Morgunblaðið - 28.05.2018, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.05.2018, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2018 Það hefur stund- um hvarflað að mér að það sé bærilegra að búa hér langt í burtu frá Íslandinu góða þegar sorgin ber að dyrum. Bærilegra því þá skynjar maður ekki eins djúpt og sárt það skarð sem myndast þegar yndislegt fólk kveður okkur og heldur á vit nýrra ævintýra, kveður okkur að eilífu, eða hvernig sem við kjós- um að hugsa um það. Það breytir því þó ekki að sorgin er djúp og innileg, þakk- lætið fyrir að hafa fengið að verða samferða góðu fólki magn- ast upp og minningarnar verða stórar, skýrar, ljúfar, fallegar. Tárin renna þegar ég hugsa um fjölskyldu Kötu, þetta yndislega fólk sem hefur þurft að horfa á eftir börnum sínum, og drenginn hennar, því þó svo að þið hafið öll fengið ykkar góðu stundir með einstakri stúlku er erfitt að ímynda sér líðan eða líf ykkar án hennar. Eitthvað, kannski Kata sjálf, hvíslar að manni að vera jákvæð- ur og þakklátur. Líka að gleyma ekki djúpum spékoppum, glettni og brosinu. Þroskanum. Sem kemur mögulega af því að ganga í gegnum þrautir á stuttri ævi en vinna sig í gegnum þær og verða að betri einstaklingi fyrir vikið. Hún hallaði sér svo fallega að fjölskyldu sinni, sinnti svo vel og einlæglega því hlutverki að vera móðir, dóttir, systir, frænka – og vinur fólksins síns. Brosti meira en við hin. Eyddi ekki óþarfa orðum þegar þeirra var ekki þörf. Í minningabankanum eru góð- ar stundir með Kötu fyrir nokkr- um árum þegar hún kom hingað til Hong Kong og dvaldi með fjölskyldunni okkar á meðan hún var í starfsnámi. Við byrjuðum daginn á því að fara á plastjullu í land úr bátnum þar sem við bjuggum; báðar aðeins of feitar áttum við oft erfitt með að skríða upp á bryggjuna án þess að hvolfa fleyinu – og svo tók við trimm, ásamt með Strúllu mág- konu, því við ákváðum að verða ofurhraustar á þessum mánuð- um sem Kata dvaldist hér hjá okkur. Ég hlustaði á Kenny Ro- gers, hún á Rammstein. Við urð- um ekkert mikið hraustari en við hlógum dátt og hátt. Kata var einstök. Hún var svo greind, falleg og sterk. Það eru forréttindi að hafa fengið að kynnast henni, læra af henni og eyða með henni stundum sem einkenndust af lífsgleði, hógværð og virðingu fyrir mönnum, dýr- um og lífi. Hún hló að sjálfri sér og smitaði okkur hin. Við í Hong Kong-fjölskyld- unni sendum ykkur, elsku Kor- mákur, Inga Lára og Óli, og öll- um hinum sem Kata elskaði, okkar innilegustu samúðarkveðj- ur og kærleik. Það voruð þið sem bjugguð til yndislega veröld hennar, rétt eins og hún fyllti ykkar líf af gleði. Það voruð þið sem hún lifði og brosti fyrir og Katrín Ólafsdóttir ✝ Katrín Ólafs-dóttir fæddist 21. september 1982. Hún lést 10. maí 2018. Útför Katrínar fór fram 24. maí 2018. með og það eruð þið sem hún mun halda áfram að vaka yfir, hlæja með og passa upp á, á nýjum stað innan um aðra góða. Hulda Þórey Garðarsdóttir og Starri, Freyja, Saga og Vaka. Þær sorgarfréttir bárust fyrir nokkrum dögum að Katrín Ólafsdóttir vinkona okkar hefði látist skyndilega hinn 10. maí síðastliðinn. Það hefur ekki oft fallið okkur í skaut að skrifa greinar sem þessa en nú verður ekki orða bundist. Við kynnt- umst Kötu þegar við unnum með henni á meinafræðideild Land- spítalans. Hún gerði hvern dag betri. Það var alltaf dásamlegt að vera í návist hennar og hún var