Morgunblaðið - 28.05.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 28.05.2018, Qupperneq 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2018 ✝ Þuríður Guð-mundsdóttir fæddist að Kvígind- isfelli við Tálkna- fjörð 21. febrúar 1929. Hún lést á Landspítalanum 14. maí 2018. Foreldrar henn- ar voru Guð- mundur Guð- mundsson og Þórhalla Odds- dóttir og átti Þuríður 12 bræður og fjórar systur. Eiginmaður Þuríðar var Stef- án Guðmundsson, plötu- og ketilsmiður, fæddur 1925, dáinn 1994. Börn Þuríðar og Stefáns eru Hrefna, þjónustufulltrúi, fædd 1948, dáin 2007, Haukur Þuríður lauk barnaskólanámi á Tálknafirði og námi í hús- mæðraskóla að Staðarfelli. Hún flutti til Reykjavíkur eftir nám og starfaði við ýmis þjónustu- og framleiðslustörf. Hún og Stefán giftu sig 1954 og bjuggu lengst af á Grensásvegi í Reykjavík. Þau fluttu búferlum til Málm- eyjar í Svíþjóð 1970 og bjuggu þar í 11 ár. Í Svíþjóð starfaði Þuríður við verslunarstörf. Eftir heimkomu 1981 keyptu Þuríður og Stefán íbúð á Kleppsvegi 4 þar sem þau bjuggu til dauða- dags. Þuríður starfaði sem saumakona á saumastofunni Bót til eftirlaunaaldurs. Þuríður naut eftirlaunaáranna við góða heilsu og sinnti fjölskyldu og áhugamálum fram á síðasta dag. Hún lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans eftir stutt veikindi. Þuríður verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, 28. maí 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Már, verkfræð- ingur, fæddur 1955, Arnheiður Svala, verslunarmaður, fædd 1960, og Guð- mundur Þór, húsa- smiður, fæddur 1964. Hrefna átti börn- in Stefán, Hugrúnu og Elfu. Haukur er giftur Soffíu Bryndísi Guðlaugsdóttur bankastarfs- manni, börn þeirra eru Lilja Björk, Guðlaugur Örn og Edda Þuríður. Arnheiður er gift Jens Ormslev verslunarmanni, börn þeirra eru Elín Áslaug, Eva Birna og Rebekka. Guðmundur er ógiftur og barnlaus. Elsku amma. Þó að þú hafir verið orðin 89 ára þegar þú fórst var samt svo margt sem við átt- um eftir að ræða. Ég á eftir að sakna þess að geta komið í heimsókn eða hringt í þig og spjallað. Amma fylgdist alla tíð mjög vel með allri umræðu, fréttum og öðru og það var gaman að ræða við hana og rökræða. Hún hafði sterkar skoðanir en var samt sem áður opin fyrir nýjum hugmyndum og hlustaði með opnum hug á þá sem voru ann- arrar skoðunar. Amma fylgdist líka vel með fjölskyldunni og ekki síst lang- ömmubörnunum og hafði ein- lægan áhuga á því hvað hver og einn var að gera hverju sinni. Enda fannst henni mjög gaman að ,,njósna á Facebook“ eins og hún sagði sjálf og hló. Amma hafði líka góða innsýn og vissi oft hvernig fólki leið án þess endilega að þurfa að spyrja. Hún var hjálpsöm og umhyggju- söm án þess að vilja láta nokkuð fyrir sér sjálfri hafa. Það voru allir velkomnir inn á heimili ömmu og var þeim tekið fagnandi með hlýju faðmlagi í forstofunni – meira að segja vin- ir langömmubarnanna voru knúsaðir þegar hún hitti þá í fyrsta sinn. Enda er það þannig sem við minnumst ömmu, sem góðrar og skemmtilegrar ömmu sem var svo gott að knúsa. Þín verður saknað. Lilja, Vignir, Bríet, Breki og Aron. Elsku amma. Alltaf létt í bragði og tók ávallt á móti okk- ur með þéttu og innilegu faðm- lagi, svo ánægð að sjá okkur. Og við hana. Amma var svo skemmtileg, fyndin og með ótrú- lega smitandi hlátur. Það var virkilega gaman að sitja og spjalla við ömmu og auðvelt að eyða deginum með