Verslunartíðindi - 01.08.1935, Page 24

Verslunartíðindi - 01.08.1935, Page 24
100 VERSLUNARTÍÐINDI lega lítils af veltufje bankans, verður ekki sannað með tölum, því að reikningar bank- ans liggja ekki þannig fyrir, að þeir sýni hvernig skifting lánsfjárins hefir verið milli atvinnuveganna á hverjum tíma, en það er þó rjett að þetta er svona, og laus- leg sundurliðun á lánsfje seðlabankans síð- ustu árin á milli atvinnuveganna sýnir, að einungis ca. 7 % eða um 4 milj. króna koma í hlut landbúnaðarins. Það væri þó mjög rangt að segja, að landbúnaðurinn nyti ekki meira lánstrausts eða lánsfjár hjá Landsbankanum en þetta, því að hjer er aðeins um lánveitingar seðla- bankans að ræða beint til bænda. Auk þess eru þá veðdeildarlánin og þau eru aðallán landbúnaðarins, en engar upplýsingar liggja fyrir um veitingu veðdeildarlána til bænda, nema fyrir 9. og 10. flokk veð- deildarinnar, og nema lántökur bænda úr þeim flokkum út á jarðeignir alls ríflega kr. 856 þús. En þegar þessir flokkar eru opnaðir, þá eru, eins og áður er nefnt, aðr- ar lánastofnanir komnar til sögunnar og síðan eru aðallántökur bændanna hjá þeim. Einnig má líta svo á, að mikill hluti af lánsfje samvinnufjelaganna sjeu í raun- inni lán til landbúnaðarins, því að þeim standa bændur aðallega, og þeirra lán nema 11—12 % af öllu lánsfje seðlabank- ans nú. Rjettari hugmyndir um þýðingu Lands- bankans, og um áhrifin af starfsemi hans á landbúnaðinn, fæst með því að athuga, hverjum stakkaskiftum landbúnaðurinn hefir tekið þau s.l. 50 ár, sem bankinn hefir starfað. Á því tímabili hafa atvinnu- hættir og allir þjóðarhættir tekið þeim hamskiftum og framförum, sem engan dreymdi um fyrirfram. Við það hefir sam- kepnin milli atvinnuveganna harðnað, en hún er í sinni heilbrigðu mynd aflvaki, sem knýr keppendurna til stærri átaka, meiri umhugsunar og nýrra aðferða í atvinnu- lífinu. Og þótt sú samkeppni sje ekki ætíð f járhagslega sigursæl fyrir alla, þá er hún þó þroskandi, og þroski atvinnustjett- anna er þeirra besta vopn í atvinnubar- áttunni. Þegar Landsbankinn tók til starfa, voru landsmenn um 75 þús., og þar af lifðu um 70 % af landbúnaði. Búfjárstofn bænd- anna var þá (meðaltal fyrir árin 1885— 1890) : Sauðfje 400 þús., nautgripir 18,5 þús. og hross 30 þús. Árlegur afrakstur jarðyrkjunnar var á sama tíma: 382 þús. hestar taða, 765 þús. hestar úthey, 5400 tn. kartöflur og 7300 tn. rófur. Þessi var afkomugrundvöllur 7/io hluta þjóðarinnar um þær mundir, sem Landsbankinn var stofnaður, og það liggur í augum uppi, að þá gat ekki verið um annað eða meira að ræða, fyrir þá sem landbúnaðinn stunduðu, en að veita sjer óhjákvæmilegustu nauð- þurftir, enda mátti heita, að athafnalífið alt væri þá spennt í greipar kyrstöðunnar. En, m. a. fyrir áhrifin af starfsemi Lands- bankans, fer nú að votta fyrir nýjum lífs- hræringum hjá þjóðinni, einnig í sveitun- um, þegar lokið er þeirri blóðtöku, sem þjóðin varð fyrir í flutningi stórra hópa fólks til Vesturheims í þeirri óáran, sem hjer var um miðbik síðasta fjórðungs síð- ustu aldar. Til þess að gefa hugmynd um þær breytingar, sem orðið hafa í landbún- aðinum í tíð Landsbankans, skulu hjer sýndar eftirfarandi tölur, sem flestar eru dálítið tilfærðar (avrundet). Mannf jöldi: Ár íbúar í bæjum í sveitum Lifa á landb. tals tals tals % 1890 70900 — — 45700 64,5 1901 78500 — — 39800 50,7 1910 85200 27500 57700 43400 51,2 1920 94700 40500 54200 40600 42,9 1930 109000 59500 49500 39000 35,8 Þessar tölur sýna, að þrátt fyrir fólks- fjölgun í landinu, sem út af fyrir sig sýnir vaxandi afkomumöguleika, fækkar þó

x

Verslunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.