Fréttablaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 38
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á VEFSÍÐUNNI OKKAR www.skornirthinir.is ÖRUGG SKREF ÚT Í LÍFIÐ í fyrstu skónum frá Biomecanics Stærðir: 18–24 Verð: 7.995 Margir litir Biomecanics-skórnir auðvelda börnum að taka fyrstu skrefin. Aukinn stuðningur frá hliðunum bætir jafnvægi og eykur stöðugleika. Börnin komast auðveldar áfram og af meira öryggi þökk sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá. www.artasan.is Fæst í næsta apóteki og helstu stórmörkuðum Mundir þú eftir að bursta og skola í morgun? Tannlæknar mæla með GUM tannvörum GUM Orginal 2x10 copy.pdf 1 26/01/2018 12:51 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Amadeus borðstofuhúsgögn Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Komið og skoðið úrvalið Tom Cruise var fyrir löngu orðinn stór-stjarna þegar hann og leikstjórinn Brian De Palma dustuðu rykið af gömlu Mission: Impossible sjónvarpsþáttunum og trommuðu upp með samnefndan hasarsmell árið 1996. Með myndum eins og Top Gun, Rain Man, Days of Thunder og A Few Good Men, svo einhverjar séu nefndar, hafði Cruise komið gengis- vísitölu sinni í hæstu hæðir og fest sig í sessi sem gulltrygging fyrir góðri aðsókn. Hann trónir enn á þeim toppi og ekki verður af honum tekið að það er ekki á allra færi að halda kvik- myndabálki gangandi í 22 ár og sækja í sig veðrið ef eitthvað er. Mission: Impossible-þættirnir gengu við miklar vinsældir í banda- rísku sjónvarpi á árunum 1966-1973 og fjölluðu um magnaða úrvalssveit njósnara, Impossible Missions Force (IMF), sem eins og nafnið benti til fengu úthlutað verkefnum sem nánast útilokað var að leysa og voru líklegust til þess að kosta mann- skapinn lífið. Allt gekk upp Endurlífgun Cruise og De Palma á MI gekk fullkomlega upp. Endur- vinnsla U2-mannanna Larrys Mullen og Adams Clayton á hinu mjög svo grípandi stefi sjónvarps- þáttanna, eftir Lalo Schifrin, sló í gegn, myndin var áferðarfögur og bauð upp á frumleg spennuatriði. Cruise var í banastuði og leik- stjórinn mistæki, De Palma, skilaði góðu dagsverki sem verður að teljast býsna vel af sér vikið þar sem hann fór þarna út fyrir þægindarammann þar sem honum hefur í gegnum tíðina tekist best upp með sálfræði- tryllum og nettum hryllingi á borð við Carrie, Dressed to Kill og Body Double og svo vitaskuld hinum blóði drifna krimma Scarface. Vinsældir myndarinnar kölluðu óhjákvæmilega á framhald en De Palma kaus að láta staðar numið eftir fyrstu myndina. Cruise sló hins vegar eign sinni á bálkinn og fékk hasarleikstjórann John Woo til þess að leikstýra Mission: Impossible 2 sem kom út fjórum árum síðar. Woo var þá tiltölulega nýkominn til Hollywood, funheitur eftir sína dásamlegu og ofbeldisfullu byssu- balletta sem kenndir eru við Hong Kong. Tvöföld vonbrigði Mission: Impossible 2 stóðst tæp- ast væntingarnar sem fylgdu fyrri myndinni og orðspori Woo. Sagan var þvæld og neistann sem tendraði kveikinn í fyrri myndinni vantaði. En peningarnir og Cruise ráða þannig að leikarinn hélt ótrauður áfram að þróa persónu ofurnjósnar- ans Ethans Hunt. Sjálfur J.J. Abrams var kallaður til að leikstýra Mission: Impossible III sem kom út 2006. Ekki getur sú mynd talist til rósa í hnappagat hans þótt hann hafi síðar troðið þeim nokkrum þangað. Myndin rambaði á barmi þess að vera beinlínis leið- inleg en sá mikli öndvegisleikari, Philip heitinn Seymour Hoffman, lyfti myndinni með ískaldri og yfir- vegaðri túlkun á aðalskúrkinum. Leikar æsast Þetta hökt á Mission Impossible- hraðlestinni sló hvorki mynda- bálkinn né Cruise út af laginu og enn eina ferðina var endurkoma Ethans Hunt boðuð. Árið 2011 kom Mission: Impossible: Ghost Protocol í leikstjórn Brads Bird og ný andlit gáfu myndinni ferskan blæ. Paula Patton var aðsópsmikil í aðalkvenhlutverkinu, Jeremy Renner reyndi að létta einhverju smá töffaraálagi af Cruise, sem að venju gætti þess að vera allt í öllu og láta engan skyggja á sig, og breski gamanleikarinn Simon Pegg hélt áfram að glansa, eins og hann gerði fyrst í þriðju myndinni, sem tölvu- nördinn Benji. Gott verður enn betra Ekki var Cruise alveg búinn að kreista allt adrenalín úr MI eftir þessar fjórar myndir. Hann fékk leikstjórann Christopher McQuarrie um borð í lestina og það samstarf skilaði sér í hinni stórgóðu Mission: Impossible: Rogue Nation árið 2015. Keyrslan var með hraðasta móti, hasarinn þéttur og til mikillar fyrir- myndar og sagan ekki laus við að vera áhugaverð. Satt best að segja var þarna komin besta MI-myndin af þessum fimm. Ekki slæmt í ljósi langrar sögu. Cruise og McQuarrie höfðu þó ekki sagt sitt síðasta orð og þeim tekst að toppa sig með Mission: Impossible – Fallout sem er nánast óumdeilt langbesta MI-myndin og fólk gengur jafnvel svo langt að stimpla hana bestu spennumynd vorra tíma. Hvort Tom Cruise láti hér staðar numið og hætti með Ethan Hunt á toppnum er auðvitað ómögulegt að segja en þar sem hann virðist ekkert hafa elst á 30 árum og MI-lestin er enn á hvínandi ferð getur allt gerst. thorarinn@frettabladid.is Ekkert er Cruise ómögulegt Tom Cruise steig fyrst fram sem ofurnjósnarinn Ethan Hunt í Mission: Impossible 1996. Myndin sló í gegn og á rúmum tveinur áratugum eru MI-myndirnar orðnar sex. Sú nýjasta er almennt talin best. Jafnvel ein besta spennumynd síðari tíma. Tom Cruise kann ekki að hlaupa eins og hann hefur sýnt og sannað átakanlega oft í myndum sínum. Hins vegar er víst búið að sýna fram á með rökum að myndir hans ganga aldrei betur en þegar hann tekur sprettinn í þeim. Sænska hörkutólið Rebecca Fergu- son mætti til leiks sem breski MI6- njósnarinn Ilsa Faust í Rogue Nation þar sem hún fór á kostum. Hún heldur uppteknum hætti í Fallout og slær hvergi af. Simon Pegg hefur verið með síðan í þriðju myndinni og er alltaf jafn yndislegur. Og fyndinn. 1 6 . á g ú s t 2 0 1 8 F I M M t U D A g U R30 M e n n I n g ∙ F R É t t A B L A ð I ð Bíó 1 6 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 9 6 -1 3 3 4 2 0 9 6 -1 1 F 8 2 0 9 6 -1 0 B C 2 0 9 6 -0 F 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.