henni. Það var hægt að tala um allt við ömmu og rökræða, því hún fylgdist vel með málefnum líð- andi stundar og var einhvern veginn inni í öllu sem var í gangi. Hún var sterkur persónu- leiki, með ákveðnar skoðanir og stóð á sínu, á sama tíma og hún sýndi ólíkum skoðunum skilning og virðingu. Hún var algjör nagli en líka svo hlý og góð. Amma var í einlægni áhugasöm um það sem við, og krakkarnir, vorum að gera hverju sinni. Hún var líka virkilega stolt af allri fjölskyldu sinni og sagði okkur það óspart. Við söknum þín elsku amma en minning um góða, hlýja og skemmtilega ömmu lifir áfram. Og við lofum að halda minningu bestu „flatísa“ í heimi á lofti. Við elskum þig. Edda Þuríður, Tómas Páll, Rakel Elísabet og Arnar Darri. Erfitt er að koma í orð þeim fallegu hugsunum og minning- um sem ég á um yndislegu ömmu mína, Þuríði Guðmunds- dóttur. Að rifja upp tíma okkar saman og allar þær góðu stundir sem við deildum fyllir mig miklu þakklæti og mér þykir ég hafa átt undurfallegan fjársjóð í ömmu, sem var mikil kjarna- kona og sterkur persónuleiki. Þegar ég hef kallað ömmu upp í hugann undanfarna daga birtist hún þar yfirleitt skelli- hlæjandi að einhverju gríni eða með mjúkan faðminn útbreidd- an. Hvort tveggja var mér mik- ils virði í æsku en í seinni tíð þótti mér sífellt dýrmætara að þekkja ömmu sem fullorðin kona að þróa mín eigin viðmið og gildi og finna út hvernig manneskja ég vil vera. Ég tók á einhverjum tíma- punkti meðvitaða ákvörðun um að amma skyldi vera mikilvægur þátttakandi í lífi mínu og að ég myndi sömuleiðis vera hluti af hennar daglega lífi, að reyna að nýta mér reynslu hennar af langri ævi og gefa til baka allt það sem hún gaf og kenndi mér í gegnum árin. Við höfum því átt ótal góða daga saman í gegnum árin, bæði heimavið og í bíltúr- um og stússi hingað og þangað um borgina. Þessar stundir voru yndislegar og skemmtilegar því amma fylgist einstaklega vel með öllu í kringum sig og var alltaf svo vel upplýst um gang mála, hvort sem var hjá nánustu fjölskyldu eða því sem var hæst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Hægt var að sitja í eld- húsinu hjá ömmu að því er virð- ist endalaust og ræða hlutina til mergjar og oftar en ekki vorum við sammála um hvernig best væri að haga hinu og þessu. Mér þykir óendanlega vænt um þessar minningar nú. Amma var fram á síðasta dag mikill og fastur punktur í tilveru minni og það er svo óraunveru- legt að hún sé ekki lengur hjá okkur með góða skapið sitt og sína góðu nærveru. Elsku amma mín, ég er svo þakklát þér – af þér lærði ég gildi þess að segja hlutina um- búðalaust, að vera ekki hrædd við að tjá skoðanir mínar, að hafa húmor fyrir lífinu, að taka sjálfa mig ekki of alvarlega, að vera umhyggjusöm og hjálpsöm gagnvart öðrum og að taka því sem ég ekki fæ breytt af æðru- leysi. Ég mun bera fallegu minn- ingarnar um þig í hjarta mér alla tíð. Ástfanginn blær í grænum garði svæfir grösin, sem hljóðlát biðu sólar- lagsins. En niðri í mýri litla lóan æfir lögin sín undir konsert morgun- dagsins. Og úti fyrir hvíla höf og grandar, og hljóðar öldur smáum bárum rugga. Sem barn í djúpum blundi jörðin andar, og borgin sefur rótt við opna glugga. (Tómas Guðmundsson) Elín Áslaug Ormslev. „Mikið var hann Númi hepp- inn að giftast henni Íðu,“ sagði hún mamma okkar. Og það var hann Stefán föðurbróðir minn, oft kallaður Númi. Hún Þuríður sem gjarnan