alltaf í góðu skapi, hlátur- mild og yndisleg. Hún var bara ein af þessum manneskjum sem þú vissir við fyrstu kynni að væru yndisleikinn uppmálaður og að þú myndir vilja hafa hana í lífi þínu í sem lengstan tíma. En sá tími varð ekki langur. Tíminn er verðmætur og heim- urinn verðskuldaði meiri tíma með Kötu. Það var okkur til- hlökkunarefni að vinna með henni í framtíðinni á Lansanum að sérnáminu loknu, en því mið- ur mun það aldrei verða. Það er með mikilli sorg í hjarta sem við kveðjum hana Kötu. Hennar verður sárt saknað. Við hugsum með sérstakri hlýju til Kormáks, sonar hennar. Ekkert barn ætti að þurfa að kveðja móður sína svona snemma. Við vottum ást- vinum Kötu innilega samúð okk- ar á þessum erfiðu tímum. Minn- ing hennar mun lifa í hjörtum okkar. Það er ekki auðvelt að setja tilfinningar sem þessar í orð. Því langar okkur að enda þetta með dálitlum dægurlagatexta eftir Braga Valdimar Skúlason, sem fangar hvernig okkur líður og við vitum að Kata hélt mikið upp á. Sérhver draumur lifir aðeins eina nótt sérhver alda rís en hnígur jafnan skjótt hverju orði fylgir þögn og þögnin hverfur alltof fljótt. En þó að augnablikið aldrei fylli stund skaltu eiga við það mikilvægan fund því að tár sem þerrað burt aldrei nær að græða grund. Líttu sérhvert sólarlag, sem þitt hinsta væri það. Því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að. Þú veist að tímans köldu fjötra enginn flýr enginn frá hans löngu glímu aftur snýr. Því skaltu fanga þessa stund því fegurðin í henni býr. Líttu sérhvert sólarlag, sem þitt hinsta væri það. Því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að. (Bragi Valdimar Skúlason) Sylvía Oddný Einarsdóttir og Einar Örn Finnsson. ✝ ValdimarBjarnfreðsson (Von Vapen) var fæddur á Efri- Steinsmýri 16. febrúar 1932. Hann lést á Drop- laugarstöðum 4. maí 2018. Hann var sonur hjónanna Bjarn- freðs Jóhanns Ingi- mundarsonar og Ingibjargar Sigurbergsdóttur. Valdimar var sextándi í röðinni af tuttugu systkinum. Hann byrjaði ungur að vinna ýmis verkamannastörf, meðal annars hafnarvinnu og vann hann einnig um tíma í Noregi. Valdimar byrjaði ungur að stunda myndlist. Hætti því en fékk á fullorðinsárum köllun að handan um að halda því áfram. Seinni hluta ævinnar fékkst hann nær ein- göngu við myndlist sem og aðra list- gjörninga. Útför Valdimars fer fram frá Fossvogskapellu í dag, 28. maí 2018, klukkan 13. Jarðsett verður í Kotstrand- arkirkjugarði sama dag. Þá er kallið komið hjá Valda frænda og hann farinn til for- feðra okkar og ættingja. Mikið hlýtur að vera glatt þar á hjalla. Valdi frændi var ekki allra og fór sínar eigin leiðir. Hann olli oft systkinum sínum heilabrotum en brosti ávallt mikið þegar þau loks spurðu frétta. Valdi var einstakur lífskúnst- ner og hélt upp á glitrandi og lit- ríka hluti. Hann málaði einstök listaverk, hélt sýningar og seldi verkin sín. Mikið vorum við montin að eiga frænda sem mál- aði svona skemmtilega. Verkin hans gátu verið torkennileg, skrýtin en oft líka falleg. Fyrir okkur krakkana var Valdi yndislegur frændi enda barngóður og þægilegur maður. Hann gaf sér tíma til að spjalla við okkur og velta vöngum um ýmis málefni sem brunnu á okk- ur. Valdi var skemmtilegur, stundum furðulegur og kom okk- ur oft á óvart. Það var sérlega gaman að hitta Valda í Kolaport- inu á sínum tíma. Þar naut sín vel hinn litríki karakter. Oft með indverska