Kiwanisfréttir - 01.04.2003, Blaðsíða 18
18
Þorrablót Jörfa var haldið
laugardaginn 22. Þorra, eða
15. febrúar 2003. Að blóti var
stefnt á bökkum Ölfusár, þar
sem bóndadóttirin Jóra tyllti
niður fæti á leið sinni frá
hestaatinu í Kaldaðarnesi
upp í Grafning þar sem hún
gerðist hið versta flagð.
Sökum lítillar liðveislu
skorti silfur til endurgjalds
fyrir greiðann. Var trúnaði
við Þorra brugðið og ákveðið
að blóta ekki. Vetur konung-
ur hefur sjálfur brugðist og
látið rigna sleitulítið með
hvassviðrum allan veturinn
og því ekki sár svik þótt hon-
um væri goldið líku.
Þorri brást illur við og lýsti
vanþóknun sinni á skorti á
þegnskap, belgdi sig mikinn
og blés með fárviðri að mati
veðurvita.
Römm er forneskjan.
Galdramenn að vestan sáu að
til landauðnar og hneisu
horfði og boðuðu til blóts í
Ásbúð. Æsirnir Hafsteinn
Vestfirðingur og freyja hans
Kristjana á landnámsjörðinni
Hofsstöðum gerðu heimili
sitt að blóthofi þessa kvöld-
stund. Þar var Þorri blótaður
með gnægð af gömlum mat
úr Jörfabúrinu Nóatúni. Eigi
mun upplýst hvort maturinn
var heilsuskæður, en harð-
fiskurinn var ekki Vestfirsk-
ur, enda upprunninn úr röng-
um sjó. Blótmenn drukku
görótta drykki, hver að eigin
smekk og þoli. Það varð til
mikillar heilsubótar og anda-
giftar.
Kom þar blótinu að flutt
voru í bundnu máli blíðuhót
þeirra Davíðs konungs lamb-
skolls og Imbu innar lagð-
prúðu. Var gerður góður róm-
ur að. Mun vandséð hvort fer
til Valhallar að loknum víga-
ferlum á vori aðsteðjandi.
Þegar lækkaði í matartrog-
unum, elnaði mönnum
drykkjan. Þorri horfði með
velþóknun á fallna stríðs-
menn og hafði hægt um sig
meðan vígamóðir Jörfamenn
leituðu síns heima.
Í Íslendingabók verður
fært að 29 vaskir menn og
konur hafi storkað forlögun-
um í nafni Kiwanisklúbbsins
Jörfa.
Upphaflega var ætlunin að
halda blótið fyrir austan fjall,
en hætt við á síðustu stundu
og stóð jafnvel til að hætta
við þorrablótið í ár.
Að því tilefni orti ritari vor
ljóðið hér til hliðar
Lýkur hér að segja frá forn-
um siðvenjum Jörfunga.
Þetta er frásögn ritarans
okkar í Jörfa og gefur smá
hugmynd um það hvað ritari
getur lífgað upp á fundar-
gerðirnar og gert þær áheyri-
legri fyrir vikið.
Ég hef hér að framan stikl-
að á stóru í starfinu svona
rétt til fróðleiks en við í Jörfa
höfum verið að reyna að fjöl-
ga félögum reynt að fara
ýmsar leiðir í þeim efnum en
ekki orðið ágengt og finnst
undirrituðum rétt að kanna
það hvort ekki sé tími til að
sameina klúbba hér á Reykja-
víkursvæðinu, því vitað er að
sumir eru mjög fámennir og
starfið eftir því.
Reykjavík í mars 2003
Guðmundur
Helgi Guðjónsson
Blaðafulltrúi Jörfa
Fréttayfirlit frá starfi Jörfa 2002-2003
Brúnirnar sigu og brá fyrir glampa í augum,
er Bragi frétti að hætta ætti við blótið
og bálvondur greipan glóandi símatólið
Hvað er að gerast, hvað er að þessum draugum
Hafsteinn! hvæstan hvað á að gera við dótið
Hvar á að éta, hvar á að drekka og hver á að reka upp gólið.
