Fréttablaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 17
Reykjavík – Ítalía hefur að heita má gengið í gegnum tvær stjórnmálabyltingar frá 1992. Fyrst hrundi gamla flokka- kerfið til grunna. Flokkarnir sem höfðu stjórnað landinu frá stríðslokum 1945 voru tjargaðir og fiðraðir, einnig kommúnista- flokkurinn sem var gerspilltur líkt og hinir og hafði þegið ólöglegar gjaldeyrisyfirfærslur frá Sovétríkj- unum í stórum stíl. Sósíalistinn Bettino Craxi, for- sætisráðherra landsins 1983-1987, flúði til Afríku og dó þar í útlegð 2000. Meira en helmingur þing- manna sætti ákæru fyrir lögbrot. Um 400 borgarstjórnir og bæjar- stjórnir voru leystar upp vegna spillingar. Árlegar mútugreiðslur til stjórnmálamanna 1980-1990 til að liðka fyrir samningum við ríkið eru taldar hafa numið um fjórum milljörðum Bandaríkja- dala samtals. Það jafngildir á núverandi verðlagi um 300.000 krónum á hverja fjögurra manna fjölskyldu á Ítalíu þessi tíu ár. Árin 1996-2006 fengu um 9.000 Ítalir dóma fyrir glæpi tengda spillingu. Spillingin reyndist kosta sitt. Ítalir stóðu jafnfætis Þjóðverjum um aldamótin 2000 mælt í kaupmætti þjóðartekna á mann, en þeir búa nú við fjórðungi lægri tekjur á mann en Þjóðverjar. Hreinar hendur Herferð dómstólanna á hendur brotlegum stjórnmálamönnum og vinum þeirra í viðskiptalífinu var kennd við hreinar hendur (ít. mani pulite). Aðalsaksóknarinn, Antonio Di Pietro, varð þjóðhetja. Vopnin snerust þó í höndum hans þegar hann þurfti að glíma við Silvio Berlusconi fyrir rétti. Allir vissu að Berlusconi var marg- faldur lögbrjótur. Hann bar það utan á sér. Hann hóf feril sinn sem söngvari á súlustöðum nálægt Rimini og færði sig þaðan upp á skaftið m.a. í slagtogi með Bettino Craxi. Svo fór að Berlusconi var forsætisráðherra Ítalíu 1994-1995, 2001-2006 og 2008-2011, þ.e. í níu ár af 18 frá 1994 til 2011. Margir Ítalir hugguðu sig þessi ár við þá hugsun að tvær stofn- anir landsins væru þó altjent hafnar yfir spillingu, Hæstiréttur og Seðlabankinn. Svo fór þó að Antonio Fazio, bankastjóri Seðla- bankans 1993-2005, neyddist til að segja af sér og fékk 4ra ára fangelsisdóm 2011 fyrir spill- ingu og svimandi háa fjársekt (1,5 milljónir evra). Konan hans notaði marga farsíma til að rugla lögregluna í ríminu. Ekki er vitað um lögbrot í Hæstarétti Ítalíu eða um málaferli dómaranna þar hvers gegn öðrum. Ítalíu allt! Úrslit þingkosninganna á Ítalíu í marz sl. má kalla aðra byltingu. Gömlu flokkarnir, þ.e. flokkarnir sem urðu til upp úr fyrri bylt- ingunni eftir 1990, lentu í minni hluta, þ. á m. flokkur Berlusconis. Tveir nýir flokkar og gerólíkir mynduðu saman meirihlutastjórn sem hefur nú setið að völdum í nokkrar vikur. Annar stjórnar- flokkurinn, Norðurbandalagið (ít. Lega Nord), hlaut 18% atkvæða. Hann var upphaflega flokkur aðskilnaðarsinna sem vildu að Norður-Ítalía segði sig úr lögum við Suður-Ítalíu. Flokkurinn hvarf frá þeirri stefnu og berst nú heldur gegn ríkisútgjöldum, skuldum og innflytjendum. Formaður flokks- ins, Matteo Salvini, er gamall kommúnisti og sækir sér fyrir- myndir til Trumps Bandaríkja- forseta. Ítalíu allt! og Ítalía fyrir Ítali! eru helztu vígorð flokksins. Salvini er innanríkisráðherra, dáir Pútín forseta Rússlands auk nýfas- istaflokka í Frakklandi, Ungverja- landi og víðar og hefur í hótunum við minnihlutahópa. Fimm stjörnur Hinn stjórnarflokkurinn, Fimm- stjörnuhreyfingin (ít. Movimento 5 Stelle), er annarrar gerðar. Hann varð til þegar landsfrægur skemmtikraftur og bloggari, Beppe Grillo, e.k. ítalskur Jón Gnarr, tók að sópa til sín fylgi með því að draga Berlusconi og þá hina sundur og saman í háði. Grillo dró sig í hlé fyrr í ár og valdist Luigi Di Maio, 32ja ára að aldri, þá til forustu hreyfingarinnar sem hefur m.a. borgaralaun á stefnu- skrá sinni, þ.e. grunnframfærslu handa öllum óháð vinnuframlagi. Borgaralaun eru eitur í beinum Norðurbandalagsins. Flokkarnir eru svo ólíkir