var kölluð Íða var ein af sautján systkinum frá Kvígindisfelli í Vestur-Barða- strandarsýslu, bæ sem stóð vestan og nokkuð utan við þorp- ið í Tálknafirði. Komin af dugn- aðarfólki, Þórhöllu Oddsdóttur og Guðmundi Kristjáni Guð- mundssyni. Þau eignuðust tólf syni og fimm dætur, allt mann- kostafólk. Kvennalistakonur vildu eitt sinn heiðra Þórhöllu fyrir ævistarfið og heimsóttu hana á Hrafnistu. Hún sagði okkur ungu konunum frá ævi sinni og minntist þess er faðir hennar var einu sinni sem oftar fenginn til að bera veiku barni lyf, hann var svo ratvís og kunn- ugur, en ís og hálka lá yfir öllu og Þórhalla sagði þau systkin hafa legið á bæn til að biðja þess að hann hrasaði ekki svo lyfja- glasið brotnaði en allt fór vel. Þetta voru aðrir tímar. Þuríður var myndarleg og lagleg kona, hvíldi vel í þeim arfi sem hún hlaut úr foreldrahúsum, var verklagin, ábyrg, glaðsinna og ávallt jákvæð og hress í viðmóti. Á öllum fjölskyldufundum, eink- um þegar skyldmenni sem bjuggu erlendis komu í heim- sókn, var hún glöð og tilbúin að leggja fram sinn skerf, oft voru það gómsætar vestfirskar hveiti- kökur. Íða eignaðist dóttur, Hrefnu, sem nú er látin, áður en hún kynntist Stefáni, en þau giftust 1954 og hann gekk Hrefnu í föðurstað. Fermingar- veisla Hrefnu var á Grensásvegi þar sem þau bjuggu þá. Meðal gesta var kona með glitrandi hálsmen sem virtist verðmætt og aðrar konur dáðust að. Eru þetta demantar? var spurt. En Þórhalla kallaði þá: „Strákar, strákar!“ og inn komu ellefu ef þeir voru þá ekki tólf, stórmynd- arlegir menn, synir hennar, og hún sagði: „Þetta eru nú dem- antarnir mínir.“ Þetta þótti mömmu minni góð saga. Stefán var fæddur 1925 og hafði mikinn áhuga á flugi eins og margir ungir menn á þeim árum og lauk einkaflugprófi. Síðar lauk hann námi í járnsmíði frá Iðn- skólanum og vann við járnsmíð- ar bæði hjá Stálsmiðjunni og Glófaxa. Þau Þuríður eignuðust þrjú börn, Hauk Má, Arnheiði og Guðmund, og sex barnabörn. Árið 1970 fóru Númi og Íða með börn sín til Svíþjóðar eins og margir aðrir á þeim tíma og fékk Stefán vinnu við skipa- smíðastöð Kockums í Malmö en Þuríður vann við verslunarstörf. Þeim líkaði vel vistin í Svíþjóð en þó fór svo að þau fluttu aftur heim til Íslands 1981. Eftir heimkomuna starfaði Stefán lengst af sem hlaðmaður hjá Flugleiðum en Þuríður vann sem saumakona. Þau voru ötul og samhent ásamt börnum sín- um við að koma sér upp hús- næði og sjá sér farborða. Þur- íður var Stefáni og börnum sínum og barnabörnum ástrík og dugmikil, traustur klettur í veikindum Stefáns. Hún varð ekkja 1994 en naut góðrar heilsu lengst af þar til alveg síðast, var ern og sinnti börnum og barna- börnum. Hún kvaddi sátt við langt og gjöfult líf. Ástvinum hennar öllum flyt ég innilegar samúðarkveðjur frá mér og systkinum mínum og fjölskyld- um okkar. Blessuð sé minning Þuríðar Guðmundsdóttur. Guðrún Agnarsdóttir. Þuríður Guðmundsdóttir ✝ Kristín Þórð-ardóttir fædd- ist 28. maí 1921 á Skíðsholtum í Hraunhreppi í Mýrasýslu. Hún andaðist 8. maí 2018 á hjúkr- unarheimilinu Eiri, þar sem hún bjó síðustu tíu ár- in. Foreldrar Krist- ínar voru Þórður Guðmunds- son smiður, f. 1885 á Saurum í Hraunhreppi. d. 1952, og Jó- hanna Bogadóttir húsfreyja, f. 1888 á Brennistöðum í Borgar- hreppi í Mýrasýslu, d. 1963. Þau fluttu í Borgarnes þegar Kristín var þriggja ára gömul. Bróðir Kristínar var Bogi Þórðarson, f. 1917, d. 2000. Kristín gekk í barna- og unglingaskólann í Borgarnesi og lauk þaðan fullnaðarprófi, hún vann í mjólkurbúinu í Borgarnesi sín ungdómsár og barnabarn. 