Fréttablaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Hlauparar: Arnar Pétursson og
Hulda Guðný Kjartansdóttir.
25% afsláttur af hlaupa- og sport-
gleraugum til 18. ágúst
Þar sem úrvalið er af sólgleraugum
Stjórnmál Miðflokkurinn skilaði
15,9 milljóna króna tapi á síðasta
ári samkvæmt nýbirtum útdrætti
Ríkisendurskoðunar úr ársreikn-
ingi flokksins. Flokkurinn fékk
tæpar sjö milljónir króna í framlög
frá lögaðilum í fyrra, þrjár milljónir
fékk flokkurinn í ríkisframlög og
tæpar tvær milljónir frá einstakl-
ingum. Alls rúmar 11,8 milljónir.
Rekstrargjöld flokksins námu hins
vegar ríflega 27,5 milljónum.
Átta fyrirtæki og félög styrktu
Miðflokkinn um 400 þúsund
króna hámarkið á síðasta ári. Þar
á meðal útgerðarfélögin Brim hf.,
HB Grandi hf. og Þorbjörn hf. Kvika
banki lagði Miðflokknum einnig til
400 þúsund krónur, sem og Síminn
hf. og félagið Tandraberg ehf. sem
er í eigu Einars Birgis Kristjáns-
sonar, yfirlýsts stuðningsmanns
Sigmundar Davíðs Gunnlaugs-
sonar, formanns og stofnanda Mið-
flokksins.
Þá verður ekki sagt að fjölskyld-
an styðji ekki við bakið á Sigmundi
Davíð, en Óshöfði slf., félag í eigu
bróður hans, Sigurbjörns Magn-
úsar, styrkti flokkinn einnig um
leyfilega hámarksfjárhæð líkt og
Hafblik ehf. sem er í eigu Gunn-
laugs M. Sigmundssonar, föður
Sigmundar Davíðs. Alls styrktu 33
lögaðilar flokkinn um 200 þúsund
krónur eða meira. – smj
Miðflokkurinn tapaði tæpum 16 milljónum
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. Fréttablaðið/Ernir
VIÐSKIPtI Toyota á Íslandi hagnaðist
um ríflega 1.133 milljónir króna á
síðasta ári og jókst hagnaðurinn
um 64 prósent frá fyrra ári þegar
hann var um 692 milljónir króna,
samkvæmt nýbirtum ársreikningi
bílaumboðsins.
Leggur stjórnin til að greiddur
verði arður upp á 300 milljónir
króna vegna síðasta árs.
Rekstrartekjur Toyota á Íslandi
námu 15,4 milljörðum króna í
fyrra en til samanburðar voru tekj-
urnar um 12,6 milljarðar árið 2016.
Rekstrargjöldin voru 13,7 milljarðar
króna í fyrra og hækkuðu um 2,1
milljarð króna á milli ára. EBITDA
bílaumboðsins – afkoma fyrir
afskriftir, fjármagnsliði og skatta
– var rúmlega 1,7 milljarðar króna
í fyrra og batnaði um 76 prósent
frá fyrra ári þegar EBITDA var 982
milljónir.
Toyota á Íslandi átti eignir upp á
5,9 milljarða króna í lok síðasta árs
en eigið fé þess var á sama tíma 1,6
milljarðar og eiginfjárhlutfallið um
27 prósent.
Félagið er alfarið í eigu UK fjár-
festinga sem er aftur í jafnri eigu
Úlfars Steindórssonar forstjóra og
Kristjáns Þorbergssonar fjármála-
stjóra. – kij
Toyota á Íslandi
jók hagnað sinn
um 64 prósent
Úlfar Steindórsson, forstjóri toyota á
Íslandi. Fréttablaðið/GVa
SKólAmál „Vinnubrögð borgarinn-
ar í leikskólamálunum eru stein-
aldarleg. Það er alltaf verið að lofa
einhverju sem er ekki staðið við.
Það þarf að hætta því og fara bara að
segja fólki sannleikann. Það er betra
að fá réttar upplýsingar um stöðuna
þótt það séu slæmar fréttir,“ segir
Hrannar Hafsteinsson faðir tveggja
og hálfs árs stúlku sem enn er óvíst
hvenær getur hafið aðlögun á leik-
skóla.