húfu og talaði við alla sem vildu hlusta og hvatti fólk til að njóta umhverfisins og stemn- ingar stundarinnar. Stundum var hann bara sjálfur til áheyrnar. Margt var Valda til lista lagt. Hann spáði í spil, bolla og réð drauma. Margir voru á því að spádómar Valda frænda rættust gjarnan. Valdi var mikill vinur Kjartans Halldórssonar í Sægreifanum. Þeir ferðuðust saman austur í Meðalland í Skaftafellssýslu þar sem 19 systkini Valda fæddust og slitu barnsskónum. Oftar en ekki sat Valdi frændi í veitingasal Sæ- greifans við höfnina, uppstrílað- ur í orðum prýddum hermanna- jakkanum sínum. Valdi hló mikið eins og öll systkini hans. Þá stafaði mikill kvennaljómi af Valda frænda og stutt var í hnyttni hjá honum. Steindór bróðir Valda kom eitt sinn í heimsókn til hans og spurði af hverju í ósköpunum hann eignaðist ekki konu og börn. Hann svaraði um hæl: „Ja, svona er það nú bara, Steindór minn, þú sérð um þetta fyrir okkur.“ Við þökkum Valda frænda – listamanni, spámanni og lífs- kúnstner – samfylgdina og fyrir allt það góða sem hann lét af sér leiða. Það virðist ekki lengur mikilsvert hvort allir elskuðu mig eða ekki – nú varð það mikilvægara að ég elskaði þá. Þessi tilfinning snýr öllu lífinu við, lífið verður sú athöfn að gefa. (Beverly Sills. þýð. Kolbrún Aðal- steinsdóttir) Kolbrún Aðalsteinsdóttir, Sigurjón Ingi Aðalsteinsson, Björgvin Ármannsson, Óskar Ármannsson, Bjarnfreður Ármannsson, Ægir Ármannsson, Anna Jóna Ármannsdóttir, Guðný Ármannsdóttir, Leifa Ármannsdóttir, Ásgeir Steindórsson, Ingibjörg Steindórsdóttir, Bjarnfreður H. Ólafsson. Valdimar Bjarnfreðsson var einn af þessum mönnum sem óneitanlega setja lit á tilveruna. Hann klæddi sig óvenjulega, bar stundum túrban og stórgerð háls- men, auk hringa á hverjum fingri. En óvenjulegastur var hann þó sem myndlistarmaður, því mynd- ir hans urðu þannig til að hann beitti sömu aðferðum og þegar spáð er í bolla. Fékk hann sér sterkt kaffi, drakk hægt og rólega úr bollanum og íhugaði á meðan ákveðna spurningu sem beint var til handanheima. Þegar hann hafði lokið úr bollanum sneri hann honum á ákveðinn hátt yfir höfði sér og lagði síðan á hvolf yf- ir ofn. Þegar hæfilegur þurrktími var liðinn tók hann bollann og gaumgæfði þær myndir sem birt- ust í honum, en þar var fólgið svarið við spurningu hans. Voru þessi svör að handan oft algerlega andstæð viðurkenndum stað- reyndum eða hugmyndum manna almennt, m.a. um krossfestingu Krists, felustað Loch-Ness- skrímslisins, Glám úr Grettis- sögu, og einnig um Grýlu, sem í túlkun listamannsins bar á baki sér krókódílsunga með rauða jólasveinahúfu. Einkum hafði Valdimar þó ánægju af að spyrj- ast fyrir um uppruna ýmissa ör- nefna. Valdimar vann löngum á sjó eða stundaði almenna verka- mannavinnu, sem tæplega hefur gefið honum mikið tóm til málara- starfa. En hann sagði sjálfur að hann hefði ungur byrjað að stunda myndlist og hefði á fullorðinsár- um fengið köllun að handan um að halda því áfram. Tengsl Valdi- mars við dulræn öfl fór hann ekk- ert leynt með og gæti einhverjum hafa þótt það einkennilegt tal, en var honum sjálfum ofur eðlilegt. Valdimar hélt yfir tug mál- verkasýninga, og bar ein þeirra hinn skemmtilega titil „Kaffiboll- inn er mitt Internet“. Verk Valdi- mars eru einföld og bernsk í framsetningu, litir skærir, einlitir fletir og formin einfölduð. Áhrifa- máttur þeirra felst ekki í tækninni