Fréttablaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 12
Á norðausturhálendinu, skammt austan við Dyngjufjöll og sunnan við Vaðöldu eru Svart-árbotnar. Þarna á Svartá upptök sín en hún er stærsta bergvatnsáin sem rennur í Jökulsá á Fjöllum. Þetta er risastór lindá þar sem tært vatnið bókstaflega sprettur út úr svörtum sandinum og er meðalrennslið í kringum 15-20 sekúndulítrar. Í Svartár- botnum og meðfram Svartá er einstakur hálendisgróður sem meðal annars skartar hvönn og stingur skemmtilega í stúf við svarta eyðimörkina allt í kring. Svartá rennur nokkra kílómetra til austurs en rétt áður en hún sam- einast Jökulsá á Fjöllum fellur hún um foss sem heitir því fallega nafni Skínandi. Snotur fossinn kemur ekki síður á óvart í auðninni en gróðurinn við árbakkann. Áður en Holuhrauni skaut upp á yfirborðið í ágúst 2015 voru Svartárbotnar og Skínandi eitt best varð- veitta leyndarmálið á hálendinu. Gosið, sem er eitt það stærsta á sögulegum tíma og varði í nærri sex mánuði, ógnaði á tímabili fossinum en sem betur fer stöðvaðist hraunstraumurinn að lokum skammt frá. Nú er Skínandi kominn á landakortið þar sem einfaldast er að skoða Holuhraun við norðurenda þess. Ekið er í hálftíma eftir ógreinilegri en stikaðri leið frá skála Ferðafélags Akureyrar í Drekagili, en Dreki er síðasti viðkomustaður ferðalanga á leið í Öskju og Víti. Hluti leiðarinnar er upphaf Gæsavatna- og Dyngjufjallaleiða en mun auðveldari yfirferðar og ekki yfir neinar stórar ár að fara. Þó getur vað við norðurenda Holuhrauns verið grýtt og erfitt jepplingum. Gangan að bæði Svartárbotnum og Skínanda tekur innan við hálftíma hvora leið. Eftir það er vel þess virði að skoða úfið Holuhraunið en það er að jafnaði um sextán metra þykkt og erfitt yfirferðar. Þess vegna hefur verið útbúin stikuð leið skammt frá bílastæði. Hún er stutt enda þekur Holuhraun 85 ferkílómetra sem er áþekkt yfirborði Manhattan. Þar sem hraunið hefur kólnað er ekki lengur hægt að baða sig í lækjum sem koma undan Holuhrauni en árfarvegirnir skarta enn grænum gróðri sem rekja má til hitans frá hrauninu. Skínandi foss í svartri eyðimörk Fossinn Skínandi í Svartá. MYND/HERMANN ÞÓR Ferðalangar við Svartárbotna. MYND/HERMANN ÞÓR Mosavaxnar eyrar í Svartá. Umhverfið þar er sannkölluð vin í eyðimörk. w MYND/ÓLAFUR MÁR Hluti leiðarinnar úr Drekagili, með Vaðöldu og að Holuhrauni liggur um mjúkan og stóran sand. MYND/HERMANN ÞÓR Tómas Guðbjartsson læknir og nátt- úruunnandi og Sigtryggur Ari Jóhannsson ljós- myndari fjalla um sérstæðar perlur í íslenskri náttúru. Sjá nánar á Fréttablaðið+ Lengri umfjöllun má lesa á frettabladid.is. Gangan að bæði Svartárbotnum og Skínanda tekur innan við hálftíma hvora leið. Eftir það er vel þess virði að skoða úfið Holu- hraunið en það er að jafnaði um sextán metra þykkt og erfitt yfirferðar. Þess vegna hefur verið útbúin stikuð leið skammt frá bílastæði. Vaðalda framund- an. MYND/ HERMANN ÞÓR 1 6 . á g ú s t 2 0 1 8 F I M M t U D A g U R12 F R é t t I R ∙ F R é t t A B L A ð I ð 1 6 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 9 6 -0 E 4 4 2 0 9 6 -0 D 0 8 2 0 9 6 -0 B C C 2 0 9 6 -0 A 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.