Morgunblaðið - 05.05.2018, Page 55
MENNING 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Útskriftarsýning bakkalárnema
Listaháskóla Íslands í myndlist,
hönnun og arkitektúr verður opnuð
í Listasafni Reykjavíkur á Kjar-
valsstöðum í dag kl. 14. Sýnendur
eru alls 68, þar af 23 nemendur
sem útskrifast frá myndlistardeild,
44 úr hönnunar- og arkitektúrdeild
og einn úr tónlistardeild. Sýningar-
stjórar eru Birta Fróðadóttir sem
stýrir hönnunar- og arkitektúr-
hluta sýningarinnar og Dorothée
Kirch sem stýrir myndlistarhlut-
anum.
Meiri spenna
Sýningin hefur hin síðustu ár
verið í Hafnarhúsi en snýr nú aftur
á Kjarvalsstaði og segir Birta að
stemningin sé fyrir vikið allt önnur.
„Það er meiri spenna í nemendum
og tilhlökkun, þetta sýningarrými
er með allt annan karakter,“ segir
hún. „Það er mjög langt síðan við
vorum hér síðast og hönnunar- og
arkitektúrdeildin hefur aldrei verið
í vestursalnum þannig að sýningin
er svolítið öðruvísi, miklu opnari og
deildirnar fá svolítið að flæða sam-
an. Þetta er allt önnur rýmisleg
upplifun,“ segir Birta.
Spurð út í þemu útskriftarverk-
anna, hvort greina megi einhverja
sameiginlega þræði í verkum út-
skriftarnema, segir Birta að sér
finnist nemendur vera að líta mikið
inn á við eða líta sér nær. „Við er-
um að vinna meira út frá okkur
sjálfum og okkar nærumhverfi,
finnst mér,“ segir Birta. Sýningin
sé skemmtileg, lífleg og fjölbreytt
og allir muni hafa gaman af því að
skoða hana.
Þrjú þemu
„Hún er alveg stórkostleg,“ segir
Dorothée þegar hún er spurð að
því hvernig sýning útskriftarnema í
myndlist sé að þessu sinni. „Hún er
afar margbreytileg og við erum í
fyrsta skipti að glíma við öðruvísi
rými sem gefur okkur tækifæri til
þess að setja hana upp með allt
öðrum hætti. Við erum í austursal
Kjarvalsstaða sem er skiptur upp í
þrjá litla sali og sýningin byggist
upp þannig að við erum með þrjú
lítil þemu innan sýningarinnar þó
svo það standi hvergi opinberlega.
Það er áferð og efni, „identity“ eða
manneskjan, maðurinn og þriðja
þemað er tæki, tækni og gagn-
virkni, eitthvað í þá átt. Verkin rað-
ast svakalega vel inn í þau þemu,“
segir Dorothée og bætir við að
einnig verði framdir gjörningar
meðan á sýningunni stendur.
Dorothée segir dásamlegt að fá
að stýra útskriftarsýningu BA-
nema í myndlist, að fá að tengjast
grasrótinni. „Og það er svo gaman
að sjá hvað þau eru ólík en þó sam-
stilltur hópur. Það er enn verið að
klára verk og allir að hjálpa til, það
er góður andi í þessum hópi sem
endurspeglast í því hvað hlutirnir
takast vel.“
Morgunblaðið/Eggert
Sýningarstjórarnir Dorothée Kirch stýrir myndlistarhlutanum og
Birta Fróðadóttir hönnunar- og arkitektúrhluta sýningarinnar.
Flæði og fjölbreytileiki
Fjölbreytileiki Útskriftarnemendur hönnunardeildar unnu að uppsetningu
sýningarinnar í gær. Verk nemenda deildana fá nokkur að renna saman.
Útskriftarsýning BA-nema LHÍ opnuð á Kjarvalsstöðum
„Allt önnur rýmisleg upplifun,“ segir einn sýningastjóra
Bandaríski pönkrokkarinn og tón-
listarpredikarinn Edward James
„Ed“ Hamell, sem kemur fram undir
listamannsheitinu Hamell on Trial,
mun halda tónleika hér á landi 16.-
19. ágúst á fjórum stöðum: Húrra í
Reykjavík 16. ágúst, Frystiklefanum
í Rifi 17. ágúst, Havaríi í Berufirði
18. ágúst og í Daladýrð í Fnjóskadal
19. ágúst.
