Morgunblaðið - 28.05.2018, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2018
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Við byrjum daginn á opnu vinnustofunni okkar kl. 9,
leikfimi í KR kl. 10.30 þar sem hann Guðjón sjúkraþjálfari sér um leik-
fimina. Félagsvist kl. 13 í matsalnum og Jóga kl. 18.
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16, ganga um nágrennið kl. 11,
Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16. Félagsvist með vinning-
um kl. 13. Kvennahlaup í Árskógum í vikunni, fylgist með. Myndlist
með Elsu kl. 16-20. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45.
Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Félagsvist kl. 13.
Dalbraut 18-20 Brids kl. 14.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.10. Opin handverks-
stofa kl. 13. Botsía kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir!
Garðabær Jónshúsi / félags - og íþróttastarf: 512-1501. Meðlæti með
síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.30. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.40/
8.20/15.15. Kvennaleikfimi Sjálandi kl. 9.05. Stólaleikfimi Sjálandi kl.
9.50. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Kvennaleikfimi Ásgarði kl.
10.40. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15. Brids í Jónshúsi kl. 13.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta.
Gullsmári Postulín kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10, handavinna / brids
kl. 13, jóga kl. 18.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9–14. Bænastund kl. 9.30–10. Jóga kl. 10.10–11.10.
Hádegismatur kl. 11.30. Prjónaklúbbur kl. 14. Kaffi kl. 14.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, dagblöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
jóga hjá Karinu kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30, tálgun í handavinnu-
stofu kl. 13, frjáls spilamennska kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30 og
jóga hjá Ragnheiði kl. 16.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl. 9-16, línudansnámskeið kl. 10,
ganga kl. 10, handavinnuhornið kl. 13, félagsvist kl. 13.15, síðdegis-
kaffi kl. 14.30. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upplest-
ur kl. 11, trésmiðja kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl. 14, bíó á 2.
hæð kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760.
Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er boðið
upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Helgi-
stund kl. 10.10 á sléttum vikum. Hádegisverður er kl. 11.30-12.15 og
spiluð er félagsvist kl. 13. Kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl.
14.30-15.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýs-
ingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík ZUMBA Gold kl. 10.30 undir stjórn
Tanyu.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Lok á heita potta og hitaveitu-
skeljar
Stærðir í cm: 200x200, 210x210,
220x220, 235x235, 235x217,
217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000
kg jafnarðarþunga af snjó. Vel ein-
angruð og koma með 10 cm svuntu.
Sterkustu lokin á markaðnum. Litir:
Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að
auðvelda opnun á loki.
www.heitirpottar.is
Sími 777 2000 Haffi
og 777 2001 Grétar
Ýmislegt
Jessenius Faculty of Medicine
Martin, Slóvakíu
Inntökupróf verða haldin í læknis-
fræði 1. júní í MK í Kópavogi.
Margir Íslendingar stunda nám við
skólann. Uppl. fs. 8201071
kaldasel@islandia.is
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
Húsviðhald
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
✝ Davíð Guð-mundsson frá
Glæsibæ í Hörgár-
sveit var fæddur 22.
maí 1936. Hann lést
á Öldrunarheim-
ilinu Lögmannshlíð
á Akureyri 18. maí
2018.
Davíð var sonur
hjónanna Sigríðar
Stefánsdóttur, f.
1892, d. 1970, hús-
freyju í Glæsibæ, og Guðmundar
Kristjánssonar, f. 1889, d. 1966,
bónda í Glæsibæ. Systir Davíðs
var Ragnheiður G. Guðmunds-
dóttir, f. 1931, d. 2014, kennari,
gift Birni Elíassyni, f. 1925, d.
2010, sjómanni.
Davíð giftist eftirlifandi konu
sinni, Sigríði Manasesdóttur, f.
1937, 15. júní 1957. Foreldrar
Sigríðar voru Aðalheiður Jóns-
dóttir, f. 1893, d. 1976, ljósmóðir,
húsfreyja og bóndi á Barká í
Hörgárdal, og Manases Guð-
jónsson, f. 1891, d. 1938, bóndi á
Barká.
Börn þeirra eru: 1) Valgerður,
f. 1957, maki Magnús S. Sig-
urólason, f. 1964. 2) Rúnar, f.
1958, maki Jakobína E. Áskels-
dóttir, f. 1961 3) Hulda, f. 1961,
maki Baldur Ó. Einarsson, f.
1962, d. 2014. 4) Heiða Sigríður,
f. 1966, maki Michael V. Clausen,
f. 1958. 5) Eydís Björk, f. 1967,
maki Atli R. Arngrímsson, f.
1964. Barnabörn
Davíðs og Sigríðar
eru 20 og barna-
barnabörnin 21.
