Verslunartíðindi - 01.06.1931, Síða 12
54
VERSLUNARTÍÐINDI
hafa verið gerðar upptækar, og er þetta
farið að Ieiða til allmikils fjárgróðabralls.
Hefir sjerstakur steinolíubörs verið mynd-
aður í París, og eru þar mikil viðskifti með
meira og minna vafasamar stenolíulindir
í Rússlandi og eignarrjett á þeim. Eru það
Englendingar, Amríkanar og jafnvel ind-
verskir furstar, sem bjóða í þessi verð-
brjef. Er fyrirsjáanlegt að það verður all
flókið að skifta þessum miljónum á milli
allra þessara eigenda.
Siglingar Dana.
Skýrsla er nú komin út um siglingar
Dana 1930.
Við flotann hefir bætst það ár 58
skip, 66,394 b.r.t., og er hann þá nú sam-
tals 1997 skip, 1,157,479 b.r.t. Á síðustu
árum hefir tala mótorskipa farið vax-
andi, gufuskip staðið nálega í stað, en
seglskipum hefir mikið fækkað. Af eft-
irfarandi yfirliti má sjá, hverjum breyt-
ingum flotinn hefir tekið á síðustu ár-
um: —
Gufuskip
pct. tala b.r.t.
1. jan. 1927 29.4 21.2
1. — 1928 29.0 68.9
1. — 1929 28.4 65.0
1. — 1930 27.9 64.4
1. — 1931 27.3 60.9
Nótorskip Seglskip
tala b.r.t. tala b.r.t.
51.4 24.1 19.2 4.7
53.9 26.9 17.1 4.2
56.8 31.2 14.8 3.8
59.8 32.5 12.3 3.1
63.8 36.9 8.8 2.2
Samanborið við önnur lönd hafa Dan-
ir tiltölulega mörg mótorskip, og eins er
þorri skipanna tiltölulega nýr, því að í
fyrra voru 23,8 pc. af skipastólnum
undir 6 ára gamall við lok ársins, en
skipastóll heimsins 16,5 pc.t.
Með því að árið 1929 var mjög hag-
stætt fyrir skipaeigendur, tóku þeir að
Útvega sjer fleiri skip, og er það ein or-
sökin til þess, að burðarmagnið jókst
mjög árið 1930, þótt það á hinn bóginn
komist hvergi nærri til jafns við aukn-
inguna í Noregi og Svíþjóð, en hún var
þar 87000 og 457.000 B. R. T.
En vonir þær, sem menn höfðu gjört
sjer um að fragtin hjeldi áfram svo að
svaraði vöxtum, brugðust algjörlega. —
Það er enginn minsti vafi á því, að þeg-
ar minst verður á árið 1930 í sögu sigl-
inganna, þá er það al-erfiðasta og flókn-
asta árið sem komið hefir í manna minn-
um. — Orsakirnar eru margar og mikil-
vægar. En líti menn nánar á þá einstöku
markaði, og athugi gaumgæfilega hvað
gjörðist árið 1930, þá munu þeir furða
sig á, að það skyldi þó ekki verða enn-
þá verri afkoma — að minsta kosti þeg-
ur um er rætt, hve mörgum skipum var
lagt upp.
í byrjun febrúar var lagt upp 27.445
tons. d. w., sem jókst smám saman, en
þó í sveiflum, fram í september, að kom-
ið var upp í 175.254 tons d. w., og við
iok ársins voru það 150.824 tons. d. w.;
en, því miður, hefir síðan verið lagt upp
ennþá fleiri skipum, og á árinu sem nú
er að líða, hafa bætst svo mörg við, að
mönnum stendur stuggur af.
Burðarmagn Hlutafje Hlutaágóði ágóði pr. b.r.t.
B.R.T. 1000 kr. 1000 kr. kr. 11.4
1929 495.006 73.598 5.664
1930 515.576 72.611 3.383 6.6
Til þess að fá heildartöluyfirlit yfir
rekstursárangur ársins hafa eimskipa-
fjelögin gert neðantaldan samanburð á
árságóða 13 stærstu og þýðingarmestu
eimskipafjelaganna árin 1929 og 1930.
Af þessu má sjá, að ágóðinn 1930
hefir, bæði í hlutfalli við hlutafjeð og
burðarmagn, minkað um ca. helming
á móts við það sem hann var 1929. Mörg
fjelög hafa yfirleitt engan ágóða gefið,