Fréttablaðið - 08.09.2018, Qupperneq 2
Veður
Suðaustan og austan 5-13 og
rigning á Suðausturlandi í dag,
rigning með köflum sunnan og
vestan til. Úrkomulítið í öðrum
landshlutum. Hiti 8 til 16 stig.
Hlýjast fyrir norðan. sjá síðu 48
Sæmundur
NÚ BROSIR NÓTTIN
Hin rómaða ævisaga
Guðmundar Einarssonar refaskyttu
er komin út á ný. Mikið aukin með
ítarefni um þetta einstaka náttúru-
barn og héraðshöfðingja.
ÚTGÁFUHÓF
í Safnaðarheimili Grensáskirkju
í dag klukkan 14.00–17.00
BÓKIN Á TILBOÐSVERÐI, AÐEINS 5.000 KR. (6.490)
SÖNGUR OG GAMANMÁL
VEITINGAR Í BOÐI
uMHVERFIsMáL Loftslagsgöngur
verða gengnar víða um heim í dag. Í
Reykjavík verður gengið fyrir lofts-
lagið í þriðja sinn frá Hallgríms-
kirkju klukkan 14.00 og niður Skóla-
vörðustíg, Laugaveg og Bankastræti
að Lækjartorgi.
Að sögn skipuleggjenda er krafa
göngunnar í ár einföld, að tafarlaust
verði gripið til aðgerða til að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda.
„Við teljum að það sé stjórnvalda
að skapa og leggja leikreglur fyrir
samfélagið sem draga úr losun,
við köllum eftir aðgerðaáætlun frá
stjórnvöldum,“ segir Hildur Knúts-
dóttir, einn skipuleggjenda. „Ríkis-
stjórnin verður að draga vagninn og
greiða götuna fyrir sjálfbæru sam-
félagi,“ segja skipuleggjendur. – khn
Loftslagsgangan farin í dag
Frá Loftslagsgöngunni í Reykjavík árið 2014. FRéttabLaðið/VaLLi
Þingsetning undirbúin
149. löggjafarþing verður sett þriðjudaginn 11. september næstkomandi. Dagskrá verður með hefðbundnu sniði. Guðsþjónusta verður í Dómkirkj-
unni klukkan 13.30 og forseti Íslands ávarpar þingheim rúmum hálftíma síðar. Þá verða ættjarðarlögin á sínum stað. Að því loknu draga þingmenn
um sætaskipan og fjárlagafrumvarpi verður útbýtt. Starfsfólk Alþingis var í óðaönn að undirbúa þingfundinn í gær. FRéttabLaðið/SiGtRYGGUR aRi
FótboLtI Íslenska karlalandsliðið
hefur leik í nýrri keppni, Þjóðadeild
UEFA, í dag þegar það mætir Sviss á
Kybunpark-vellinum í St. Gallen. Er
þetta ný keppni sem Evrópska knatt-
spyrnusambandið setti á laggirnar
til að fækka þýðingarlausum æfinga-
leikjum.
Góður árangur Íslands á undan-
förnum árum, ferðirnar tvær á loka-
mót HM og EM þýða að við erum í
deild með stóru strákunum. Belgía
vann til bronsverðlauna á nýafstöðnu
HM og Sviss hefur verið meðal 20
efstu þjóða á heimslista FIFA undan-
farin tíu ár.
Talsverð skakkaföll hafa orðið á
liðinu vegna meiðsla, Alfreð Finn-
bogason, Aron Einar Gunnarsson og
Jóhann Berg Guðmundsson eru fjar-
verandi vegna meiðsla og mun Gylfi
Þór Sigurðsson bera fyrirliðabandið í
fjarveru Arons. Aðspurður segist Gylfi
taka því fagnandi að fá strax keppnis-
leiki í stað æfingaleikja og að honum
lítist vel á Þjóðadeildina.
„Þessi keppni hljómar vel, þetta
er skemmtilegra en vináttuleikir því
í þessari keppni er eitthvað undir í
hverjum leik. Þetta er annar mögu-
leiki fyrir minni liðin til að komast
inn á Evrópumótið og á sama tíma
fáum við að prófa okkur gegn tveimur
frábærum liðum.“
Þetta verður í sjöunda skiptið sem
þessi lið mætast og hefur Íslandi aldr-
ei tekist að vinna Sviss. Þrátt fyrir það
er greinilegt að Vladimir Petkovic,
þjálfari Sviss, ber mikla virðingu fyrir
Íslandi og afrekum liðsins síðustu ár.
„Ísland hefur náð frábærum árangri
undanfarin ár, vann riðilinn í undan-
keppni HM með silfurliði Króatíu og
var svo óheppið að fara ekki áfram í
riðlakeppninni. Íslenska liðið er með
góða blöndu af ungum og eldri leik-
mönnum og nýjan þjálfara sem ég
þekki vel og veit hvað hann getur.
Framtíðin er björt hjá íslenska lands-
liðinu og við eigum von á erfiðum leik
þó að við förum í hann til að vinna.“
Honum finnst magnað að lítil eyja
á borð við Ísland eigi jafn marga leik-
menn í fremstu röð og raun ber vitni.
„Að eiga marga góða leikmenn frá
jafn lítilli eyju og Ísland er, er ansi
hreint magnað. Undanfarin ár hafa
sífellt fleiri íslenskir leikmenn verið
að koma fram og hafa þegar öðlast
reynslu í fremstu röð.“
kristinnpall@frettabladid.is
Býst við erfiðum leik
gegn íslenska liðinu
Ísland mætir Sviss í fyrsta leik Þjóðadeildarinnar ytra í dag og segir Gylfi Þór
Sigurðsson að leikmenn taki þessu fagnandi frekar en æfingaleikjum. Þjálfari
Sviss segir það magnað hversu marga frábæra leikmenn á Ísland eigi.
Gylfi Þór Sigurðsson mun bera fyrirliðabandið í dag. FRéttabLaðið/EYÞóR
Að eiga marga góða
leikmenn frá jafn
lítilli eyju og Íslandi er ansi
hreint magnað.
Vladimir Petkovic,
landsliðsþjálfari Sviss
bANDARíKIN George Papadopoulos,
fyrrverandi ráðgjafi Donalds Trump
Bandaríkjaforseta, var í gær dæmdur
í fjórtán daga fangelsi fyrir að ljúga í
yfirheyrslum hjá FBI.
Papadopoulos var fyrsti ráðgjafi
Trumps sem var handtekinn af
FBI í tengslum við rannsókn FBI á
afskiptum Rússa af forsetakosning-
unum í Bandaríkjunum árið 2016. Í
yfirheyrslum sagði hinn dæmdi ekki
satt og rétt frá ferðum sínum til og frá
Moskvu. Hann játti sök í október í
fyrra.
Auk fangelsisvistarinnar þarf Papa-
dopoulos að halda skilorð í tólf mán-
uði og sinna 200 klukkustunda sam-
félagsþjónustu. Þá var hann dæmdur
til greiðslu 9.500 dollara sektar, and-
virði rúmlega milljón íslenskra króna
á gengi dagsins í dag. – jóe
Papadopoulos
dæmdur í 14
daga fangelsi
8 . s E p t E M b E R 2 0 1 8 L A u G A R D A G u R2 F R é t t I R ∙ F R é t t A b L A ð I ð
0
8
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
4
-2
A
9
8
2
0
C
4
-2
9
5
C
2
0
C
4
-2
8
2
0
2
0
C
4
-2
6
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
7
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K