Fréttablaðið - 16.08.2018, Page 38
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á VEFSÍÐUNNI OKKAR
www.skornirthinir.is
ÖRUGG SKREF
ÚT Í LÍFIÐ
í fyrstu skónum frá Biomecanics
Stærðir: 18–24
Verð: 7.995
Margir litir
Biomecanics-skórnir auðvelda börnum að taka
fyrstu skrefin. Aukinn stuðningur frá hliðunum
bætir jafnvægi og eykur stöðugleika. Börnin
komast auðveldar áfram og af meira öryggi þökk
sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá.
www.artasan.is
Fæst í næsta
apóteki og helstu
stórmörkuðum
Mundir þú eftir að
bursta og skola í
morgun?
Tannlæknar mæla með GUM tannvörum
GUM Orginal 2x10 copy.pdf 1 26/01/2018 12:51
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Amadeus borðstofuhúsgögn
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Komið og skoðið úrvalið
Tom Cruise var fyrir löngu orðinn stór-stjarna þegar hann og leikstjórinn Brian De Palma dustuðu rykið af gömlu Mission:
Impossible sjónvarpsþáttunum og
trommuðu upp með samnefndan
hasarsmell árið 1996.
Með myndum eins og Top Gun,
Rain Man, Days of Thunder og A
Few Good Men, svo einhverjar séu
nefndar, hafði Cruise komið gengis-
vísitölu sinni í hæstu hæðir og fest
sig í sessi sem gulltrygging fyrir
góðri aðsókn.
Hann trónir enn á þeim toppi og
ekki verður af honum tekið að það
er ekki á allra færi að halda kvik-
myndabálki gangandi í 22 ár og
sækja í sig veðrið ef eitthvað er.
Mission: Impossible-þættirnir
gengu við miklar vinsældir í banda-
rísku sjónvarpi á árunum 1966-1973
og fjölluðu um magnaða úrvalssveit
njósnara, Impossible Missions Force
(IMF), sem eins og nafnið benti til
fengu úthlutað verkefnum sem
nánast útilokað var að leysa og voru
líklegust til þess að kosta mann-
skapinn lífið.
Allt gekk upp
Endurlífgun Cruise og De Palma á
MI gekk fullkomlega upp. Endur-
vinnsla U2-mannanna Larrys
Mullen og Adams Clayton á hinu
mjög svo grípandi stefi sjónvarps-
þáttanna, eftir Lalo Schifrin, sló
í gegn, myndin var áferðarfögur
og bauð upp á frumleg spennuatriði.
Cruise var í banastuði og leik-
stjórinn mistæki, De Palma, skilaði
góðu dagsverki sem verður að teljast
býsna vel af sér vikið þar sem hann
fór þarna út fyrir þægindarammann
þar sem honum hefur í gegnum
tíðina tekist best upp með sálfræði-
tryllum og nettum hryllingi á borð
við Carrie, Dressed to Kill og Body
Double og svo vitaskuld hinum
blóði drifna krimma Scarface.
Vinsældir myndarinnar kölluðu
óhjákvæmilega á framhald en De
Palma kaus að láta staðar numið
eftir fyrstu myndina. Cruise sló hins
vegar eign sinni á bálkinn og fékk
hasarleikstjórann John Woo til þess
að leikstýra Mission: Impossible 2
sem kom út fjórum árum síðar.
Woo var þá tiltölulega nýkominn
til Hollywood, funheitur eftir sína
dásamlegu og ofbeldisfullu byssu-
balletta sem kenndir eru við Hong
Kong.
Tvöföld vonbrigði
Mission: Impossible 2 stóðst tæp-
ast væntingarnar sem fylgdu fyrri
myndinni og orðspori Woo. Sagan
var þvæld og neistann sem tendraði
kveikinn í fyrri myndinni vantaði.
En peningarnir og Cruise ráða
þannig að leikarinn hélt ótrauður
áfram að þróa persónu ofurnjósnar-
ans Ethans Hunt.
