Fréttablaðið - 16.08.2018, Síða 17
Reykjavík – Ítalía hefur að heita má gengið í gegnum tvær stjórnmálabyltingar frá
1992. Fyrst hrundi gamla flokka-
kerfið til grunna. Flokkarnir
sem höfðu stjórnað landinu frá
stríðslokum 1945 voru tjargaðir
og fiðraðir, einnig kommúnista-
flokkurinn sem var gerspilltur líkt
og hinir og hafði þegið ólöglegar
gjaldeyrisyfirfærslur frá Sovétríkj-
unum í stórum stíl.
Sósíalistinn Bettino Craxi, for-
sætisráðherra landsins 1983-1987,
flúði til Afríku og dó þar í útlegð
2000. Meira en helmingur þing-
manna sætti ákæru fyrir lögbrot.
Um 400 borgarstjórnir og bæjar-
stjórnir voru leystar upp vegna
spillingar. Árlegar mútugreiðslur
til stjórnmálamanna 1980-1990
til að liðka fyrir samningum við
ríkið eru taldar hafa numið um
fjórum milljörðum Bandaríkja-
dala samtals. Það jafngildir á
núverandi verðlagi um 300.000
krónum á hverja fjögurra manna
fjölskyldu á Ítalíu þessi tíu ár. Árin
1996-2006 fengu um 9.000 Ítalir
dóma fyrir glæpi tengda spillingu.
Spillingin reyndist kosta sitt. Ítalir
stóðu jafnfætis Þjóðverjum um
aldamótin 2000 mælt í kaupmætti
þjóðartekna á mann, en þeir búa
nú við fjórðungi lægri tekjur á
mann en Þjóðverjar.
Hreinar hendur
Herferð dómstólanna á hendur
brotlegum stjórnmálamönnum
og vinum þeirra í viðskiptalífinu
var kennd við hreinar hendur (ít.
mani pulite). Aðalsaksóknarinn,
Antonio Di Pietro, varð þjóðhetja.
Vopnin snerust þó í höndum hans
þegar hann þurfti að glíma við
Silvio Berlusconi fyrir rétti. Allir
vissu að Berlusconi var marg-
faldur lögbrjótur. Hann bar það
utan á sér. Hann hóf feril sinn sem
söngvari á súlustöðum nálægt
Rimini og færði sig þaðan upp á
skaftið m.a. í slagtogi með Bettino
Craxi. Svo fór að Berlusconi var
forsætisráðherra Ítalíu 1994-1995,
2001-2006 og 2008-2011, þ.e. í níu
ár af 18 frá 1994 til 2011.
Margir Ítalir hugguðu sig þessi
ár við þá hugsun að tvær stofn-
anir landsins væru þó altjent
hafnar yfir spillingu, Hæstiréttur
og Seðlabankinn. Svo fór þó að
Antonio Fazio, bankastjóri Seðla-
bankans 1993-2005, neyddist
til að segja af sér og fékk 4ra ára
fangelsisdóm 2011 fyrir spill-
ingu og svimandi háa fjársekt
(1,5 milljónir evra). Konan hans
notaði marga farsíma til að rugla
lögregluna í ríminu. Ekki er vitað
um lögbrot í Hæstarétti Ítalíu
eða um málaferli dómaranna þar
hvers gegn öðrum.
Ítalíu allt!
Úrslit þingkosninganna á Ítalíu
í marz sl. má kalla aðra byltingu.
Gömlu flokkarnir, þ.e. flokkarnir
sem urðu til upp úr fyrri bylt-
ingunni eftir 1990, lentu í minni
hluta, þ. á m. flokkur Berlusconis.
Tveir nýir flokkar og gerólíkir
mynduðu saman meirihlutastjórn
sem hefur nú setið að völdum í
nokkrar vikur. Annar stjórnar-
flokkurinn, Norðurbandalagið (ít.
Lega Nord), hlaut 18% atkvæða.
Hann var upphaflega flokkur
aðskilnaðarsinna sem vildu að
Norður-Ítalía segði sig úr lögum
við Suður-Ítalíu. Flokkurinn hvarf
frá þeirri stefnu og berst nú heldur
gegn ríkisútgjöldum, skuldum og
innflytjendum. Formaður flokks-
ins, Matteo Salvini, er gamall
kommúnisti og sækir sér fyrir-
myndir til Trumps Bandaríkja-
forseta. Ítalíu allt! og Ítalía fyrir
Ítali! eru helztu vígorð flokksins.
Salvini er innanríkisráðherra, dáir
Pútín forseta Rússlands auk nýfas-
istaflokka í Frakklandi, Ungverja-
landi og víðar og hefur í hótunum
við minnihlutahópa.
Fimm stjörnur
Hinn stjórnarflokkurinn, Fimm-
stjörnuhreyfingin (ít. Movimento
5 Stelle), er annarrar gerðar.
Hann varð til þegar landsfrægur
skemmtikraftur og bloggari,
Beppe Grillo, e.k. ítalskur Jón
Gnarr, tók að sópa til sín fylgi með
því að draga Berlusconi og þá hina
sundur og saman í háði. Grillo
dró sig í hlé fyrr í ár og valdist
Luigi Di Maio, 32ja ára að aldri, þá
til forustu hreyfingarinnar sem
hefur m.a. borgaralaun á stefnu-
skrá sinni, þ.e. grunnframfærslu
handa öllum óháð vinnuframlagi.