hvor öðrum að þeim þótti ráðlegt að sækja forsætisráðherrann, utan- ríkisráðherrann og fjármálaráð- herrann út fyrir sínar raðir. Þeir heita Giuseppe Conte, Enzo Moa- vero Milanesi og Giovanni Tria og eru allir hófstilltir prófessorar. Með þá þrjá innanborðs virðist ólíklegt að ríkisstjórnin nýja muni reyna að hrófla við veru Ítalíu í ESB og evru samstarfinu. Ítalía er enn sem fyrr ráðgáta, fögur með afbrigðum – og erfið. Með kveðju frá Ítalíu Þorvaldur Gylfason Í dag Spillingin reyndist kosta sitt. Ítalir stóðu jafnfætis Þjóð- verjum um aldamótin 2000 mælt í kaupmætti þjóðar- tekna á mann, en þeir búa nú við fjórðungi lægri tekjur á mann en Þjóðverjar. Haustið er spennandi tími fyrir flesta krakka. Skólinn og tómstundirnar hefj- ast á nýjan leik og þau hitta aftur félagana eftir sumarið. Þessi árs- tími getur hins vegar verið erfiður fyrir börn foreldra sem hafa lítið til skiptanna enda fylgir þessum tíma- mótum kostnaður sem getur verið þeim ofviða. Varlega áætlað verja foreldrar grunnskólabarns um 100 þúsund krónum á haustin til þess að útbúa barnið fyrir veturinn. Vetrarfatn- aður, skór og e.t.v. ný skólataska kostar sitt og fyrir krakka sem stundar íþrótt þarf svo að greiða þátttökugjald í íþróttafélagið og e.t.v. endurnýja búning. Sambæri- leg útgjöld fylgja tónlistarnámi ef barnið kýs það fram yfir íþrótt- irnar. Auk þeirra útgjalda sem til falla í upphafi skólaársins greiða foreldrar mánaðarlega um 10 þúsund krónur fyrir hádegismat í skólanum og 17 þúsund krónur fyrir gæslu í frístund ef barnið er í 1.-4. bekk. En kemur ekki eitthvað á móti? Jú, og með ólíkum hætti milli sveitar- félaga. Í Reykjavík er tómstunda- styrkur t.d. um 50 þúsund krónur á ári. Oftast dugar hann til að greiða fyrir vorönn í íþróttum eða listnámi. En hvað með barnabæturnar? Jú, þær nýtast fólki vissulega en mis- jafnlega. Fólk sem býr við kröpp kjör nýtir þær til að eiga fyrir mat út mánuðinn. Það skiptir mestu máli fyrir börn að alast upp við alúð og góð sam- skipti. Sem betur fer eru flestir for- eldrar á Íslandi líka í þeirri stöðu að geta séð börnum sínum farborða, þar skiptir tengslanet stórfjölskyldu og vina miklu máli þegar mikið liggur við. Foreldrar sem leita til Hjálpar- starfs kirkjunnar eru hins vegar í þeirri stöðu að hafa ekki efni á að útbúa börnin í upphafi vetrar. Margir þeirra er á leigumarkaði og að sligast undan hárri leigu, fólk sem býr eitt með barni sínu hefur aðeins einar tekjur til að sjá fyrir því og þegar fólk veikist eða slasast getur það haft mjög hamlandi áhrif, líka fjárhagslega. Þegar tengslanetið er gloppótt þurfum við að sanna okkur sem samfélag. Það á ekkert barn að vera útundan. Þau eiga öll að geta notið bernskunnar áhyggjulaus og virk í samfélagi við jafnaldra sína. Að því vill Hjálparstarfið vinna og biður um stuðning með því að senda val- greiðslu í heimabanka. Hundrað þúsund krónur Kristín Ólafsdóttir fræðslu- og upplýsingafull- trúi Hjálpar- starfs kirkjunnar Ford Focus er fimur bíll enda þekktur fyrir frábæra aksturs- eiginleika og framúrskarandi gæði. Hann er ríkulega búinn, með fimm stjörnu öryggi, Bluetooth samskiptakerfi, leiðsögukerfi með Íslands- korti, nálægðarskynjurum, 8” snerti/litaskjá, My Key, upphitanlegri framrúðu o.fl. Aukabúnaður innifalinn: Dökkar rúður í farþegarými og málmlitur. Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 6 Sími 515 7000 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 FORD FOCUS FIMASTUR! ford.is Ford er frábær! Komdu, reynsluaktu og upplifðu Ford Focus FOCUS TREND EDITION 3.105.000 KR. TILBOÐSVERÐ: 2.795.000 KR. Ford_Focus_5x15_20180604.indd 1 04/06/2018 14:22 S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F i M M T u d a g u R 1 6 . á g ú S T 2 0 1 8 1 6 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 9 6 -3 F A 4 2 0 9 6 -3 E 6 8 2 0 9 6 -3 D 2 C 2 0 9 6 -3 B F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.