2) Anton Benedikt, f. 1953, kvæntur Kristínu Sölvadóttur, f. 1953, synir þeirra eru þrír. a) Hafsteinn, f. 1975, maki Auður Brynja Eyjólfsdóttir, f. 1981. Haf- steinn á dóttur með Ingibjörgu Eyjólfsdóttur, f. 1975, og eitt barnabarn. b) Guðmundur Ás- geir, f. 1985. c) Daníel, f. 1987. 3) Þorsteinn, f. 1959, kvæntur Ólafíu S. Halldórsdóttur, f. 1960. Þau eiga tvær dætur, a) Kristín, maki Höskuldur Guð- jónsson, f. 1981. Þau eiga tvö börn. b) Halldóra, f. 1987, hún á eina dóttur. 4) Iðunn, f. 1961, gift Eymundi Hann- essyni, f. 1962, þau eru barn- laus. Kristín var heimavinnandi meðan börnin voru ung og vann síðar utan heimilis. Sem vörubílstjóri, við fiskvinnslu, sláturhússtörf, sem ráðskona í mötuneytum og almenn störf í þvottahúsi ríkisspítalana. Hún var félagsmaður í Kvenfélagi Tunguhrepps, mikil handa- vinnukona og félagslega virk á meðan heilsan leyfði. Útför Kristínar fer fram frá Guðríðarkirkju í Grafarholti í dag, 28. maí 2018, og hefst at- höfnin klukkan 11. til átján ára ald- urs. Hún fór í Hússtjórnarskól- ann á Hallorms- stað 1939 og lauk honum eftir tveggja ára nám. Kristín giftist Hafsteini Kröyer frá Stórabakka í Hróarstungu, f. 1918, d. 1993. Þau stunduðu búskap á Árbakka i Hróarstungu þar til þau brugðu búi og fluttu til Reykjavíkur árið 1987. Börn þeirra eru fjögur 1) Jóhann Þór, f. 1947, kvæntist Jónu Vigfúsdóttur, f. 1947, þau skildu. Börn þeirra eru tvö a) Vigfús, f. 1969, maki Luciene Rodriques, f. 1983, börn þeirra eru þrjú. b) Vala Björg, f. 1972, maki Jakob Helgason, f. 1961, þau skildu. Börn þeirra eru tvö. Seinni kona Þórs er Martína Sigursteinsdóttir, f. 1955, hún á eina dóttur og Kristín Þórðardóttir frá Ár- bakka í Hróarstungu. Nú er hún Kristín eða Stína eins og hún var oftast kölluð horfin yfir móðuna miklu. Hún hefði orðið 97 ára í dag, 28. maí. Við hjónin kynntumst henni fyrst sem matráðskonu við vinnuskálann við Lagarfoss- virkjun í byrjun árs 1978. Kristín tók okkur vel og við henni. Segja má að hún hafi tekið okkur upp á sína arma í sveitasamfélaginu og hossaðist með okkur milli bæja til að kynna okkur fyrir nágrönnun- um í sveitinni. Sambandið við Stínu og hennar fjölskyldu þró- aðist í vináttu sem haldist hefur alla tíð. Alltaf var hægt að leita til Stínu. Hún kom t.d. í Lag- arfoss eftir að vinnuskálanum var lokað og tók við heimilinu þar þegar eitthvað bjátaði á. Stína var alltaf hress, jafnvel þó að eitthvað þungt lægi á henni. Hún var líka stríðin og hafði gaman af uppákomum, eins og kom í ljós einn daginn þegar við hjónin fórum í Egils- staði á sólríkum sumardegi til að kaupa inn fyrir heimilið. Þegar heim var komið tókum við eftir því að Stína var eitt- hvað svo dökk í andliti og á handleggjum. Hún sagðist hafa verið í sól- baði allan tímann á meðan við vorum í kaupstað, veðrið hefði verið svo gott, hún svo fljót að taka lit og þess vegna væri hún svona dökk. Fljótlega kom þó sannleikurinn í ljós enda svolít- ið flekkótt. Hún hafði makað sósulit í andlit sitt og á hendur. Hún lagði þetta á sig, aðeins til að stríða okkur. Þær voru ófáar heimsóknirn- ar í Árbakka í Tungusveit og alltaf var tekið á móti okkur með sama höfðinglega hættin- um. Strákarnir okkar tveir voru báðir í sumardvöl hjá Stínu í Árbakka og