Fréttablaðið - 16.08.2018, Page 12
Á norðausturhálendinu, skammt austan við Dyngjufjöll og sunnan við Vaðöldu eru Svart-árbotnar. Þarna á Svartá upptök sín en hún er stærsta bergvatnsáin sem rennur í Jökulsá á Fjöllum. Þetta er risastór lindá þar sem tært
vatnið bókstaflega sprettur út úr svörtum sandinum og er
meðalrennslið í kringum 15-20 sekúndulítrar. Í Svartár-
botnum og meðfram Svartá er einstakur hálendisgróður
sem meðal annars skartar hvönn og stingur skemmtilega
í stúf við svarta eyðimörkina allt í kring. Svartá rennur
nokkra kílómetra til austurs en rétt áður en hún sam-
einast Jökulsá á Fjöllum fellur hún um foss sem heitir því
fallega nafni Skínandi. Snotur fossinn kemur ekki síður á
óvart í auðninni en gróðurinn við árbakkann.
Áður en Holuhrauni skaut upp á yfirborðið í ágúst
2015 voru Svartárbotnar og Skínandi eitt best varð-
veitta leyndarmálið á hálendinu. Gosið, sem er eitt það
stærsta á sögulegum tíma og varði í nærri sex mánuði,
ógnaði á tímabili fossinum en sem betur fer stöðvaðist
hraunstraumurinn að lokum skammt frá. Nú er Skínandi
kominn á landakortið þar sem einfaldast er að skoða
Holuhraun við norðurenda þess. Ekið er í hálftíma eftir
ógreinilegri en stikaðri leið frá skála Ferðafélags Akureyrar
í Drekagili, en Dreki er síðasti viðkomustaður ferðalanga á
leið í Öskju og Víti. Hluti leiðarinnar er upphaf Gæsavatna-
og Dyngjufjallaleiða en mun auðveldari yfirferðar og ekki
yfir neinar stórar ár að fara. Þó getur vað við norðurenda
Holuhrauns verið grýtt og erfitt jepplingum.
Gangan að bæði Svartárbotnum og Skínanda tekur
innan við hálftíma hvora leið. Eftir það er vel þess virði að
skoða úfið Holuhraunið en það er að jafnaði um sextán
metra þykkt og erfitt yfirferðar. Þess vegna hefur verið
útbúin stikuð leið skammt frá bílastæði. Hún er stutt enda
þekur Holuhraun 85 ferkílómetra sem er áþekkt yfirborði
Manhattan. Þar sem hraunið hefur kólnað er ekki lengur
hægt að baða sig í lækjum sem koma undan Holuhrauni
en árfarvegirnir skarta enn grænum gróðri sem
rekja má til hitans frá hrauninu.
Skínandi foss í
svartri eyðimörk
Fossinn Skínandi í Svartá. MYND/HERMANN ÞÓR Ferðalangar við Svartárbotna. MYND/HERMANN ÞÓR
Mosavaxnar eyrar í Svartá. Umhverfið þar er sannkölluð vin í eyðimörk. w MYND/ÓLAFUR MÁR
Hluti leiðarinnar úr Drekagili, með Vaðöldu og að Holuhrauni liggur um mjúkan og stóran sand. MYND/HERMANN ÞÓR
Tómas
Guðbjartsson
læknir og nátt-
úruunnandi og
Sigtryggur Ari
Jóhannsson ljós-
myndari fjalla
um sérstæðar
perlur í íslenskri
náttúru.
Sjá nánar á
Fréttablaðið+
Lengri umfjöllun má
lesa á frettabladid.is.
Gangan að bæði
Svartárbotnum
og Skínanda tekur innan
við hálftíma hvora leið.
Eftir það er vel þess virði
að skoða úfið Holu-
hraunið en það er að
jafnaði um sextán metra
þykkt og erfitt yfirferðar.
Þess vegna hefur verið
útbúin stikuð leið
skammt frá bílastæði.
Vaðalda
framund-
an. MYND/
HERMANN
ÞÓR
1 6 . á g ú s t 2 0 1 8 F I M M t U D A g U R12 F R é t t I R ∙ F R é t t A B L A ð I ð
1
6
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
6
-0
E
4
4
2
0
9
6
-0
D
0
8
2
0
9
6
-0
B
C
C
2
0
9
6
-0
A
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K