Fréttablaðið - 08.09.2018, Side 85
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5407.
Vonandi þekkir fólk sjálft sig eða ættingja sína hér á veggjum safnsins. Mynd-irnar eru unnar upp af glerplötum og væntan-lega eru pappírsmyndirn-
ar til á hinum ýmsu heimilum. Kannski
uppi í hillu hjá ömmu,“ segir Kristín
Halla Baldvinsdóttir, sérfræðingur á
Þjóðminjasafni. Þar verður opnuð grein-
ingarsýning í dag á myndum eftir Alfreð
Dreifus Jónsson sem rak ljósmyndastofu
í Reykjavík á árunum 1931-1952, fyrst á
Klapparstíg 37 og síðan á Laugavegi 23.
„Þetta eru óþekktar myndir sem
Ljósmyndasafni Þjóðminjasafnsins
voru gefnar til varðveislu af erfingjum
Alfreðs. Hluti safnsins er skráður en þær
myndir sem hanga hér á veggjum eru
allar ómerktar og eru ábyggilega nærri
þúsund talsins. Allt mannamyndir.
Alfreð var alþýðuljósmyndari, það er
ekki margt þekkt fólk í hans safni. Við
vonum að einhverjir geti hjálpað okkur
með greiningu á myndunum, áður en
það verður um seinan. Erum með blöð
sem við biðjum fólk að fylla út.“
Áður hefur Þjóðminjasafnið verið
með álíka gamlar myndir á greiningar-
sýningum, þó aðallega af bæjum og
stöðum, að sögn Kristínar Höllu. „Fólk
var okkur mjög hjálplegt við að merkja
þær. Það hafa allir gaman af gátum svo
sýningarnar gáfust vel og vöktu lukku,“
segir hún. „En við höfum sjaldan verið
með jafn margar myndir í salnum og
nú. Við prentuðum þær út á renninga
og þetta er bara eins og mósaík á veggj-
unum. Fólk getur varið hér deginum og
komið aftur og aftur og skráð niður á þar
til gerð blöð það sem það.“
Kristín Halla getur þess að samhliða
sýningunni verði óþekktar myndir
Alfreðs settar inn á vefinn sarpur.is og
þar verði einnig settar inn greiningar á
myndunum jafnóðum og þær koma. En
er ekki erfitt að sannreyna hvort fólk
hefur rétt fyrir sér eða ekki? „Við treyst-
um því að fólk þekki foreldra sína, afa
og ömmur. Svo erum við með stórt safn
mannamynda fyrir og getum tvítékkað í
því, ef við erum komin með nafn.“
Sýningin er á jarðhæðinni, rétt hjá
kaffihúsinu og ókeypis er inn á hana.“
gun@frettabladid.is
Kannski á hillu hjá ömmu
Hver er á myndinni? nefnist greiningarsýning í Þjóðminjasafninu sem opnuð er í dag.
Þar eru myndir af fólki sem safnið vantar nöfn á, teknar af Alfreð D. Jónssyni.
Hverjar skyldu þær vera, þessar ungu dömur? Mynd/Alfreð d. Jónsson
Þekkir þú þessa myndarlegu fjölskyldu? Mynd/Alfreð d. Jónsson
Kristín Halla bindur vonir við að þjóðin hjálpi henni að þekkja fólkið á myndunum. fréttAblAðið/Anton brinK
Ástkær sambýlismaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Hörður Garðarsson
Háteigi 21b, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
þriðjudaginn 4. september. Útförin fer
fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn
11. september kl. 13.
Elísabet Jensdóttir
Kristján Gunnarsson Guðrún Jóna Jónsdóttir
Garðar Haukur Gunnarsson Harpa María Sturludóttir
Gunnar I. Gunnarsson Sigfríður H. Sólmundard.
Sigríður Gunnarsdóttir Sveinn Júlíus Adolfsson
Ásta Gunnarsdóttir Emil Ágúst Georgsson
Sólveig Jónsdóttir
Jóel E. Gunnarsson Inga Steinunn Ágústsdóttir
Guðmundur R. Gunnarsson Guðrún Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug og
hinum látna virðingu við andlát og
útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Helga Þrastar Valdimarssonar
Guðrún Agnarsdóttir
Ásgeir Rúnar Helgason
Valdimar Helgason Helena Margrét Jóhannsdóttir
Birna Huld Helgadóttir Timothy Sebastian Perris Moore
Agnar Sturla Helgason Anna Rún Atladóttir
Kristján Orri Helgason Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Ólafur Ingi Jónsson
Heiðarbrún 6, Keflavík,
lést þriðjudaginn 28. ágúst.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju,
föstudaginn 14. september kl. 13.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á björgunarsveitirnar.
Helga Jakobsdóttir
Jón Gunnar Ólafsson
Hjördís Ólafsdóttir Brynjar Freyr Níelsson
Eiríkur Ingi Ólafsson Sæunn Reynisdóttir
Ólafur Frosti Brynjarsson
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð og vinarhug við andlát og útför
okkar ástkæru móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Huldu Sigríðar Ólafsdóttur
áður Básenda 1.
Hallgrímur Jónasson Guðríður Kristófersdóttir
Guðrún Jónasdóttir Eiríkur Páll Eiríksson
Helga Jónasdóttir
Elísabet Jónasdóttir
Ólafur Jónasson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, fósturfaðir,
tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
Óli Sveinn Bernharðsson
vélstjóri, Birkihlíð 21,
áður Hátúni 10, Vestmannaeyjum,
lést hinn 23. ágúst á sjúkrahúsi á
Tenerife. Útför hans fer fram frá Landakirkju í
Vestmannaeyjum þann 15. september kl. 14.
Bernharð Ólason Soffía Eiríksdóttir
Hafþór Ólason Bryndís Hauksdóttir
Hrafnhildur Hlöðversdóttir Brynjólfur Sigurðsson
og fjölskyldur.
t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ðT T T T 41L a U G a R D a G U R 8 . s e p T e m B e R 2 0 1 8
0
8
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
4
-5
7
0
8
2
0
C
4
-5
5
C
C
2
0
C
4
-5
4
9
0
2
0
C
4
-5
3
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
1
2
s
_
7
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K