Fréttablaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 24
Ég lít ekki þannig á að ég eigi í baráttu við elli kerlingu. Ég held bara áfram að lifa mínu lífi, rétt eins og ég hef alltaf gert og geri ekkert öðruvísi. Ég held áfram að vera skapandi, starfa að list minni, skrifa, fræðast, ferðast um heiminn og vera ævintýragjörn. Ég hlusta á börnin mín, veiti þeim athygli og horfi á heiminn með þeirra augum, en allt heldur það manni ungum,“ sagði Ma donna í nýlegu viðtali við tímaritið The Cut sem tekið var í aðdraganda sextugsafmælisins. Madonna býr nú í Lissabon, höfuðborg Portúgals, ásamt fjórum börnum sem hún ættleiddi frá Malaví á árunum 2006 til 2017. „Ég hefði vel getað búið áfram í New York en það heldur manni ungum og lifandi að stíga út fyrir þægindarammann. Ég hef til- einkað mér að vera ekki værukær heldur taka sífellt nýja áhættu. Sumir kjósa að setjast í helgan stein á þessum tímamótum en það er ekki fyrir mig. Vitaskuld þarf maður líka að hugsa vel um sig, borða næringarríkan mat og huga að daglegri hreyfingu, en ég hef ætíð hugsað vel um sjálfa mig, hef til dæmis aldrei reykt og fer ekki í sólböð.“ Fer eigin leiðir Madonna er femínískt nátt- úruafl. Hún hefur unnið ötullega að baráttumálum kvenna og talað hátt gegn aldurs- fordómum. „Okkur vantar fyrirmyndir. Margir óttast það sem þeir ekki þekkja en konur hafa nú aðra stöðu í heiminum. Við finnum okkur fleiri verkefni og berjumst fyrir jafnrétti. Á sama tíma þurfum við að sinna eigin frama og okkur sjálfum. Það gerum við með því að vera áfram forvitnar um lífið, lifa því lifandi og gera sjálfum okkur gott.“ Madonna segir engar reglur gilda þegar kemur að lífi og tilveru eldri kvenna. „Það er úrelt og fáránleg hug- mynd feðraveldisins að konur hætti að vera skemmtilegar, for- vitnilegar, fallegar og kynæsandi eftir fertugt. Af hverju ættu karlar einir mega vera ævintýragjarnir, kynferðislegir og skemmta sér fram á grafarbakkann? Við konur eigum að berjast gegn þessari tíma- skekkju með því að rísa upp gegn sið- ferðisreglum og ríkjandi viðmiðum sem banna okkur að gera slíkt hið sama. Eftir því sem fleiri konur standa saman er aðeins tímaspursmál hvenær við útrýmum þessu og sem dæmi var ég í upphafi ferilsins gagn- rýnd fyrir að vera of kynferðisleg í sköpun minni en í dag þykir það sama vera hlægilegt.“ Standandi á sextugu segist Madonna vissulega upplifa aldurs- fordóma. „Ég er iðulega snupruð fyrir að deita yngri menn og gera hluti sem eru eyrnamerktir yngri konum, en hver bjó til þá reglu? Hver segir að ég megi ekki gera það sem ég vil? Ég mun áfram halda mínu striki og eftir tíu til tuttugu ár munu gagn- rýnisraddirnar þagna. Þá verður þetta orðin viðtekin venja.“ Styrkir fátæk börn í Malavi Í tilefni stórafmælisins hefur Mad- onna mælst til þess við aðdáendur sína að styrkja fátæk og munaðar- laus börn í Malaví. „Þegar ég kom fyrst til Malaví sá ég svo ótal mörg börn yfirgefin og munaðarlaus vegna alnæmis. Varnarleysi þeirra snart mig mjög og að sjá foreldra þeirra og fjölskyldumeðlimi liggja fyrir dauðanum, en geta ekkert gert til að breyta því. Á sama tíma dáðist ég að hamingju þeirra og gleði, þrátt fyrir mikinn missi, sorg og allsleysi. Það var lærdómsríkt, og þótt ég hefði komið til Malaví til að hjálpa sem mest ég mátti, voru það börnin sem hjálpuðu mér að þekkja þakklæti,“ segir Madonna sem hleypti af stokkunum húð- línunni MDNA Skin sem inni- heldur endurnærandi jurt sem vex um alla Afríku. Stór hluti tekna af húðvörunum rennur beint til hjálparstarfs í Afríku, í menntun stúlkna, skólabyggingar, heilsu- gæslu og til barnalækna. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is FLOTTAR BUXUR ný snið fyrir allar konur NÝTT ÚTSÖLUVÖRUR • VERÐHRUN • REYFARKAUP Ferðamálaskóli Íslands • www.menntun.is • Sími 567 1466 Opið 8-22 LEIÐSÖGUNÁM FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS, Bíldshöfða 18, sími 567 1466, Opið til kl. 22.00, Martha Jensdóttir kennari. Martha Jensdóttir kennari. Ferða álaskóli Íslands • www. enntun.is • Sí i 567 1466 pið 8-22 I FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS, Bíldshöfða 18, sími 567 1466, Opið til kl. 22.00, Martha Jensdóttir kennari. Martha Jensdóttir kennari. - Nemendur geta að námi loknu gengið í Leiðsögufélagið - LEIÐSÖGUNÁM VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU Opið 8-22 Magnús Jónsson fv. veðurstofustjóri Guðrún Helga Bjarnadóttir, Vestmannaeyjum Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum. Námið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að Leiðsögn erlendra og innlendra ferðamann um Ísland. • Flest stéttarfélög styrkja nemdur til náms. • Nemendur geta að námi loknu gerst félagsmenn í Leiðsögufélaginu. Helstu námsgreinar: • Helstu viðkomustaðir ferpamanna á Íslandi í máli og myndum. • Mannleg samskipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga. • Saga landin, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta. • Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira. Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar hver á sínu sviði. Boðið er uppá dag – og kvöldnám, auk þess er farið í fjölda vettvangsferða. Umsögn: Fyrir nokkrum áruð stundaði ég leiðsögunám í Ferðamálaskóla Íslands. Námið stóð vel undir væntingum þar sem fjölmargir kennarar komu að kennslunni og áttu þeir auðvelt með að ná til mín og auka áhuga minn á námsefninu og ekki síst að vekja mig til umhugsunar um þá auðlind sem landið okkar er og virðingu sem okkur ber að sýna í því. Kennararnir voru mjög færir og fróðir hver á sínu sviði og áttu auðvelt með að koma efninu til skila. Námið gefur mikla atvinnumöguleika og spennandi tímar eru framundan. LEIÐSÖGUNÁM VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU Ferðamálaskóli Íslands • ww .menntun.is • Sími 5 elga Bjarnadóttir OPIÐ 8-22 Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 NÝJAR VÖRUR STREYMA INN Madonna var fimm ára þegar hún missti móður sína. Henni gekk vel í skóla og dreymdi um að verða nunna. Krossar eru áberandi skart á ferli hennar. Madonna hannaði þennan fræga búning með Jean Paul Gaultier. Madonna er gjarnan ögrandi á sviði og sýnir óhikað stæltan kroppinn. Madonna í fjólublárri paisley-dragt af virðingu og í minningu Prince. Madonna sextug Poppdrottningin Madonna er 60 ára í dag. Hún er meðal 100 mestu áhrifavalda sögunnar á tískuheiminn. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . áG ú S t 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R 1 6 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 9 6 -1 8 2 4 2 0 9 6 -1 6 E 8 2 0 9 6 -1 5 A C 2 0 9 6 -1 4 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.