Verslunartíðindi - 01.06.1931, Blaðsíða 17
'VERSLUNARTÍÐINDI
59
En um leið og aflinn hefur aukist, hefur verið
komið á stórfeidum urnbótum, bæði að því er
kælingu og frystingu snertir, umbúnað og flutn-
ing, en nýjar að'erðir til þess að koma ferskum
fiski óskemmdum í hendur neytenda hefur mjög
aukið eftirspurnina, auk þess sem stöðugt er unnið
að þvi að finna upp nýjar aðferðir til að matbúa
fisktegundir á sem fjölbreyttastan hátt. Breytingar
þær sem leitt hafa til þess, að nýjum aðferðum
er beitt við fiskveiðarnar, hafa leitt það af sjer,
að allur fjöldi fiskiskipstjóranna eru nú tiltölulega
ungir menn, þótt enn sjeu nokkrir gamlir sjóhrafn-
ar af gamla skólanum, sem enn sigla sínum gömlu
sætrjám til veiða. Og um sjómannalifið við strend-
ur Nýja Englands, er sömu sögu að segja og við-
ast hvar annarsstaðar, þar sem menn sækja sjó.
Ægir gefur — og tekur. Tuttugu og þrjú fiskiskip
fórust við strendur Nýja Englands 1929, en nítján
í fyrra. (»Ægir«).
Markaðsfrjettir.
Samkvæmt skýrslu Fiskifjelagsins var
fiskafli á öllu landinu 1. ág. 385.995 þur
skpd., en var á sama tíma í fyrra 402.174
skpd. Birgðir voru taldar 1. ág. 317.892
þur skpd., en á sama tíma í fyrra 254.271
skpd.
Verð á stórfiski undanfarið, hefir ver-
ið um kr. 88 pr. skpd., en lítið hefir ver-
ið selt. Hefir ástandið á Spáni ekki breyst
til batnaðar, og pesetinn haldið áfram
að falla. Eru horfurnar því nú all ískyggi-
legar með fisksöluna.
Eitthvað hefir selst af labra fyrir ca.
kr. 60 pr. skpd.
Síðustu skeyti frá Miðjarðarhafslönd-
unum, dags. 30. júlí telja fiskbirgðir í
Barcelona 12000 smál. og verðið þar fyr-
ir 1. flokks fisk 104—110 pes. pr. 50 kg.
Á sama tíma voru fiskbirgðir taldar þess-
ar í Bilbao: 250 smál. af dönskum (fær.)
fiski og 650 smál. af ísl. Verðið var þá
104 pes. pr. 50 kg. fyrir danskan og 101
pes. fyrir ísl. fisk.
í Genúa er markaður talinn slæmur
og verðið heldur niður á við. Eftirspurn
lítil. Verðið var um mánaðarmótin júlí
og ágúst 215 1. pr. 100 kg. fyrir ísl. labra-
dor........, fyrir ísl. þvegin og pressað-
an þorsk 185 1., fyrir ísl. smáan saltfisk
170 1. og fyrir stóran ísl saltfisk 185 1.
Meðalalýsi 1. fl. hefir verið selt á 75
aura pr. kg. og aðrar tegundir hlutfalls-
lega lægra, en salan var lítil.
í ullina hefir ekkert boð komið ennþá.
Yfir höfuð er fátt að segja um sölu á
ísí. afurðum, þar sem saman hefir farið
afar lágt verð og mjög lítil eftirspurn,
og þar við bætist að ekki er útlit fyrir
að neitt birti hjer upp 1 bráðina.
Gengi erlends gjaldeyris.
Reykjavlk •0/7 17/7 24/7 31/7
Pund sterling kr. 22.15 22.15 22.15 22.15
Danskar kr. (100) 121.94 121.94 121.94 121.94
Norskar kr. (100) 122.00 122.00 122.00 122.00
Sænskar kr. (100) 122.21 122.22 122.27 122.18
Dollar .... 4.55V2 4.57V2 4.57Y 1 4.56 V2
Franskir fr. (100) 17.97 18.11 18.05 18.02
Belga (100) 63.63 63.75 63.71 63.72
Svissn. fr. (100) 88.44 88.96 89.09 89.14
Lirur (1C0) 23.96 23.96 24.05 24.00
Pesetar (100) 43.90 43.90 42.37 41.46
Gyllini (100) 183.70 184.55 184.43 184.19
Mörk (100) 108.16 108.13 108.13 108.13
Tjeckosl. kr. (100) 13.54 13.54 13.58 13.57
Kaupmannahöfn 9h »6/7 23/7 30/7
Pund sterling kr. 18.16V2 I8.I6V2 ! 18.16V2 18.16V2
Norskar kr. (100) 100.05 100.05 100.05 100.05
Sænskar kr. (100) 100.22 100.23 100.27 100.16
Dollar .... 3.735/» 3.75 3/s 3.75 >/2 3.743/s
Franskir fr. (100) 14.74 14.85 ' 14.80 14.78
Belga (100) 52.18 52.28 52.25 52.26
Svissn. fr. (100) 72.53 72.95 73.06 73.10
Lírur (100) 19.65 19.65 19.72 19.68
Pesetar (100) 36.00 36.00 34.75 34.00
Gyllini (100) 150.65 151.35 151.25 151.05
Mörk (100) 88.71 88.68 88.68 88.68
Tjeckosl. kr. (100) ’ 11.10 11.10 11.14 11.13