Fréttablaðið - 08.09.2018, Qupperneq 34
Hver
eru þau
og hvar
Hvaða skilyrði þarf að
uppfylla til að komast
á skrá lögreglunnar um
horfna menn? Til hvers
er skráin og hverja
vantar á hana? Frétta-
blaðið rýnir í horfinna-
mannaskrá og þekkt
mannshvörf sem ekki
komast á skrána.
21 31963
Tveir menn hurfu í Reykjavík
sumarið 1963. Vitað er að
þeir tóku leigubíl heiman frá
öðrum þeirra að næturlagi.
Daginn eftir uppgötvaðist að
trilla föður annars þeirra var
horfin. Talið var að þeir hefðu
ætlað út í amerískt skip sem
lá við akkeri utan við Engey.
Ekkert hefur sést af bátnum
síðan og mennirnir eru enn
týndir.
1974
Aldraður maður hvarf á Snæ
fellsnesi árið 1974. Hann
var með barnabarni sínu
og tengdasyni í berjamó og
hugðist ganga að bíl þeirra
og sækja sér kaffisopa. Hann
skilaði sér ekki til baka og
hefur aldrei sést síðan. Spor
hundar röktu spor hans upp á
þjóðveg. Hvarf hans hefur alla
tíð verið mönnum ráðgáta.
1978
Fjórir piltar á aldrinum 16 til
18 ára sáust sigla út úr höfn
inni á Dalvík með stefnuna
á Hrísey í sumarblíðu í júní
1978. Fylgst var með þeim í
sjónauka sigla inn fyrir hafnar
garðinn í Hrísey. Síðan hefur
ekkert til þeirra spurst. Enginn
varð bátsins var í Hrísey.
Síðar fannst skór eins þeirra í
sjónum og ár úr bátnum.
✿ Mannshvörfin eru mörg hver dularfull og engar skýringar á þeim finnast
?
120
1974
Á skrá kennslanefndar yfir
horfið fólk eru 120 manns
sem horfið hafa frá árinu
1945 og aldrei fundist.
Færeyingurinn Willy Peter
sen hvarf árið 1974 en er
ekki á skrá lögreglu þrátt
fyrir rannsókn á sínum tíma.
Aðalheiður
Ámundadóttir
adalheidur@frettabladid.is
E in ástsælasta söguper-sóna Arnaldar Ind-riðasonar, Erlendur Sveinsson, er heilluð af mannshvörfum á sama hátt og svo margir
Íslendingar, með blöndu af forvitni
og samlíðan. Erlendur drekkur í sig
allt um skipskaða, fjallgöngumenn
sem aldrei koma aftur til byggða og
fólk sem heldur sig mest í þéttbýli
en hverfur sporlaust án nokkurra
skýringa.
Um allt Ísland eru sjálfskipaðir
einkaspæjarar sem liggja á timarit.
is og grúska í gömlum gögnum um
menn sem horfið hafa sporlaust.
Þeir leita Geirfinns og reyna að
skilja örlög þeirra sem hvarf hans
hafði áhrif á.
Horfinnamannaskrá lögreglu
Haldnar eru skrár yfir horfið fólk.
Ein þeirra er hin formlega horf-
innamannaskrá sem kennslanefnd
heldur. Hún var nýlega gerð opin-
ber, án þess þó að nöfn þeirra sem
á henni eru séu birt. Fréttablaðið
grennslaðist fyrir um tilurð þessarar
skrár hjá Gylfa Gylfasyni, formanni
kennslanefndar Ríkislögreglustjóra.
Gylfi segist hafa fundið fyrir því
að misskilnings gæti um tilgang
skrárinnar. Til að kennsl verði borin
á lík eða líkamsleifar sem finnast er
afar mikilvægt að haldin sé fullkom-
in skrá um horfna menn og upplýs-
ingum haldið um þá á einum stað.
„Skráin er hjá kennslanefnd af því
að við höfum það hlutverk að bera
kennsl á óþekkt lík og líkamsleifar
sem finnast.“
Kennslanefnd starfar eftir reglu-
gerð 350/2009, leiðbeiningum frá
Interpol og starfslýsingu Ríkislög-
reglustjóra. Í nefndinni sitja rann-
sóknarlögreglumenn, tæknimenn
lögreglu, þar á meðal sérfræðingur
á líftæknisviði, réttarlæknir, réttar-
tannlæknir og meinafræðingur.
