Víkurfréttir - 27.08.1981, Qupperneq 5
Fimmtudagur 27.ágúst 1981
5
VÍKUR-fréttir
Eigendur Videobanka Suðurnesja, Björn Ólafsson (t.v.) og
Gísli Guðfinsson.
Videobanki Suðurnesja
Ný videoleiga hefur tekið til
starfa að Suðurgötu 19A í Kefla-
vík, undir nafninu Videobanki
Suðurnesja. Eigendur hennar
eru Björn Ólafsson og Gísli Guð-
finnsson. Blaðið hafði tal af þeim
félögum og spurði þá í hverju
Þjónusta þeirra væri fólgin.
..Videobanki Suðurnesja er
fyrsti svokallaði banki með video
spólur, þar sem ekki þarf að
kaupa sérstaka tegund mynd-
segulbands til að verða félags-
maður. VBS veitir félagsmönn-
um sínum kost á mun ódýrari
þjónustu en áður hefur tíðkast.
Gjald fyrir hverja þrjá mánuði
miðast við verð á einni spólu, eða
kr. 1.000, þannig að hver félagi
telst eigandi spólunnar þann
tíma. Upp í gjaldið er hægt að
setja fyrsta flokks óhreyföar
áteknar spólur, sem metnar
verða á hæsta verði. Starfsemi
VBS er fólgin í þvi að stjórna
myndaskiptum milli félaga.
Félagsmenn eiga kost á að fá
eina spólu á dag, alla daga nema
sunnudaga. Hámarkið er þó 50
spólur á hverju þriggja mánaða
tímabili. Lögð verður sérstök
áhersla á að hafa gott og fjöl-
breytt efni. Eingöngu félags-
menn geta fengið spólur í bank-
anum og stefnt er að því að hafa
u.þ.b. 50 spólum fleiri við hvort
kerfi heldur en félagsmenn eru
hverju sinni, þannig að þaðgefur
auga leið að stórkostlegt úrval
verður alla daga. Til að gefa
video-eigendum góða hugmynd
um kosti þessafyrirkomulags má
benda á, að ef félagsmaður nýtir
rétt sinn að fullu, þá er kostnað-
ur hans aðeins 20 krónur á spólu,
sem sýnir að ekki nokkur video-
eigandi getur látið þetta tækifæri
fram hjá sér fara," sögðu þeir fé-
lagar að lokum.
Þess má einnig geta að þeir
hafa einnig til sölu SONY og
PANASONIC sjónvörp og mynd-
segulbandstæki og einnig
TECHNICS hljómflutningstæki.
Þá gerir Videobankinn tilboð í
uppsetningu videokerfa í einstök
hús og fjölbýlishús. Þá er veittur
góður staðgreiðsluafsláttur.
Videobankinn er opinn
mánudaga til fimmtudaga kl. 13-
18 og 19.30-22, föstudaga og
iaugardaga kl. 10-12 og 13-18.
Skipsstrand í
Togarinn Aðalvík KE tók niðri
á skeri við innsiglinguna í Njarð-
víkurhöfn um miðjan dag á
miðvikudaginn í síðustu viku.
hæst tíðni
Framh. af 1. síöu
anum að jafnaði sé Suðurnesja-
maður.
Menn hafa velt því fyrir sér
hvers vegna Suðurnesjamenn
séu með þetta háa tíðni hjartatil-
fella, en ekki komist að neinni
niðurstöðu, en það skyldi þóekki
vera skyldleiki með þessu, að
Suðurnesin eru ýmist í efsta eða
neðsta sæti varðandi meðaltekj-
ur á mann hér á landi? Eða er
orsökin sú, aðhérsémeira stress
en annars staðar? Um það vildu
Þeir sérfræðingar í þessum mál-
om, sem blaöið náði sambandi
við, ekkert segja til um, en eins
og áðursegirvildu þeirekki stað-
festa þetta, án þess þó að neita
þessu, og bentu hver á annan.
Njarðvík
Aðalvíkin var með togarann
Bergvík við síðuna og var að
draga hana yfir í Njarðvík þar
sem hún átti að fara í slipp, en
bæði skipin eru í eigu Hraðfrysti-
húss Keflavíkur hf.
Togarinn Bergvík hafði legið
vélarvana í Keflavíkurhöfn í
nokkra daga. Átti Aðalvíkin
skammt ófarið er hún steytti á
skeri við innsiglinguna í Njarð-
víkurhöfn. Fá þurfti m.b. Ólaf
Inga KE, sem er í eigu Stafness
hf., Keflavík, til að draga togar-
ann áflot. Litlarskemmdirurðuá
Aðalvíkinni og hélt hún til veiöa
um kvöldið, en Bergvíkin vareins
og fyrirhugað var, tekin upp hjá
Skipasmíðastöð Njarðvíkur til
viðgerðar.
Orsök óhappsins er talin vera
þau, að háfjara var og þar sem
skipin voru hlið við hlið hafi þau
ekki farið nógu nálægt innsigl-
ingarmerkinu sem þarna er, og
því fór sem fór. Litlu mun hafa
munað að báðir togararnir yrðu
úr leik.
Miðnesingar
Sandgerðingar
2. gjalddagi útsvars og að-
stöðugjalda er 1. sept. n.k.
Gerið skil á gjalddaga og forð-
ist kostnað og önnur óþæg-
indi.
Sveitarstjóri
Tilboð óskast
í að rífa húseignina Hafnargötu 35 (gamla skó-
verkstæðið).
Lysthafendur hafi samband við Jón Þorsteinsson í
síma 2238.
Áhugafólk um skíðaiðkun
á Suðurnesjum hefur ákveðið að stofnafélag, sem
vinni að útbreiðslu íþróttarinnar með skipulögð-
um hætti og setji ákveðnar reglur þar að lútandi.
Stofnfundur verður haldinn mánudaginn 31. ágúst
n.k. kl. 20 í félagsheimilinu Vík.
Örfá sæti laus
í septemberferðirnar til Mallorca, þ.e. 15. og 29.
sept.
Seljum flugfarseðla hvert sem er, og sjáum um
pöntun á hótelum. Auk þess útvegum við miða á
alls konar sýningar og leiki.
ATLANTIK
Umboö - Vatnsnesvegi 14 - III. hæö
Sími 2900 - Keflavík
AMSTERDAM
Ódýrar ferðir alla fimmtudaga.
Útvegum gistingu á góðum hótelum.
ISCARGO-umboöiö
Vatnsnesvegi 14 • III. hæö
____________Simi 2900 - Keflavik_
íbúð til sölu
3ja herbergja íbúð til sölu í fjölbýlishúsi í góðu
stigahúsi. íbúðin er í góðu ásigkomulagi. Getur
verið laus fljótlega ef samið er strax.
Uppl. gefur Sigurjón í símum 2968 og 1760.