Verslunartíðindi - 01.06.1931, Qupperneq 5
VERSLUNARTÍÐINDÍ
sí^andi erfiðleikum, verður jafnvægið þó
stinunnið, eins og komið er. Er því bestu
og vitrustu mönnum þjóðai'innar skylt
að leggja sjerstaklega fram krafta sína
og hyggjuvit til þess að finna ráð til að
ljetta landslýðnum átakið. Hljóta allir
þar fyrst og fremst að hvarfla augum
og huga til Alþingis, sem nú situr, og
ríkisstjórnarinnar.
Mörgum hefir þótt óviturlega og gá-
lauslega vera um fjárfar ríkisins und-
anfarandi ár og hafa þeir víst nokkuð til
síns máls. Og engum dylst að all-óvæn-
lega horfir um fjárhagsafkomu ríkisins,
einmitt nú, þegar mest á ríður um styrka
hönd til þess að styðja atvinnuvegi lands-
manna yfir kviksyndi kreppunnar. En
eigi skal sakast um það, sem orðið er,
heldur treysta því, að þeir nýju kraftar,
sem Alþingi hefir öðlast og ríkisstjórnin
mun öðlast, finni úrræði til fjáröflunar
til óhjákvæmilegra þarfa og nauðsyn-
legra framkvæmda ríkisins, önnur en
þau, sem hingað til hafa venjulegast ver-
ið að mergsjúga atvinnuvegi og einstak-
linga þjóðfjelagsins með gamalli og nýrri
skattaskrúfu. Það, sem enn er kunnugt
um ráðstafanir núverandi stjórnar í
þessu efni, spáir að ví'su engu góðu um
ljetti núverandi skattabyrðar, en væntan-
lega vinna nýju kraftarnir, er þeir koma
til, bug á eldra sleyfarlagi, ef um slíkt
kann að hafa verið að ræða.
Bómullariðnaður Englendinga.
Hagfræðisskýrslur um utanríkisversl-
un Stóra-Bretlands fyrra missiri þessa
árs eru nýútkomnar, og var ekki búist
við neinni sjerstaklega góðri útkomu á
þessum krepputímum, sem nú ráða í
heiminum. Harðast hefir kreppan kom-
ið niður á atvinnuvegum heimsins og þá
47
sjerstaklega á enska bómullariðnaðin-
um, sem mestmegnis hefir þrifist af út-
lenda markaðinum. Bómullarútflutning-
urinn nam hjer um bil 28 milj. £ fyrra
missiri þessa árs og hefir honum hrr.k-
að um 23% milj. £ samanborið við fyrra
missirið í fyrra. Að vísu er aðstaðan ekki
eins slæm og i fljótu bragði sýnist, ef
athugað er, hve allar vörur hafa lælck-
að í verði, en líti menn á, hvað útíiutt
er af álnavöru, er útkoman alt annað en
glæsileg. Sannleikurinn er sá, að fyrstu
6 mánuði ársins 1931 voru fluttir út 848
milj. kvaðrat-yards af öllum tegundum
af álnavöru, en 1930 voru fluttir út 1487
miljónir.
Það er þess vert að athuga, hvernig
þessi lækkun verkar á gildi bómullar-
hlutanna. Enska vikuritið „Investors
Chronicle and Money Market Review“
hefur safnað ýmsum drögum, sem sýna
hversu slæmt árferði tvö síðustu ár-
in í bómullariðnaðinum, og vonin um að
úr mundi rætast undanfarnar vikur, hafa
verkað á hlutfjármarkaðinn. — Samfara
þessari von er það mikilvægt atriði, að
vísitala heildsöiuverðsins hækkaði, í
fyrsta skifti í marga mánuði, í lok júní-
mánaðar. Ofannefnt vikurit hefur unn-
ið yfirlit úr 176 verðbrjefum, sem ná
bæði yfir iðnaðarhlutabrjef og góð
skuldabrjef og metið markaðsgildi þeirra
í lok desember 1923 á 100 points. Sam-
kvæmt þessum útreikningi var gildi
vefnaðarhlutabrjefa (mestmegnis bóm-
ullarhlutabrjef, (en silki er ekki talið
með), 100 í lok 1923. í árslok 1924 var
það 124, 1925 122, 1926 102, 1927 aft-
ur 100, 1928 87, 1929 41 og sömuleið-
is 41 árið 1930. Eftir síðustu töluna, nfl.
í desember 1930, var maímánaðartalan
28 lægst, en í lok júní var hún komin
upp í 33.
Þessi lækkun stafar, að líkindum að