Verslunartíðindi - 01.08.1935, Qupperneq 26

Verslunartíðindi - 01.08.1935, Qupperneq 26
102 VERSLUNARTÍÐINDI Landsbankinn og iðnaðurinn. Eftir Helga H. Eiríksson, skólastjóra. Flestir bankar eru stofnaðir með sjer- stakt markmið fyrir augum. Aðalban'kinn, venjulega þjóðbanki, hefir seðlaútgáfu með höndum og aðalumsjón með peningaveltu landsins. Aðrir bankar eru stofnaðir til þess að styðja einhverja sjerstaka atvinnu- grein eða hafa á hendi sjerstaka tegund viðskifta. Landsbanki íslands hefir jafnan verið aðalbanki íslensku þjóðarinnar. Hann er fyrsti bankinn og var um skeið eini bank- inn. Allan þann tíma hafði hann því það hlutverk á hendi, að vera bæði þjóðbanki og að styðja alla atvinnuvegi þjóðarinnar beinlínis eftir getu og mati forráðamanna bankans. En auk þess hlutverks bankanna, að styðja sjerstaklega einhvern sjerstakan at- vinnuveg, ber þeirn auðvitað að haga út- lánum sínum svo, eftir því sem unt er, að ekkert tapist af fje bankans. En þetta tvent er oft erfitt að samrýma, og hefir reynst svo fyrir íslenska banka sem aðra. Iðnaður hefir hvorki verið mikill nje fjölskrúðugur hjer á landi fram til síð- ustu ára, enda hefir engin peningastofnun hingað til haft það hlutverk á hendi, að veita honum sjerstakan stuðning. Þó hefir hann þurft bæði á stofnfje og rekstursfje að halda eins og aðrir atvinnuvegir, og orðið að fá það hjá lánsstofnunum, bönk- um og sjóðum, auk þess, sem einstaklingar hafa getað lagt fram sjálfir. Aðstaða iðnaðarmanna gagnvart lánveit- enaum hefir verið erfiðari en margra ann- ara að því leyti, að þeir hafa haft lakara veð að bjóða. Þeir, sem ekki áttu fast- eignir, höfðu ekki annað en sjálfvörslu- veð, vjelar og verkfæri, og framleiðslu sína, sem sjaldnast var þannig farið, að hún væri veðhæf. Afleiðingin varð sú, að minna fje var lagt í iðnað, en ýmsa aðra atvinnuvegi, t. d. útgerð og verslun, og þróun hans því hæglátari. Þær greinir iðnaðar, er við húsagerð fást, hafa staðið best að vígi með öflun f jár til framkvæmda, annaðhvort beint eða óbeint. Þeir, sem húsin reistu, hvort sem það voru iðnaðarmennirnir sjálfir eða aðr- ir, höfðu veð að bjóða, sem talið var gott og ávalt var hægt að fá lán út á. Varð það aftur til þess, að þeir, sem að húsunum unnu, gátu fengið vinnu sína greidda greið- ar en annars. Landsbanki Islands hefir frá byrjun og fram til þessa tíma veitt þessum greinum Landverð jarða ................. kr. 26.971.000 Húsaverð í sveitum ............... — 19.731.000 Samtals........ kr. 46.702.000 Umbætur síðustu 10 ára eru þá ekki metnar sjerstaklega, en þær koma óbein- línis fram í hækkuðu mati lands og húsa, og í heildinni hefir fasteignamat í sveitum hækkað um ríflega 14 miljónir króna á þeim tíma, sem leið á milli þessara tveggja mata. Þær framfarir, sem hjer er drepið á, eru vitanlega ekki allar Landsbankanum að þakka beinlínis, en óbeinlínis má þó rekja margar þeirra að meira eða minna leyti til starfsemi hans og þeirra áhrifa, sem hann hefir haft á atvinnulíf þjóðarinnar í heild.

x

Verslunartíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.