Morgunblaðið - 28.05.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 28.05.2018, Síða 4
4 Bir tm eð fr irv ar au m re ntv illu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 9. október í 13 nætur Frá kr. 429.895 595 1000 . heimsferdir.is SRI LANKA Leyndardómar Innifalið: Flug, skattar, innrituð 30 kg taska, gisting í 11 nætur á 3*+ og 4* hótelum með morgun- og kvöldverði á hótelunum ásamt 5 hádegisverðum. Kynnisferðir skv. ferðatilhögun. Aðgangseyrir þar sem við á. Ferðmannaáritun og íslensk fararstjórn. Fararstjóri: Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir, fjölmiðlakona ÚRSLIT SVEITARSTJÓRNARKOSNINGA 2018 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2018 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Fall meirihlutans í Reykjavík er stærstu tíðindi sveitarstjórnarkosn- inganna og svo virðist sem Sjálf- stæðisflokkur haldi velli að mestu í nágrannasveitarfélögum höfuðborg- arinnar. Líklegt er að flokkurinn leiti til fyrri samstarfsflokka sinna. Litlar sviptingar aðrar urðu í meg- indráttum á landsvísu jafnvel þótt víða hafi meirihlutar fallið. Gott gengi Miðflokksins, Viðreisn- ar og Sósíalistaflokksins vakti at- hygli. Vinstri græn töpuðu miklu fylgi þrátt fyrir að hafa misst aðeins einn mann á landsvísu. Kjörsókn á landsvísu var u.þ.b. 67% og stóð í stað miðað við síðustu kosningar árið 2014. Útlit er fyrir að botninum gæti verið náð í hruni kjör- sóknar undanfarin ár. Viðreisn getur miklu ráðið Sjálfstæðisflokkurinn vann kosn- ingasigur í Reykjavík og bætti nokkru fylgi við sig. Samfylkingin tapaði fylgi og upprisa Sósíalista í Reykjavík, auk fylgisfalls Vinstri grænna á landsvísu vakti athygli. Stefanía Óskarsdóttir, dósent við stjórnmálafræðideild HÍ, segir að áhugaverð staða sé komin upp í Reykjavík og að Viðreisn sé þar í lykilhlutverki. „Það verður snúið fyrir Dag að fá Viðreisn til að koma inn í fyrra meirihlutasamstarf. Þor- gerður Katrín sagði að Viðreisn myndi selja sig dýrt,“ segir Stefanía og nefnir að Viðreisn sé einnig í góðri stöðu gagnvart sjálfstæðis- mönnum. Miðflokkurinn náði inn einum manni en Framsóknarflokkurinn engum. Telur Stefanía að Vigdís Hauksdóttir oddviti hafi haft forskot á Framsóknarflokkinn vegna þess að hún sé betur þekkt en oddviti Fram- sóknarflokksins. Staða Dags verri en ætla mátti Vinstri græn fengu einn borgar- fulltrúa kjörinn líkt og síðast en töp- uðu talsverðu fylgi. „Það skýrist af því að Sósíalista- flokkurinn komst á flug í Reykjavík. Það, að VG sé orðinn forystuafl í rík- isstjórn, opnar á gagnrýni á flokk- inn,“ segir hún. „Það var ákveðin undiralda meðal flokksmanna í VG í Reykjavík þegar ríkisstjórnin var mynduð. VG sem vinstriflokkur get- ur lent í ákveðnum vanda þegar hann er í valdastöðu,“ bætir hún við. Stefanía nefnir að staða Dags B. Eggertssonar borgarstjóra sé verri en gert hafi verið ráð fyrir. „Það liggur ekki alveg ljóst fyrir að Dagur haldi áfram sem borgarstjóri. Staða hans er ótraustari en reiknað var með. Það verður spennandi að sjá hvernig þetta þróast í höfuðborg- inni,“ segir hún. Frjálsu falli kjörsóknar lokið? Meint kosningaþreyta kjósenda varð að umtalsefni síðustu vikurnar fyrir kosningar. Mikið hrun var í kjörsókn milli áranna 2010 og 2014. „Kosningabaráttan fór að gera vel vart við sig u.þ.b. einni til tveimur vikum fyrir kosningar. Þetta var styttri og snarpari kosningabarátta heldur en oft áður. Það gæti skýrst af því að það hefur verið kosið oft síð- ustu ár,“ segir Grétar Þór Eyþórs- son stjórnmálafræðingur. Kjörsókn á landsvísu var um 67%, sambærileg því sem var árið 2014. Í Reykjavík var kjörsóknin 67,04%. „Árið 2014 náði kjörsókn sögulegu lágmarki eftir hrun sem hófst árið 2006. Þessu frjálsa falli er þá lokið og botninum vonandi náð,“ segir hann og bætir því við að mikil kjörsókn í Reykjavík vegi þungt í stóra sam- henginu. Aftur á móti séu dæmi um litla kjörsókn, t.d. í Reykjanesbæ þar sem hún var aðeins 57%. Átakalínurnar víða óskýrar Spurður um ástæður lítils áhuga á kosningunum lengst af segir hann að átakalínur hafi víða verið óskýrar. „Í stórum bæjarfélögum í kring- um Reykjavík virtist ekki sérstak- lega mikill málefnalegur ágreining- ur. Það sem tekist var á um í borginni yfirgnæfði nánast allt ann- að. Á sveitarstjórnarstiginu eru ekki jafn skarpar línur og í landsmálun- um, þetta snýst um nærþjónustu- verkefni sem oft er ekki mikið tekist á um. Samgöngumál og skipulags- mál geta þó alltaf orðið tilefni ólíkra skoðana,“ segir hann. Grétar nefnir einnig að atvinnumál vegi að jafnaði þyngra á landsbyggðinni. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fyrstu tölur Oddvitar átta flokka í Reykjavík í sjónvarpssal þegar fyrstu tölur komu. Ingvar Mar Jónsson á B-lista, lengst til hægri, náði svo ekki kjöri. Stærstu tíðindin í Reykjavík  Mestar sviptingar í höfuðborginni  Viðreisn lykilflokkur í meirihlutamyndun  Hruni kjörsóknar gæti verið lokið  Hitamál og átakalínur voru víða óljós Stefanía Óskarsdóttir Grétar Þór Eyþórsson Dóra Björt Guð- jónsdóttir, oddviti Pírata, útilokar að flokkurinn vinni með Sjálfstæð- isflokknum í borg- arstjórn. Píratar í Reykjavík fund- uðu í gær um stöðu mála, en samstarf við alla aðra flokka er inni í myndinni hjá Dóru Björt. „Það er ekkert í gangi sem er frétt- næmt, ég var að funda með mínu fólki í dag og fara yfir stöðuna og melta þetta,“ sagði Dóra Björt í sam- tali við mbl.is í gær. „Við ætlum að hittast aftur á morgun og skoða þetta,“ sagði hún. „Við vorum búin að útiloka sam- starf við Sjálfstæðisflokkinn og stöndum við það,“ segir Dóra. Píratar fengu tvo borgarfulltrúa kjörna. Dóra kveðst „rosalega þakk- lát“ fyrir þann stuðning sem fram- boðið fékk og telur niðurstöður kosn- inganna sýna að Píratar njóti mikils trausts. Útiloka sjálfstæð- ismenn  Þakklát fyrir stuðning við Pírata Dóra Björt Guðjónsdóttir Kolbrún Bald- ursdóttir, oddviti Flokks fólksins, segir í samtali við Morgunblaðið að Flokkur fólksins hafi markað sér rækilega stöðu á sveitarstjórnar- stiginu en flokk- urinn fékk einn mann kjörinn í Reykjavík. „Þetta er auðvitað nýr flokkur en við höfum gert það gott á síðustu mánuðum,“ segir hún. Hún kveðst hafa „fengið símtöl“ í gær vegna myndunar meirihluta, en aðspurð segir hún að ekkert hafi verið ákveðið varðandi formlegar viðræður. „Ég ræddi við minn flokk í dag [gær] í vöfflukaffi, ég legg áherslu á að ræða við minn flokk,“ segir hún. „Við erum öll ofboðslega þreytt og svo er bara nýr dagur á morgun.“ „Við erum öll alveg í skýjunum“ Kolbrún Baldursdóttir Meirihluti Lista fólksins, Samfylk- ingar og Framsóknarflokks hélt velli á Akureyri. Hvert framboð hélt tveimur mönnum, forráðamenn þeirra sögðu á kosninganótt að eðli- legasta fyrsta skref væri að þeir töl- uðu saman og formlegar viðræður hófust strax síðdegis í gær. Hið pólitíska landslag á Akureyri breyttist nánast ekki neitt í kosning- unum á laugardag. Sjálfstæðisflokkur er stærstur í bænum sem fyrr, hélt þremur mönn- um en tapaði þó nokkru fylgi. VG hélt sínum manni og Miðflokkurinn, sem bauð fram í fyrsta skipti, hlaut einn fulltrúa í stað Bjartrar fram- tíðar, sem bauð ekki fram aftur. Fimm koma nýir inn í bæjarstjórn að þessu sinni; Hilda Jana Gísladótt- ir, oddviti Samfylkingarinnar, Halla Björk Reynisdóttir, oddviti Lista fólksins – sem sat reyndar í bæjar- stjórn kjörtímabilið 2010 til 2014 en gaf ekki kost á sér fyrir fjórum árum – Andri Teitsson, sem var í öðru sæti L-listans, Hlynur Jóhannsson, odd- viti Miðflokksins og Þórhallur Jóns- son, sem skipaði þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Gunnar Gíslason, oddviti Sjálf- stæðisflokksins, sagðist á kosninga- nótt vonast til þess að eiga mögulega á því að komast í meirihlutasam- starf, því það væri að sjálfsögðu allt- af markmiðið og hafa þannig afger- andi áhrif á stjórnun bæjarins. Hann kvaðst hins vegar reikna með að flokkarnir þrír sem mynduðu meiri- hlutann byrjuðu á því að tala saman í ljósi úrslitanna og sú varð raunin. „Við þurfum ekkert að flýta okk- ur,“ sagði Halla Björk, oddviti L- listans í gær, en flokkarnir ætla að gefa sér tíma til mánaðamóta til að leiða í ljós hvort þeir ná saman á ný. Oddvitarnir þrír létu allir vel af fyrsta fundi. „Áframhaldandi sam- starf er ekkert sjálfgefið. Það þarf að fara yfir málefnin og sjá hvort við náum lendingu en fyrsta spjall gefur góða vísbendingu um að við getum talað okkur niður á niðurstöðu,“ sagði Hilda Jana Gísladóttir, oddviti Samfylkingarinnar. skapti@mbl.is Strax í formlegar viðræður  Meirihlutinn hélt velli á Akureyri  Fimm nýliðar í bæjarstjórn Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Oddvitar Halla Björk Reynisdóttir, Guðmundur Baldvin Guðmundsson og Hilda Jana Gísladóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.