Verslunartíðindi - 01.08.1935, Page 27

Verslunartíðindi - 01.08.1935, Page 27
VERSLUNARTÍÐINDI 103 iðnaðarstarfsemi í landinu mjög mikils- verðan stuðning, fyrst með almennum bankalánum og síðan með veðdeildarlánum, eftir að hún var stofnuð. Fasteignaveðlán bankans, frá því að hann var stofnaður 1886 og þangað til veðdeildin var stofnuð árið 1900, námu sem hjer segir: 1886 (1. júlí til 31. des.) .... kr. 289.430.00 1887 ...........................— 159.885.00 1888 ...........................— 104.028.30 1889 ...........................— 39.052.42 1890 ...........................— 69.436.00 1891 ...........................— 148.831.00 1892 ...........................— 111.300.00 1893 ...........................— 151.884.00 1894 ...........................— 120.584.43 1895 ...........................— 136.386.58 1896 ...........................— 166.356.00 1897 ...........................— 255.141.00 1898 ...........................— 190.500.00 1899 ...........................— 135.572.00. Samtals........ kr. 2.078.386.00 eða að meðaltali 148.456 kr. á ári í þessi 14 ár. Meiri hluti þessa fjár mun hafa far- ið til húsagerðar. Veðdeildin var stofnuð árið 1900 fyrir forgöngu sjera Eiríks Briem, og hafa ver- ið gefnir út af henni 10 flokkar. Samkvæmt skýrslu Landsbankans fyrir 1934 hafa alls verið veitt úr veðdeild 6939 lán, að upphæð kr. 35.530.400, frá því að veðdeild tók til starfa 20. júlí 1900 til ársloka 1934. Og þótt veðdeildin hafi lánað nokkuð út á jarðir, þá hefir megnið af þessu fje farið til ýmiskonar byggingastarfsemi. En auk þessa hefir bankinn lánað til ým- iskonar iðnaðarstarfsemi frá byrjun, þeg- ar viðunandi veð var í boði, og á þann hátt stutt að þróun iðnaðar í landinu. Það má því segja, að stofnun og starf- semi bankans hafi verið mikilsverður stuðningur iðnaði í landinu, og einkum í Reykjavík, með þeirri starfsemi sinni. Fasteignaveðlán Landsbankans til húsa- gerðar, bæði bankans sjálfs og veðdeildar- innar, eftir að hún var stofnuð, hafa tví- þætt gildi. I fyrsta lagi hafa þau gert kleift að byggja kauptún og kaupstaði landsins. Hýbýlabætur á íslandi hafa verið mestar síðan Landsbankinn tók til starfa, og þótt aðrar peningastofnanir eigi sinn drjúga þátt þar í tvo síðustu áratugina, þá hefir Landsbankinn komið skriðunni af stað og ýtt vel á eftir. Sjest það meðal annars á því, að enn þá á veðdeildin 3842 lán úti, að upphæð samtals um 24 miljónir. Mörg hinna snotru, veglegu húsa, er risið hafa upp síðustu árin víðsvegar um land- ið, og sjerstaklega í Reykjavík, væru ó- bygð án hennar. Fjöldi íslendinga, sem nú býr í sæmilegum húsakynnum, mundi enn þá verða að sætta sig við gömlu og ljelegu hýbýlin, ef þessi lánastarfsemi hefði ekki komist á fót. Starf bankans hefir að þessu leyti haft bæði heilsufræðilegt og menningarlegt gildi. Hin hliðin á þessu máli er sú, að í sam- bandi við byggingastarfsemina og sem af- leiðing af henni, hafa risið upp ýmsar fleiri iðngreinir og sumar náð miklum þroska. Má þar til nefna húsgagnasmíði, hús- gagnabólstrun, trjeskurð, gipssteypu og margt fleira, eða næstum því alla iðnstarf- semi, er til heimilisþarfa heyrir. Hefir veð- lánastarfsemi bankans þannig beinlínis og óbeinlínis ýtt undir þróun víðtækrar iðn- aðarstarfsemi, sem annars hefði átt litla tilverumöguleika hjer á landi. En okkar ungi iðnaður hvílir á fleiri stoðum en þeim, sem að framan eru nefnd- ar. Allmikil iðnaðarstarfsemi og fjölmenn er nátengd útgerðinni og á tilveru sína og þróun undir velgengni hennar. Skipa- og bátasmíði, járn- og vjelsmíði, netagerð og veiðarfæra, seglasaumur og margt fleira er beint háð útgerðinni, og allur iðnaður nýtur góðs af því fjármagni, sem hún veit- ir inn í landið. Stuðningur Landsban'kans við útgerð landsmanna, fyrst meðan hann

x

Verslunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.