Fréttablaðið - 08.09.2018, Page 84
Ég er komin í borgina og með annan fótinn út úr henni aftur,“ segir Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir þjóðfræð-ingur sem er sextug í dag. „Við hjónin fluttum búferl-
um frá Ísafirði í fyrrahaust en nú var
maðurinn minn að ráða sig sem kennara
við Menntaskólann á Laugarvatni. Ég er
bara í sjálfstæðum verkefnum sem rit-
höfundur og fræðimaður og get unnið
hvar sem er.“
Ólína er dóttir Þorvarðar Kjerúlf Þor-
steinssonar og Magdalenu Thoroddsen.
Hún kveðst hafa slitið barnsskónum í
Reykjavík og gengið í Hlíðaskóla. „Ég
flutti á Ísafjörð fjórtán ára þegar pabbi
var ráðinn þar sýslumaður. Svo gekk ég í
Menntaskólann á Ísafirði og kynntist þar
manninum mínum. Við vorum einn vetur
á Húsavík eftir stúdentspróf, kenndum
þar einn vetur og fórum svo í háskólanám
til Reykjavíkur. Fluttum vestur aftur 2001
þegar ég var ráðin skólameistari Mennta-
skólans á Ísafirði. Svo varð ég alþingis-
maður 2009. Eftir að þingmennskunni
lauk fluttum við suður. Þetta hefur verið
svona kaflaskipt hjá okkur.“
Eiginmaður Ólínu er Sigurður Péturs-
son sagnfræðingur og á Laugarvatni
ætlar hann að kenna sögu og félagsgrein-
ar, að sögn Ólínu. Sjálf er hún að skoða
elstu heimildir um íslenskar lækningar
og vonar að niðurstöður rannsóknar
hennar líti dagsins ljós, í formi bókar,
innan tíðar. En hver eru helstu áhuga-
málin fyrir utan fræðin?
„Útivist, hundar og hestar. Ég og björg-
unarhundurinn minn hann Skutull
höfum verið leitarteymi á útkallslista
Landsbjargar í fjöldamörg ár. Eigum að
baki eitthvað á fimmta tug útkalla og
mörg hundruð æfinga. Eftir að ég hætti í
hestamennskunni fór ég í hundana, eins
og ég orða það stundum. Svo er tónlistin
mikill gleðigjafi í mínu lífi og ég syng í
kvennakórnum Cantabile sem Margrét
Pálmadóttir stjórnar.
Ætlarðu að halda upp á afmælið? „Já,
ég held upp á það á föstudagskvöldið
með nánum vinum og samstarfsfólki,
svo það teiti verður afstaðið þegar þetta
viðtal birtist. En ég ætla á tónleika að
kvöldi afmælisdagsins (í kvöld) með
eiginmanninum. Við ætlum að hlusta á
Helga Björns, skólabróður okkar, eins og
fleiri Ísfirðingar sem munu fjölmenna
þangað. Auk þess verður sennilega lítið
kökuboð fyrir barnabörnin um helgina,
svo þau fái líka afmælisveislu með ömmu
sinni.“ gun@frettabladid.is
Ólína fagnar nýjum
áratug á Suðurlandi
Útivist, hundar og hestar eru helstu áhugamál Ólínu sem er á útkallslista hjá Landsbjörg. FréttabLaðið/Sigtryggur ari
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Theodór Jóhannesson
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk
mánudaginn 3. september.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Björn Theodórsson Valgerður Kristjónsdóttir
Helga Theodórsdóttir Örn Friðrik Clausen
barnabörn og langafabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Unnsteinn Þorsteinsson
Miðleiti 3,
lést föstudaginn 31. ágúst á
Landspítalanum í Fossvogi. Útför
hans fer fram frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 13. september kl. 15.00.
Rut Árnadóttir
Þorsteinn Unnsteinsson
Árni S. Unnsteinsson Anna Guðmundsdóttir
Sigurlaug K. Unnsteinsdóttir Þorsteinn J.J. Brynjólfsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Sigurðar Karls Leóssonar
Sérstakar þakkir fyrir góða umönnun
fá læknarnir Friðbjörn Sigurðsson,
Nicholas Cariglia og hjúkrunarfræðingar Heimahlynningar
á Akureyri.
Hólmfríður Guðmundsdóttir
Lára Ósk Sigurðardóttir Jóhannes H. Ásbjarnarson
Ingunn Karen Sigurðardóttir Jóhann Sigurðsson
Bryndís Gunnarsdóttir Bjarni Jónsson
Guðmundur Viðar Gunnarsson Margrét Svanlaugsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Katrín Stella Briem
Mörkinni, Suðurlandsbraut 58,
áður Laugarásvegi 54,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi 27. ágúst sl. Útförin fer fram
frá Bústaðakirkju föstudaginn 14. september klukkan 15.00.
Friðrik Á. Guðmundsson Rúna Hauksdóttir Hvannberg
Pétur Alan Guðmundsson
Snorri Örn Guðmundsson Lisa Knutsson
Rúna Friðriksdóttir Mattia Pozzi
Katrín Stella Briem Friðriksdóttir
Maja Snorradóttir
Arna Snorradóttir
Leo Guðmundur Leif Snorrason
Kærar þakkir færum við öllum
þeim sem sýndu okkur hlýju og
samhug við andlát og jarðarför
Hiltrudar Hildar
Guðmundsdóttur
sem jarðsett var á Akranesi þriðjudaginn
4. september síðastliðinn.
Guðmundur Guðmundsson
börn, tengdabörn og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir okkar og amma,
Kristjana Jóna
Brynjólfsdóttir
frá Broddadalsá,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
á Hólmavík 1. september.
Útför hennar fer fram frá Hólmavíkurkirkju
13. september kl. 14.
Brynja Guðbjörg Valgeirsdóttir
Sæmundur Gunnarsson Guðrún Gígja Karlsdóttir
Hafdís Gunnarsdóttir Hjörtur Númason
Brynjólfur Gunnarsson Fanney Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Kransar, krossar og
kistuskreytingar
Blóm í miklu úrvali
Vefverslun:
Bjarkarblom.is
Ólína Þorvarðardóttir,
þjóðfræðingur og fyrrver-
andi þingmaður, er sextug
í dag. Hún hefur flakkað
milli Reykjavíkur og Ísa-
fjarðar. Nú hefur hún upp-
götvað Suðurlandið.
Ég er í sjálfstæðum verk-
efnum sem rithöfundur
og fræðimaður og get unnið hvar
sem er.
8 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r40 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
0
8
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
C
4
-4
8
3
8
2
0
C
4
-4
6
F
C
2
0
C
4
-4
5
C
0
2
0
C
4
-4
4
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
1
2
s
_
7
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K