eða hversu vel máluð þau eru, heldur ósvikinni frásagn- argleði og þeirri einlægni sem einkennir góða listamenn. Hann var svokallaður einfari í myndlist og ekki ósáttur við þá skilgrein- ingu, hann segir t.d. í viðtali að hann sé einn á báti, líti ekki til neinna fyrirmynda og geti því ekki vitnað í aðra en sjálfan sig. Það var ánægjulegt að setja upp einkasýningar á verkum Valdimars Bjarnfreðssonar á sín- um tíma, í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi 1997 og síðar í Safna- safninu 2004. Fylgdi hann sýningu sinni norður í Safnasafn og naut þess að dvelja þar um hríð, leita berja og liggja í lyngmó. Minnumst við hans af mikilli hlýju. Blessuð sé minning Valdimars Bjarnfreðs- sonar listamanns. Fyrir hönd Safnasafnsins, Harpa Björnsdóttir, Níels Hafstein og Magnhildur Sigurðardóttir. Valdimar Bjarnfreðsson ✝ Guðrún HuldaÓlafsdóttir Getz fæddist í Háholti í Bráðræðisholti í Reykjavík 1. nóv- ember 1926. Hún lést í Los Angeles 2. mars 2018. Hún var dóttir Ólafs Einarssonar sjómanns og Sigrún- ar Kristínar Krist- jánsdóttur, hús- freyju, veitinga- og hannyrðakonu. Systkini Huldu voru Ólafur Einar Ólafsson veð- urfræðingur, f. 1928, d. 1974, Kristján Jóhann Ólafsson hús- gagnabólstrari, f. 1932, d. 2017, Borgarfirði. Hulda starfaði við fiskvinnslu og verslun í Reykjavík og seldi miða í Gamla bíói og í Þjóðleikhúsinu þegar það tók til starfa. Hulda kvæntist Harry Getz, tæknimanni við ratsjár og síðar í myndverum, 19. maí 1951 og bjuggu þau fyrst í Bandaríkjunum, en síðar í Englandi og í Þýska- landi. Árið 1966 fluttist Hulda aft- ur til Bandaríkjanna og bjó hún í Los Angeles eftir það. Hulda eignaðist börnin Gary Gregory Getz (Gunnar Snorra- son), f. 8. nóvember 1947, Lindu Susan Getz, f. 25. júlí 1955, og Stephen Michael Getz, f. 7. októ- ber 1956. Börn Lindu og Itabora Ferreira eru Hermes Guaraci Getz Ferreira, f. 1991, og Olavo Ubirani Getz Ferreira, f. 1995. Sonur Ste- vens og Juliette Marquez Getz er Mason Alexander Getz, f. 1996. Hulda verður jarðsett í Foss- vogskirkjugarði í dag, 28. maí 2018, klukkan 15. og Kristinn Ólafsson vélstjóri, f. 1935, d. 1963. Fyrstu árin bjó Hulda í föðurhúsum, í Háholti og við Grandaveg, en þeg- ar hún var enn barn að aldri leystist heimilið upp. Hún var víða í vist á æsku- og unglings- árum, m.a. á bæj- unum Hálsi, Hvammsvík, Stóra- Botni og Þyrli í Kjós og Hvalfirði. Skömmu fyrir stríð bjó hún og starfaði um hríð á Sólheimum í Grímsnesi, og síðar stundaði hún nám á Skeiðum og í Reykholti í Hulda var systir Ólafs Einars, föður undirritaðs, og voru þau miklir vinir. Þegar leiðir foreldr- anna skildi fór Einar í vist að Hálsi í Kjós, en Hulda fór víða. Þótt hún hefði aðeins búið rúman fjórðung ævinnar á Íslandi voru þau ár svo viðburðarík að minningar þeirra skipuðu háan sess í huga Huldu. Margt úr sveitinni var Huldu minnisstætt og flest ber það já- kvæðni, léttlyndi og röskleika hennar vitni. Á Stóra-Botni bar hæst átök við nautgrip sem end- uðu í sársaukafullum árekstri við hliðstólpa. Úr glugga Huldu blasti Þyrill við og var hún viss um að vandfundinn væri sá Íslendingur sem hefði verið eins heppinn með útsýni og hún. Hulda og flestir á Íslandi á árunum fyrir stríð voru fátæk á okkar tíma mælikvarða. Það var henni því minnisstætt þegar hún og Einar bróðir riðu að Ingunnarstöðum til að heimsækja Jóa bróður. Þar var tekin ljós- mynd af