Nefndin er kölluð til þegar lík eða
líkamsleifar finnast og þá fer mjög
formlegt ferli í gang. Hún fer jafnvel
á vettvang, er viðstödd krufningu og
vinnur úr gögnum sem koma fram
við rannsókn lögreglu og nefndar-
innar. Nefndin kemur svo saman
á fundi þar sem sérfræðingar gera
grein fyrir niðurstöðum sínum.
Þeir þurfa að komast að samhljóða
niðurstöðu og þegar hún liggur fyrir
er gefið út vottorð um að kennsl
séu staðfest. Eitt þriggja aðalskil-
yrða fyrir því að borin séu kennsl
á látinn einstakling þarf að vera
fyrir hendi. Það eru upplýsingar
um tennur, fingraför eða erfðaefni
(DNA). Viðbótarskilyrði geta verið
læknisfræðilegar upplýsingar, upp-
lýsingar úr tæknirannsókn og upp-
lýsingar frá ættingjum.
Hverjir fara á skrána?
Það er hlutverk lögreglunnar að fara
með rannsókn mannshvarfa. Leiði
rannsókn í ljós að viðkomandi er
horfinn og talinn látinn er kennsla-
nefnd tilkynnt um hvarfið. Nefndin
færi ítarlegar upplýsingar um við-
komandi sem skráðar eru á sérstakt
eyðublað sem byggir á stöðlum
Inter pol.
Lögregla aflar umræddra upp-
lýsinga hjá ættingjum hins horfna.
Eyðublaðið er margar blaðsíður
og á það eru skráðar upplýsingar
sem nýtast kennslanefnd við að
bera kennsl á viðkomandi: nafn,
fæðingar dagur, sérkenni eins og
húðflúr, ör, gervilimir og upplýs-
ingar um hver var læknir og tann-
læknir viðkomandi. Í dag er líka
tekið DNA-strok, helst hjá móður.
Á listanum er fólk af ýmsum þjóð-
ernum sem týnst hefur hér á landi.
Tveir eru skráðir á listann sem
hurfu erlendis; annar árið 2013 og
hinn fyrr á þessu ári. Gylfi skýrir
þetta þannig að í ríkjum sem hafa
ekki trausta innviði, til dæmis þar
sem stríð hafa geisað, sé ekki unnt
að treysta því að haldið sé með
fullnægjandi hætti utan um þessar
upplýsingar. Því sé talið öruggara að
Hvar er Willy Petersen?
Bjarki Hólmgeir Hall, sem legið
hefur yfir mannshvörfum um ára
bil og heldur úti síðunni manns
hvorf.is og er með bók um þau
efni í smíðum, lagðist yfir lista
kennslanefndar um leið og hann
var birtur. Hann segist hissa á því
að nokkuð mörg nöfn á hans lista
séu ekki skráð hjá lögreglunni.
„Ég skil ekki af hverju þeir eru
ekki með Willy Petersen á sínum
skrám, enda var það lögreglumál
á sínum tíma.“
Willy Petersen hvarf snemma í
september 1974. Vitað er að Willy
hringdi í vin sinn um miðjan dag
en símtalið slitnaði. Síðan hefur
hvorki vinurinn né aðrir ætt
ingjar heyrt frá Willy. Af gögnum
Geirfinnsmálsins er þó ljóst að
lögreglan hafði mál Willys til
rannsóknar á þessum tíma
því mappa um mál hans
fylgdi málsgögnum Geirfinns
máls en varð viðskila við þau
síðar. Mun lögregla hafa spurt
Sævar Ciesielski um Willy og
nafn hans er einnig nefnt í
yfirheyrslum yfir Kristjáni
Viðari Júlíussyni og þess getið
að Willy hafi horfið um svipað
leiti og Geirfinnur og ekkert til
hans spurst síðan.
Aðspurður kannast Gylfi
Gylfason hjá kennslanefnd
ekki við nafn Willys og segir
nafn hans ekki á skrám. Það
kemur Bjarka mjög á óvart.
Aðspurður segist Bjarki að
sjálfsögðu upplýsa lögreglu
um einstök tilfelli sem ekki
eru á skrá hennar, leiti lögregla
til hans með fyrirspurnir.
