Fréttablaðið - 08.09.2018, Blaðsíða 32
Alltaf pressa í Svíþjóð
Hann tók við liðinu af Lars Lager-
bäck og var strax undir pressu sem
þjálfari sænska landsliðsins.
„Ég hugsaði um tíma: Er þetta
rétti tímapunkturinn til að taka við
sænska landsliðinu? Liðið var búið
að komast á fimm stórmót í röð en
komst ekki inn á HM í Suður-Afríku
og það voru ákveðin kynslóðaskipti
fram undan. Þess vegna hugsaði ég
hvort þetta væri rétti tíminn því að
það var krafa um jákvæð úrslit strax.
Svo hugsaði ég að þetta gæti orðið
eina tækifæri mitt til að taka við
landsliðinu svo að ég stökk á það.
Svíþjóð komst ekki á HM það árið
sem dró aðeins úr væntingunum
og það voru margir farnir að kalla
eftir breytingum, sérstaklega fjöl-
miðlarnir, en það er alltaf pressa á
þjálfaranum. Á þessu stigi þarf þjálf-
ari að skila úrslitum og þú þarft að
takast á við það,“ segir Hamrén sem
segir það einnig mikilvægt fyrir leik-
mennina.
„Ef þú nærð góðum úrslitum
snemma, þá ertu að selja leik-
mönnum hugmyndafræðina. Þó að
þú sért besti þjálfari heims munu
leikmennirnir efast um aðferðir
þínar ef úrslitin eru ekki rétt.“
Hann er því vanur að vænting-
arnar séu miklar hjá stuðnings-
mönnunum.
„Þetta er annað en þegar Lars tók
við liðinu, þá voru væntingarnar
ekki miklar en eftir frábært gengi
undanfarin ár undir stjórn Lars og
Heimis fara væntingarnar á annað
stig.“
Hann stýrði sænska landsliðinu
í sjö ár og er ánægður með starf sitt
þar þegar litið er til baka.
„Þegar ég lít til baka er ég ánægð-
ur með árangur minn í heildina. Við
komumst tvisvar í lokakeppni EM
og vorum nálægt því að komast á
HM 2014, lentum í öðru sæti á eftir
Þýskalandi og mættum Portúgal
í umspilinu. Við mættum þeim í
bráðfjörugum leik en tókst ekki að
yfirstíga þá hindrun,“ segir Hamrén
sem var þó svekktur yfir árangr-
inum í lokakeppni EM.
Fann eldmóðinn í Suður-Afríku
Eftir að hafa hætt með sænska
landsliðið aðstoðaði hann Örgryte
í stuttan tíma sem ráðgjafi áður
en hann tók stóra U-beygju. Tók
hann við starfi tæknilegs ráðgjafa
hjá Mamelodi Sundowns í Suður-
Afríku.
„Ég þurfti á hvíld að halda eftir
að hafa stýrt sænska landsliðinu.
Ég stýrði því í sjö ár og það tók á,
líkamlega og andlega, og ég þurfti
á smá hvíld að halda og vann ekki
í 18 mánuði. Eftir það fann ég að ég
hefði enn eldmóðinn til að vinna í
knattspyrnu áfram,“ segir Hamrén
sem fékk mörg tilboð eftir að hafa
hætt með sænska landsliðið.
„Það voru þjálfaratilboð í Skand-
inavíu og fleiri tilboð en þetta var
eitthvað nýtt og ég var að leita eftir
því. Ég var búinn að þjálfa í Skand-
inavíu, auðvitað voru mörg tilboð
freistandi fjárhagslega en ég sagði
nei við mörgum þar til ég fékk til-
boðið frá Suður-Afríku. Þar fór ég í
nýtt umhverfi og nýja stöðu og ég
ákvað að stökkva á tækifærið.“
Hann sinnti því starfi í rúmt ár.
„Það voru langir vinnudagar, sér-
staklega fyrstu mánuðina þegar ég
var einsamall í Suður-Afríku. Ég var
að koma í nýja stöðu og vildi læra
allt saman undir eins en þar fann ég
líka eldmóðinn á ný. Þar fann ég að
ég saknaði þess að þjálfa lið en ekki
í Svíþjóð þar sem mér fannst ég hafa
náð öllu því sem hægt væri.“
Getur aðstoðað aldraða foreldra
Skyndilega kom tilboð frá Íslandi,
þar fékk hann tækifæri til að snúa
aftur í þjálfun og á sama tíma huga
að fjölskyldumálum.
