Morgunblaðið - 28.05.2018, Page 40

Morgunblaðið - 28.05.2018, Page 40
MÁNUDAGUR 28. MAÍ 148. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Lést í eldsvoða í Kópavogi 2. „Hættið að röfla um borgarlínu“ 3. Útilokar Sjálfstæðisflokkinn 4. Ramos sendi Salah skilaboð »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Flamenco-gítarleikarinn Reynir Hauksson heldur í tónleikaferð um landið á morgun og heldur sex tón- leika á jafnmörgum stöðum á Vestur- og Suðvesturlandi. Reynir býr í Granada á Spáni og starfar þar sem flamenco-gítarleikari. Flamenco- tónlist er sjaldan leikin hér á landi og segir Reynir að draumur hans sé að kynna og tengja þessa mögnuðu list við Ísland. Hann mun flytja þekkt flamenco-verk frá Andalúsíu í bland við eigin tónsmíðar. Fyrstu tónleikar Reynis fara fram annað kvöld kl. 20.30 í Reykholts- kirkju, á miðvikudag leikur Reynir í Grundarfjarðarkirkju kl. 20.30, á fimmtudag kl. 21 í Dularfullu búðinni á Akranesi, á föstudag kl. 21 í Hvann- eyri Pub í Borgarbyggð, í Norræna húsinu í Reykjavík á laugardag kl. 21 og á sunnudag, 3. júní, kl. 21 í Tryggvaskála á Selfossi. Leikur flamenco á sex tónleikum  Kvartett saxófónleikarans Hauks Gröndals kemur fram á djasskvöldi Kex hostels annað kvöld kl. 20.30. Auk Hauks skipa hljómsveitina Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Sigmar Þór Matt- híasson á kontra- bassa og Erik Qvick á trommur. Kvart- ettinn mun leika valin lög úr Amer- ísku söngbókinni og er aðgangur ókeypis. Kex hos- tel er á Skúlagötu 28 í Reykjavík. Leika lög úr Amer- ísku söngbókinni Á þriðjudag Suðaustan 8-15 m/s SV- og V-lands, skýjað og rign- ing við ströndina. Hægari og víða léttskýjað annars staðar. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á N- og A-landi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestlægari og áfram væta. Lægir og styttir upp, bjart með köflum síðdegis. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast austast. VEÐUR „Ég er búinn að eiga mjög gott tímabil, vera fyrirliði og núna bikarmeistari, og að sjálfsögðu er landsliðið eitthvað sem ég hef hugsað til. En þetta er undir einum manni komið,“ segir Guð- laugur Victor Pálsson, fyr- irliði FC Zürich, sem varð bikarmeistari í Sviss í gær en er ekki í 35 manna hópn- um sem gjaldgengur er á HM í knattspyrnu í Rúss- landi. »1 Hugsa auðvitað til landsliðsins Frakkland getur státað af því að eiga besta, næstbesta og þriðja besta fé- lagslið í Evrópu í handbolta karla. Montpellier fagnaði sigri í Meist- aradeildinni með því að vinna Nantes í úrslitaleik í Köln í gær, en PSG land- aði bronsverð- launum með sigri á Vardar, Evrópu- meisturum ársins 2017. Uwe Gens- heimer varð marka- kóngur keppn- innar. »6 Frönsku liðin tóku öll verðlaunin í Köln Íslandsmeistarar Vals unnu dísætan og mikilvægan sigur á Breiðabliki, 2:1, á Hlíðarenda í gærkvöld í 6. um- ferð Pepsi-deildar karla í knatt- spyrnu. Blikar voru 1:0 yfir í hálfleik. Grindavík náði í stig gegn Stjörnunni í Garðabæ og eru Grindavík og Breiðablik jöfn að stigum á toppi deildarinnar. Valur, í 6. sæti, er tveim- ur stigum á eftir. »2, 4 og 5 Tvö stig skilja að efsta og sjötta sætið ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hópur