Davíð var fæddur
og uppalinn í
Glæsibæ. Davíð og
Sigríður tóku við
búi í Glæsibæ af for-
eldrum hans árið
1957. Þau stunduðu
hefðbundinn bú-
skap fram til ársins
1991 en hófu þá skógrækt. Eftir
þau stendur mikill og fallegur
skógur í Glæsibæ. Davíð sat
meðal annars í sveitastjórn
Glæsibæjarhrepps og var virkur
í starfi Búnaðarfélagsins. Hann
sinnti einnig nefndarstörfum í
Sparisjóð Glæsibæjarhrepps, síð-
ar Sparisjóð Norðlendinga. Var
hann einn af stofnendum Félags
skógarbænda á Norðurlandi og
var kjörinn í fyrstu stjórn Lands-
samtaka skógareigenda. Hann
var baráttumaður fyrir því að
stofnuð yrðu landshlutasamtök
um skógrækt og sat í stjórn
Norðurlandsskóga um árabil.
Davíð söng bæði í kirkjukór
Glæsibæjarkirkju og Söngsveit
Hlíðarbæjar. Hann var hag-
mæltur og orti bæði ljóð og stök-
ur af ótal tilefnum.
Útför Davíðs fer fram frá
Möðruvallaklausturskirkju í dag,
28. maí 2018, og hefst athöfnin
klukkan 14.
Elsku pabbi.
Takk fyrir allt.
Ég trúi á stokka og steina
og stefni á klettinn minn eina
er mynnist við sjó
í himneskri ró
en hefur þó mörgu að leyna.
Er sólin í suðrinu logar
þá sindra með ströndinni vogar.
Ég klettinn minn kveð
þeim kærleika með
sem aftur mig að honum togar.
(Davíð Guðmundsson)
Guð geymi þig.
Börnin þín,
Valgerður, Rúnar, Hulda,
Heiða og Eydís.
Davíð
Guðmundsson
Þórhallur mágur
minn kvaddi þennan
heim 30. apríl síð-
astliðinn. Hann
hafði um nokkurt skeið verið að
hverfa vinum og vandamönnum
inn í þoku óminnis. Þórhallur var
tveimur árum eldri en Steinunn
kona mín og systir hans en þau
áttu ekki mikla bernsku né æsku.
Hann var snemma sendur í sveit
á sumrum og umgekkst fljótt
bresku hermennina eftir hernám,
seldi þeim Daily Bulletin. Hann
spjallaði við þá og var strax far-
inn að tala ensku enda mjög bráð-
þroska og vel greindur.
Þegar hann var kominn í ann-
an bekk í Flensborgarskóla taldi
Benedikt Tómasson skólastjóri
að ekki væri hægt að kenna hon-
um meira þar og kom honum til
frænda Þórhalls, Þórarins skóla-
meistara, á Akureyri sem útskrif-
aði síðan drenginn sem stúdent
17 ára frá MA.
Í MA varð afdrifaríkt ástaræv-
intýri sem bar ávöxt rétt eftir
stúdentspróf og er Steinunn
Bækkeskov Hanahan doktor í
fræðum tengdum sykursýki en
móðir hennar Þorgerður Septíma
Árnadóttir var samstúdent Þór-
halls. Þórhallur lauk fyrri hluta í
verkfræði við Háskóla Íslands og
lauk síðan námi við Háskólann í
Þórhallur Þrastar
Jónsson
✝ ÞórhallurÞrastar Jóns-
son var fæddur 7.
febrúar 1931. Hann
lést 29. apríl 2018.
Útför Þórhalls
fór fram í kyrrþey
17. maí 2018.
Kaupmannahöfn og
var kominn heim
fullnuma verkfræð-
ingur þegar við
Steinunn fórum til
hans í Kaupmanna-
höfn 1955.
Þórhallur átti
farsæla starfsævi en
hápunktur hennar
er hið mikla átak að
koma vatnsveitu til
Vestmannaeyja frá
meginlandinu, þegar hann var
bæjarverkfræðingur þar. Þá fór
saman farsælt samstarf Þórhalls
og Magnúsar bæjarstjóra sem
var framsýnn og djarfur maður.
Þórhallur kvongaðist Elínu
Ósk Guðjónsdóttur árið 1952 og
áttu þau ástríkt og farsælt hjóna-
band og eignuðust fimm börn
sem öll komust til mennta og far-
sælla starfa. Elín var litrík og svo
umfaðmandi ástrík að ekki bara
börn hennar kölluðu hana Ellu
mömmu heldur við vinir og
vandamenn einnig. Blessuð sé
minning um sérstök og ástrík
hjón.
Þorvaldur Þorvaldsson.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar