvirkjun er að ljúka við að byggja. Hún verður ræst eftir rúman mánuð. Í stað þess að byggja nýtt tengivirki var ákveð- ið að tengja nýju virkjunina inn í tengivirkið við Búrfell. Þurfti um leið að endurnýja allan stjórnbúnað. Tengivirkið við Búrfell er einn heitasti tengipunktur flutningskerf- isins. Þangað fer rafmagn frá virkj- unum í Þjórsá, alls um 400 MW, og fimm háspennulínur tengjast þar. Þurfti að endurnýja tengivirkið í fullum rekstri. Var það mikið vanda- verk og krafðist góðrar samvinnu margra aðila. Guðmundur Ingi segir það gríðarlega mikið afrek. Tókst að standast tímaáætlun þótt hún væri stíf og einnig kostn- aðaráætlun. Þá tókst að vinna verk- ið án slysa á starfsfólki við þessar krefjandi aðstæður. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Ræsing Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, ýtir á hnappinn. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkj- unar, og Kristófer A. Tómasson sveitarstjóri voru meðal viðstaddra gesta. Unnið að endurnýjun tengivirkis í fullum rekstri  Tenging nýrrar aflstöðvar við Búrfell undirbúin Í svari Kristjáns Þórs við fyrir- spurn Þórarins Inga Péturssonar, bónda og varaþingmanns Fram- sóknarflokksins, sem dreift hefur verið á Alþingi, kemur fram að emb- ættismenn utanríkisráðuneytis og atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytis hafi fundað með fulltrú- Helgi Bjarnason Þorgerður Anna Gunnarsdóttir „Þessir fundir voru haldnir til þess að undirbúa með hvaða hætti best yrði staðið að því að ræða formlega við ESB um nið- urstöður dómsins og viðbrögð Ís- lands við honum. Á þessari stundu liggur ekkert fyr- ir um viðbrögð ESB við þessum umleitunum eða hvert viðræður kynnu að leiða,“ segir Kristján Þór Júlíusson land- búnaðarráðherra í skriflegu svari til Morgunblaðsins, spurður um við- brögð við dómi EFTA-dómstólsins um að takmarkanir á innflutningi á hráu kjöti og fleiri búvörum sam- ræmist ekki ákvæðum EES- samningsins. um framkvæmdastjórnar Evrópu- sambandsins til að kanna hvort hægt væri að breyta þeim samningi sem íslensk stjórnvöld gerðu við Evrópusambandið árið 2007 þegar tekin var ákvörðun um að innleiða matvælalöggjöf ESB í íslensk lög. Takmarkanir sem íslensk stjórnvöld gerðu á innflutningnum, þrátt fyrir skuldbindingar í matvælalöggjöf- inni, reyndust ólögmætar, að mati EFTA-dómstólsins. Eftirlitsstofnun ýtir á Í svari Kristján Þórs á Alþingi kemur fram að í viðræðunum nú er leitað leiða til að tryggja varnir Ís- lands gegn salmonellu og kampýló- bakter. Embættismenn hafi jafn- framt verið í samskiptum við Eftirlitsstofnun EFTA sem annast eftirfylgni með dómum EFTA- dómstólsins. Stofnunin hefur skrifað bréf til stjórnvalda hér og fundað með embættismönnum til að ýta á stjórnvöld um að breyta reglum. Kanna hvort hægt sé að breyta matvælalöggjöfinni  Embættismenn funda í Brussel um hráakjötsmálið Morgunblaðið/Kristinn Grillað Ekki er heimilt að flytja inn hrátt kjöt þrátt fyrir dóm EFTA.Kristján Þór Júlíusson Um eitt hundrað íbúar á Tálknafirði sóttu sameiginlegan kynningarfund fyrirtækjanna Arctic Fish og Arn- arlax í húsnæði Arctic Fish á Tálknafirði á fimmtudaginn. Sigurður Pétursson fram- kvæmdastjóri kynnti fyrirtækin, stöðu mála og framtíðarsýn fyrir- tækjanna. Sigurður tilkynnti að íbú- um yrði boðið aftur að koma og skoða nýju seiðaeldisstöðina í sept- ember því þá yrði þar formlegt opn- unarhóf. Auk kynningar á seiðaeldi Artic Fish var kynnt laxeldi Arnarlax á sunnanverðum Vestfjörðum og það sem framundan er í framleiðslu á laxi. Fram kemur á vef Bæjarins besta að starfsmaður Arnarlax, Þorsteinn Másson, hafi lýst framleiðslunni sem er um 3.000 tonn í Patreksfirði, 3.000 tonn í Tálknafirði og 11.500 tonn í Arnarfirði. Um 18 starfsmenn vinna við seiðaeldi, 40 í sjóeldi, 45 í vinnslu og um 70 manns í þjónustu og verktöku. Verðmæti framleiðslu er um 14 milljarðar króna. Sam- kvæmt áætlun KPMG má reikna með að um 200 eða fleiri starfi við tengd störf. Gert er ráð fyrir um 10.000 tonna framleiðslu í Patreks- firði á næstunni, 20.000 tonnum í Arnarfirði og um 10.000 tonnum í Tálknafirði. Verðmæti framleiðsl- unnar verður um 32 milljarðar króna. Áætlaður fjöldi starfsmanna er um 350 manns og að annar eins fjöldi muni vinna við óbein störf. Mikil umbreyting „Þetta er mikil umbreyting og stefnir í meiri verðmæti við eldi en veiðar og vinnslu. Engum dylst sem kemur á sunnanverða Vestfirði að mikil umskipti hafa orðið á sam- félaginu til góðs, en helsta áskorun dagsins er skortur á íbúðarhús- næði,“ segir á vef Bæjarins besta. Meðal spurninga íbúa til Sigurðar Péturssonar var hvernig eignar- haldi væri háttað á laxeldisfyrir- tækjum á Vestfjörðum og hver væri hlutur Íslendinga. Sigurður upplýsti að fyrirtækin væru að mestu í er- lendri eigu en væru íslensk og ynnu samkvæmt íslenskum lögum og reglum, greiddu skatta og skyldur til íslensks samfélags. Mikil umskipti á samfélaginu  Fiskeldisfyrirtækin á Tálknafirði kynntu íbúunum starfsemina Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Arctic Fish Starfsemin var kynnt á íbúafundi og fjórðungsþingi. Stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæð- isins bs. undirritaði í gær nýja brunavarnaáætlun og samning um kaup á fjórum nýjum slökkvibifreið- um. Formaður stjórnar slökkviliðsins, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, ásamt Birni Karlssyni, forstjóra Mannvirkjastofnunar, og Jóni Viðari Matthíassyni slökkviliðsstjóra, und- irrita nýja brunavarnaáætlun sem sveitarfélögin hafa staðfest og er stefnumótandi til næstu ára. Þá var samið um kaup á fjórum nýjum slökkvibílum, sem er mesti skammtur af nýjum bílum í einu. Brunavarnaáætlun og fjórir nýir bílar Ljósmynd/SHS Brunavarnir Sveitarstjórar á höfuðborgarsvæðinu handsala brunavarna- áætlun ásamt slökkviliðsstjóra og forstjóra Mannvirkjastofnunar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.