Morgunblaðið - 28.05.2018, Page 22

Morgunblaðið - 28.05.2018, Page 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2018 Gerir sláttinn auðveldari Cub Cadet sláttutraktorarnir eru afar vandaðir og vel útbúnir sláttutraktorar sem mæta þörfum og kröfum vandlátra garðeiganda og annarra sláttumanna. Cub Cadet sláttutraktorarnir eru öflugir og afkastamiklir og auðveldir í notkun. Vandaðir garðtraktorar ÞÓR FH Akureyri: Baldursnes 8 603 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is Þar sem nú eru liðin 50 ár frá því að breytt var yfir í hægri um- ferð hér á landi langar mig að setja á blað nokkur þakkarorð til allra þeirra sem stóðu að þessari farsælu breytingu. Ég gæti auðvitað nefnt nöfn fjölmargra ein- staklinga, félaga- samtaka og stofnana sem þakka ber, en það yrði of löng upptalning. Bið þess vegna fyrirgefningar á að birta hér aðeins nöfn örfárra. Samþykktar alþingismanna er vert að minnast, svo og þáttar ríkisstjórnar með Jóhann Hafstein dómsmálaráðherra í broddi fylk- ingar, og m.a. Ólaf W. Stefánsson sér við hlið. Þar var vel að verki staðið. Framkvæmdanefnd hægri um- ferðar var skipuð valinkunnum sæmdarmönnum sem strax lögðu áherslu á að ná sem allra víðtæk- ustu samstarfi við alla aðila sem þurftu að vinna að þessari merku breytingu. Á engan er hallað þótt fyrst sé getið Valgarðs Briem, for- manns nefndarinnar, sem vakinn og sofinn barðist fyrir því að breyt- ingin yrði þjóðinni til heilla. Með- nefndarmenn hans, þeir Einar B. Pálsson verkfræðingur og Kjartan J. Jóhannsson læknir, mynduðu með Valgarð þennan merkilega þrí- drang sem haggaðist ekki þrátt fyrir að margir reyndu að gera störf þeirra tortryggileg, og sumir vildu m.a.s. að hætt yrði við allt saman. Framkvæmdastjóri nefndarinnar, Bene- dikt Gunnarsson, og Kári Jónasson, blaða- fulltrúi hennar, eiga svo sannarlega einnig þakkir skilið fyrir þátt sinn í einstaklega ár- angursríku starfi framkvæmdanefnd- arinnar. Öðru starfsfólki hennar, skrifstofufólki, fulltrúum, fjölmörg- um erindrekum o.fl. er og ástæða til að þakka af alhug. Slysavarnafélag Íslands og um- ferðaröryggisnefndirnar 100, sem Hannes Þ. Hafstein og samstarfs- fólk hans hjá því merka félagi komu á fót, unnu afrek um allt land í öllu undirbúnings- og fram- kvæmdastarfi breytingarinnar. Umferðarverðir sem víða stóðu vaktina með prýði létu sitt ekki eft- ir liggja. Þá ber að geta fræðslu- og upp- lýsingaskrifstofu umferðarnefndar Reykjavíkur þar sem Pétur Svein- bjarnarson stóð í brúnni og við hlið hans menn eins og Guttormur Þormar. Sýslumenn og lögreglan um allt land unnu gífurlega gott starf og þótt erfitt sé að nefna nöfn úr þeim góða hópi minnist ég sér- staklega manna eins og Sigurjóns Sigurðssonar, lögreglustjóra í Reykjavík, Óskars Ólasonar yfir- lögregluþjóns og Akureyringanna Gísla Ólafssonar yfirlögregluþjóns og Stefáns Stefánssonar bæj- arverkfræðings. En eins og áður segir væri full ástæða til að geta miklu fleiri karla og kvenna sem af einurð og einlægni lögðu þessu málefni lið. Ingólfur Jónsson samgöngu- málaráðherra og ráðuneyti hans, ásamt Vegagerð ríkisins, þar sem Jón Birgir Jónsson deildarverk- fræðingur stóð styrkur í stafni fyr- ir hönd Sigurðar Jóhannssonar vegamálastjóra, verkstjórar og aðr- ir starfsmenn stofnunarinnar unnu afar mikilsverð störf í aðdraganda og við framkvæmd breyting- arinnar. Mikil fræðslustarfsemi á vegum menntamálaráðuneytis fór fram í skólum á öllum skólastigum, „tenglar“ önnuðust fræðslu meðal aldraðra, og mörg félagasamtök, s.s.bifreiðatryggingafélögin, Öku- kennarafélag Íslands, FÍB, BFÖ, rauðakrossdeildir