✿ 120 einstaklingar eru skráðir horfnir hér á landi, þar af hafa 64 horfið á sjó
1940
1 1 1 1
1
1
1 12 2 2
2 2 2 2 2
3 3
1
2
2
1 1 2 2 21 1 1
1
51
1 1
1 1
2 5
1970
2000
1950
1980
2010 2018
1960
1990
Horfnir
á landi
Horfnir
á sjó
1
32
1
4 13 2 2 5 1
1
1 2
5
4
3 7 3 2
Fjöldi
tilvika
halda upplýsingum um viðkomandi
í skrám hér á landi. Orsakir þeirra
mannshvarfa sem skráð eru hjá
kennslanefnd eru ýmsar; sjóslys,
slæm veður og voveiflegir atburðir.
Á listanum má til dæmis finna rúm-
lega þrítugan karlmann sem týnd-
ist í Keflavík árið 1974. Sama ár er
skráður 18 ára piltur sem hvarf í
Hafnarfirði. Þeir sem þekkja til geta
þarna borið kennsl á Guðmund og
Geirfinn Einarssyni. Þeir eru týndir
samkvæmt horfinnamannaskrá,
enda hafa lík þeirra aldrei fundist.
Niðurstaða Hæstaréttar breytir því
ekki.
Þeir sem ekki eru á skránni
Hin formlega horfinnamannaskrá
kennslanefndar er hins vegar ekki
eina skrá landsins um horfið fólk.
Bjarki Hall, einn þeirra einkaspæj-
ara sem fyrr var vísað til, heldur
úti síðunni mannshvorf.is. Á lista
Bjarka má finna nöfn sem ekki eru
á horfinnamannaskrá. Fréttablaðið
spurði Gylfa hvort hann hefði séð
lista Bjarka og hverju þetta mis-
ræmi gæti sætt. Gylfi segir málið
flóknara en svo að safna megi
saman öllum sem týnst hafa og
setja saman lista. Sumir geti reynst
á lífi í öðrum löndum, borin hafi
verið kennsl á líkamsleifar annarra
án þess endilega að greint hafi verið
frá því opinberlega og einhverjir séu
jafnvel skráðir í sambærilegar skrár
erlendis sé talið að þeir hafi horfið
þar. Kennslanefnd sé kunnugt um
málin og hafi upplýsingar um hina
erlendu skráningu.
„Listinn sem birtur var nýverið
er ekki endanlegur og verður hann
uppfærður reglulega,“ segir Gylfi.
Lögreglan taki enn við ábendingum
frá fólki, eftir að listinn var birtur.
Unnið sé að því að sannreyna þær
og að viðkomandi einstaklingar
séu í raun og veru týndir. Gylfi segir
þetta geta verið mikla vinnu og
tímafreka. Áratugagömul manns-
hvörf eru erfiðust og þótt listinn
byggi á eldri skrám lögreglu séu
upplýsingar í mörgum tilvikum
bæði gamlar og oft mjög ófull-
komnar. Í sumum tilvikum hafi ef
til vill aldrei verið formlega tilkynnt
um mannshvarf og lögregla jafnvel
bara skráð upplýsingar í dagbók
sína. „Unnið hefur verið að því að
færa eldri mál inn í nýja skrá og
áfram er unnið í upplýsingaöflun í
þeim tilgangi að bæta skrána.“
Gylfi segir að reglulega sé haft
samband við lögreglu vegna lík-
amsleifa eða beina sem talin eru af
manni. Öll bein fari í rannsókn og
oft komi í ljós að um dýrabein sé að
ræða. Sé niðurstaðan eftir rannsókn
að líkamsleifar séu af manni eru þær
sendar í aldursgreiningu og séu þær
ekki of gamlar, frá miðöldum til
dæmis, geti nákvæm skráning í skrá
Listinn sem birtur var
nýverið í ársskýrsLu
ríkisLögregLustjóra
er ekki endanLegur
og verður uppfærður
regLuLega.
Gylfi Gylfason,
formaður
kennslanefndar
8 . s e p t e M b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r34 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
0
8
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
4
-7
9
9
8
2
0
C
4
-7
8
5
C
2
0
C
4
-7
7
2
0
2
0
C
4
-7
5
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
7
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K