Fréttablaðið - 08.09.2018, Page 27
Í dag, laugardag, efnum við til sölusýningar í verslun
okkar, Nóatúni 4, frá kl. 10 til 16.
Þar gefst þér tækifæri til að skoða allt hið nýjasta sem við
höfum á boðstólum. Meðal annars nýju VarioStyle kæli- og
frystiskápana sem skipta má um framhlið á hvenær sem er
og eru hvorki fleiri né færri en nítján litir í boði. Veldu lit sem
hentar innréttingunni þinni, lit sem poppar upp eldhúsið eða
náðu þér í lit sem hæfir árstíðinni. Fagnaðu haustinu með
haustlit og jólunum með gylltri eða rauðri framhlið. Mjög
auðvelt er að skipta um framhliðina. Það tekur í raun aðeins
nokkrar sekúndur. VarioStyle-skáparnir frá Bosch hlutu þýsku
hönnunarverðlaunin (German Design Award) nú í ár, 2018.
Fjöldi tilboða í tilefni dagsins.
Veittur verður afsláttur af öllum vörum sem
ekki eru nú þegar á Tækifærisverði.
Komdu og njóttu dagsins með okkur!
Skoðaðu nýja
Tækifærisbæklinginn
okkar!
Tæki
fæ
ri
Kælitæki /
Uppþvotta
vélar / Eldu
nartæki / Þ
vottavélar
og þurrkar
ar / Ljós / S
ímtæki / R
yksugur / S
mátæki
Það verða
Tækifæris
dagar hjá o
kkur allan
septembe
rmánuð. Kæ
litæki, þvo
ttavélar,
þurrkarar, e
ldunartæk
i ásamt fle
iri gæðavö
rum
frá Siemen
s og Bosch
á Tækifær
isverði.
Sölusýning
verður í ve
rslun okka
r laugarda
ginn
8. septemb
er. Þann d
ag veitum
við afslátt
af
öllum vöru
m sem ekk
i eru þega
r á afslætt
i.
Opið frá kl
. 10 til 16
laugardagi
nn 8. septe
mber.
2016
- 2017
Sölu-
s ý n i n g
Ef miðað er við allra nánustu fjöl-
skyldu og vini og gengið út frá því
að á bak við þessa 963 nemendur
sem hafa reynt sjálfsvíg séu allt að
10 manns, þ.e. tveir foreldrar, tvær
ömmur, tveir afar, eitt til tvö systk-
ini, og tveir til þrír vinir, þá er hægt
að reikna út að um 8.667 manns
verði fyrir áhrifum.
Hvert sjálfsvíg er harmleikur,
ótal spurningum er ósvarað og
sorgarferlið flókið. Búast má við að
á hverju ári séu um 35-40 sjálfsvíg,
oftast fólk á besta aldri sem hefur
verið komið í öngstræti með líf
sitt. Reikna má með að um 2-3.000
manns fari í jarðarfarir tengdar
sjálfsvígum ár hvert.
„Það eru í kringum þrír til átta
sem syrgja verulega mikið og sjálfs-
víg nákomins ættingja eða vinar
hafa áhrif á allt lífið. Sumir hætta í
skóla, aðrir eiga erfitt með að fóta
sig á vinnumarkaði. Við viljum
ekki sjúkdómsgera sorgina en það
eru um það bil 150-200 manns
sem þyrftu að fá sorgarúrvinnslu
en eru ekki að fá þá þjónustu sem
skyldi, meðal annars vegna þess
að þeir vita ekki hvert eigi að leita
og/eða að þjónustan er af skornum
skammti. Þessi hópur einstaklinga
er oft falinn og með mikla vanlíðan í
langan tíma. Öðrum aðstandendum
og vinnufélögum finnst oft erfitt að
nálgast þá, þar sem dauðinn og þá
einkum sjálfsvíg eru tabú að ræða
um. Ef ekki er unnið með sorgina er
hætta á einangrun, kvíða og þung-
lyndi sem hægt væri að milda með
snemmtækri íhlutun,“ segir Sal-
björg.
„Ef sjálfsvígstilraun verður í skóla-
umhverfinu er það fljótt að spyrjast
út í skólanum og sögusagnir fara út
um víðan völl. Það getur verið erfitt
fyrir ungmenni að koma í skólann
á nýjan leik og mikilvægt er að taka
vel á móti viðkomandi. Þess vegna
er mikilvægt að viðbragðsáætlun sé
til staðar inni í skólanum, þar sem
námsráðgjafi, umsjónarkennari og
einhver þriðji aðili taka á málunum.