nutu þess að fara í fjósið með Benna, þvælast fyrir í heyskap og gera fleira skemmtilegt í sveitinni. Gestir okkar sem komu í heim- sókn í Lagarfoss voru líka au- fúsugestir í Árbakka. Yngsta barnið okkar, stúlkubarn, kom í heiminn á meðan við dvöldum í Lagarfossi. Hún var skírð í höf- uðið á ömmu sinni og eftir Kristínu í Árbakka. Tíminn leið og sá dagur kom að dvölin við Lagarfoss var á enda og fjöl- skyldan fluttist brott úr sveit- inni í bæinn. Sambandið hélst við Stínu og hennar fjölskyldu í Árbakka. Þegar Stína hætti búskap í Árbakka og flutti í bæinn, hóf hún störf á nýjum vettvangi sem matráðskona og síðar við umönnun. Þá var stutt á milli heimsókna og heimboða. Það er eftirsjá að horfa á eftir slíkum öðlingi og sólargeisla sem Stína var. Minningarnar um hana skælbrosandi og hlýja eru efst í okkar huga. Við samhryggjumst ykkur; Þór, Benedikt, Þorsteinn og Ið- unn, makar, barnabörn og barnabarnabarn. Guð blessi ykkur. Þið voruð, eruð og verð- ið alltaf vinirnir okkar frá Ár- bakka. Guðbergur, Anna og fjölskylda. Kristín Þórðardóttir Í dag kveð ég hinstu kveðju ein- hverja þá merkileg- ustu konu sem ég hef hitt á lífsins leið. Rannveigu Ragnarsdóttur hitti ég fyrst nokkrum mánuðum eftir að ég hóf samband við Árna, sonar- son hennar, og strax þá sýndi hún mér einstaka hlýju og fegurð í samskiptum. Það er erfitt að færa í orð þessa hlýju og umhyggju- semi sem hún sýndi. Hún var stolt af sínu fólki og gerði aldrei neinn mannamun, hvort sem fólk tengd- ist henni blóðböndum eða ekki og það fannst mér svo einstakt við hana. Ég man hve óskaplega hissa ég var þegar ég fékk símtal frá henni þegar ég átti afmæli fyrst eftir að við kynntumst. Ég sem tengdist henni ekki öðruvísi en að vera þá í sambandi með sonarsyni hennar. Og allar götur síðan var það partur hvers afmælisdags hjá okkur í fjölskyldunni, að fá símtal frá henni og börnin okkar Árna fengu alltaf afmælisgjafir frá langömmu. Alltaf þegar maður hitti hana eða heyrði í henni spurði hún ætíð frétta eins og gengur og það var laust við alla yfirborðsmennsku, hún einlæglega hafði áhuga á því sem maður var að fást við hverju Rannveig Ragnarsdóttir ✝ RannveigRagnarsdóttir fæddist 17. mars 1932. Hún lést 6. maí 2018. Útför Rannveigar fór fram 15. maí 2018. sinni og hvað væri að frétta af mínu fólki. Hún var líka dugleg að taka myndir við alls- kyns athafnir fjöl- skyldunnar. Oft var maður kannski ekki sjálfur með hugann við það en maður gat gengið að því vísu, að Rannveig ætti myndir og hún hefur haft það að leiðarljósi að mynd- ir eru minningar og ekki síst nú eru þær mjög dýrmætar minningar. Ég er ógurlega þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þessari konu, hlýju hennar, umhyggju og alúð. Hún var einhver fegursta manneskja sem ég hef kynnst, bjó yfir persónutöfrum sem fáum hlotnast að bera. Hún var sann- kölluð fyrirmynd í einu og öllu. Mínar innilegustu samúðar- kveðjur sendi ég til fjölskyldunnar allrar. Nú ríkir kyrrð í djúpum dal, þótt duni foss í gljúfrasal, í hreiðrum fuglar hvíla rótt, þeir hafa boðið góða nótt. Nú saman leggja blómin blöð, er breiddu faðm mót sólu glöð, í brekkum fjalla hvíla hljótt, þau hafa boðið góða nótt. Nú hverfur sól við segulskaut og signir geisli hæð og laut, en aftanskinið hverfur fljótt, það hefur boðið góða nótt. (Magnús Gíslason) Sigurrós Einarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.