Sjálfur J.J. Abrams var kallaður
til að leikstýra Mission: Impossible
III sem kom út 2006. Ekki getur sú
mynd talist til rósa í hnappagat hans
þótt hann hafi síðar troðið þeim
nokkrum þangað. Myndin rambaði
á barmi þess að vera beinlínis leið-
inleg en sá mikli öndvegisleikari,
Philip heitinn Seymour Hoffman,
lyfti myndinni með ískaldri og yfir-
vegaðri túlkun á aðalskúrkinum.
Leikar æsast
Þetta hökt á Mission Impossible-
hraðlestinni sló hvorki mynda-
bálkinn né Cruise út af laginu og
enn eina ferðina var endurkoma
Ethans Hunt boðuð. Árið 2011 kom
Mission: Impossible: Ghost Protocol
í leikstjórn Brads Bird og ný andlit
gáfu myndinni ferskan blæ.
Paula Patton var aðsópsmikil
í aðalkvenhlutverkinu, Jeremy
Renner reyndi að létta einhverju
smá töffaraálagi af Cruise, sem að
venju gætti þess að vera allt í öllu
og láta engan skyggja á sig, og breski
gamanleikarinn Simon Pegg hélt
áfram að glansa, eins og hann gerði
fyrst í þriðju myndinni, sem tölvu-
nördinn Benji.
Gott verður enn betra
Ekki var Cruise alveg búinn
að kreista allt adrenalín úr MI
eftir þessar fjórar myndir. Hann
fékk leikstjórann Christopher
McQuarrie um borð í lestina og það
samstarf skilaði sér í hinni stórgóðu
Mission: Impossible: Rogue Nation
árið 2015.
Keyrslan var með hraðasta móti,
hasarinn þéttur og til mikillar fyrir-
myndar og sagan ekki laus við að
vera áhugaverð. Satt best að segja
var þarna komin besta MI-myndin
af þessum fimm. Ekki slæmt í ljósi
langrar sögu.
Cruise og McQuarrie höfðu þó
ekki sagt sitt síðasta orð og þeim
tekst að toppa sig með Mission:
Impossible – Fallout sem er nánast
óumdeilt langbesta MI-myndin
og fólk gengur jafnvel svo langt að
stimpla hana bestu spennumynd
vorra tíma.
Hvort Tom Cruise láti hér staðar
numið og hætti með Ethan Hunt á
toppnum er auðvitað ómögulegt að
segja en þar sem hann virðist ekkert
hafa elst á 30 árum og MI-lestin er
enn á hvínandi ferð getur allt gerst.
thorarinn@frettabladid.is
Ekkert er Cruise ómögulegt
Tom Cruise steig fyrst fram sem ofurnjósnarinn Ethan Hunt
í Mission: Impossible 1996. Myndin sló í gegn og á rúmum
tveinur áratugum eru MI-myndirnar orðnar sex. Sú nýjasta er
almennt talin best. Jafnvel ein besta spennumynd síðari tíma.
Tom Cruise kann ekki að hlaupa eins og hann hefur sýnt og sannað átakanlega oft í myndum sínum. Hins vegar er víst
búið að sýna fram á með rökum að myndir hans ganga aldrei betur en þegar hann tekur sprettinn í þeim.
Sænska hörkutólið Rebecca Fergu-
son mætti til leiks sem breski MI6-
njósnarinn Ilsa Faust í Rogue Nation
þar sem hún fór á kostum. Hún
heldur uppteknum hætti í Fallout og
slær hvergi af.
Simon Pegg hefur verið með síðan
í þriðju myndinni og er alltaf jafn
yndislegur. Og fyndinn.
1 6 . á g ú s t 2 0 1 8 F I M M t U D A g U R30 M e n n I n g ∙ F R É t t A B L A ð I ð
Bíó
1
6
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
9
6
-1
3
3
4
2
0
9
6
-1
1
F
8
2
0
9
6
-1
0
B
C
2
0
9
6
-0
F
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K