„Þegar það kemur upp fæ ég tæki-
færi til að stýra liði í fremstu röð í
Evrópu og búa í Svíþjóð og vera nær
fjölskyldunni. Þá get ég aðstoðað
foreldra mína sem eru orðnir gamlir
og þurfa á aðstoð að halda, systir
mín sá lengi vel um það og gerði það
vel en nú gat ég aðstoðað. Þegar ég
var í Suður-Afríku hitti ég þau einu
Ég fÉkk strax að heyra
það frá mörgum að-
ilum að þetta væri
ekki besti tíminn til að
taka við íslenska lið-
inu eftir velgengnina
undanfarin ár og það
eru miklar væntingar
gerðar til liðsins.
sinni á ári en þarna fékk ég spenn-
andi tækifæri sem hentaði vel, ég get
búið í Svíþjóð og þjálfað í fremstu
röð,“ segir Hamrén sem heillaðist í
fyrstu heimsókn.
„Ég fann það strax þegar ég kom á
fund hjá KSÍ að þetta væri starf sem
ég væri til í. Ég er afar ánægður með
að þeir kusu að ráða mig.“
Ráðlagt að taka ekki við liðinu
Hann var varaður við því að taka
við íslenska liðinu á þessum tíma-
punkti.
„Ég fékk strax að heyra það frá
mörgum aðilum að þetta væri ekki
besti tíminn til að taka við íslenska
liðinu eftir velgengnina undan-
farin ár og það eru miklar væntingar
gerðar til liðsins. Það eru ekki marg-
ar þjóðir sem komast í lokakeppni
þrjú skipti í röð og þetta verður
erfitt en mér líkar þessi áskorun.
Ég hef trú á því að við getum það ef
leikmennirnir haldast heilir og þeir
sýna sama vilja og þeir hafa gert
undanfarin ár.“
Hamrén vann með tveimur
íslenskum leikmönnum sem þjálfari
félagsliðs, Brynjari Birni Gunnars-
syni og Atla Sveini Þórarinssyni, og
hann heillaðist um leið af íslenska
viðhorfinu.
„Ég heillaðist strax af þeim,
Atli kom upp úr unglingastarfinu
hjá Örgryte og ég hugsaði oft um
hann sem sænskan leikmann en
Brynjar kom inn sem leikmaður til
að styrkja aðalliðið og heillaði mig
undir eins,“ segir Hamrén og heldur
áfram með bros á vör:
„Ég man ennþá eftir fyrsta leikn-
um hans Brynjars. Æfingarleikur á
La Manga og ég sá strax hvað við
værum með frábæran leikmann í
okkar herbúðum, hann var við það
að drepa andstæðinginn í leiknum
og átti eftir að gera hvað sem er til
að vinna leiki fyrir félagið,“ segir
Hamrén glottandi.
Hefði þegið æfingaleiki
Fyrstu leikir Íslands undir stjórn
Hamréns eru afar erfiðir. Sviss og
Belgía í Þjóðadeild UEFA, lið sem
eru meðal tíu bestu í heiminum
samkvæmt styrkleikalista FIFA.
„Þetta verða virkilega erfiðir
fyrstu leikir, ef ég á að vera hrein-
skilinn, ég hefði kosið að fá æfinga-
leiki til að skoða leikmennina og
koma mínum hugmyndum að en
þessu verður ekki breytt. Ég er afar
spenntur að sjá hvað leikmennirnir
gera og hvert við getum farið saman
sem lið. Við erum í efsta styrkleika-
flokki í Þjóðadeildinni og þá mæt-
irðu liðum af þessum styrkleika-
flokki og það er okkar að halda sæti
okkar. Ef litið er til styrkleikalistans
ættum við að vera í þriðja sæti en
Ísland hefur sýnt það áður að það
er hægt að vinna stærri þjóðir ef
leikáætlunin gengur upp,“ segir sá
sænski.
Verður þetta í sjöunda skiptið
sem Ísland og Sviss mætast í karla-
flokki en síðast lauk leiknum með
4-4 jafntefli. Jóhann Berg Guð-
mundsson, sem nú er fjarverandi
vegna meiðsla, skoraði þrjú mörk
og bjargaði stigi fyrir Ísland í Bern.