„Hamell er þekkt vörumerki í
neðanjarðar- og andspyrnusenunni
vestanhafs hvar hann hefur verið
lengi að og unnið með tónlistar-
mönnum á borð við Mike Watt, Ani
di Franco og Henry Rollins. Rætur
Hamells liggja í síðpönkinu en hann
sækir líka mikið í ýmsa aðra
strauma bandarískrar tónlistar-
hefðar,“ segir um tónleika Hamells á
Facebook og að tónleikar með Ha-
mell on Trial séu stórkostleg upp-
lifun. Þar fari saman gríðarlega öfl-
ugt rokk og ról, hárbeittir og
flæðandi textar og frábært samband
við áhorfendur.
Hamell kemur einn fram með
hljóðnema og Gibson-kassagítar frá
árinu 1937 en á köflum fer hann slík-
um hamförum að það er sem heil
stórsveit standi á sviðinu, segir á
Facebook og að Hamell fari um víð-
an völl í textagerð sinni. Textarnir
einkennist gjarnan af megnri óbeit á
valdi og valdbeitingu, virðingu og
samúð með þeim sem minna mega
sína og hárbeittum húmor, oftast
sótsvörtum, enda kalli Hamell sig
frjálslyndan stjórnleysingja.
„Hann segir í mörgum lögum sín-
um sögur af skrautlegu persónugall-
eríi undirheima bandarískra stór-
borga. Þá fá stórnmálamenn,
fjölmiðlamenn og álitsgjafar gjarnan
hressilega á baukinn hjá Hamell,
einkum þeir sem sá í og yrkja akur
öfgahægris og mannhaturs,“ segir
um Hamell.
Hamell on Trial
treður upp á Íslandi
Kraftmikill Hamell on Trial.
Selkórinn heldur tónleika í Seltjarnarneskirkju á sunnudag kl. 16 og
fagnar því að hafa sungið fyrir landsmenn í fimmtíu ár. Af því tilefni
efnir kórinn, samkvæmt tilkynningu, til léttrar tónlistarveislu með lög-
um sem hafa sérstaklega verið útsett fyrir kórinn á síðustu árum. Fyrir
hlé verða á efnisskránni ýmsar perlur íslenskra dægurlaga, m.a. eftir
Gunnar Þórðarson, „12. september“ og Friðrik Karlsson, bæjarlistamann
Seltjarnarness árið 2018. Eftir hlé er öll tónlistin eftir Seltirninginn og
tónlistarmanninn Jóhann Helgason en hann var kosinn bæjarlistamaður
Seltjarnarness árið 2007. Kórinn lét af þessu tilefni útsetja níu lög Jó-
hanns fyrir sig, þar á meðal hið fræga lag hans „Söknuð“. Jóhann syng-
ur nokkur laganna með kórnum. Úrvalstónlistarmenn koma fram með
Selkórnum á tónleikunum og kórstjóri er Oliver Kentish. Boðið verður
upp á kaffi og konfekt í hléi.
Selkórinn Kórinn kemur fram í Seltjarnarneskirkju á sunnudag.
Selkórinn fagnar hálfrar aldar afmæli
Fyrsta sýning ársins í Verksmiðj-
unni á Hjalteyri við Eyjafjörð verð-
ur opnuð í dag, laugardag, klukkan
15. Sýningin hefur yfirskriftina Við
hlið. Á henni sýna verk sín þau
Magnús Helgason, Ingunn Fjóla
Ingþórsdóttir, Erwin van der
Werve og Baldur Geir Bragason.
Magnús er jafnframt sýningar-
stjóri.
Í tilkynningu segir að þeir fjórir
listamenn sem standa að sýning-
unni eigi það sameiginlegt „að
vinna með sterka efniskennd,
rýmistilfinningu og fagurfræði.
Verksmiðjan á Hjalteyri, með sinni
sögulegu sviðsmynd, veitir um-
hverfi sem myndlistarmennirnir
komast ekki hjá að nota sem út-
gangspunkt. Listamennirnir munu
skapa ný verk þar sem unnið verð-
ur markvisst með inngrip listaverk-
anna í rýminu. Listamennirnir fjór-
ir vinna ekki að sameiginlegum
verkum heldur hver í sínu lagi og
hver á sinn hátt.“
Sýningin stendur til 10. júní og
opið er þriðjudaga til sunnudags kl.
14 til 17.
Sýningin Við hlið opnuð í Verksmiðjunni
með verkum fjögurra myndlistarmanna
Við hlið Hluti eins verka Magnúsar
Helgasonar í Verksmiðjunni.
ICQC 2018-20