Hafsteini brá ekki hót við að hlusta á’ann skammast
Við höldum þá blótið hérna í Garðabænum
Í Hofsstaðalandinu góða hér suður með sænum
Kallað’á Jóhannes láttu hann hlunkast og hlammast
og hendast í Nóatúnsbúðina í einum grænum
og hlaða í bílinn sinn sviðum og hrútspungum vænum
Svona fór það, þannig varð þett´a að vera
Þorrablótið var haldið og þarna var drukkið og etið
Og þannig fer, því Jörfamenn fara ekki fetið
Það mála er sannast að mönnum er hollast að gera
magnaða veislu með hákarl og harðfisk og kviðsviðaketið.
Og háma í sig, drekka og spjalla á meðan að veislu er setið
Ég hafði mig heimleiðis meira en mettur og saddur
Matgræðgin hafði í veislunni tekið öll völd.
Með trésmiðum eru mér búin þau maklegu málagjöld
Hafsteinn og Kristjana og hópurinn sem þarna var staddur
hafði þökk fyrir ánægjustundanna fjöld
og þökk fyrir matinn og afar skemmtilegt kvöld
28. september voru stjórn-
arskipti í Jörfa og tók þá við
sem forseti Guðjón Kr. Bene-
diktsson.
Jörfafélagar eru búnir að
setja upp stefnumótun til
næstu fimm ára og var hún
samþykkt á félagsfundi 2.
desember s.l. Afrit af stefnu-
mótuninni var sent umdæm-
isritara.
Jörfafélagar eru mjög stolt-
ir af því að bæði umdæmis-
stjóri og umdæmisritari eru
félagar í Jörfa.
Dagskrá okkar í vetur hef-
ur verið með hefðbundnu
sniði að öðru leyti en því að
við höfum lagt meiri áherslu
á fræðslu í klúbbnum, og
reynt að gera átak í því að
fjölga í klúbbnum og að fara
aðrar leiðir í þeim efnum.
Þann 18.nóvember vorum
við með unglinga og fjöl-
skyldufund og tvo fyrirles-
ara.
Þeir voru Páll Steingríms-
son kvikmyndagerðamaður
og Haraldur Finnsson skóla-
stjóri Réttarholtsskóla. Tókst
þessi fundur með afburðum
vel og var mjög ánægjulegt
að sjá hve ungdómurinn
hafði gaman af því að kynn-
ast starfi Jörfa og er það víst
að Jörfi mun halda svona
unglinga og fjölskyldufund
að minnsta einu sinni á ári.
Jólafundur Jörfa var hald-
inn 13. desember og var vel
sóttur.
Jörfafélagar seldu sælgæti,
hangikjöt og fl. til eflingar
styrktarsjóði, þá gáfum við
eins og venjulega 10 matar-
körfur til bágstaddra fjöl-
skyldna í Árbæjarhverfi í
samvinu við sóknarprestinn í
Árbæjarkirkju og með stuðn-
ingi Nóatúns Rofabæ.
6. janúar var félagsmála-
fundur og fluttu allir nefndar-
formenn skýrslu sína og kom
þar fram að nefndir í Jörfa
starfa vel.
2. febrúar var félagsmála-
fundur og var fræðslunefnd-
inni boðið á fundinn til að
skerpa á kunnáttu Jörfafé-
laga bæði vegna nefndastarfa
og fundarskapa og var
fræðslunefndinni þakkað vel
fyrir góða kennslu og upprifj-
un á ýmsum félagsmálastörf-
um. Jörfafélagar seldu blóm
eins og venjulega fyrir konu-
daginn og gekk það mjög vel,
en þetta er ein af aðal fjáröfl-
unarleiðum klúbbsins. Hald-
ið var þorrablót þann 15.
febrúar og skemmtu menn
sér konunglega og finnst
blaðafulltrúa rétt að láta fylg-
ja hér með það sem ritarinn
okkar Sigursteinn Hjartarson
skrifaði niður eftir þorrablót-
ið en hann er afar fær að stíl-
færa fundargerðir klúbbsins
þannig að eftir er tekið.
Meðal Ása @ Ásbúð í Görðum
Þorrablót