Morgunblaðið - 28.05.2018, Side 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2018
»Listahátíðin List án
landamæra var opn-
uð í Deiglunni í Lista-
gilinu á Akureyri í
fyrradag. Fjöldi lista-
manna, nemendur og
fleiri tóku þátt í hátíð-
inni sem stóð yfir um
helgina. Meðal viðburða
var frumflutningur á
tónverkum og opnun
myndlistarsýningar.
List án landamæra á Akureyri
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Listamenn Rósa Kristín Júlíusdóttir, Björg Eiríksdóttir, bæjarlistamaður Akureyrar, og Brynhildur Kristinsdóttir.
Spenntar Systurnar Halla Sif og Nanna Lind Svavarsdætur biðu spenntar
eftir að dagskrá hæfist. Elma Berglind, dóttir Höllu, tók þátt í leikriti.
Skál! Jón Hlöðver Áskelsson og Kári Þorleifsson. Jón frumflutti tónverk/
sögu ásamt Karli Guðmundssyni, Kristínu Smith og börnum úr Brekkuskóla
Listunnendur Sæbjörg Jónsdóttir og Sigrún Höskuldsdóttir.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Sun 3/6 kl. 20:00 48. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s
Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s
Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Fim 7/6 kl. 20:00 50. s
Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Fös 8/6 kl. 20:00 51. s
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s
Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s
Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:00 36. s Lau 2/6 kl. 20:00 37. s
Allra síðustu sýningar!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Fim 31/5 kl. 20:30 aukas. Fös 1/6 kl. 20:30 aukas. Lau 2/6 kl. 20:30 aukas.
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn
Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fim 31/5 kl. 19:30 9.sýn Fös 8/6 kl. 19:30 10.sýn
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Íslensku þjónustufyrirtækin
eru á finna.is
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?
Ásta vildi tryggja að boðskapur
Fjölskyldunnar minnar kæmist til
skila, og fékk styrk frá Sam-
félagssjóði Valitor til að gefa öll-
um leikskólum landsins eintök af
bókinni. Hún segir það m.a. hafa
verið hvati að skrifunum að hún
vildi reyna að draga úr líkum á
því að börn yrðu fórnarlömb
stríðni út á það eitt að eiga tvo
foreldra af sama kyni eða koma
úr annars konar óhefðbundinni
fjölskyldu. „Þó að ástandið hafi
batnað þá koma ennþá upp tilvik,
sérstaklega þegar komið er upp í
grunnskóla, þar sem börnum er
strítt út af þessu. Auðvitað vill
maður, sem foreldri, gera allt
sem hægt er til að koma í veg
fyrir stríðni af þessum toga og
ein besta forvörnin að mínu mati
er að stuðla að því að sem flest
börn vaxi úr grasi með það við-
horf að það sé ekkert tiltökumál
þó að sumir skólafélagar þeirra
eigi eitthvað annað en eina
mömmu og einn pabba.“
Bækurnar brjóta ísinn
Ásta tekur undir það með
blaðamanni að upp til hópa sé ís-
lenskum foreldrum mjög í mun að
ala upp víðsýn og tillitssöm börn
og að Fjölskyldan mín hafi m.a.
