Morgunblaðið - 28.05.2018, Qupperneq 16
16
www.kvarnir.is
1996
2016
20 ÁRAKvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhellu 9 | 221 Hafnarfirði
sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
Vinnupallar
margar stærðir og gerðir
VIÐ leigjum út
palla og kerrur
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2018
ÚRSLIT SVEITARSTJÓRNARKOSNINGA 2018
Viðræður um
myndun meiri-
hluta í samein-
uðu sveitarfélagi
Sandgerðis og
Garðs eru hafn-
ar. D-listi Sjálf-
stæðisflokks og
óháðra og H-listi,
Listi fólksins,
ræddu saman í
gær og halda því
áfram í dag.
Sjálfstæðismenn fengu flest at-
kvæði, um 35%, og þrjá menn
kjörna. J-listinn er með jafn marga
fulltrúa, Listi fólksins tvo og Fram-
sóknarflokkurinn einn. Fulltrúar
flokkanna ræddu saman að kvöldi
kjördags og niðurstaðan varð sú að
D- og H-listi tóku upp viðræður.
Einar Jón Pálsson, oddviti sjálf-
stæðismanna, segir að þessi tvö
framboð séu með svipaðar áherslur
í pólitíkinni. Áherslan er meðal
annars á að ljúka sameiningunni og
þeim málum sem henni tengjast.
helgi@mbl.is
Ræða saman í sam-
einuðu sveitarfélagi
Einar Jón
Pálsson
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við töluðum fyrir auknu íbúalýðræði
og breytingum á rekstri bæjarins.
Við viljum opnari stjórnsýslu og
meira upplýsingaflæði til íbúa. Við
fundum að áherslur okkar féllu í frjó-
an jarðveg,“ segir Íris Róbertsdóttir,
oddviti H-lista, Fyrir Heimaey, sem
vann sigur í Vestmannaeyjum. List-
inn fékk rúmlega þriðjung atkvæða
og þrjá fulltrúa kjörna og felldi meiri-
hluta Sjálfstæðisflokksins sem lengi
hefur verið við völd í Eyjum.
Íris segir mikilvægt að gefa íbúum
kost á að koma reglulega að ákvörð-
unum, ekki aðeins við kosningar á
fjögurra ára fresti.
Flestir frambjóðendur H-listans
voru flokksbundnir sjálfstæðismenn.
Íris var til dæmis varaþingmaður
flokksins um tíma og átti sæti í mið-
stjórn þangað til hún fór í framboð
nú. Fleiri forystumenn í Eyjum unnu
með framboðinu. Upphafleg ástæða
fyrir því að farið var að ræða um
framboð var óánægja með að ekki var
haldið prófkjör hjá Sjálfstæðis-
flokknum til að velja frambjóðendur.
„Ástæðan fyrir því að við stigum það
skref að stofna bæjarmálafélag var sú
að við vildum vinna bænum okkar
gott, vildum leggja góðum málum lið.
Það eru ekki aðeins sjálfstæðismenn
á listanum okkar, heldur fólk úr öllum
áttum. Við erum með breiða skír-
skotun,“ segir Íris.
Hún viðurkennir að kosningabar-
áttan hafi tekið á alla. Mikil nánd sé í
samfélaginu og hætt við að kosninga-
baráttan verði persónuleg. „Við
ákváðum að reka hana með jákvæðni
og gleði að vopni og stóðum við það.
Við erum mjög stolt af okkar bar-
áttu,“ segir Íris.
Frambjóðendur H-listans ákváðu í
gær að óska eftir viðræðum við Eyja-
listann til að kanna möguleika á sam-
starfi. Íris segir að það sé eðlilegt
fyrsta skref í ljósi niðurstöðu kosn-
inganna. Hún segir að markmiðið sé
að kanna hvort vilji sé til breytinga og
hvernig málefni falli saman. Fyrsti
fundur er fyrirhugaður í kvöld. E-
listinn hefur ákveðið að ræða einnig
við D-lista Sjálfstæðisflokksins.
Enginn gassagangur
„Við vorum með hreinan meiri-
hluta og misstum hann. Það er því
enginn gassagangur í okkur. Við
verðum bara að sjá hvað tíminn leiðir
í ljós,“ segir Elliði Vignisson, bæj-
arstjóri og oddviti sjálfstæðismanna.
Hann var að þessu sinni í 5. sæti á
lista Sjálfstæðisflokksins og er því 2.
varafulltrúi í bæjarstjórn.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft
hreinan meirihluta í bæjarstjórn síð-
ustu tólf árin, undir forystu Elliða.
Flokkurinn vann sögulegan sigur í
síðustu bæjarstjórnarkosningum,
fékk 73,2% fylgi sem talið var Ís-
landsmet.
„Fundum að áherslur okkar
féllu í frjóan jarðveg“
Felldu meirihluta Sjálfstæðisflokks E-listinn ræðir við bæði framboðin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heimaey Hörð kosningabarátta var háð í Eyjum fyrir þessar kosningar. M.a. tókust á fyrrverandi samherjar.
„Það eru svo margir möguleikar
opnir að erfitt er að segja til um
framhaldið. Mér vitanlega hefur
enginn útilokað aðra flokka í meiri-
hlutasamstarfi en það þarf að ríkja
traust á milli manna og sam-
hljómur að vera í stefnumálum,“
segir Jóhann Friðrik Friðriksson,
oddviti Framsóknarflokksins í
nýrri bæjarstjórn Reykjanes-
bæjar.
Framsóknarflokkurinn vann
mann ásamt Samfylkingunni og
Miðflokkurinn kom manni að.
Meirihluti Samfylkingarinnar,
Beinnar leiðar og Frjáls afls féll
vegna þess að tvö síðarnefndu
framboðin misstu fulltrúa. Sjálf-
stæðisflokkurinn sem var í minni-
hluta með Framsókn tapaði einum
manni og er nú kominn niður í 23%
fylgi og þrjá bæjarfulltrúa sem er
það minnsta í háa herrans tíð.
Viljum komast í meirihluta
„Við höfum lýst því yfir að við
viljum komast í þá stöðu að geta
haft áhrif á hag bæjarbúa og ekki
útilokað neinn frá samstarfi. Við
höldum okkur við það. Við höldum
okkar stefnuskrá fram en gerum
okkur grein fyrir því að ólíklegt er
að við fáum allt fram í slíkum við-
ræðum,“ segir Jóhann Friðrik.
Kjörsókn var afar slök í Reykja-
nesbæ, tæp 57% sem er það léleg-
asta í manna minnum. Jóhann seg-
ist ekki hafa skýringu á því. Það
eina sem kemur upp í huga hans er
að framboðin hafi verið mörg og
ekki stór átakamál á milli fram-
bjóðenda. Því geti verið að fólk hafi
átt erfitt með að velja á milli og því
ákveðið að sitja bara heima.
„Þetta er áhyggjuefni. Ég tel að
bæjarstjórn Reykjanesbæjar, hver
sem er í meirihluta, þurfi að reyna
að vinna betur saman og valdefla
íbúana til að taka þátt í kosn-
ingum,“ segir hann. helgi@mbl.is
Ljósanótt Allir eru vinir í árganga-
göngu bæjarhátíðar í Reykjanesbæ.
Margir möguleikar
í Reykjanesbæ
Kjörsókn í sögulegu lágmarki
„Það er erfitt að
ráða í stöðuna.
Við erum ótví-
ræðir sigurveg-
arar, bættum við
okkur og erum
alsæl,“ segir
Kristján Þór
Magnússon,
sveitarstjóri
Norðurþings og
nýr oddviti sjálf-
stæðismanna í bæjarstjórn. Sjálf-
stæðisflokkurinn jók fylgi sitt þrátt
fyrir klofningsframboð E-Lista
samfélagsins sem fékk á þriðja
hundrað atkvæði.
Atkvæðin skiptust þannig að
Framsóknarflokkurinn bætti við
sig þriðja manninum þótt hann tap-
aði örlitlu fylgi. Meirihluti Sjálf-
stæðisflokks og VG féll vegna þess
að VG tapaði miklu fylgi og öðrum
fulltrúa sínum.
Þreifingar voru um það í gær
hvort grundvöllur væri fyrir því að
Samfylkingin myndaði meirihluta
með Sjálfstæðisflokki og VG.
Þreifingar um meiri-
hluta í Norðurþingi
Kristján Þór
Magnússon
Litlu munaði að meirihluti Sjálfstæðisflokksins í Eyjum héldi. 296 at-
kvæði voru á bak við 3. mann H-lista Fyrir Heimaey og 294,75 at-
kvæði á bak við 4. mann á lista sjálfstæðismanna. Þýddi það að ef
sjálfstæðismenn hefðu fengið 5 atkvæðum meira hefði þurft að
varpa hlutkesti á milli þessara frambjóðenda. Í þessu ljósi taldi kjör-
stjórn eðlilegt að verða við kröfu um endurtalningu, að sögn Jóhanns
Péturssonar, formanns yfirkjörstjórnar. Hún leiddi til sömu nið-
urstöðu.
Það gerir málið ennþá sérstakara að Sjálfstæðisflokkurinn náði
ekki að koma fjórum atkvæðum frá flokksbundnum sjálfstæð-
ismönnum í tæka tíð frá Reykjavík til Eyja. Klukkan 10 fór formað-
urinn út og kallaði upp að kosningu væri lokið. Þegar hann lauk síð-
ara kalli kom maður hlaupandi með atkvæðin fjögur sem flutt höfðu
verið með bíl til Landeyjahafnar og sótt þangað með litlum báti við
erfiðar aðstæður. Þau komu hins vegar nokkrum sekúndum of seint
og voru ekki talin með. Atkvæðin voru ekki opnuð og því ekki vitað
með vissu hvert þau hefðu ratað.
Fjögur atkvæði bárust of seint
MJÓTT Á MUNUNUM Í VESTMANNAEYJUM