og félög atvinnu- bifreiðarstjóra lögðu sitt að mörk- um með myndarlegum hætti, svo og prestar landsins, landlæknir, læknar og margir fleiri. Mikilsverðs þáttar fjölmiðla ber að geta, sjónvarps og útvarps Ríkisútvarpsins, dagblaða, héraðs- fréttablaða og tímarita. Þáttur kvenna var mun meiri en hér hefur komið fram. Þær stóðu margar í ströngu í slysavarnadeild- unum, í umferðarvörslunni og víðar – þökk sé öllum þeim. Síðast en ekki síst ber þó að þakka almenningi, vegfarendum þessa lands, hvernig þeir brugðust við þessu öllu saman. Það gerði fólk með bros á vör og þeim væn- lega hugsunarhætti að öll værum við byrjendur í nýskipan umferð- armála. Árangurinn var m.a. breytt hegðun og ótrúlega fá slys miðað við það sem við mátti búast. Sjálfur kom ég ekki að málefnum umferðaröryggis fyrr en 10 árum síðar, þ.e. árið 1978 hjá Umferðar- ráði, og þá nutum við sem þá stýrð- um málum alls þessa mikla starfs sem unnið var við hægri breyt- inguna og á fyrstu árum Umferðar- ráðs, sem stofnað var árið 1969. Hafið öll kæra þökk fyrir – þið, og margir sem farnir eru, unnuð stórvirki. Eftir Óla H. Þórðarson »Nú eru liðin 50 ár frá því að breytt var yfir í hægri umferð hér á landi og langar mig að setja á blað nokkur þakkarorð til allra er stóðu að þessari farsælu breytingu. Óli H. Þórðarson Höfundur er fyrrverandi framkvæmdastjóri Umferðarráðs. Hægri umferð í 50 ár – þakkir Árið 1976 var uppi sú staða, að þeir há- skólamenn á íslensk- um vinnumarkaði sem ekki rúmuðust innan fagstéttarfélaga í Bandalagi há- skólamana urðu að fá einstaklingsaðild að BHM, en það er nokkuð sem ekki er mögulegt í dag. Þeir háskólamenntuðu starfsmenn hjá ríki, sveitarfélögum og á einka- markaði sem leita eftir aðild að BHM í dag, sækja um aðild að til- teknu aðildarfélagi, en þau eru í dag 27 alls. Aðildarfélög BHM eru ólík um margt, en öll eiga þau það sameig- inlegt, að félagsmenn þeirra eru háskólamenntaðir og hafa lokið í það minnsta BA- eða BS- námi. Til er líka í nokkrum aðild- arfélögum, að nemar geti fengið svokallaða nemaaðild, en hún fel- ur ekki í sér fulla fé- lagsaðild greiðandi, út- skrifaðra háskólamanna. Stofnun, samstarf og sameining Þann 29. maí 1978 ákváðu 37 ein- staklingar með einstaklingsaðild að BHM að stofna sérstakt félag. Hlaut félagið nafnið Útgarður og var það nokkuð öðruvísi en önnur aðildarfélög BHM á þeim tíma, því þar rúmuðust þeir háskólamennt- uðu starfsmenn innan BHM sem ekki rúmuðust í hinum félögunum. Rúmum 20 árum eftir stofnun Út- garðs var stofnað til þjón- ustuskrifstofu á vegum Útgarðs og samstarfsfélaga, þeirra á meðal Fé- lags íslenskra fræða-kjaradeild. Á árinu 2008, áður en að hruni kom, sameinuðust Félag íslenskra fræða- kjaradeild og Útgarður í eitt félag, Fræðagarð, og var stofnfundur haldinn 18. júní 2008. Á tímamótum Eftir Braga Skúlason Bragi Skúlason »Háskólamenntaðir starfsmenn innan BHM standa á tímamót- um, þar sem miklar breytingar eru að verða á vinnuumhverfi þeirra vegna mikilla tækni- framfara.Tveir norskir próf-essorar á eftirlaunum (sérfræðingar í hákarla- rannsóknum) fullyrtu í aðsendri grein í Morg- unblaðinu fyrr í þessum mánuði að til þess að bjarga villtum laxi frá útrýmingu væri mikil- vægt að brjóta allar fluguveiðistangir. Sama grein birtist í Aften- posten í Noregi þann 27. apríl. Ég sé ekki neina ástæðu til að birta þessa grein í íslensku dag- blaði. Ísland á sterkustu laxastofna heims. Orri Vigfússon, hetjan mín, átti frumkvæði að því ásamt öðrum stangveiðimönn- um að fjármagna og leigja lax- veiðikvóta frá Grænlandi og Fær- eyjum og stöðva þannig