vesturíslenskra kvenna frá Kanada er á ferð um Ísland um þess- ar mundir til þess að kynna sér land forfeðranna og hitta ættingja. Þetta er fyrsta ferð þeirra allra nema tveggja til landsins, en ekki sú síð- asta eftir því sem þær segja. „Við höfum lengi talað um að fara til Íslands en ferðin kostar sitt,“ seg- ir Maureen Osland, sem hefur orð fyrir kvennahópnum, 17 afkom- endum Oddnýjar Hannesdóttur úr Ölfusi og fjórum frænkum og vinum. „Þegar við áttuðum okkur á því að við gætum sparað 50% kostnaðarins með því að skilja karlana eftir heima létum við drauminn rætast.“ Oddný Hannesdóttir var langamma systr- anna Maureen, Ann Heather, Patri- ciu, Helen og Louise, sem eru í ferð- inni ásamt dætrum, dætrum þeirra og vinum. Merkileg saga Saga hjónanna Oddnýjar úr Ölfusi og Sigurðar Jónssonar frá Stóru- Vatnsleysu í Gullbringusýslu er um margt merkileg og Maureen bendir á að Oddný hafi flutt ein með átta börn til Gimli í Manitoba í Kanada 1876. „Okkur hefur alltaf verið sagt að hún hafi verið mikil atorkukona,“ segir hún. Hjónin ákváðu að flytja til Kan- ada, en þegar að brottför kom hætti Sigurður við að fara. Þau höfðu eign- ast 14 börn og voru níu þeirra á lífi. Einn sonur var eftir með föður sín- um, en Oddný taldi að feðgarnir kæmu síðar. Svo fór ekki. Hún settist síðan að í Árnesi, skammt frá Gimli, og kallaði bæ sinn Oddnýjarstaði. Sigurmundur Sigurðsson, yngsti sonurinn og afi fyrrnefndra systra, tók síðar við búinu. Sigurmundur lét til sín taka í sam- félaginu vestra, var einn af stofn- endum mjólkurbúsins í Árborg og tók virkan þátt í uppbyggingu góð- templarareglunnar. Hann átti og rak m.a. verslun í Árborg og þegar hægt var að ferðast með járnbraut frá Winnipeg um Nýja-Ísland til Churc- hill við Hudson-flóa, ákvað hann að flytja með verslunina til Churchill. Ferðin þangað gekk ekki þrautalaust og svo fór að hann smíðaði sér bát, sem hann nefndi Oddny, og sigldi á honum norður. „Þar fæddumst við og ólumst upp,“ segir Maureen, en for- eldrar hennar og systkina hennar voru Sigrún Sigurdson og Frederick Olaf Martin. Þess má geta að Churc- hill hefur oft verið nefnd höfuðborg ísbjarna og þar reka ættingjar Sig- urmundar verslunina og ferðaþjón- ustu (www.churchillwild.com). „Síðar fluttum við flest til Gimli og nágrennis, þar sem kanadísku rætur okkar eru,“ segir Maureen. „Okkur fannst tími kominn til þess að kanna upprunalegu ræturnar og því erum við hér.“ Árni Geir Þórmarsson og Þórhild- ur Stefánsdóttir kölluðu saman skyldfólk og buðu gestunum til veislu í Hafnarfirði. „Við hittum um 20 frænkur og frændur og síðan lögðum við í hringferðina,“ segir Maureen og á ekki til orð yfir fegurð landsins. „Dettifoss var tignarlegur með regn- boga yfir sér,“ segir hún um það sem hafi staðið upp úr í gær, en þær gistu á Egilsstöðum í nótt og verða á Höfn í Hornafirði í dag. Sparnaðurinn 50% án karlanna  Afkomendur Oddnýjar Hannesdóttur létu drauminn um Íslandsferð rætast Morgunblaðið/Árni Sæberg Í Hafnarfirði Árni Geir Þórmarsson og Þórhildur Stefánsdóttir, sem eru fremst á myndinni, tóku á móti frænkum sínum úr Vesturheimi í vikunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.