„Ég þekki tilfinninguna, við
náðum að vinna upp fjögurra marka
forskot gegn Þýskalandi með Sví-
þjóð og vonandi getum við náð
að leika það eftir án þess að leka
fjórum mörkum.“
Hamrén hefur skoðað leikmenn
sem eiga leiki að baki fyrir U21 árs
liðið en ætlar að gefa sér tíma til
að skoða aðra leikmenn á næstu
vikum. Tíminn var af skornum
skammti hjá honum og Frey Alex-
anderssyni við að velja leikmanna-
hópinn í þetta skiptið.
Erfitt að taka við kyndlinum
„Ég hef skoðað leiki með U21 árs
liðinu en ekki náð að sjá marga
leika með félagsliðum sínum. Síð-
ustu vikur hafa einkennst af því að
skoða ótalmarga leikmenn en það
er skylda mín að fylgjast með yngri
landsliðum Íslands sem þjálfari
landsliðsins. Það verður erfitt fyrir
komandi kynslóðir að taka við
kyndlinum af gullkynslóðinni, sér-
staklega þegar mengið er lítið eins
og á Íslandi en flestir af núverandi
leikmönnum liðsins eiga að mínu
mati nokkur góð ár eftir,“ segir
Hamrén sem segist ekki ætla að fara
að þvinga fram endurnýjun strax.
„Við getum ekki valið leikmenn
í hópinn bara vegna aldurs, þeir
verða að hafa eitthvað fram að færa
og ég mun fylgjast með því. Von-
andi hefur gott gengi liðsins jákvæð
áhrif á komandi kynslóðir. Í Svíþjóð
ætluðu yngri kynslóðir sér að ná
sama árangri og farsælir íþrótta-
kappar. Yngri leikmenn hafa séð
hvaða möguleikar eru fyrir hendi,
að Ísland geti komist í lokakeppni
í stórmóti.“
Hamrén segir mikla áskorun að halda íslenska landsliðinu í fremstu röð. FRéttAblAðið/SiGtRyGGuR ARi
Zlatan er auðmjúkur og frábær einstaklingur
„Það eina sem ég er ekki sáttur við eru úrslitin á EM, við unnum bara
einn leik árið 2012 og töpuðum fyrstu tveimur leikjunum. Fjórum árum
seinna, í Frakklandi, fengum við bara eitt stig. Það var margt líkt með
því og því sem Ísland upplifði á HM í Rússlandi í sumar. Það var margt
jákvætt en úrslitin duttu ekki með liðinu.“
Hjá sænska liðinu stýrði hann stórstjörnunni Zlatan Ibrah
imovic.
„Hann er heimsklassa leikmaður og var í raun mun
stærri stjarna en nokkur annar leikmaður
í liðinu. Þrátt fyrir það reyndist hann
mér frábærlega og ég get ekki annað
en hrósað honum sem frábærum
manni. Hann hætti um tíma með
landsliðinu en kom aftur og átti
bestu ár sín með liðinu undir minni
stjórn, þar sýndi hann sænsku
þjóðinni hvað í honum bjó.
Liðið nýtti hæfileika hans til hins
ýtrasta og hann hagnaðist á því
sem fyrirliði liðsins.“
Undirritaður er forvitinn um
persónuleikann. Zlatan er afar
litríkur karakter innan sem utan
vallar.
„Maður sér eina hlið á honum í
fjölmiðlunum og hann hefur nýtt
sér það vel til að stækka viðskipta
veldi sitt en í mínum augum er
hann frábær og auðmjúkur ein
staklingur. Ég fæ oft spurningar
um hvort það sé erfitt að þjálfa
leikmenn eins og hann en leik
menn í þessum gæðaflokki vita
hvað til þarf og leggja hvað mest
á sig. Ég ber ómælda virðingu fyrir
honum og gæti sagt margar sögur
af því hversu fagmannlegur hann
er, stærra vandamál er að vinna
með leikmönnum sem halda að
þeir séu á þessu gæðastigi en
eru það ekki.“
8 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r32 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
0
8
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
4
-2
F
8
8
2
0
C
4
-2
E
4
C
2
0
C
4
-2
D
1
0
2
0
C
4
-2
B
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
7
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K