Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.6. 2018
Hver er staðan á kennarastöðu?
Færri sækja í kennaranám enáður, en í skýrslu ríkisendur-skoðanda frá 2017 kemur
fram að nýnemum í kennaranámi við
Háskóla Íslands og Háskólann á
Akureyri fækkaði um meira en
helming á tímabilinu 2009-2016. Auk
þess sem skortur er á nýjum kenn-
urum vinna margir lærðir kennarar
við önnur störf, sem bendir til að
starfskjörin séu ekki eftirsóknar-
verð og að auknar brautskráningar
dugi ekki til að leysa vandann.
Stéttin eldist
Anna María Gunnarsdóttir, varafor-
maður Kennarafélags Íslands, segir
að álag í störfum kennara hafi aukist
mjög síðustu ár. „Kennarastéttin er
að eldast, nýliðun er lítil og þeir sem
ljúka kennaranámi fara ekki í
kennslu eða hverfa til annarra starfa
á fyrstu árum í starfi,“ segir hún.
„Því miður sækja ekki margir í
kennaranám en þó höfum við vís-
bendingar um að málin séu að þok-
ast í rétta átt og voru til dæmis
helmingi fleiri sem sóttu í kenn-
aranám við Háskólann á Akureyri í
ár en í fyrra.“
Anna segir meðalaldur kennara
fara hækkandi. „Hæstur er með-
alaldur kennara í Félagi framhalds-
skólakennara eða 51 ár. Hann er
litlu lægri í Félagi tónlistarskóla-
kennara eða 49 ár og í Félagi grunn-
skólakennara er hann 47 ár og 43,5
ár í Félagi leikskólakennara. Í
stjórnendafélögunum er meðalaldur
hærri eða 52-53 ár.“
Launatengdar ástæður
Anna telur meginástæðu þess að illa
gæti gengið að ráða í störf vera
launatengda. „Starfið er mjög gjöf-
ult en krefjandi og álag jókst gríð-
arlega eftir hrun, þegar dregið var
úr fjárveitingum til skóla. Hvað leik-
skólastigið varðar eru ástæður þar
dálítið sérstakar. Sveitarfélögin
keppast við að veita þjónustu sem
þau hafa ekki efni á. Börn fá skóla-
vist í leikskólum sífellt yngri og
langt er frá því að lög um að tveir
þriðju hlutar starfsfólks á leik-
skólum séu leikskólakennarar séu
uppfyllt.“
Skólinn er lífkerfi
Anna telur að margt þurfi að gera til
að ástandið batni. „Stjórnvöld þurfa
að ákveða að menntun sé mikilvæg
og það er mikilvægasta verkefni
samfélagsins að búa vel að komandi
kynslóðum og sjá þeim fyrir góðri
menntun. Ef slíkt á að nást þarf að
sameinast um að vinnustaður barna
og unglinga skipti máli og bæði þarf
að búa vel að þeim og kennurunum
sem leiða þá áfram á þroskabraut-
inni. Það er ekki einungis líf eftir
skóla – í skólunum sjálfum er heilt
lífkerfi. Á hverju skólastigi þroskast
nemandi, lærir, skapar og tekur þátt
í lífinu á sínum eigin forsendum með
þátttöku í innihaldsríku skólastarfi.
Til að ástandið batni þurfum við
hvort sem við erum kennarar,
stjórnvöld eða fólkið í landinu að
sameinast um frábært skólastarf.
Gæði skólastarfs verða nákvæmlega
jafn mikil og við viljum. Kennara-
starfið er flókið og því fylgir mikið
álag. Til að laða ungt fólk til kenn-
aranáms þarf að meta það að verð-
leikum, ekki bara með fögrum orð-
um heldur aðgerðum.