netaveiðar í sjó á villtum laxi við þessi lönd. Fyrir vikið hafa yfir tíu milljón laxar frá mörgum löndum fengið að vera í friði á þessum næringarríku slóðum áður en þeir ganga upp ár í heimalöndum sín- um. Stangveiðimenn sleppa fiski Flestir stangveiðimenn sem koma sem ferðamenn til Íslands sleppa fiski sem bítur á. Þeir eru í hópi stangveiði- manna sem yfir 1.500 fjölskyldur í sveitum Íslands treysta á tekjur frá til að standa undir afkomu við búrekst- urinn. Fjölmargir Íslendingar starfa líka sem leiðsögumenn við árnar og þar að auki eru ýmis önnur afleidd störf sem hafa orðið til í kringum stangveiðina. Stangveiðimenn eru þannig góðir fyrir mannlífið í sveit- unum. Íslenskum laxastofnum stafar engin ógn frá stangveiðimönnum. Stærsta hættan sem vofir yfir villta íslenska laxinum er ef þið leyfið norsku laxeld- isfyrirtækjum að hertaka firðina ykkar og setja þar út opnar sjókvíar. Þessum gamaldags iðnaði fylgir mengun frá líf- rænu skólpi, kopar, lyfjaafgöngum, ýmsum eiturefnum, erfðablöndun og laxalús. Sjórinn við Noreg hentar mjög vel fyrir laxeldi. Hafið umhverfis Ís- land er miklu kaldara og aðstæður ekki góðar fyrir sjókvíar því að laxinn étur ekki við lágt hitastig. Ísland hefur hins vegar samkeppnisforskot þegar kemur að nægu landrými og miklu framboði af hreinu köldu og heitu vatni. Lax dafnar best í 10-13 gráðu heitu vatni með hæfilegu saltmagni. Ísland ætti að binda í lög að laxeldi fari fram í lokuðum kerfum þar sem er hægt að blanda heitu vatni og sjó. „Annar sannleikur“ Norsk fiskeldisfyr- irtæki geta ekki fram- leitt meira af lax heima hjá sér. Norskir firðir eru nú þegar yfirfullir. Stefna þeirra er sú sama og tóbaksfyrirtækin not- uðu hér áður fyrr: neita öllum slæmum áhrifum. Þessi fyrirtæki vilja bara halda áfram að fá að menga með sínum opnu sjókvíum. Það er alltaf hægt að finna vísindamenn sem eru tilbúnir að selja sig fyrir einhverjar krónur eða nokkrar sekúndur af frægð, til að halda því fram að það sé til „annar sannleikur“. Ég vil hvetja alla, líka norsku prófessorana á eftirlaunum, sem eru tilefni þessara skrifa, til að lesa skýrslu sem heitir „Það sem ógn- ar helst Atlantshafslaxinum í Noregi“ og birtist í Vísindariti Alþjóðahafrann- sóknaráðsins (ICES Journal of Mar- ine Science). Skýrslan er skrifuð af þrettán virtum fræðimönnum frá óháðum rannsóknarstofnunum. Nið- urstaða þeirra var að eldislax sem hef- ur sloppið úr sjókvíum væri ein helsta ógn villtra laxastofna, auk laxalúsar- innar, sem verður til í margfalt meira magni í sjókvíum en við náttúrulegar aðstæður. Þetta eru staðreyndir. Það er ekki til neinn annar sannleikur. Ekki með réttu ráði? Eitt að lokum. Mér skilst að rekstr- arleyfi fyrir sjókvíaeldi á Íslandi sé nánast ókeypis og gildi um aldur og ævi. Eruð þið Íslendingar ekki með réttu ráði? Í Noregi ganga þessi leyfi kaupum og sölu á rúmlega 1,5 millj- ónir íslenskra króna fyrir hvert tonn sem heimilt er að ala af lífmassa. Til að setja það í samhengi hefði Arnarlax þurft að greiða í Noregi um 23 millj- arða króna fyrir 15 þúsund tonna rekstrarleyfið sem íslenska ríkið hefur úthlutað fyrirtækinu fyrir ekki neitt! Og Arnarlax er, vel að merkja, í meiri- hlutaeigu norskra aðila. Rukkið þá og hafið leyfin tímabundin svo að hægt sé að skila fjörðunum aftur til sinna réttu eigenda, íslensku þjóðarinnar. Prófessor Illur og brotnu flugu- veiðistangirnar Eftir Jens Olav Flekke Jens Olav Flekke »Rukkið þá og hafið leyfin tíma- bundin. Höfundur er formaður verndarsjóðs villtra laxa í Noregi. jof@dmf.no

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.