Verslunartíðindi - 01.08.1935, Page 11
VERSLUNARTÍÐINDI
87
kvartaS um „peningaeklu'* í landinu og
gerðar áætlanir, sem dálítið er gaman að
rifja upp. Alvarlegustu tilraunirnar til
bankastofnunar voru gerðar á þingunum
1881 og 1883. Þá voru dunin yfir hin mestu
ósköp eftir ágæiis árferði 1870-80, frosta-
veturinn mikli 1880-81 og mislingasumar-
ið 1882. — En þingdeildirnar gátu ekki
komið sjer saman. Efri deild vildi banka,
cn neðri deild vildi fá veðlánastofnun, og
hafði því hvorug sitt fram.
En á alþingi 1885 leggur stjórnin íram
rækilega undirbúið frumvarp um banka,
og var það samþykt. Helstu drættir í þess-
um upprunalegu Landsbankalögum eru
þessir: Nafn bankans er Landsbanki. Til-
gangur hans er að greiða fyrir peninga-
viðskiftum í landinu og styðja að fram-
förum atvinnuveganna. Landsjóður lánar
bankanum 1/2 miljón króna í seðlum, 50
króna, 10 kr. og 5 kr. seðlum. Eftir 5 ár
greiðir bankinn landsjóði 1% af þessu láni
og leggur 2% í varasjóð. Auk þess leggur
landsjóður fram 10 þús. kr. til stofnkostn-
aðar. Ekki voru seðlarnir innleysanlegir
með gulli, heldur aðeins gegn öðrum seðl-
um og „smápeningum eftir því sem tök
eru á“. Störf bankans eru þessi helst: Að
taka við peningum til ávöxtunar, kaupa og
selja útlenda og innlenda víxla, lána ýms-
ar tegundir lána og annast innheimtu. Úti-
bú átti bankinn að setja sem fyrst, eink-
um á Akureyri, ísafirði og Seyðisfirði.
Þá eru ákvæði um ýmis hlunnindi bank-
anum til handa, um stjórn hans, launakjör
o. s. frv. — Um alt þetta eru svo nánari
ákvæði sett í reglugerð.
Bankinn var þegar í stað töluvert not-
aður. Jafnaðarreikningur hans er 31. des.
1886 kr. 361.286 og við næstu árslok (1887)
Landsbankahúsið nýja.