Fréttablaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
FERSKT Á FERÐINNI * FRESH TO GO
*GERIR KRAFTAVERK*
/ Fyrir DAGLEGT BRAUÐ /
Sóma salat & Sóma hummus
Tikka
Masala
kjúklingur
með mangó
chutney sósu
Opið allan
sólarhringinn
í öllum verslunum
Jóhanns Óla
Eiðssonar
BAkþAnkAR
Stærstan hluta stuttrar starfs-ævi hef ég starfað í blaða-mennsku og mætti því segja
að ég væri stálpað blaðabarn.
Meirihluti starfsins felst í því að
vinna fréttir en nokkuð stór hluti
tímans, þó æ minni eftir tilkomu
athugasemdakerfa vefmiðlanna,
fer í að svara athugasemdum
þeirra sem hringja inn á rit-
stjórnina.
Sem dæmi um slíka símavini
má nefna hundaeigendur sem
alltaf eru tilbúnir við telefóninn.
Hommahatarar og rasistar eru
líka algengir. Á dögunum hringdi
inn maður sem var hvort tveggja.
Hann var foj yfir því að það væri
í skoðun að taka á móti sam-
kynhneigðum flóttamönnum frá
Afríku og sérstaklega brjálaður
yfir því að þessir drulludelar
væru á leið hingað til að smita
hinn hreina, íslenska kynstofn af
alnæmi. Innhringjandinn var að
sjálfsögðu beðinn um að stinga
þessari athugasemd aftur þangað
sem hún var upprunnin. Það er á
staðinn þar sem sólin skín aldrei.
Reglulega hringir líka inn fólk
og „leiðrengir“ málfar. Fjölmargir
fettu fingur út í það á dögunum
að það stæði samrýnd á for-
síðu blaðsins. Mér bárust síðan
flestar athugasemdir við skrif
mín þegar í fyrirsögn fréttar stóð
„berja augum“. Þau símtöl enda
flest á því að fólkið ætlar næst
að hringja í Árnastofnun til að
hringja síðan aftur í ritstjórnina.
Sjaldnast verður af síðara sím-
talinu.
Uppáhaldið mitt var konan
sem hringdi inn og tilkynnti það,
án þess að kynna sig, að hún ætti
afmæli á morgun og að það ætti
alls ekki að skrifa um það. Síðan
skellti hún á. Enn þann dag í dag
kann ég engin deili á henni.
Símavinirnir gefa vinnudeg-
inum lit. Megi þeir hringja sem
oftast.
Kvartarar
1
6
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
9
6
-0
E
4
4
2
0
9
6
-0
D
0
8
2
0
9
6
-0
B
C
C
2
0
9
6
-0
A
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K