Fréttablaðið - 08.09.2018, Page 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
RAM 3500. NÝ SENDING VAR AÐ LENDA. ramisland.is
TRYGGÐU ÞÉR NÝJAN RAM 3500 SLT, LARAMIE EÐA LIMITED.
RAM 3500 VERÐ FRÁ KR. 5.960.000 ÁN VSK.
KR. 7.390.400 MEÐ VSK.
RAM 3500 LIMITED 40” BREYTTUR
Sturla Birgisson
stangveiði- og mat-
reiðslumaður
gekk úr Klúbbi
matreiðslu-
meistara vegna
samnings við
Arnarlax.
Ásta Stefánsdóttir
sveitarstjóri í
Bláskógabyggð
sagði ferðamenn
sem hunsa
varúðarskilti
við Gullfoss
vera í lífsháska.
Um væri að ræða
algjört vanmat
á aðstæðum og ofmat á eigin
getu. Sveinn Kristján Rúnarsson,
yfirlögregluþjónn á Suðurlandi,
sagði fólk alltaf þurfa að láta
ljósmynda sig á mörkum lífs og
dauða. Merkilegt væri að ekki
hefðu orðið fleiri slys.
Jóhanna Gísladóttir
formaður átaksins
Plastlaus september
segir að það sem hafi
virkað vel fyrir
hana sé að vera
vel undirbúin
fyrir hvern dag
eins og til
dæmis að muna
eftir fjölnota
pokanum og fjölnota
kaffimálinu.
Þrjú í fréttum
Lax, lífsháski og
plast
133.000 krónur
á mánuði
er hækkun
grunnlauna
borgarfull
trúa, eða
22,4 prósent,
síðan borgarstjórn
ákvað í apríl í fyrra að binda
laun kjörinna fulltrúa við þróun
launavísitölu.
Tölur vikunnar 02.09.2018 - 08.09.2018
6.000
störfuðu í leikskólum
landsins í desember í
fyrra. Konur voru tæp
94 prósent. Tæpur
helmingur barna
fæddra 2016 var í
leikskóla í desember
en alls sóttu þá rúm
lega 19.000 börn
leikskóla.
25 milljörðum króna 466.800
voru gistinætur á hótelum í
júlí síðastliðnum sem er 1,4%
samdráttur frá sama mánuði
árið áður. Um 51% allra
gistinátta var
á höfuð
borgar
svæðinu
eða
238.700. 21
3
m
12 %
af þeim rúmlega 15 þúsundum
nýrra fólksbíla sem seldust fyrstu 8
mánuði ársins voru rafmagnsbílar.
of stutt var
brautin í
maraþoninu
í ágúst. Til
færsla grinda
er sögð
ástæðan.
Úrslit standa
en tímar eru
ógildir.
nam hagnaður sjö stærstu útgerðar
félaga landsins í
fyrra. Hagnaður
Samherja nam
14,4 milljörðum
og mun félagið
greiða 1.270
milljónir í arð til
hluthafa.
skipulagsmál „Maður vill trúa því
að þetta eigi að vera tímabundið
en hversu lengi á það tímabundna
ástand að vara?“ segir Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, formaður
Miðflokksins, um malbikaða leið
við Austurvöll meðfram Landssíma-
húsinu.
Framkvæmdir standa nú yfir á
Landssímareitnum þar sem meðal
annars verður nýtt hótel. Veggur er
risinn utan við lóðina og nýr vegur
hefur verið malbikaður þar austan
við og nær hann inn á Austurvöll.
„Hvers vegna er verið leggja þarna
veg og malbika hann?“ spyr Sig-
mundur. „Er það til marks um það
að þetta verði svona í mörg ár? Svo
er hættan líka sú að það sem kynnt er
sem bráðabirgðaráðstöfun í upphafi
reynist á endanum varanlegt.“
Jóhannes Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Lindarvatns sem
stendur að uppbyggingunni á Lands-
símalóðinni, segir vegargerðina vera
samkvæmt athafnaleyfi frá borg-
inni og að kröfu slökkviliðsins og
Alþingis. Slökkviliðið þurfi aðgengi
að Vallar stræti og Alþingi að skrif-
stofum við Austurvöll. Þar sé Alþingi
með skóla fyrir börn sem meðal ann-
ars fatlaðir nemendur sæki.
„Það þurfti líka að vera almenni-
leg gönguleið fyrir þingmenn,“ segir
Jóhannes sem kveður allt verða sett
í fyrra horf að framkvæmdum lokn-
um. „Þetta verður ekkert þarna.“
Sigmundur segist sjá málið sem
hluta af „ótrúlegum“ framkvæmd-
um sem séu í gangi í miðbænum í
Reykjavík, kannski ekki síst þeim við
Austurvöll, sem honum þyki algjör-
lega óskiljanlegt að hafi verið leyfðar.
„Ef við byrjum á því jákvæða þá
held ég að það sé alveg borðleggjandi
að hafa opið og einhverja þjónustu í
Landssímahúsinu og það er til bóta.
En að fara að byggja annað stórhýsi
við húsið þar sem ekki er pláss fyrir
það og gera það með því að grafa
burt hluta af gamla kirkjugarðinum
og malbika svo yfir hluta af Austur-
velli eru skýr merki um þær öfgar
sem eru ríkjandi í skipulagsmálum
og framkvæmdum í miðbænum í
Reykjavík,“ segir hann.
Að sögn Sigmundar tengjast
margar þær skipulagsöfgar sem
hann nefnir svo hótelbyggingum.
„Þær eiga það sameiginlegt að
ganga á umhverfið á ýmsan hátt og
draga úr því sem gerir miðbæinn í
Reykjavík aðlaðandi og sérstakan
en setja í staðinn eitthvað sem ætti
kannski heima í Borgartúni en er
ekki til þess fallið að bæta miðbæ-
inn.“
gar@frettabladid.is
Óttast að malbikaður stígur sé
kominn til að vera á Austurvelli
Nýr vegur sem lagður hefur verið vegna framkvæmda á Landssímareitnum vekur ugg um að Austurvöllur
verði aldrei endurheimtur allur. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir öfgar
ríkjandi í skipulagsmálum í Reykjavík og dregið úr því sem geri miðbæinn sérstakan og aðlaðandi.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og malbikaði vegurinn fyrir neðan sem teygir sig inn á Austurvöll. FréttAblAðið/Ernir
Hvers vegna er verið
leggja þarna veg og
malbika hann?“ spyr Sig-
mundur. „Er það til marks
um það að þetta verði svona í
mörg ár?“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, for
maður Miðflokksins
8 . s e p T e m b e r 2 0 1 8 l a u g a r D a g u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
0
8
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
4
-3
E
5
8
2
0
C
4
-3
D
1
C
2
0
C
4
-3
B
E
0
2
0
C
4
-3
A
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
7
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K