Víkurfréttir - 05.11.1981, Page 10
10 Fimmtudagur 5. nóvember 1981
VÍSOJR-ffréttir
Skíöafófe
Aðalfundur (stofnfundur) Skíðafélagsins á
Suðurnesjum varður haldinn mánudaginn 9.
nóvember n.k. kl. 20.30 í sal Gagnfræðaskóla
Keflavíkur. - Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla undirbúningsstjórnr
2. Tillaga að lögum félagsins
3. Kosning aðalstjórnar félagsins
4. Önnur mál.
Allir aldurshópar hvattir til að mæta á stofn-
fundinum.
Undirbúningsstjórnin
TORG-ÍS
Hafnargötu 59 - Keflavík
NÝTT!
Heitt súkkulaði með ís eða rjóma.
Langlokur, 5 teg. - Samiokur, 4 teg.
Rúnnstykki m/skinku og osti.
Allar gerðir af ístertum og pakkaís
bæði frá M.S. og Kjörís.
Pantið terturnar tímanlega fyrir jólin.
TORG-Í©
Hárgreiðsla
Hef opnað hárgreiðslustofu að Vatnsnesvegi
17, Keflavík. - Tímapantanir í síma 2478.
Helga Harðardóttir
Gerum föst tilboð í
mótauppslátt, utanhúss-
klæöningar, þakviögerðir
og aðra trésmíöavinnu.
Bygglngaverktakar Skrifstofan er opin alla virka
Hafnargötu 17, Keflavík da frá ki 10_12
Sfml 3911
HITAVEITÁ
SUÐURNESJA
Þjónustu-
sfminn er
3536
Næsta blað kemur út
fimmtudaginn 19. nóvember.
MANNVIRKI SF
Wm^M'(ÆmiS/
fpl ' 'W-J IPW - 1 Jt " J mt * 1 r f' ý ■ . Á - " 4 W
13 hlutverk eru í Rauöhettu
Refur í kjólfötum?
Leikfélag Keflavíkur sýnir Rauðhettu
Líklega þekkjum við flest
ævintýrið um hana Rauðhettu,
litlu stúlkuna sem ætlaði að færa
ömmu sinni matarbita, en var
þess í stað étin af úlfinum vonda.
Þessi saga hefurfyígt uppvaxtar-
árum margra kynslóða, samt
sem áður virðastvinsældirhenn-
ar ávallt jafn miklar. Auk þeirra
Rauðhettu, úlfsins og ömmunn-
ar, muna flestir eftir veiðimann-
inum hugprúða, sem bjargaði
Rauðhettu og ömmunni úr kviði
úlfsins. Það er hins vegar ekkert
sem bannar að hugmyndaríkir
rithöfundar leiki sér dálítið meö
þetta skemmtilega ævintýri. Það
hefur líka verið gert. Einn þeirra
er náungi sem heitir Évani
Schwarz.
13 HLUTVERK
í handriti Schwarz rekumst við
á mun fleiri persónuren þærsem
að framan eru nefndar. Þannig
þurfti að finna leikara í 13 híut-
verk, þegar Leikfélag Keflavíkur
ákvað að taka Rauðhettu til sýn-
ingar. Schwarz þessi bætti nefni-
lega ýmsum nýjum dýrum inn í
handrit sitt. ( þeirri sögu hefur
Rauðhetta eignast margs konar
vini i skóginum dularfulia. Fugi-
arnir og önnur vinsamleg og
hjálpfús dýr reyna eftir mætti að
koma henni til aðstoðar. Enda er
það ekki bara úlfurinn sem er á
eftir henni, heldur hefur ófrýni-
legur refur bæst í hópinn.
Fullvíst má telja að leikritið sé
afar spennandi, enda hefur leik-
félagið tekið upp á ýmsum nýj-
ungum. T.d. eru búin tii ýmis
konar hljóð og fuglasöngur á
segulbandi. Þar að auki mun
hljómsveitin BOX spiia undir í
söngatriðum.
FRUMSÝNING 7. NÓV.
Leikriti þessu stjórnar Þórir
Steingrímsson. Nú, og með aðai-
hlutverkin fara þau Jóhann
Gíslason, Árni Ólafsson, Bjarney
Gísladóttir, ingibjörg Flafliða-
dóttir og Hjördís Árnadóttir. Að
sögn Dagnýjar Haraldsdóttur,
formanns L.K., er þetta frábær
sýning, enda vonast hún til aö„
sýningin gangi í svona 10-11
skipti og þá auðvitað fyrir fullu
húsi.
Sagði Dagný ennfremur, að
þegar leikritið yrði frumsýnt
þann 7. nóvember, væri búið að
æfa í 8-9 vikur. Lagði hún síðan
áherslu á að leikritið væri fyrir
alla fjölskylduna, þó svoaðyngri
kynslóðin hefði mest gaman af
því.
Þessir strákar heita Siguröur Einar Marelsson (t.v.) og Davíö Óðinn
Bragason. Þeir héldu hlutaveltu að Greniteig 26 í Keflavík til styrktar
Sjálfsbjargar á Suðurnesjum og söfnuðu 130 kr.