Borgaralaun eru eitur í beinum
Norðurbandalagsins.
Flokkarnir eru svo ólíkir hvor
öðrum að þeim þótti ráðlegt að
sækja forsætisráðherrann, utan-
ríkisráðherrann og fjármálaráð-
herrann út fyrir sínar raðir. Þeir
heita Giuseppe Conte, Enzo Moa-
vero Milanesi og Giovanni Tria
og eru allir hófstilltir prófessorar.
Með þá þrjá innanborðs virðist
ólíklegt að ríkisstjórnin nýja muni
reyna að hrófla við veru Ítalíu í
ESB og evru samstarfinu.
Ítalía er enn sem fyrr ráðgáta,
fögur með afbrigðum – og erfið.
Með kveðju frá Ítalíu
Þorvaldur
Gylfason
Í dag
Spillingin reyndist kosta sitt.
Ítalir stóðu jafnfætis Þjóð-
verjum um aldamótin 2000
mælt í kaupmætti þjóðar-
tekna á mann, en þeir búa
nú við fjórðungi lægri tekjur
á mann en Þjóðverjar.
Haustið er spennandi tími fyrir flesta krakka. Skólinn og tómstundirnar hefj-
ast á nýjan leik og þau hitta aftur
félagana eftir sumarið. Þessi árs-
tími getur hins vegar verið erfiður
fyrir börn foreldra sem hafa lítið til
skiptanna enda fylgir þessum tíma-
mótum kostnaður sem getur verið
þeim ofviða.
Varlega áætlað verja foreldrar
grunnskólabarns um 100 þúsund
krónum á haustin til þess að útbúa
barnið fyrir veturinn. Vetrarfatn-
aður, skór og e.t.v. ný skólataska
kostar sitt og fyrir krakka sem
stundar íþrótt þarf svo að greiða
þátttökugjald í íþróttafélagið og
e.t.v. endurnýja búning. Sambæri-
leg útgjöld fylgja tónlistarnámi ef
barnið kýs það fram yfir íþrótt-
irnar.
Auk þeirra útgjalda sem til falla í
upphafi skólaársins greiða foreldrar
mánaðarlega um 10 þúsund krónur
fyrir hádegismat í skólanum og 17
þúsund krónur fyrir gæslu í frístund
ef barnið er í 1.-4. bekk.
En kemur ekki eitthvað á móti? Jú,
og með ólíkum hætti milli sveitar-
félaga. Í Reykjavík er tómstunda-
styrkur t.d. um 50 þúsund krónur á
ári. Oftast dugar hann til að greiða
fyrir vorönn í íþróttum eða listnámi.
En hvað með barnabæturnar? Jú,
þær nýtast fólki vissulega en mis-
jafnlega. Fólk sem býr við kröpp
kjör nýtir þær til að eiga fyrir mat út
mánuðinn.
Það skiptir mestu máli fyrir börn
að alast upp við alúð og góð sam-
skipti. Sem betur fer eru flestir for-
eldrar á Íslandi líka í þeirri stöðu að
geta séð börnum sínum farborða,
þar skiptir tengslanet stórfjölskyldu
og vina miklu máli þegar mikið
liggur við.
Foreldrar sem leita til Hjálpar-
starfs kirkjunnar eru hins vegar
í þeirri stöðu að hafa ekki efni á
að útbúa börnin í upphafi vetrar.
Margir þeirra er á leigumarkaði og
að sligast undan hárri leigu, fólk sem
býr eitt með barni sínu hefur aðeins
einar tekjur til að sjá fyrir því og
þegar fólk veikist eða slasast getur
það haft mjög hamlandi áhrif, líka
fjárhagslega.
Þegar tengslanetið er gloppótt
þurfum við að sanna okkur sem
samfélag. Það á ekkert barn að vera
útundan. Þau eiga öll að geta notið
bernskunnar áhyggjulaus og virk í
samfélagi við jafnaldra sína. Að því
vill Hjálparstarfið vinna og biður
um stuðning með því að senda val-
greiðslu í heimabanka.
Hundrað þúsund krónur
Kristín
Ólafsdóttir
fræðslu- og
upplýsingafull-
trúi Hjálpar-
starfs kirkjunnar
Ford Focus er fimur bíll enda
þekktur fyrir frábæra aksturs-
eiginleika og framúrskarandi
gæði. Hann er ríkulega búinn,
með fimm stjörnu öryggi,
Bluetooth samskiptakerfi,
leiðsögukerfi með Íslands-
korti, nálægðarskynjurum,
8” snerti/litaskjá, My Key,
upphitanlegri framrúðu o.fl.
Aukabúnaður innifalinn:
Dökkar rúður í farþegarými
og málmlitur.
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16
FORD FOCUS
FIMASTUR!
ford.is
Ford er frábær!
Komdu, reynsluaktu og upplifðu Ford Focus
FOCUS TREND EDITION
3.105.000 KR.
TILBOÐSVERÐ:
2.795.000 KR.
Ford_Focus_5x15_20180604.indd 1 04/06/2018 14:22
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F i M M T u d a g u R 1 6 . á g ú S T 2 0 1 8
1
6
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
9
6
-3
F
A
4
2
0
9
6
-3
E
6
8
2
0
9
6
-3
D
2
C
2
0
9
6
-3
B
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K