Verslunartíðindi - 01.08.1935, Blaðsíða 19

Verslunartíðindi - 01.08.1935, Blaðsíða 19
VERSLUNARTÍÐINDI 95 ar var þá ekki á marga fiska, enda var ekki við slíku að búast, því að landsmenn voru þá fyrst að átta sig á, að þeir mættu refsingarlaust reka sín ,eigin verslunar- viðskifti. Árið 1880, eða fimm árum fyrir stbfn- un Landsbankans, voru taldar 78 starf- andi verslanir á landinu. Þar af var meira en helmingur í erlendri eign, er hafði meginhluta verslunarinnar í hendi sjer. Þótt íslensku verslanirnar að tölunni til væri tæpur helmingur, voru það mest smáverslanir, sem hvergi komust í sam- jöfnuð við hinar fjársterku dönsku versl- anir. Þær voru svo grónar í sessi vegna fátæktar og úrræðaleysis Jandsmanna, að ekki vakti það mikla skelfing í herbúð- um þeirra, þótt íslendingar samþyktu lög um stofnun fjevana banka. En hjer fór á annan veg en margir hugðu og umskift- in gerðust á svo skömmum tíma, að sumir danskir kaupmenn eiga ilt með að átta sig á því í dag, að íslendingar þurfi ekki lengur á þeirra milligöngu að halda. Þessi tilraun að innlendum fjármálum var eitt fyrsta og örlagaríkasta skrefið í þeim framförum, sem leitt hafa þjóðina á hálfri öld út úr fásinni, volæði og van- trausti, og gert hana sjálfbjarga með traust á eigin mátt og framtak. Framundir aldamót óx bankanum lítið fiskur um hrygg, en þó vann hinn vakn- andi framkvæmdahugur landsmanna starf sitt í kyrþey. Þótt bankinn á þeim árum gæti ekki beint orðið íslenskri versl- un mikið að liði, fer ekki hjá því, að á- hrifa hans hefir gætt talsvert óbeinlínis. Innflutningsskýrslur frá þessum tíma sýna þetta best og þær eru um leið örugg- ur mælikvarði á vaxandi velmegun lands- manna. Vöruflutningar til landsins 1860—1900 voru sem hjer segir: 1860—1870 meðaltal á ári 14 þús. tonn 1881—1885 1886—1890 1891—1895 1896—1900 ------------36 — — ------------46 — — ------------54 — — Á fyrstu 15 árunum, sem bankinn starf- ar, tvöfaldast vörumagnið, sem flutt er til landsins. Þetta ber og vitni um vaxandi framleiðslu landsmanna, því að öðrum kosti hefði þeim verið um megn að auka svo vörukaup sín frá útlöndum. Það fyrir- brigði gerðist þá á hverju ári, sem nú er sjaldgæft orðið, að útflutningur var tals- vert meiri en innflutningur og „ósýnileg- ar“ greiðslur voru þá lítt þektar. Það fje, sem þannig safnaðist umfram neysluna, skapaði framkvæmdahug bæði í fram- leiðslu og verslun. Eftir aldarnótin fara landsmenn að losa sig úr viðjum dönsku verslananna og hrinda af sjer hinu gamla svefnþorni, að hvergi væri hægt að versla nema í Dan- mörku. Innlendir kaupmenn og kaupfje- lög fóru að gerast skæðir keppinautar erlendu verslananna, sem oft voru stirð- lega reknar og fylgdust ekki með tíman- um. Landsmenn fóru að Jeita sjer sam- banda utan Danmerkur og brátt rís upp stjett innlendra kaupsýslumanna, sem býður vörur frá ýmsum löndum án milli- göngu danslcra kaupmanna og selur af- urðir til útlanda gegn greiðslu í pening- um. Frá öndverðu hafði Landsbankinn yfir litlu fje að ráða, sem sjá má af því, að stofnfje hans árið 1900 er 750 þús. kr. og sparisjóðsfje 1,2 milj. kr. Var því ekki við því að búast, að hann legði mikið fje til verslunarinnar, sem verslunarstjettin íslenska var að berjast við að Icoma und- an erlendum yfirráðum. En aðstaðan í þeirri baráttu breyttist milíið við stofnun Islandsbanka, sem þá gerðist í rauninni aðalbanki landsins. Starfaði Landsbanlc-

x

Verslunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.