Allir foreldrar vilja að börnin
þeirra hafi góða kennara, vilja for-
eldrar að börnin þeirra verði kenn-
arar? Þessari spurningu þarf sam-
félagið að svara.“
Upplifanir skólastjóra
Skólastjórar upplifa stöðuna á mis-
jafnan hátt. „Við upplifum að það sé
skortur á fólki með leyfisbréf til
kennslu á grunnskólastigi. Þetta er
ekkert sem kemur á óvart,“ segir
Þorsteinn Sæberg, formaður Skóla-
stjórafélagsins og skólastjóri í Ár-
bæjarskóla. „Við höfum búist við því
að það kæmi viðvarandi kennara-
skortur og það er nú raunin. Það er
engin ein ástæða að baki skortinum,
heldur eru þær margar og samverk-
andi,“ segir hann. „Það eru of fáir
sem útskrifast, kennarar hafa horfið
til annarra starfa í samfélaginu og á
meðan nýliðun er lítil í stéttinni þá
eldist hún.“
Þorsteinn telur ekki að það sé
mikill munur á höfuðborgarsvæðinu
og landsbyggðinni þegar kemur að
þessum vanda. „Það eru til dæmi um
skóla þar sem ekki er kennara-
skortur, en almennt yfir landið er
skortur á kennurum með leyfisbréf.“
Sigríður Anna Guðjónsdóttir,
skólastjóri í Ísaksskóla, segir að þar
sé ráðið í allar stöður. „Hér vantar
engan og enginn að hætta,“ segir
Sigríður. Við höldum áfram að fá
mjög góðar umsóknir til okkar.“
Magnús Jón Magnússon, skóla-
stjóri í Barnaskólanum á Eyrar-
bakka og Stokkseyri, segir að þar
hafi gengið vel að ráða í auglýstar
stöður og að margar umsóknir hafi
borist. „Við óttuðumst að þessum
umsóknum myndi fækka þegar óvíst
var um kjaramál kennara, en við í
Árborg urðum ekki vör við það.
Þessi fækkun mun líklega koma að-
eins seinna,“ segir Magnús. „Und-
anfarin tvö ár hafa margir kennarar
farið úr kennslu og í ferðaþjón-
ustuna, en þegar samdráttur verður
þar þá munu þeir líklega koma til
baka.“
Krafa um lágmarks-
fjölda leikskólakennara
á enn langt í land.
Morgunblaðið/Hari
Mikil fækkun brautskráninga í kennaranámi og flutningur kennara í önnur störf samfélagsins
undanfarin ár eru meðal ástæðna þess að illa getur gengið að ráða í stöður kennara og leiðbeinenda.
Samkvæmt lögum eiga tveir af
hverjum þremur starfs-
mönnum leikskóla að vera leik-
skólakennarar, en í dag er innan
við þriðjungur starfsfólks í leik-
skólum Reykjavíkur með leyf-
isbréf sem leikskólakennarar.
Í skýrslu frá skóla- og frí-
stundasviði kemur fram að
meðlimir í Félagi leikskólakenn-
ara og Félagi stjórnenda leik-
skóla séu um tvöþúsund, en það
vanti yfir 1.600 leikskólakenn-
ara til að uppfylla kröfuna. Árið
2017 gáfu Menntamálastofnun
og Háskólarnir út samtals 41
leyfisbréf leikskólakennara.
Stór hluti handhafa leyfisbréfa
leikskólakennara starfar ekki á
leikskóla, en um 3.200 leyfisbréf
hafa verið gefin út frá árinu
2009 þegar nám í leikskóla-
kennarafræðum fór á há-
skólastig.
Skortur á leik-
skólakennurum
’
Mér hefur ætíð þótt það undarlegt að í endalausum um-
ræðum okkar um menntun sé svo lítil áhersla lögð á ánægjuna
sem hlýst af því að verða menntuð manneskja, hversu áhugavert
hún gerir líf okkar. Edith Hamilton
INNLENT
ARNAR TÓMAS VALGEIRSSON
arnart@mbl.is