Ef um sjálfsvíg er að ræða þá er mjög
mikilvægt að vinna vel með bekk-
inn og nánustu vini til að forðast
smitáhrif.“
Innleiða heilsueflandi skóla
„Við bíðum spennt eftir því hvað
ráðherra segir á mánudag og von-
umst til að hún komi með eitthvað
tengt þessari aðgerðaáætlun,“ segir
Salbjörg. „Það sem við vitum er að
það eru yfir 80-85% ungmenna
sem líður vel, en það eru í kringum
15% sem þarf að hlúa mun betur
að. Þetta er ekki bara á ábyrgð heil-
brigðisþjónustunnar, heldur þarf
allt samfélagið að vinna að því að
leyfa fólki að vaxa og dafna og líða
vel. Það er gríðarlega mikilvægt
að staldra við og skoða hvað við
getum gert betur. Einnig þarf að
fá foreldra betur inn í foreldra-
starf í skólanum með tilliti til þess
að fjölskyldur eru mismunandi.
Það er engin ein lausn sem hentar
öllum.“
Hér áður var ekki talað um heilsu-
eflandi skóla, sem þykir núna eðli-
legt. Salbjörg segir að nú sé kominn
tími á að innleiða slíka hugsun í allt
samfélagið. Sum sveitarfélög séu
orðin heilsueflandi samfélög og er
það vel.
„Heilsueflandi skóli og heilsu-
eflandi samfélag. Við þurfum líka
að skoða fjölskyldustefnu ríkis-
stjórnarinnar árið 2016 sem er ekki
enn búið að samþykkja á Alþingi.
Við þurfum fjölskyldustefnu til að
ná til allra barna og fjölskyldna.
Vinnumarkaðurinn þarf einnig að
koma til móts með sveigjanlegum
vinnutíma. Þetta er stór pakki en
þarf að ráðast í hann strax. Ef við
gerum þetta almennilega þá fáum
við heilsteyptan einstakling út úr
skólakerfinu,“ segir Salbjörg.
„Þá var einnig þingsályktun um
stefnu og aðgerðaáætlun í geðheil-
brigðismálum til fjögurra ára sam-
þykkt á Alþingi í apríl 2016. Það er
liðið á seinnihluta 2018 og einungis
hluti hennar orðinn að veruleika.
Það er byrjað á sumu en annað er
brotakennt. Það þarf að spýta í lóf-
ana með ákveðna hluti. Við verðum
Aðstoðin þarf að vera aðgengileg og ekki með löngum biðlistum
Menntaskólinn við Hamrahlíð er
einn af þeim framhaldsskólum
sem hafa ráðið inn sálfræðing til
að þjónusta nemendur. Nemendur
geta því fengið innan skólans
ókeypis sálfræðiþjónustu á sínum
forsendum. Bóas Valdórsson sál-
fræðingur siglir nú inn í þriðja árið
sitt þar. Þarna skarast heilbrigðis-
og menntamál. „Þessi mál hafa
verið að þróast í skólakerfinu á
síðastliðnum þremur árum. Það
virðist vera skilningur og áhugi
fyrir að þessi tvö ráðuneyti starfi
saman og verði samstíga,“ segir
Bóas. „Það hefur verið að aukast
að sálfræðingar séu aðgengilegir
í framhaldsskólum og sýnt sig að
þörf er á þessi þjónustu.“
Bóas segir að margir nemendur
nýti sér þjónustuna. „Mér finnst
þetta frábær kynslóð sem er að
alast upp. Þau eru meðvituð um að
takast á við sína hluti og eru með-
vitaðri um að takast á við tilfinn-
ingar sínar. Forvarnir og fræðsla
síðustu árin hefur miðað að því að
hvetja fólk til að leita sér aðstoðar
ef fólki líður illa eða glímir við
erfiðleika en þá þarf aðstoðin að
vera opin og aðgengileg og ekki
með of löngum biðlistum,“ segir
Bóas.
„Auðvitað eru nemendur inn
á milli sem eru að takast á við
erfiðleika sem eru krefjandi og
svo vísum við nemendum áfram í
heilbrigðiskerfið ef þörf er á frekari
úrræðum vegna flóknari og stærri
erfiðleika. Hvar byrjar maður? er
viðamikil spurning þegar maður er
ungur.“
að sinna forvörnum, snemmtækri
íhlutun og allri meðferð mun betur.
Horfa á styrkleika fólks og getu þess
og gefa öllum tækifæri til að njóta
sín í umhverfinu.“
Sigrún tekur í sama streng. „Geð-
heilbrigðisþjónusta er ekki nógu
aðgengileg sem gengur þvert á það
sem við erum að segja unga fólkinu
okkar. Ef við viljum hvetja það til
að leita sér hjálpar þá verðum við
að tryggja að það sé auðvelt og ein-
falt að gera það. Það er mikilvægt
að fólk leiti sér hjálpar og að þá sé
hjálpin til staðar. Við leggjum til
lausnir í aðgerðaáætluninni sem
verður vonandi tekin í notkun von
bráðar,“ segir Sigrún.
h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 27l A U g A R D A g U R 8 . s e p T e m B e R 2 0 1 8
0
8
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
C
4
-5
B
F
8
2
0
C
4
-5
A
B
C
2
0
C
4
-5
9
8
0
2
0
C
4
-5
8
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
1
2
s
_
7
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K