Eins og fram hefur komið mun
heildarstaðan hjá leikskólum
Reykjavíkurborgar ekki skýrast að
fullu fyrr en á fundi skóla- og frí-
stundaráðs í næstu viku. Það er þó
ljóst að margir þeirra 62 leikskóla
sem borgin rekur hafa ekki náð að
ráða í allar lausar stöður.
Hrannar og eiginkona hans, sem
búa í Vogahverfi í Reykjavík, sóttu
fyrst um fyrir dóttur sína á leikskóla
í hverfinu í október 2016. Næsta vor
fengu þau svör um að allt væri fullt á
viðkomandi leikskóla. Í kjölfarið var
dóttir þeirra sett á biðlista þar auk
tveggja annarra leikskóla í hverfinu.
Staðfesting fékkst frá öðrum
hinna leikskólanna á að dóttirin
væri efst á biðlistanum. Í ágúst var
hún hins vegar dottin niður í ellefta
sæti biðlistans og þær skýringar
gefnar að kennitala réði röðinni.
Ekkert varð því úr leikskóladvöl
dótturinnar síðasta vetur, þrátt fyrir
að hún hefði náð 18 mánaða aldri
í júlí 2017. Það hefur verið stefna
borgarinnar frá 2016 að tryggja
öllum börnum 18 mánaða og eldri
leikskólapláss.
Í apríl síðastliðnum barst foreldr-
unum svo tilkynning frá borginni
um að dóttur þeirra hefði verið
úthlutað plássi á leikskólanum sem
þau sóttu upphaflega um frá og með
haustinu. Þáverandi leikskólastjóri
sagði um það leyti að óvissa væri
með mönnun í haust en undir eðli-
legum kringumstæðum ættu fyrstu
börnin að geta byrjað í kringum 20.
ágúst, þegar grunnskólarnir hæfust.
Hrannari og eiginkonu hans barst
svo bréf frá nýjum leikskólastjóra
fyrir um viku þar sem fram kom
að illa gengi að ráða í lausar stöður
og ekki væri hægt að segja til um
hvenær aðlögun dóttur þeirra gæti
hafist.
„Maður skilur ekki af hverju það
er ekki löngu byrjað að ráða í lausar
stöður þegar biðlistarnir eru sífellt
að lengjast,“ segir Hrannar.
Þá segir hann kerfið allt of kalt.
„Öll samskipti eru í gegnum tölvu-
póst, af hverju er ekki hægt að taka
upp símann? Það er engin þjónusta
og ekkert frumkvæði við upp-
lýsingagjöf. Maður þarf að spyrja
nákvæmlega út í allt til að fá ein-
hver svör.“
Rúmlega 50 störf á leikskólum
voru laus til umsóknar á vef borgar-
innar í gær en þau eru væntanlega
eitthvað fleiri þar sem umsóknar-
frestur gæti verið liðinn í einhverj-
um tilfellum. Fimm leikskólar aug-
lýstu eftir aðstoðarleikskólastjórum
og tíu eftir deildarstjórum.
sighvatur@frettabladid.is
Tveggja og hálfs árs stúlka bíður
þess enn að byrja á leikskóla
Foreldrar tveggja og hálfs árs stúlku sem búa í Vogahverfi í Reykjavík eru orðnir langþreyttir á ástandinu í
leikskólamálum borgarinnar. Dóttir þeirra bíður þess enn að geta hafið aðlögun á leikskóla í hverfinu. Það
hefur verið stefna borgarinnar frá 2016 að öllum börnum 18 mánaða og eldri sé tryggt leikskólapláss.
Það skýrist í næstu viku hvernig mun ganga að tryggja mönnun á leikskólum reykjavíkurborgar. Fréttablaðið/VilHElM
34 starfsmenn að meðal-
tali störfuðu hjá félaginu í
fyrra
1 6 . á g ú S t 2 0 1 8 F I m m t U D A g U r4 F r é t t I r ∙ F r é t t A B l A Ð I Ð
1
6
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
6
-2
6
F
4
2
0
9
6
-2
5
B
8
2
0
9
6
-2
4
7
C
2
0
9
6
-2
3
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K