vakið hrifningu hjá foreldrum hér
á landi því þeir sjái bókina sem
leið til að fræða barnið sitt og
vekja máls á því hvað fólk getur
verið margbreytilegt. „Sumir for-
eldrar vita ekki alveg í hvorn fót-
inn þeir eiga að stíga þegar þeir
ræða við yngstu börnin mál eins
og samkynhneigð eða skilnað, en
svona bækur hjálpa þeim að
brjóta ísinn. Börnin eru líka mjög
móttækileg fyrir því að fræðast
um þessi mál í gegnum bók, og
finnst það skemmtilegra en að fá
hálfgerðan fyrirlestur um ólík
fjölskylduform og kynhneigðir.“
Síðast en ekki síst skiptir máli
að þau börn sem uppgötva það á
kynþroskaskeiðinu að þau eru
mögulega tví- eða samkynhneigð,
hafi fengið að sjá fyrirmyndir við
hæfi í bókum og öðrum listræn-
um miðlum. Ásta, sem er fædd
1983, minnist þess hvernig sam-
kynhneigð kvenna var með öllu
ósýnileg á uppvaxtarárum henn-
ar og hvernig það hefði hjálpað
henni að sættast við sjálfa sig og
eigin tilfinningar ef einhver um-
ræða um samkynhneigð hefði átt
sér stað og ef hún hefði fengið
að sjá sambönd á milli ein-
staklinga af sama kyni í jákvæðu
ljósi:
„Ég ólst upp úti á landi og
minnist þess að lengi vel skildi
ég ekki einu sinni hvað orðið
„lessa“ þýddi, en vissi bara að
það var ljótt orð sem notað var
til að stríða og særa. Það er fá-
ránlegt, þegar ég hugsa til baka,
að ég áttaði mig ekki á að það
væri munur á orðunum „lessa“
og „hóra“ og fyrir mér voru
þetta bara orð til að nota til að
vera einstaklega vondur við ein-
hvern,“ segir hún. „Með aldr-
inum kom það síðan smám sam-
an upp á yfirborðið að sumt fólk
í sveitinni væri samkynhneigt,
en samt var aldrei talað um það
og mátti helst ekki vera opinbert.
Loks komu menntaskólaárin og
þá var upplifunin sú að samkyn-
hneigð væri afskaplega stór
merkimiði fyrir einstaklinga að
bera, frekar en að vera sjálfsagð-
ur og eðlilegur hlutur.“
Þó að fjölbreytnin ætti að vera
sjálfsagður hlutur í barnabókum
segir Ásta að enn þann dag í dag
valdi það oft fjaðrafoki þegar
samkynhneigðar söguhetjur birt-
ast í verkum sem ætluðu eru
yngstu lesendunum. „Nýjasta
dæmið er líklega að í nýlegri bók
um Kaftein Ofurbrók kom í ljós
að önnur aðalsöguhetjan er sam-
kynhneigð. Það olli miklu upp-
námi hjá sumum foreldrum og
var bókin bönnuð í einhverjum
skólum í Bandaríkjunum. Við er-
um mjög heppin á Íslandi með að
fólk er almennt ekki fordómafullt
í garð samkynhneigðra og ég hef
til dæmis aldrei upplifað annað
en jákvætt viðmót gagnvart bók-
inni sem ég gaf út.“
Sennilega var Heather
Has Two Mommies
fyrsta barnabókin sem
fjallar um samkyn-
hneigð. Hún kom út í
Bandaríkjunum árið
1989 og eins og titillinn
gefur til kynna segir
bókin á jákvæðann og
hreinskiptinn hátt frá
stelpunni Heather sem
á tvær mömmur. Árið 1991 kom
síðan út bókin Daddy‘s Room-
mate, einnig í Bandaríkjunum.
Þar er sagt á ósköp eðlilegan og
smekklegan hátt frá ungum
dreng sem á samkynhneigðan
föður, og sýnt hvernig dreng-
urinn, faðirinn og sambýlismaður
hans lifa ánægjulegu og hvers-
dagslegu fjölskyldulífi.
Árið 2000 kom út í Hollandi
bókin King & King þar sem sjálf
aðalsöguhetjan er samkynhneigð.
Í bókinni fyrirskipar úrill drottn-
ingin að Bertie prins skuli finna
sér prinsessu og taki svo við
stjórn konungsríkisins en þegar á
hólminn er komið verður Bertie
skotinn í öðrum prinsi.
Þá vakti bókin And Tango Ma-
kes Three mikla athygli árið 2005
en þar er sögð sönn saga af karl-
mörgæsunum Roy og Silo sem
felldu hugi saman í dýragarði
New York-borgar og fengu egg til
að annast. Sprækur ungi kom úr
egginu og reyndust mörgæsapab-
barnir til algjörrar fyrirmyndar.
Fjölbreytnin smám
saman sýnilegri
ÞEGAR PRINSINN VERÐUR SKOTINN Í PRINSIsýn