þeim Einari sem Hulda hélt mikið upp á. Þegar sest var að borðum var engum skömmtuð mjólk, heldur var stór og sífull mjólkurkanna á borðum og allir fengu ómælt. Tólf ára gömul gekk hún yfir Reynivallaháls til að heimsækja skyldfólk og bróður á Hálsi. Aðspurð hvort það hefði verið alsiða að hleypa börnum aleinum í svona langferð svaraði hún því að hún hefði alls ekki verið alein, heldur haft lítinn dreng með sér sem hún átti að gæta. Hulda var vinnusöm og námfús. Hún var lestrarhestur og hafði orð á því að í gamla daga hefðu strákarnir gjarnan fengið bækur á jólum, en hún og aðrar stelpur öðruvísi og síður nýtilegar gjafir. Það þótti henni best við sumarið á Íslandi að þurfa ekki að gera annað en að draga gluggatjöldin frá til að geta lesið alla nóttina. Gott bóklegt vegarnesti fékk Hulda í Reyk- holtsskóla og þar eignaðist hún vinkonur sem hún ræktaði sam- band við alla tíð. Í Reykjavík bar hæst tímann sem hún starfaði í Þjóðleikhúsinu, en þá kynntist hún mörgum litríkum listamönn- um og sat meðal annars fyrir hjá Gunnlaugi Blöndal listmálara. Hulda kom nokkrum sinnum til Íslands eftir að hún flutti utan. Í einni slíkri heimsókn hélt hún undirrituðum undir skírn. Það þótti henni skemmtilegt og sagð- ist hafa valið annað og betra nafn, en hætt við á síðustu stundu af til- litssemi við foreldrana. Í Íslands- heimsóknum sínum ræktaði hún samband við fjölskyldu og vini og það gerði hún líka með því að taka á móti óteljandi gestum, en Hulda var afar gestrisin. Hún lét sér mjög annt um systkinabörn sín sem fengu ævintýralegar jólagjaf- ir frá Huldu frænku í Disney- hreppi í Undralandi. Hulda talaði alla tíð lýtalausa íslensku. Hulda sagði sjálf að Þýska- landsárin hefðu líklega verið henn- ar bestu ár. Innfæddir voru þeim góðir, enda foreldrar Harry þýskir og hún sjálf íslensk sem þótti síst verra. Þar heimsótti faðir hennar hana og þau sigldu á Dóná og fóru um Vínarskóga. Síðar dvaldi hann hjá henni um hríð í Los Angeles. Þá heimsókn rifjaði hann oft upp í ótalmörgum og löngum bréfum sem hann sendi henni frá Reykja- vík með greinargóðum lýsingum á veðri og öðrum mikilvægum frétt- um ofan af Íslandi. Haraldur Ólafsson. Guðrún Hulda Ólafsdóttir Getz var mágkona systur minnar, Þór- eyjar. Á 6. áratugnum bjó hún um margra ára skeið í Englandi og í Þýskalandi en um þær mundir starfaði ég á Gullfossi og var í sigl- ingum til útlanda. Hulda var gift Harry Getz, sem var sómamaður. Mér er minnisstætt þegar Harry kom alla leið frá Þýskalandi til að taka á móti Huldu í Kaupmanna- höfn og bauð okkur út á veitinga- staðinn Syv små hjem, sem var með betri stöðum í borginni. Sam- skipti Huldu við fjölskyldu mína voru með ýmsu móti. Halla systir mín aðstoðaði Huldu t.d. við heim- ilishald í Englandi einn vetur og var það farsæl vist. Hulda kom ekki oft til Íslands, en árið 1994, þegar ég var hætt að vinna, fórum við Dúdda systir í heimsókn til Huldu í Los Angeles, þar sem hún bjó síðustu 50 árin eða þar um bil. Það var eftirminni- leg heimsókn. Hulda var mjög gestrisin og fór með okkur til Las Vegas og á fleiri eftirminnilega staði. Síðustu árin höfum við spjallað í síma um heilsufarið, dag- inn og veginn. Ég votta nánustu fjölskyldu samúð mína og þakka fyrir allt sem Hulda hefur gert fyrir mig í gegnum tíðina. Lilja E. Kolbeins. Guðrún Hulda Ólafsdóttir Getz Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.